Lögberg - 26.06.1952, Side 7

Lögberg - 26.06.1952, Side 7
íjOGBERG, FIMTUDAGílNN. 26. JÚNl, 1952 7 VÍÐA ERU ÍSLENDINGASLÓÐIR: Kunni ekki að matbúa, þegar hún gerðist landnemi í Ástralíu Frú Edith Guðmundsson heimsaekir frú Ellen Lagoni, sem ættuð er frá ísafirði ÆVINTÝRALÖNGUN og útbrá eru Norðurlandabúum í blóð borin. Um allan heim verða þeir á vegi manns, og hvarvetna hafa þeir getið sér gott orð, — en þó er Ástralía enn eitt þeirra landa, sem íslendingar hafa ekki tengzt. — íslendingar í Ástralíu eru ámóta sjaldgæft fyrirbæri og eplatré á íslandi. Samt höfum við átt því láni að fagna að hitta einn hinna gömlu landnema, þann fyrsta, sem á einhvern hátt er tengdur íslandi. Landnemi þessi heitir Ellen Lagoni. Hún er fædd á íslandi, og hét faðir hennar Pétur Ásmundsson, en Asmundur afi hennar var sýslu- maður á ísafirði. Pétur Ásmundsson var kvænt- ur danskri konu. Áttu þau hjón- in tíu börn, og var frú Lagoni yngst þeirra. Þegar frúin var tveggja ára að aldri fluttust for- eldrar hennar til Kaupmanna- hafnar, en faðir hennar gerðist hafnsögumaður þar. Nokkru seinna veiktist hann hastarlega af inflúenzu og dó sama ár, 1892. Móðirin stóð uppi með 10 börn í ómegð. — Fjölskyldan tvístrað- ist, en flest voru börnin tekin í fóstur. Frú Ellen var alin upp hjá efnaðri, traustri borgara- fjölskyldu og komst úr öllum tengslum við hið upprunalega ættland sitt. íslenzk í útliti Okkur mun verða minnisstæð- ur fundur okkar frú Lagoni. Við veittum því strax athygli hve íslenzk hún er að útliti og hugs- unarhætti. Þetta er ákaflega undarlegt, þar sem við erum fyrstu íslendingarnir, sem hún hittir. Vitneskja hennar um Is- land er lítil. Hún heldur því fram, að í huga sér hafi hún ávallt fundið til skyldleikans við ísland. Uppeldi hennar á hefð- bundna, borgaralega, danska vísu og fjörutíu ár í Ástralíu, þar af tuttugu sem ekkja, ættu að hafa breytt manni verulega frá því, sem upprunalega var, en íslendingseðli hennar hefir verið svo sterkt, að það hefir varðveitzt í baráttu og straumi tímans. Nú er það innilegasta ósk hennar, að ættingjar, sem hún kann að eiga á Islandi, setji sig í samband við hana. Það er ömurlegt að gera sér í hugarlund, að þessi kona, sem við sitjum og röbbum við, sé 61 árs að aldri. Hugur hennar er ungur, fullur starfsorku, Augun eru djúpstæð, gráblá, en yfir þeim hvelfast loðnar gráleitar brúnir. Þau ljóma af fjöri, ká- tínu og glettni, en það gerir hún á skemmtilegan og lifandi hátt. Þetta er sterkt andlit, með háum, breiðum kinnbeinum og fastmótaðri höku. — Djúpar hrukkur kringum munninn segja frá sorg, söknuði og þjáningum, en sjaldan er kyrrð yfir andliti hennar. Neðri hluti andlitsins er þungur og ber þess vott, að hún eigi til að bera þrautseigju og þrákelkni. Slormasaml líf Nú brosir frúin unaðslega, hjartanlegu brosi: „Ó, já*----“ andvarpar hún, en hlær um leið hljómfögrum hlátri, og ber um leið höndina að stuttu, stríðu hárlokkunum, eins og hún gerir svo oft af vana. „Mamma var vön að segja við mig: Þú ert svo þrá, barnið mitt, eins og svolítill, íslenzkur hestur." Lífið hefir