Lögberg - 26.06.1952, Blaðsíða 2

Lögberg - 26.06.1952, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 26. JÚNI, 1952 Fréttir fré íslandi 19. JÚNÍ 1952 Þær íréttir, sem hér fara á eftir. eru afrit af siuitbylgju- úivarpi, sem ríkisúivarpið sendi íslendingum erlendis á sunnudaginn þann 15. þ. m., og lætur íslenzku vikublöðun- um vestra í té til birtingar. Frétiir þessar innibinda einnig frásögn af hátíðahöldunum 17. júní. Ríkisútvarpinu skal hér með þökkuð sú góðvild, er þessi kærkomna sending ber vitni um. —Rilsij. í maímánuði s.l. varð vöru- skiptajöfnuðurinn við ’útlönd ó- hagstæður um 56,4 miljónir króna. Inn voru fluttar vörur fyrir 102 miljónir en út íyrir 45,6 miljónir króna. Fyrstu fimm mánuði þessa árs er þá vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um 151,2 miljónir króna, út hef- ir verið flutt fyrir 229,3 miljónir, en inn fyrir 380,5 miljónir. Um sama leyti í fyrra var vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um 52,5 miljónir króna. ☆ Síldarútvegsnefnd hefir samið um sölu á 186.000 tunnum af Norðurlandssíld þeirri, sem veið-. ist í sumar, til Svíþjóðar, Finn- lands, Danmerkur og Banda- ríkjanna, og kaupa Svíar lang- samlega mest, eða 111.000 tunn- ur. Ennfremur hefir orðið sam- komu lag við Pólverja um sölu þangað á 50.000 tunnum af síld, þar af 20.000 tunnur Faxasíld, en þar sem pólsk yfirvöld hafa eigi staðfest greiðslufyrirkomu- lag, sem um var samið í verzl- unarsamningi Póllands og ís- lands, er enn óvissa um viðskipti milli landanna. Hærra verð verð- ur greitt fyrir síld til söltunar en í fyrra, eða 157 krónur 68 aurar fyrir uppsaltaða tunnu, og 116 krónur og 64 aurar fyrir uppmælda tunnu. ☆ Fiskaflinn í aprílmánuði varð samtals 60.000 lestir eða um 32.000 lestum meiri en í apríl- mánuði í fyrra. Heildaraflinn fyrstu fjóra mánuði þessa árs varð rúmlega 141.000 lestir, og voru frystar af því magni 62.000 lestir, saltaðar 46.000, til herzlu fóru 11.000 lestir, og ísað- ur fiskur var 20.500 lestir. ☆ Aðalfundur Eimskipafélags ís- lands var haldinn fyrra laugar- dag (7. þ. m.). Samkvæmt skýrslu félagsstjórnar nam hagnaður af rekstrinum á s.I. ári tæplega 2.900.000 krónum og höfðu þá verið færðar rúmlega 9.600.000 krónur til frádráttar á bókuðu eignarverði eigna félagsins. Af- skrifað hefir verið að undan- förnu um 20% árlega af upphaf- legu andvirði hinna nýju skipa félagsins. Hagnaður á rekstri eigin skipa varð á árinu 14,3 miljónir króna, en á leiguskipum varð um 300.000 króna tap. Eigin skip félagsins fóru 66 ferðir milli landa og 33 hér við land, en leiguskip 25 ferðir milli landa og fjórar hér við land. Skip þessi fluttu öll rúmlega 212.000 lestir af vörum, þar af eigin skip fé- lagsins nær því 88%. — Félagið á nú 8 skip og hefir tvö í smíð- um hjá Burmeister og Wain, og þegar þau bætast í hópinn verð- ur skipastóll félagsins samtals um 26.000 lestir. Samkvæmt efnahagsreikningi, námu eignir Eimskipafélags íslands um ára- mót rúmlega 100 miljónum króna, en skuldir að meðtöldu hlutafé, sem er tæpar tvær mil- jónir, um 34 miljónum, svo að skuldlaus eign þess er 66 mil- jónir króna. Samþykkt- var að greiða hluthöfum 4% arð fyrir árið 1951. — Stjórnin er óbreytt að því undanskildu, að Birgir Kjarnan kom í stað Guðmundar Ásbjörnssonar, sem lézt í vetur. ☆ Á aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, er