Lögberg - 26.06.1952, Side 8

Lögberg - 26.06.1952, Side 8
8 LOGBERG, FIMTUDAGINN, 26. JÚNÍ, 1952 Úr borg og bygð Ný ljóðabók Falleg og vönduð ný ljóðabók eftir Davíð Björnsson bóksala, fæst nú í Björnssons Book Store, 702 Sargent Ave., Winni- peg. Bókin er prentuð hjá The Columbia Press Ltd., og kostar óbundin $2.50, en í afarvönduðu bandi $4.50. Pantið bókina sem fyrst, því upplag er lítið. ☆ Á framabrauí Við uppsögn Glenlawn Col- legiate hlaut Miss Leona Bjarna- son Governor—General Medalí- una fyrir frábæra námshæfi- leika, ástundun og ágæta þátt- töku í félagslífi skólans. Hún flutti ennfremur ræðuna fyrir hönd skólasystkina sinna. Þessi efnilega stúlka er dóttir Mr. og Mrs. Eggert A. Bjarnason, 100 Thorndale Avenue, St. Vital. ☆ Gefið til Sunrise Lulheran Camp Ladies Aid Björk, Lundar $10.00; Langrill Funeral Home, Selkirk $50.00; Jónas Björnson, Gimli $25.00 í minningu um látna eignkonu Sigurveigu Björnson; Kvenfélag Herðu- breiðarsafnaðar, Langruth $25.00 Með innilegu þakklæti Anna Magnússon Box 296, Selkirk, Man. ☆ FÖÐURTÚN Þeir, sem hugsa sér að eignast þessa ágætu bóka (héraðssögu Húnvetninga) ættu að gera það strax, því aðeins fáein eintök eru óseld. Bókin er uppseld á íslandi, og fæst því ekki meir, eftir að þessi fáu eintök eru seld. Munið að þessi bók inniheldur um 500 myndir og margþættan fróðleik. Kostar $10.00 óbundin, $13.00 í bandi og fæst í Björnssons Book Store, 702 Sargent Ave., Winnipeg ☆ Mrs. H. A. Bergman lagði af stað vestur til Renton, Wash- ington ásamt Eric syni sínum og mun hún eiga þó nokkura viðdvöl þar vestra. ☆ Gefin voru saman í Fyrstu lútersku kirkju á laugardaginn 21. júní þau Ronald Syaney McFadyen og Doris Elvira Jó- hannesson, bæði til heimilis í Winnipeg. Brúðurin er dóttir Mr. og Mrs. Joseph Jóhannesson 605 Sherbrook St., en brúðgum- inn er af hérlendum ættum. Ágæt fjögurra herbergja íbúð fæst nú til leigu að 800 Lipton Street hér í borginni; í íbúðinni er rafeldavél. Sími 28 168. ☆ Hjónavígslur framkvæmdar af séra Valdi- mar J. Eylands. Á laugardaginn, 21. júní, voru gefin saman í hjónaband í Fyrstu lútersku kirkjunni James Har- vey Johnson 939 Ingersoll St. hér í bænum, og Audrey Aurora Bowley, 277 Campbell St. Brúð- urin er dóttir Sidney Bowley auglýsingastjóra hjá Nat. Publi- shers Co. Ltd. og konu hans Ellen Auora (f. Goodman). Brúðgum- inn er sonur Eggerts og Guð- finnu Johnson, 939 Ingersoll St. Að afstaðinni hjónavígslunni fór fram afar fjölmenn og veg- leg veizla í Curtis Hotel í East Kildonan. ☆ Látnir eru nýverið tveir ís- lendingar, sem búsettir voru í Boston, Mass., þeir Björgvin Einarsson skipstjóri, er fórst með skipi sínu nálægt Cape Cod. Öðrum skipverjum bjargaði olíu- flutningaskip, er í námunda var við staðinn þar sem slysið vildi til. Hinn maðurinn hét Sigtrygg- ur og var ^Ólafsson; þeir voru báðir meðlimir Þjóðræknisfé- lagsins. ☆ Þeir Dr. Haraldur Sigmar og frú frá Blaine og séra Eric H. Sigmar frá Seattle og frú, komu til borgarinnar á mánudaginn og fór ferðafólk þetta norður til Nýja-íslands, þaðan fer það suð- ur til Mountain, N.D., á leið til kirkjuþingsins í Minneota. ☆ Fyrirleslrarferð til Leslie og Wynyard Þjóðræknissamtök Vestur-íslendinga Finnbogi Guðmundsson flytur fyrirlestur í samkomuhúsi Lesliebæjar fimmtudagskvöldið 3. júlí kl. 8.30. Kvöldið eftir, föstudaginn 4. júlí, flytur hann sama fyrir- lestur í Sambandskirkjunni í Wynyard, einnig kl. 8.30. Hann mun tala bæði á íslenzku og ensku, og er þess að vænta að ungir jafnt sem gamlir sæki samkomurnar. Framhald af bls. 4 ildir, sem þeir styðjast við. Vestur-íslendingar hafa þar eytt mörgum misskilningi og með framkomu sinni tekizt að skapa Islandi og íslenzkri menningu vináttu og virðingu fjölmargra hérlendra manna. Á slíka land- kynningu mun nú reyna meir en nokkru sinni fyrr. Til oss verð- ur leitað sem- íslendinga og vér spurðir spjörunum úr. Og hver mundi þá vilja standa uppi eins og þvara? Nei, hér er í senn tækifæri og skylda, og vér megum ekki bregðast nú fremur en endra- nær. Kjarni þess, sem ég vildi sagt hafa, er þessi: Mörg atriði í mál- efnum vorum þurfa athugunar við. Tungan og bókmenntirnar eru þeirra veigarmest. Þau eru eins og ljós, sem skína langt aftan úr öldum. En vér megum ekki láta það blinda oss svo, að vér fáum ekki séð neitt annað fyrir því. Vér getum ekki allir orðið jafnsnjallir í einni grein. Ef vér leggjum alla áherzlu á eitt atriði, hlýtur það að verða á kostnað annarra atriða, sem eru engu síður mikilsverð. Ef vér gerum það að