verið henni storma- samt og hverfult, en þó ríkt, fullt áhyggna, baráttu, örvæntingar, blandað hamingju þess á milli. Um síðustu aldamót ríkti enn Viktóoríu-kerfið í uppeldismál- um. Einkum var ungum konum haldið niðri, og þær voru nánast sem flugur í búri. „Ég hefi eiginlega alltaf verið uppreisnarmaður, og sjálfstæðis- kennd rík í huga mér, sem ekki þótti fara sem bezt innan ramma Viktoríutímabilsins. — Þegar ég hitti manninn minn, fann ég mann, sem átti sömu lífsskoðan- ir og ég. Við ákváðum að fara til nýs lands, þar sem við gætum átt hvort annað í friði og byrjað nýtt líf.“ Hún var lalin undrabarn Það líf, sem hin unga kona kaus sér, var fjarska ólíkt því, er hún hafði verið alin upp við. Ljósmynd frá þeim tíma sýnir töfrandi fagra, unga konu, með ljómandi gullið hár, granna á vöxt. „Þá hafði ég aldrei gert annað en að fást við hljómlist. Fjögurra ára var ég talin eins konar undrabarn, og lék þá á píanó. Þegar ég var sautján ára komst kennari minn að því, að ég hafði mikla og fagra söngrödd. Nú hætti ég píanóleik og helgaði söngnum alla krafta mína. Svo var ég send til Sviss, Frakk- lands, Belgíu og Stokkhólms til þess að njóta hinnar beztu kennslu.---------“ Hún þagnar, en raunalegt bros leikur um varir hennar. Hugurinn reikar aftur í tímann. Örlögin hafa búið henni ann- að hlutskipti. 1 stað glæstrar framabrautar söngkonunnar gekk hún hinn grýtta og ógreið- færa veg frumbýlingsins. „Drottinn minn dýri,“ segir hún svo, og bandar hendinni. „Ég var ekki annað en stórt barn þá, 22 ára gömul, bláeyg og barnaleg. Ég hafði aldrei drepið hendi í kalt vatn, aldrei eldað mat. — Ég hafði ekki minnstu hugmýnd um húsmóðurstörf, en allt var baðað rsabjarma bjart- sýninnar, en þekkti ekki raun- veruleika lífsins." Reistu sér bú til fjalla Fyrir fjórum áratugum var öldin önnur og allt annað að hefja landnám en í dag. Þá lágu ekki þjóðvegir um landið. Sam- göngutækin voru léleg, járn- braut, hestar eða vagnar, sem nautgripir drógu. Engir fljúg- andi læknar, ekkert útvarp eða bílar er heitið gæti. Um það bil 150 km. frá Bris- bane er fjallgarður. Þar uppi í heilsusamlegu loftslagi ákváðu hjónin að reisa sér bú. Þaðan voru um 15 km. til næsta kaup- túns við ströndina. Mörgum hefði blöskrað að aka snarbratt- an klettaveg með gínandi hengi- flugi á aðra hönd, ekki sízt þeim, sem koma frá flatlendi eins og Danmörk er. Allt hafurtask þeirra var á vögnum sem naut- gripir gengu fyrir. Frúin sat á háu sæti við hlið ekilsins með litla dóttur sína, aðeins tveggja mánaða. 1 hvert skipti sem veg- urinn þrengdist og við borð lá, að afturhjólið færi út af barm inum, náfölnaði hún af hræðslu, en hélt barninu að krampakenndu taki. sér með Mýflugur og maurar með matnum Loks komust þau upp að staðnum, þar sem framtíðar- heimili þeirra skyldi standa. Þau reistu tjöld og svo var byrjað að ryðja skóginn. í heilt misseri bjuggu þau í tjaldi. Stór tré voru felld og þurrkuð, ftn kjarr óx fljótlega þess í stað, og þá varð að höggva það líka. Þegar viðurinn var orðinn þurr, var kveikt í honum, en síðan var hægt að byrja á