Lögberg - 26.06.1952, Page 3
LOGBERG. FIMTUDAGINN, 26. JÚNÍ, 1952
3
Sigurborg (Sigurðardóttir) Hallgrímsson
Fædd 10. desember 1889
Dáin 4. ágúst 1949
„Mörg látlaus æfi lífsglaum fjær
sér leynir einatt góð og fögur;
en guði er hún alt eins kær
þó engar fari af henni sögur.“
Þessi merka kona sást ekki
daglega á ræðupöllum eða í ráð-
legginganefndum; hún skipaði
engin há embætti; hún var ekki
hálærð í æðri skólum; hún var
ekki stórauðug að fé; hún barst
ekki mikið á í nokkrum skiln-
ingi. En hún var merk kona eigi
að síður.
Sigurborg Hallgrímson var
fædd 10. desember 1889 að
'Ljótarstöðum í Skaftártungu í
Skaftafellssýslu. Foreldrar henn-
ar voru þau Sigurður Sigurðs-
son bóndi þar og Þórunn Hjálm-
arsdóttir kona hans. Þórunn var
ljósmóðir í héraðinu.
Sigurborg ólst upp hjá foreldr-
um sínum þangað til hún var
tvítug, þá fluttist hún til Reykja-
víkur. Þar stundaði hún nám
við kennaraskóla nokkurn tíma.
Skólanámið átti vel við hana.
Hún var flugnæm og fljót að
læra; en að öðru leyti stóð hún
ekki vel að vígi við námið: Hún
varð að vinna jafnframt því
bæði fyrir viðurværi, skólagjaldi
og öðrum kostnaði, sem því
fylgdi. Þannig hélt hún náminu
áfram í tvö ár. Varð sá tími
henni að miklu liði sem undir-
staða undir þá sjálfmentun, sem
henni tókst að afla sér síðar.
Hún dáðist oft að því, hvílíkur
ágætis kennari séra Kjartan
Helgason hefði verið.
Árið 1911 flutti hún til Vest-
urheims, settist að í Winnipeg
og vann þar við saumavinnu í
fjögur ár. í þrjú ár stundaði
hún nám í kveldskóla samhliða
vinnunni, og lagði sérstaklega
stund á enskunám.
Fyrsta febrúar 1916 giftist hún
eftirlifandi manni sínum, Bæring
Hallgrímssyni, sem þá átti heima
að Kandahar í Saskatchewan.
Það sama ár fluttu þau í ný-
lendu, sem þá var að byggjast
og heitir D. Arcy í Saskat-
chewan. Þar fengu þau leigt
hálfnumið land, sem Tryggvi
Hallgrímsson bróðir Bærings
átti. Þar byggðu þeir bræður
myndarlegt hús; en auk þess
festi Bæring sér einnig heimilis-
réttarland skamt frá. Gekk nú
búskapurinn allvel fyrstu tvö
árin, því Bæring var bæði hinn
mesti dugnaðar- og atorku-
maður, laghentur að því skapi,
framsýnn og ráðsettur.
En að tveimur árum liðnum
dundu yfir bygðina fjögur ó-
heillaár, hvert á fætur öðru, og
brást þá uppskeran algjörlega.
Fjöldi fólks flutti úr bygðinni,
og eftir sex ára dvöl þar fluttu
þau Bæring og Sigurborg til
Winnipeg 1922, þá með ungan
son, Óskar Sigurð að nafni. Þar
stundaði Bæring hvaða vinnu,
sem fáanleg var. En árið 1923
fluttu þau hjón til Wynyard í
Saskatchewan, með annan son
barnungan, er Norman hét.
Yfir höfuð leið þeim hjónum
vel, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika:
Þau voru samráða og samtaka í
öllu.
COPENHAGEN
Bezfra munnfróbak
heimsins
En þegar hingað er komið, fór
að byrja sá lasleiki, sem eftir
það hvíldi eins og svartur
skuggi yfir lífi Sigurborgar og
lagði hana í gröfina um aldur
fram.