nýlega var haldinn í Reykjavík, var skýrt frá því, að heildarframleiðsla hraðfrystihúsanna á þessu ári væri orðin meira en 15.000 lestir, og er það 3000 lestum meira en á sama tíma í fyrra. Um þriðj- ungur þe9sa fiskmagns er þegar seldur og kominn á markað. Viðskiptafulltrúar sölumiðstöðv- arinnar telja góðar söluhorfur í Bandaríkjunum, og líkindi að meira verði selt þangað en í fyrra. Hins vegar eru ýmsir erf- iðleikar á sölu til meginlands Evrópu. Samkvæmt skýrslu um heild- arútgjöld sjúkrasamlaga lands- ins urðu þau rúmlega 23 milj- ónir króna árið 1950. Læknis- hjálp er hæsti kostnaðarliður- inn, og nam réttum þriðjungi heildarútgjalda á árunum 1947 til 1950. Sjúkrahússkostnaður er næst hæsti útgjaldaliðurinn eða um 27% af heildarútgjöldunum, og myndi sá liður þó hafa verið hærri, ef sjúkrahúsin í Reykja- vík hefðu getað tekið á móti öll- um, sem óskað hafa að dveljast þar, eða þarfnast hafa sjúkra- hússvistar. Lyfjakostnaður varð þriðji hæsti útgjaldaliður sjúkra samlaganna á þessum fjórum árum eða 26,2% af heildarút- gjíldunum, og er það ótrúlega mikill lyfjakostnaður í hlutfalli við sjúkrahúsakostnaðinn. ☆ í dag (sunnudaginn 15. þ. m.) var opnað byggðasafn í gamla bænum í Glaumbæ í Skagafirði, en bær sá er ríkiseign og einn þeirra gömlu torfbæja, sem á- formað er að reyna að varðveita. Skagfirðingar hafa safnað þjóð- minjum í héraðinu af miklum áhuga, og hefir Ragnar Ásgeirs- son ráðunautur unnið að því að koma safngripunum fyrir í Glaumbæ. Baðstofnan, sem er mjög stór, er nú fullskipuð orðin þeim munum, sem þar eiga að vera, og mun vart annars staðar kostur að sjá sannara og mynd- arlegra dæmi um íslenzka bað- stofu. ☆ Jarðabótastyrkur árið 1951 nam tæpum sex miljónum króna. Jarðabótamenn voru 4255 á árinu og langmest greitt í styrk fyrir nýrækt, en hún nam á árinu 2469 hekturum lands. Árnesingar unnu til nálega sjötta hluta jarðabótastyrksins, og nýrækt þeirra á árinu nemur samtals 573 hekturum. Prófessor Gunnar Mýrdal, framkvæmda- stjóri Efnahagsnpfndar Samein- uðu þjóðanna fyrir Evrópu, er staddur hér á landi og mun dveljast hér til þriðjudags (17. þ. m.). Annað kvöld (mánudag 16.) flytur hann erindi í háskól- anum á vegum Félags Samein- uðu þjóðanna hér. ☆ í fyrradag (13. þ. m.) hófst í Háskóla íslands námskeið í ís- lenzku fyrir norræna stúdenta og eru þátttakendur 23, frá Dan- mörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Kennsla í íslenzku fer fram hvern virkan dag til 11. júní, en auk þess eru fyrirlestr- ar haldnir um ýmis efni. ☆ Prófessor Didrik Arup Seip kom til Reykjavíkur í fyrrakvöld (13. þ. m.) í boði Háskóla íslands og heldur tvo fyrirlestra í há- skólanum. ☆ Skagfirðingafélagið á Akur- eyri hefir hafið fjársöfnun til að reisa Bólu-Hjálmari minnis- varða, og hafa þeir Valdimar bóndi á Bólu og Guðmundur sonur hans gefið land undir skógarlund og minnisfarðann. ☆ Búnaðarsamband Suðurlands hefir tekið jörðina Laugardæli á leigu og stofnar þar tilraunabú í nautgriparækt. Bústjóri er ráð- inn þar Þórarinn Sigurjónsson frá Pétursey, en yfirumsjón til- raunanna hefir Hjalti Gestsson búfjárræktarráðunautur sam- bandsins. ☆ Brúðuheimilið eftir Ibsen hef- ir verið leikið að undanförnu í Þjóðleikhúsinu og leikur norska leikkonan Tore Segelcke þar aðalhlutverkið og stjórnar jafn- framt