húsinu. Landneminn verður að venjast ýmsu. Mýflugur og maurar voru steikt með matnum, svona til bragðbætis, og þarna voru kaka- lakar og köngulær á stærð við karlmannshnefa, að ógleymdum slöngum. Eftir nokkra mánuði var frúin farin að venjast þessu svo, að hún var ekki lengur hel- tekin af hræðslu ef hún sá snák, heldur drap hann þegar í stað. Kengúrur voru daglegir gestir, þær komu og fóru eins og vind- urinn. Dingóar, sem eru eins konar hundategund, trufluðu þau oft, og lítil bjarndýrategund gladdi þau með návist sinni. Hláturpáfagaukarnir urðu vinir þeirra, en kaka-dúfur görguðu allt í kringum þau. Á skömmum tíma breyttist þessi unga, vel uppalda stúlka í nokkurs konar tatarastúlku. Hinar fáguðu umgengnisvenjur voru lagðar á hilluna, því að hér áttu þær ekki heima, í ná- býli við fjöll og frumskóga. Hér fæddi hún manni sínum þrjú börn, og hér voru þau ham- ingjusöm. Flull til þéltbýlla héraðs Á fáum árum var frumskógi breytt í ábatasama ekru. Þarna .voru settar niður 30 þúsund anans-plöntur, 1000 appelsínu- tré, þarna höfðu þau nokkrar kýr, hænsn og endur til eigin þarfa, en flutningar að býli þeirra voru erfiðir, og margir kílómetrar til næsta nágranna, en allt var þetta örðugt, ekki sízt fyrir konu, sem oft þurfti að leita til ljósmóður. Þetta varð loks til þess að þegar fjórða barnið var í vændum, fluttu þau til þéttbýlla héraðs. Þau höfðu þá búið þarna í fimm ár. Frúin á margar spaugilegar sögur í fórum sínum frá þessum árum, sem sýna greinilega, hvernig fólk brást við lífinu al- mennt þá. Eitt sinn lagði hún í járnbrautarferð vestur á bóg- inn. Þá gengu lestirnar ekki samkvæmt neinni áætlun, held- ur komu og fóru, eftir því sem þurfa þótti. Flestir voru mál- kunnugir. Þetta var á heitum mollulegum degi, og leiðin var löng. Allt í einu sáu farþegarnir fagra fjallatjörn við brautina. Allir urðu þeir ásáttir um, að gott væri að fá sér bað þarna 1 hitasvækjunni. Lestin nam stað- ar og beið eftir baðfálkinu, en síðan var haldið áfram. Öðru sinni bar svo við, að farþega þyrsti. Þá var numið staðar, bál kynnt, og menn hituðu sér á te. Móllælið ber að dyrum Frá Queensland (Drottningar- landi) flutti fjölskyldan til Mel- bourne, en nú var sem óheppnin elti hana. Lagoni fékk slæma inflúenzu í hinu raka, umhleyp- ingasama loftslagi í Melbourne. Hann náði aldrei fullri heilsu. Nú liðu nokkur ár, en hjóin lögðu ýmislegt fyrir sig. í Melbourne eignuðust þau enn þrjú börn, svo að nú voru þau orðin sjö. Árin næstu urðu svo erfið, að frúin vill helzt ekki minnast á þau. Á þessu tímabili var Lagoni skipaður danskur ræðismaður, rakt loftslagið orkaði illa á hann, og síðan fékk hann tæringu. Frú- in stundaði mann sinn í þrjú ár, en árið 1931 andaðist hann. Á sjö árum missti hún síðan þrjú börn sín, hið síðasta árið 1947. Það er þungbært hlutskipti að vera ekkja m^ð stóran barnahóp. Yngsta barnio var ekki nema fimm ára. En frú Lagoni komst samt í gegnum allar þrengingar, enda minntist hún fremur þeirra tíma, er gæfan brosti við fjöl- skyldunni en hinna þungbæru sorgarstunda. fékkst við aldinrækt, nautgripa- rækt, hænsna- og