Sigurborg var glaðlynd og
hispurslaus í framkomu. Hún
var vinavönd, en trúr og tryggur
vinur vina sinna. Hugur hennar
snerist aðallega um drengi
þeirra hjóna: Að koma þeim til
manns, það var áhugamál henn-
ar umfram alt annað. Á meðan
heilsan entist stóð hún vel að
vígi til þess að geta verið stoð
þeirra og stytta. Vegna þeirrar
mentunar, sem hún hafði hlotið,
að viðbættu því, sem henni
hafði auðnast að menta sig sjálf,
gat hún aðstoðað þá við námið,
og það gerði hún, jafnvel eftir
að banamein hennar hafði lagt
hana í rúmið.
Hún var yfir höfuð sérlega
heimiliselsk og undi því ekki á
heilsuhælum eins lengi og hún
hefði þurft. Hún aflaði sér
þekkingar um það, hvað gera
skyldi og hvað varast þyrfti til
þess að börn hennar og eigin-
maður yrðu ekki í nokkurri
hættu frá veikindum hennar.
Þetta var á hinum svokölluðu
og réttnefndu kreppuárum; var
þá ýmsum erfiðleikum að mæta
auk veikindanna; má þar til
nefna: atvinnuleysi, landfar-
sóttir og óhagstætt tíðarfar.
En ýmsir urðu til þess að rétta
þeim hjálparhönd; má þar á
meðal sérstaklega nefna konur
úr kvenfélaginu, tvær frænkur
Sigurborgar (Mrs. Júlíus John-
son), Dagbjörtu og (Mrs. Jón
Westmann) Veigu, og fleiri, þótt
þeirra sé ekki getið hér. Voru
þau mjög þakklát öllum, sem að
einhverju leyti veittu þefm lið.
Maður Sigurborgar hafði mjög
óstöðuga vinnu hjá C. P. R.-fé-
laginu. Það félag lét menn oft
hætta vinnu, sjáanlega að miklu
leyti til þess að koma í veg fyrir
það að þeir gætu unnið sér rétt
til eftirlauna, þegar þeir næðu
65 ára aldri. En skilyrði fyrir
því eru miðuð við dagatölu.
Já, Sigurborg var merkis-
kona: Bróðir hennar, Eiríkur
Sigurðsson í Winnipeg, geymir
fjölda af bréfum, sem hún hafði
skrifað honum. Þau skrifuðust á
stöðugt þangað til dauðinn skildi
þau. Þessi bréf, sem hann geym-
ir eru yfir hundrað: hundarð og
tvö, og er það merkilegt safn að
ýmsu leyti: Það sýnir fyrst og
fremst sérstaka og fölskvalausa
systkinaást. Þar næst er það
nokkurs konar sögubrot þeirra
bygða, sem hún átti heima í, með
talsverðum fróðleik um ýmis-
legt, sem sagnfræðingum gæti
komið að góðu gagni. En um-
fram alt annað sýnir það óþreyt-
andi og takmarkalausa baráttu
fyrir uppeldi og framtíð tveggja
ungra sona þeirra hjóna. Það er
undravert hvað hún gat lagt á
sig þeirra vegna, þegar hún sjálf
lá fyrir dauðans dyrum.
Sigurborg var trúuð kona, en
frjálslynd þó; hún trúði á bænir
og bænheyrslu; og þess vegna
bað hún: „Þann, sem öllu ræð-
ur,“ að lengja lífdaga sína, þó
veik væri, til þess að hún enn
um stund gæti haldið verndar-
hendi yfir börnunum. Og hún
trúði því að þessi bæn sín hefði
verið heyrð. Drengirnir voru
henni líf og ljós miklu lengur
en nokkur hafði búist við. Um-
hyggjan um þá hefir óefað lengt
líf hennar og haft sefandi áhrif
á veikindin. Það er virkilega
eins og sumt fólk bjóði dauðan-
um byrginn um langan tíma,
þegar það hefir sterka lífslöng-
un, og sérstaklega ef það hefir
eitthvað kært og hugnæmt að
lifa fyrir.
Sigurborg lifði það að sjá báða
drengina sína vaxa og þroskast
þangað til þeir voru orðnir sjálf-
bjarga menn, kvæntir ágætum
konum og feður efnilegra barna.
Sigurborg var því farsæl kona,
þrátt fyrir langvarandi van-
heilsu; hún kvaddi þetta líf með
þakklæti fyrir margt, sem það
hafði veitt henni.
Sig. Júl. Jóhannesson stílaði
fyrir hönd ekkjumannsins og
venzlafólks.