leiknum. Aðgöngumiðar hafa selst upp á stuttri stund á hverja sýningu. Þjóðleikhúsið mun sýna leik þennan á Akur- eyri. ☆ Nýlega var haldinn aðalfundur Bandalags íslenzkra leikfélaga. Félög í bandalaginu hafa sýnt 50 stór leikrjt -á árinu, en auk þess hefir bandalagið útvegað ýmsum aðilum smá leikþætti. Það hefir útvegað nauðsynlegar vörur til leikstarfsemi, séð um prentun á leikskrám og útvegað mörgum félaganna leiðbein- endur. ☆ 25 hljóðfæraleikarar úr Fil- harmonisku hljómsveitinni í Hamborg komu hingað fyrir nokkru á vegum Tónlistarfélags- ins í Reykjavík og hafa haldið tónleika í Reykjavík og Hafnar- firði og leikið tvisvar með Sin fóníuhljómsveitinni. Hið fyrra skiptið léku hljómsveitirnar saman á þriðjudagskvöldið 1 Þjóðleikhúsinu undir stjórn Olav Kiellands, og fluttu m. a. sinfoníu nr. 4 eftir Brahms. Þarna léku saman rúmlega 70 manns, og er það stærsta hljóm- sveitin, sem nokkru sinni hefir leikið hér á landi. Áheyrendur fögnuðu mjög hljómsveitinni og hljómsveitarstjóra, og Björn Ólafsson menntamálaráðherra flutti ávarp að hljómleikunnum loknum og kvað hér hafa gerzt mikinn viðburð í tónlistarsögu landsins. — Þýzku hljóðfæra- leikararnir fóru héðan 1 gær (laugardaginn 14. þ, m.). ☆ Iþróttasamband Islands á 40 ára afmæli á þessu ári og efnir í því tilefni til íþróttamóts Reykjavík um næstu helgi (21. /til 23. þ. m.). Á því móti verður Islandsglíman glímnd. — ☆ Flokkur knattspyrnumanna frá Akranesi lagði af stað til Noregs í fyrradag (13. þ. m.) og keppir þar sex sinnum við norsk knattspyrnufélög. ☆ Hinn 26. þ. m. kemur sveit knattspyrnujnanna frá Rínar- löndum til Reykjavíkur í boði knattspyrnufélagsins Fram og keppir fjórum sinnum í Reykja- vík. ☆ Hinn 17. júní, þjóðhátíðardag íslendinga, var veður hið feg- ursta á Vestur- og Suðurlandi, en á Austur- og Norðurlandi var kalsaveður og austur á Fljóts- dalshéraði var víðast alhvítt að kvöldi 16. júní. í Reykjavík setti veðrið að sjálfsögðu svip sinn á þjóðhátíðina, bærinn var allur fánum skreyttur og geysimikill manngrúi var á öllum útisam- komunum. — Laust eftir há- degið hófust skrúðgöngur úr Austurbænum og Vesturbænum og safnaðist mannfjöldinn um- hverfis Austurvöll og hlýddi messu frá Dómkirkjunni. — Handhafar valds forseta íslands lögðu blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli, Fjallkonan flutti ávarp og Stein- grímur Steinþórsson forsætis- ráðherra flutti ræðu. Hann minntist þess, að landnáms- mennirnir hefðu ekki hrifsað þetta land til sín af öðrum, held- ur byggt það ónumið og sú stað- reynd veitti íslendingum a. m. k. siðferðilegan styrk til að krefj- ast óskoraðs réttar til landsins. Ráðherrann lagði megináherzlu á hina gömlu, íslenzku menn- ingu, taldi tunguna og bók- menntirnar hornsteina þeirrar menningar og líftaugar íslenzks þjóðernis, og hvað sem framtíð- in bæri í skauti sér væri íslend- ingum lífsnauðsyn að byggja á þeirri undirstöðu. — Um daginn var síðan íþróttamót á íþrótta- vellinum og um kvöldið var úti- samkoma á Arnarhólstúni. — Þar sungu karlakórar, lúðra- sveitir léku, Einar Kristjánsson óperusöngvari söng og sýndir voru þjóðdansar. — Gunnar Thoroddsen borgarstjóri flutti ræðu og lagði áherzlu á lýðræð- ið, nauðsyn þess að meirihluti traðki ekki á rétti minnihlutans og að hverjum manni bæri jafn- an að hafa í huga: ísland allt