andarækt, kjólasaum, sprengiefnafram- leiðslu, um tíma var hún ráðs- kona hjá milljónamæringi, en nú vinnur hún allan daginn hjá stóru flugfélagi. Þó hefir hún engan veginn gengið heil til skógar, meðal annars verið skorin upp við krabbameini. Maður getur ekki annað en dáðst að þrautseigjunni, þrekinu og lífsviljanum, sem þessi kona á til að bera. Hún er 100% Ástralíubúi, ef svo mætti segja, og ef á það land er hallað, tekur hún svari þess af heilum hug og dregur ekki af neinu. Svo þakka ég frú Lagoni fyrir samvistirnai;. örlög hennar hafa snortið streng í hjarta mínu. Það er dásamlegt að hafa orðið fyrir slíkum raunum og andstrymi, án þess að verða bitur í lund. Hún gæti orðið mörgum til eftir- breytni. örlög hennar eru að ýmsu leyti raunaleg, en uppruni hennar er samur við sig. Hinn íslenzki kraftur og þrek, seiglan hafa bjargað henni í harðri bar- áttu lífsins. —'VÍSIR, 14. maí Kommúnistaforingjar í Prag fyrir „lög og rétt" Umfangsmestu réttarhöld, sem tékkneskir kommúnistar hafa stofnað til. „Morgon-tidningen“ í Stokk- hólmi skýrir frá því samkvæmt upplýsingum „Arbeitar-Zeitung“ í Vínarborg, að innan skamms verði því sem næst helmingurinn af kommúnistaforingjunum í Tékkóslóvakíu við réttarhöld, sem tékneski kommúnistaflokk- urinn hefur enn stofnað til, og aldrei munu jafn margir og á- hrifaríkir leiðtogar einar ríkis- stjórnar hafa fallið í ónáð sam- tímis. Meðal hinna ákærðu eru Rú- dolf Slansky, sem til skamms tíma var aðalritari tékkneska kommúnistaflokksins; Clementis fyrrverandi utanríkismálaráð- herra; Otto Sling, foringi flokk- sins í Brúno; María Svermova, fyrrverandi vararitari flokksins, svo og fjölmargir ráðherrar eins og t. d. Ladislav Kopriva, fyrr- verandi innanríkismálaráðherra; sjö flokksforingjar í Slóvakíu; níu háttsettir embætismenn, sex herforingjar, þar á meðal Proc- hazka, sem var vikið úr embætti, sem formanni tékkneska herfor- ingjaráðsins nú fyrir skömmu; varahermálaráðherrann Lasto- vicka herforingi, og tuttugu þeirra, sem sæti eiga í miðstjórn flokksins ,en það er hvorki meira né minna en fjórðungur mið- stjórnarinnar. ^.ðalmálgagn tékkneska kom- múnistaflokksins, Rude Pravo, hefur látið þess getið, að barátt- unni gegn óvinunum sé engan veginn lokið með uppgjörinu við Slansky og klíku hans. Segir blaðið ,að baráttunni verði hald- ið áfram, unz búið sé að afhjúpa alla flokkssvikara. —A.B. 29. apríl Fljót handtök hjó gömlum bótaformönnum Nú er bjartara framundan Árið 1939 flutti fjölskyldan til Brisbane, þar sem loftslag er heilnæmara. Börnin, sem eftir lifa, eru öll hin mannvænleg- ustu og hafa hlotið góðan frama. — Þegar frú Lagoni lætur hug- ann reika aftur í tímann, finnur hún, að hún hefir öðlast mikla lífsreynslu. Varla sá hlutur til, sem hún hefir ekki reynt. Hún Steinn Bergþórsson var fædd- ur í Nýjabæ í Garði og þar mun hann hafa alizt upp fyrstu ævi- ár sín. Allan sinn aldur átti hann heima á ýmsum bæjum í Garðinum. Steinn stundaði sjó alla sína ævi, eftir að hann komst af barnsaldrinum. Oftast var hann formaður á opnum skipum og bátum. Hann var