Minningarstef
um Sigurborgu (Sigurðardótiur) Hallgrímson
Ei varð þér aldur að meini,
örðugar lífsbárur hröktu,
varstu því altaf á verði,
vonglöð um sigur hins góða.
Ég man er þú kvaddir mig síðasta sinn:
Þitt sakleysis hógværðar mál.
Þitt tillit var alvarlegt, tárföl þín kinn,
sem túlkaði göfuga sál.
Að minnast þín, systir, það margskyldugt er;
samt mintistu ekkert á það,
en kvaddir mig bænheit og baðst fyrir mér. —
Ég bað líka’ — en vissi’ ekki’ um hvað.
Ég kvaddi þig, systir, og kært var það mér,
því komin var skilnaðar stund.
Þú baðst mig að hryggjast ei — bezt væri sér
að berast á englanna fund.
Þú trúðir á alt, sem var göfugt og gott,
þú girntist ei hégómlegt prjál.
Og hegðan þín bar æ um hreinleika vott,
þú hataðir fláttskap og tál.
í samræðum varstu því víðsýn og frjáls
með viðbúið, rétthugsað svar,
og hver sem í hlut átti — mótsvari máls,
þú mintir á kærleikann þar.
Um uppeldi sonanna ant var þér mest
af öllu, sem líf gat þér veitt.
Þú grátbændir drotttnn að gefa þér þrek,
svo gætirðu stutt þá og leitt.
Þeir máttu’ ekki við því að missa þig nú,
því móðurlaus, hálfþroskuð börn
þau eiga’ ekki kraft til að byggja sér brú
upp brattann í mannlífsins vörn.
Og himneski andinn, sem baðst þú um bið,
hann bænheyrði þig, og þú sást,
að sonunum báðum hann lagði sitt lið:
Þeir lifa við manndóm og ást.
Eiríkur Sigurdson
DR. F. J. GREANEY,
Director,
Line Elevators Farm Service,
Winnipeg, Manitoba
FLY CONTROL ON THE FARM
Business and Professional Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CUN1C
St. Mary’« and Vaughan. Wlnnlpeg
PHONE 928 441
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co. j
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORFORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith Sl. Winnipeg
PHONE 924 824
The most common farm flies
are House flies, Stable flies and
Horn flies. They reproduce very
rapidly, breeding in all kinds of
decayed material and filth.
There seems to be no way of’
getting completely rid of these
pests, butthe practies recom-
mended here will, if followed,
keep them down to an insigni-
ficant number. To be effective,
any fly control campaign must
include (1) proper steps in sani-
tation, and (2) the wise use of
chemicals. •
Sanilation. Good sanitation is
the backbone of fly control.
Without it, you cannot control
flies effectively, regardless of
the chemical or chemicals you
use. Sanitation includes: de-
stroying garbage; cleaning barn-
yards, scraping them right
down to hard ground; cleaning
out hog pens, hen houses and
open cattle sheds; raking up and
burning weeds and other farm-
yard refuse; treating outdoor
privies with barax every day;
and hauling out. fresh stable
manure to the field every day
or two. A lot of work, yes, but
necessary for best fly control
results.
Chemicals. To control flies
around the house, spray porches
and doorways with Lindane or
Chlordane. DDT will give satis-
factory control where light in-
festations of house flies occur.
As a spray for the dairy barn
use Lindane or Methoxyclor.
For other buildings Chlordane
may be used instead of Lindane.
Treat all places where flies
roost, and repeat the appli-
cations every 3 to 5 weeks. Avoid
contamination of feed and
water with Lindane an Chlor-
dane. Concerning cattle sprays.
Methoxyclor is recommended
for dairy cattle. It can also be
used on beef cattle that are
within 60 days of market. If the
cattle will not be marketed for
more than 60 days, then a DDT
spray is recommended. No mat-
ter what chemical you use be
sure and follow the directions
and precautions of the manu-
facturer.
Farm fly control pays. It safe-
gurads health, increases milk
and meat production from live-
stock, and adds to the comfort
of farm living.
Fréfrfrir fró íslandi
Framhald af bls. 2
Sunnudaginn 15. júní voru al-
þingiskosningar á ísafirði. Úrslit
urðu þau, að Hannibal Valdi-
marsson, frambjóðandi Alþýðu-
flokksins, var kjörinn, með 644
atkvæðum. Kjartan J. Jóhanns-
son, frambjóðandi Sjálfstæðis-
flokksins fékk 635 atkvæði.