og alþjóðarheill. Síðan söng þjóð- kórinn og að lokum var dansað á þremur stöðum í Miðbænum á bjartri sumarnóttunni. Þjóðhátíðisdagurinn var há- tíðlegur haldinn um land allt, en víða norðan og austan lands urðu hátíðahöldin að fara fram innan dyra, vegna veðurs. — Framhald á bls. 3 17. júní á Mountain, N. Dak. Nú um nokkur undanfarin ár hefir deildin Báran haft fyrir reglu að efna til samkomu þennan dag, sem er lýðveldis- dagur íslands og haldinn hátíð- legur um alt land, líkt og 4. júlí hér hjá okkur, sem búum í Bandaríkj unum. Framkvæmdarnefnd Bárunn- ar, eða réttara sagt menn úr þeirri nefnd fóru þess á leit við mig, að ég skrifaði nokkrar lín- ur um það, sem haft var til skemtunar þennan áminsta dag. Ég neitaði þessu fyrst og sagði þeim, eins og satt var, að ég hefði lítinn tíma og enn minni æfingu í því að skrifa í blöð, en það er ekki við lambið að leika sér — þessir karlar voru nú ekki á því að láta hlut sinn strax, svo niðurstaðan varð sú, að ég lof- aðist til að senda Lögbergi og heimskringlu nokkrar línur. Ef eitthvað fer afsíðis í þessum pistli geta nefndarmenn engum kent um nema sjálfum sér, og getur það þá jafnframt verið viðvörun til þeirra um að velja betur næsta sinn. Auglýst hafði verið að þetta yrði útiskemtun, en vegna þess að menn óttuðust storm, sem við höfum haft nóg af þessa daga, var horfið frá því. Jónína Kristín Jóhannesson Hún var fædd 29. júní 1866 að Stóra-Langadal á Skógar- strönd í Snæfellsnessýslu. For- eldrar hennar voru Kristján Jónsson, bóndi þar, og Valgerð- ur kona hans. Mun hún hafa dvalið með foreldrum sínum bernsku- og æskuárin, þar til hún fluttist til Winnipeg, árið 1893. Tók hún þá fyrir að læra kjólasaum hjá frú nokkurri að nafni B. Bert, sem talin var mjög vel að sér í þeirri iðn. Sýnir þetta fyrirhyggju hennar og dugnað, enda mun það hafa komið sér vel fyrir hana síðar að geta gripið til slíkra verka, er hún varð sjálf aðal fyrirvinna heimilis síns og bana. Árið 1898 giftist hún Marteini Ólafi Jó- hannessyni frá Dunastöðum í Laxárdal í Dalasýslu. Þau voru 14 ár í farsælu hjónabandi, eða unz hann lézt árið 1812. Þungan skugga bar þó á sambúð þessara góðu hjóna síðustu fjögur árin, er hann var heilsulaus, og síðan rúmfastur að mestu. En Jónína lét aldrei skugga lífsins ógna séri Mann sinn stundaði hún í löngu sjúkdómsstríði hans með frábærri elju og ástríki, en hafði þó jafnframt fyrir tveimur ung- um börnum þeirra að sjá. Allan verutíma sinn í Winnipeg var hún trúr meðlimur Fyrstu lút- ersku kirkju, og síðustu fimmtán æviárin, alt þar til heilsu henn- ar þraut, var hún einnig starf- andi í kvenfélagi safnaðarins. Lagði hún sig alla fram í þjón- ustu þessara félagsmála, og naut þá einnig maklegrar virðingar og vinsælda samstarfskvenna sinna. Ásamt mörgum öðrum konum félagsins lagði hún mikð á sig við sauma og önnur störf í þágu Rauða Krossins á stríðs- árunum. Hún var heilsuhraust lengst af ævinnar; á síðari árum varð Jónína Kristín Jóhannesson hún þó fyrir líkamlegum áföll- um, og loks bilaði heilsan með öllu. Þá var það hið mikla lán hennar að fá að uppskera eins og hún hafði sáð, — kærleika og frábæra umönnun dóttur sinnar og tengdasonar. Höfðu þær, Mar- grét, einkadóttir hennar og hún, aldrei skilist að, og þá fyrst er sjúkdómur gömlu konunnar elnaði svo að ekki varð lengur viðvært