mjög laginn sjómaður, og svo var hann lag- ræðinn, að fáir þurftu að reyna að snúa á hann í róðri, og þó var talið, að hann hefði ekki nema meðalmanns burði. Öll sjómannsverk fóru honum sér- staklega vel úr hendi og fljótur og snar var hann í öllum hreyf- ingum. Hann var talinn ágætur foramður. Hin stutta frásögn, sem hér fer á eftir, sannar að nokkru leyti það, sem hér hefir verið sagt. Seinn Bergþórsson átti lengi heima í Lónshúsum í Garði. Var hann vinnumaður hjá Jóni Páls- syni, sem þá var útvegsbóndi í Lónshúsum. Alltað meðan Steinn átti heima í Lónshúsum, var hann formaður hjá Jóni, ýmist á tveggjamannafari á vorin og sumrin eða á sexrónu skipi á haustin og vetrarvertíðum. Þegar kom fram á vorin og á sumrin, fór Steinn oft við annan mann á tveggjamannafari í leg- ur. Var hann oft fengsæll í þess- um sjóferðum sínum og kom þá oft að landi með marga fallega stórflyðruna, ásamt öðr- um minni dráttum. Einu sinni, sem oftar, þegar Steinn var í legu á tveggja- mannafari við annan mann, setti hann í væna flakandi lúðu og dró hana upp undir borð, en svo illa tók«t til, að þegar hásetinn var kominn með íræruna og ætl- aði að bera í lúðuna, gerði hún snöggt átak og reif sig af öngl- inum. Og lúðan var fljót að átta sig á því, þegar hún var orðin laus, að leiðin til heimkynna hennar lá niður í djúpið. En til þess þurfti hún að snúa sér við og sletti um leið sporðinum upp úr sjónum, en Steinn var snar í snúningum og viðbúinn og sló um leið handleggjunum utan um sporðinn á henni og sleppti ekki, þó sleipt væri takið, fyrr en hásetinn hafði keyrt ífæruna á kaf í hana. Og lúðan náðist og var dregin inn 1 bátinn. Þannig var mér sögð sagan, þegar ég var drengur að alast upp í Garðinum, og þannig gekk hún manna á milli. Þótti þetta mikið snarræði og þrekraun. En þessi frásögn er samt ekki einsdæmi. Um líkt leyti bjó Hafliði Jóns- son á Húsatóftum í Garði. Gróa Þóhallsdóttir, kona Hafliða, var frændkona föður míns, Sumar- liða Ólafssonar, sem bjó í Akur- Eítir SIGURÐ SUMARLiDASON húsum í Garði. Hafliði kom oft tíT pabba og mömmu, og voru pabbi og hann góðir kunningjar. Hafliði og Gróa kona hans áttu fjögur mjög mannvænleg og góð börn, tvo drengi, Sigurð og Jón, og tvær stúlkur, Þuríði og Magnúsínu. Þekkti ég þrjú elztu börnin vel, Þuríði, Sigurð og Jón, einkum þó Sigurð, og urð- um um við góðir kunningjar og vinir seinna á lífsleið okkar, og bar fundum okkar þá oft saman. öll börn þeirra Hafliða og Gróu voru mjög vel gefin. Man ég eftir því, að þegar Þuríður og Sigurður, sem bæði voru dálítið eldri en ég, gengu í barnaskól- ann í Gerðum, þá skiptust þau á um efsta sætið í skólanum, og mun hafa verið kapp í systkin- unum, hvoru um sig, að halda, sætinu. Húsatóftir var tömthús. Allt, sem heimilið þurfti til fram- dráttar, varð að kaupa fyrir það, sem fékkst úr sjónum. Hafliði var dugmikill sjómaður, sem sótti sjóinn fast, sumar, vetur, vor og haust. Frásögn sú, sem hér fer á eftir, er höfð eftir Sigurði Haf- liðasyni, syni Hafliða. Er ekki að efa, að hún er sönn og rétt, jafn skýr og glöggur maður sem Sigurður