Haukur Helgason, frambjóðandi
Sósíalistaflokksins, hlaut 79 at-
kvæði, og Jón Á. Jóhannsson,
frambjóðandi Framsóknarflokks
ins hlaut 60 atkvæði. Á kjörskrá
voru 1520, atkvæði greiddu
1443, auðir seðlar voru 17, ó-
gildir 8. — 1 kosningunum haust-
ið 1949 var Finnur Jónsson fram
bjóðandi Alþýðuflokksins kjör-
inn þingmaður ísfirðinga, með
samtals 628 atkvæðum.
☆
Prestastefna íslands hófst í
dag kl. 11, með guðsþjónustu í
Dómkirkjunni. Kl. 14 setti bisk-
up prestastefnuna í hátíðasal
háskólans og flutti skýrslu um
störf og hag kirkjunnar á liðnu
ári. — Aðalmál prestastefnunn-
ar er Viðhorf íslenzku kirkjunn-
I ar í dá^ og framtíðarstarfið.
J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ut. vega peningalán og eldsábyrgö, bifreiðaábyrgð o. s. frv. Phone 927 538
SARGENT TAXI PHONE 204 845 PHONE 722 401 FOR QUICK, RELIABLE SERVICE
DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selklrk, Man. Offlce Hours 2.30 - 6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 230
Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LögfrœOingar 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291
1 C A N A D 1 A N FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Flsh. 3X1 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
Offlce Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Offlce Hours: 4 pjn. - 6 p.m. and by appointment.
A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Bherbrook Btreet Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. StofnaO 1894 Simi 27 324
Phone 23 998 T00 Notre Dame Ave. Opposlte Matemity Pavilllon, General Hospital. Nell’s Flower Shop Weddlng Bouquets. Cut Flowers, Funeral Designs, Corsages, Beddlng Plants NeU Johnson Res. Phone 27 482
Office 933 587 Res. 444 389 THORARINSON & APPLEBY BARRISTERS and SOLICITORS 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Main Street WINNIPEG CANADA
SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rðr, ný uppfynding. Sparar eldi- vlð, heldur hita frá að rjúka út með reyknum.—Skrifið, símið til KELLY SVEINSSON 625 WaU Street Winnipeg Just North of Portage Ave. Simar: 33 744 — 34 431
J. WILFRID SWANSON & CO. Insurance in all its branches. Real Estate - Mortgages - Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 937 181 Res. 403 480 LET US SERVE YOU
Creators of Distinctive Pringting Columbia Press Ltd. 695 Sargenl Ave., Winnipeg Phone 21804
Phone 21 101 ESTIMArES
FREE
J. M. ÍNGIMUNDS0N
Asphalt Roof. and Inanlated
Sidlng — Repairs
Country Order. Attendeð To
832 Slmcoe St. Wlnnipeg, Man.
GIMLI FUNERAL HOME
51 First Avenue
Ný ú.'.fararstofa meS þeim full-
komnasta útbúnaSi, sem völ er
á, annast vfrSulega um útfarir,
selur Ukkistur, minntsvarSa og
legsteina.
Alan Couch. Funeral Director
Phone—Business 32
Residence 59
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
50« SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephonpe 202 398
DR. ROBERT BLACK
Sérfrœ/fingur í augna, eyma, nef
og hálssjúkdómtim.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusimi 923 815
Heimasfmi 403 794
Comfortex
the new sensation for the
modem girl and woman.
Call Lilly Matthews, 310
Power Bldg., Ph. 927 880
or evenings, 38 711.
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Nettino
98 VICTORIA ST. WINNIPIG
Phone 928 211
Manager T. R. THORVALDSON
Your patronage wlU be appredated
Minnist
í erfðaskrám yðar.
PHONE 927 025
H. J. H. Palmason, C.A.
H. J. PALMASON * CO.
Chartered Aceonntanta
505 Confederatlon Llfe Bldg.
WINNTPEG MANTTOBA
PARKER, PARKER &
KRISTJANSSON
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker. A. F. Krlstjanaaon
500 Canadlan Bank of Commertf
Chambera
Winnlpeg, Man. Phona 823(81
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
404 SCOTT BLK, Simi 925 227
Bullmore Funeral Home
Dauphin, Manitoba
Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
Kaupið Lögberg