á heimli dótturinnar, var hún flutt á spítala þar sem hún dó nokkrum dögum síðar, 10. febr. s.l. Jónína lætur eftir sig dóttur- ina, sem fyrr getur, Margréti, (Mrs. C. W. Ross) i Winnipeg, og son, Walter að nafni, í Port Arthur, Ont, og einn sonar son. Einnig mun hún eiga tvær há- aldraðar systur í Stykkishólmi, Júlíönu og Valgerði Kristjáns- dætur. Jarðarförin fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg, 13. febrúar, og var mjög fjölmenn. Var hún svo lögð til hinztu hvíldar við hlið manni sínum í Brookside grafreit. —V. J. E. Forseti deildarinnar, H. I. Hjaltalín, setti þetta skemtimót með stuttu ávarpi. Séra Fáfnis stýrði því, sem á dagskrá var. Sungin voru ættjarðarljóð Is- lands og Bandaríkjanna. Bæjar- stjóri, M. F. Björnson bauð alla velkomna. Forseti gat þess, að við hefð- um oft verið lánsöm með það að fá góða ræðumenn og svo væri einnig nú, þar sem Prófessor Finnbogi Guðmundsson, Winni- peg, Man., væri staddur hér sem gestur og myndi flytja aðra aðal- raéðuna. Prófessor Guðmundsson talaði undur fallega og hefir að vonum ágætt vald á tungu þjóð- ar sinnar. Ekki veit ég hvort ræða hans kemur í blöðunirm, en óskandi er að svo yrði. Ég held að óhætt sé að segja, að þessi ungi vel mentaði Islend- ingur hafi með komu sinni og viðkynning, þó stutt væri, heill- Framhald á bls. 8 Minningarorð Mrs. Guðrún Finnsson andað- ist að heimili sínu á Gimli, Man., þann 9. júní árdegis eftir stutta rúmlegu. Hún var fædd að Vakurstöðum í Vopnafirði, 22. maí 1875, dóttir Gríms Gríms- sonar er þar bjó og konu hans Aldísar Jósefsdóttur. Þann 12. nóvember 1896 giftist hún eftirlifandi eiginmanni sín- um, Guðjóni Finnssyni, ættuð- um af Austurlandi, en uppöld- um á Jökuldal. Hún kom vestur um haf árið 1904 með unga sonu þeirra, en maður hennar kom ári síðar. Þau settust að við River- ton, Man., en fluttu þaðan til Howardville og bjuggu þar. Þau dvöldu 4 Gimli um eins árs bil, en fluttu til Selkirk um 1921 og áttu þar heima til ársins 1949, er þau fluttu til Gimli. Börn þeirra eru: Jón, er dó barn að aldri; Grímur, Wynyard, Sask.; Einar Aðalsteinn, Pione- er, B.C.; Kristján, er drukknaði á Winnipegvatni 1939; Oscar Eggert, Little Bullhead, Lake Winnipeg; Grímur Ólafur Pá, White Rock, B.C., kvæntur Betty Pierce; Finnur, Selkirk, kvæntur Josephine McCroe; Friðrikka, hjúkrunarkona að méntun, gift Dr. Rolfe Hovde, Winthrop, Minn., U.S.A.; Jón Friðfinnur, kv. Ednu Green, lézt 1 námuslysi í Flin Flon, Man., í ágústmánuði 1950. Barnabörn Finnssons hjónanna eru 5 á lífi. Finnssons hjónin börðust drengilegri lífsbaráttu undir örðugum kringumstæðum og lögðu ítrustu krafta fram í þágu lífsskyldunnar. Börn þeirra voru á margan hátt góðir hjálpendur þeirra. Fjórir synir þeirra þjón- uðu í síðara heimsstríðinu. Það var þreytt móðir er hér öðlaðist hinztu hvíld, að afloknu erfiði ævidagsins, leystu af hendi sem bezt hún mátti. Hún var koma hjálpsöm og höfðing- lunduð, enda framar en efni stóðu til. Útförin fór fram frá heimil- inu og kirkju Gimlisafnaðar þann 13. júní. Undirritaður þjónaði við útförina í sjúkdóms- forföllum sóknarprestsins. S. Ólafsson OVER THE PARTY LINE__________BY M.T.S. MAS — MAS — MAS — Ég get ALDREI náð sambandi!" Sýnið nærgætni, er þér notið hinn sameiginlega símþróð! 92—8

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.