var. Ekki sagði Sig- urður mér frá þessum atburði, en heimildin er jafn góð fyrir það, þó hún sé ekki tilgreind hér. Hafliði var í róðri á grunnmið- um á tveggjamannafari við ann- an mann, þegar atburður sá gerðist, sem nú skal sagt frá: Hafliði og hásetinn voru að draga einn og einn smáfisk. Þeir lágu við stjóra. í eitt skiptið, þegar Hafliði dregur þyrskling upp undir borð og ætlar að inn- byrða hann, sér hann að stór lúða kemur syndandi upp úr djúpinu á eftir fiskinum. Slepp- ir þá Hafliði drættinum og lætur fiskinn síga á færinu niður í sjóinn aftur. Lúðan var fljót að gleypa bráðina, en festi sig þó ekki á önglinum, en hélt fast utan um fiskinn, sem hún hafði í kjaftinum, og vildi ekki sleppa, en Hafliði þreif í færið og dró upp undir borð, en þá sleppti lúðan bráðinni. Þegar hún sneri sér við í sjólokunum, sletti hún sporðinum upp úr sjónupi, en Hafliði var viðbragðsfljótur og snar í hreyfingum og sló í einu vetfangi handleggjunum utan um sporðinn, og hélt fast eins og Steinn Bergþórsson, þar til hásetinn hafði keyrt ífæruna á kaf í dráttinn. Og lúðan náðist og var dregin inn í bátinn. Var þetta væn, flakandi lúða. Því hef ég fært þessar tvær frásagnir 1 letur, að mér finnst það þess vert, að slíkum atburð- um sem þessum, úr lífi þessara gömlu formanna, sé á lofti haldið. Sýna þeir, þó ekki séu fleiri taldir, að þetta voru engir meðalmenn á sínu sviði. Mund- við nútímasjómenn leika þennan leik eftir, þó tækifæri byðist? Ég ætla ekki að dæma um það. En hitt veit ég, að mörg ér þrekraunin, sem íslenzka sjó- mannastéttin hefir innt af hendi, og sumar hafa líka verið í frásögur færðar að makleikum. Sjómannablaðið VÍKINGUR Minningarorð Elías Thorsteinn Ólafsson frá Gimli, Man., andaðist á Al- menna sjúkrahúsinu í Winnipeg þann 30. maí s.l., eftir tveggja mánaða legu þar, og langvarandi vanheilsu um mörg síðari ár. Hann var fæddur á Tálkna- firði á íslandi, sonur Elíasar Ólafssonar og fyrri konu hans, (móðurnafn Elíasar yngra er mér ekki kunnugt). Elías kom vestur um haf árið 1903, ólst upp í Árnesbygð og átti þar heima lengst af, unz hann flutti til Gimli og átti þar heima yfir 20 ár eða lengur. Lengi ævi sinnar vann Elías við fiskveiðar, en um mörg síð- ari ár hjá Armstrong Gimli Fisheries. Tvö hálfsystkini hans eru á lífi: Mrs. Oddný Sigurðs- son á Gimli og Thorarinn Good- man útgerðarmaður á Winnipeg- vatni. • Elías heitinn var dyggur og vandaður maður og einkar sam- vizkusamur, var vinsæll og átti ítök í margra hugum. Hann var maður félagslyndur og studdi ís- lenzk velferðarmál eftir megni; hann var starfandi í Gimlisöfn- uði og unni kirkju feðra sinna. Um nokkra hríð var hann fé- hirðir lestrarfélagsins á Gimli, og einnig í þjóðræknisdeildinni þar. Hann var fumlaus íslending- ur, er bar byrðar lífs síns með karlmannlegri rósemi; átti vini og velunnara er reyndust hon- um vel. Þökk sé þeim. Útför hans fór fram frá Lút- ersku kirkjunni á Gimli, þann 3. júní; undirritaður jarðsöng í sjúkdómsforföllum sóknarprests- ins. S. Ólafsson /

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.