höfuðnauðsyn, að menn tali íslenzku og kunni skil á hinu bezta í bókmenntum vorum, fáum vér, þegar fram líða stundir, aðeins þröngan hóp manna, og heildaráhrifin verða takmörkuð Hlutverk vort er að hafa upp á vanræktum hæfi- leikum og laða þá fram, vekja nýjan áhuga hjá þeim, sem hafa látið hann dofna, og fræða þá um ísland, sögu íslendinga og bókmenntir bæði austan hafs og vestan með hverjum þeim ráðum, sem vér kunnum. Mund um vér þannig fá sigrazt á sum um erfiðleikunum og minnkað að nokkru leyti þá andspyrnu, sem vér eigum greinilega að mæta sums staðar? Ég veit það ekki, en ég hef þó trú á því. Þetta er nú orðið alllangt mál. Efnið er einnig svo mikið og mikilsvert, að enginn skyldi ætla sér að tæma það, hann sprengir þá bæði sjálfan sig og áheyrendur. Margir hafa enn- fremur hugsað og eru stöðugt að hugsa alvarlega um þessi efni. Og lausn mun finnast mörgum þeim vandamálum, er nú gera oss erfiðast fyrir. Til þess mun allt leggjast á eitt, elja sú og athygli,. sem þér hafið helgað málum þessum og það umburðarlyndi, sem þér hafið sýnt þeim af oss, er hafa ekki lagt sig jafnkostgæfilega fram og skyldi við íslenzkuna, setn- ingafræði hennar og beygingar. Ég er sannfærður um, að lausn á sumum vandamálum vorum er ekki langt undan landi, ef vér aðeins erum reiða búnir að átta oss á því, hvar vér stöndum, og haga oss eftir því. Vér verðum að ganga sigur- stranglega fram, vera öruggir um, að þau tæki, sem vér not- um, séu úr varnanlegu efni, minnast þess, að enginn verður óbarinn biskup, og sá er líkleg astur til að sigra, sem rutt getur hindrunum úr vegi og hefir þrek og þor til að sækja fram, þótt í ójafnan leik sé komið. Byrjað á stærstu byggingu óburðarverksmiðjunnar innan skamms Síðan hann missti alla pen- ingana sína hefir hann misst helminginn af vinum sínum. — Og hvað varð um hinn helminginn? Hann veit ekki enn um pen- ingamissinn! Malting Barley Challenge Contest The malting barley growers in Alberta challenge the malting barley growers in Manitoba to a contest in producing the best carload of malting barley. The Alberta Malting Barley Contest Committee are donat- ing a Western Stetson Hat to the first prize winner. The Manitoba Barley Improvement Committee, on . behalf of the Manitoba malting barley growers accepted the challenge and in order that Alberta growers may participate in the prizes, are donating a Buckskin Jacket, properly inscribed to the owner of thé second prize car. Manitoba growers! Do not let your committee down—enter the Contest today!! In addition to the Stetson Hat you will win $800.00, income tax free!!! For further information get a Prize list and entry form for the National Barley Contest from your Elevator Operator, Agricultural Representative or write the Extension Service, Department of Agriculture, Winnipeg. Do it now! You may be the wearer of a Stetson Hat in 1953. This space contributed by THE DREWRYS LIMITED MD-315 AÐALFUNDUR Áburðarverk- smiðjunnar h.f. var haldinn gær. Áttu tveir stjórnarmenn. þeir Jón ívarsson og Ingólfur Jónsson, að ganga úr stjórninni en voru báðir endurkjörnir Ennfremur voru endurkjörnir varastjórn þeir Eyólfur Jóhanns son og Kristjón Kristjónsson, og Halldór Kjartansson var endur- kjörinn endurskoðandi. Formaður verksmiðjustjórnar Vilhjálmur Þór, flutti skýrslu á fundinum. Gaf hann ýtarlegt yfirlit yfir gang verksmiðjumál sins og skýrði frá því að byrjað væri að steypa upp verkstæðis hús í Gufunesi, en innan fárra daga mundi byrjað á sjálfri byggingu vatnsefnihússins, sem verður stærsta byggingin. Auk þessara framkvæmda er nú unn- ið að því að leggja vegi um verk- smiðjustæðið og undirbúa bryggjustæðið. Ef ekkert verður til þess að tefja framkvæmdir við verk- smiðjuna 1 sumar, er hugsanlegt, að hægt verði að byrja að setja niður vélar í október í haust. Búið er að panta meginhluta allra véla til verksmiðjunnar og — Ég gaf þessum manni fimm- tíu cent fyrir að bjarga lífi mínu. — Og hvað gerði maðurinn? — Hann gaf mér þrjátíu cent til baka! ☆ Ungur maður lenti í slysi og varð meðvitundarlaus, en til allrar hamingju rankaði hann við sér áður en vinir hans höfðu comið honum í gröfina. Hvernig er það eignlega að vera dauður? spurðu þeir. — Dauður, sagði aumingja maðurinn, — ég var alls ekki dauður, og ég er alveg viss um , vegna þess að ég var svang- og mér var kalt á fótunum. — Hvers vegna fannst þér það sanna að þú værir ekki dauður? — Ég þóttist vita, að ef ég á himnum, þá væri ég ekki svangur, og ef ég væri á hinum staðnum, þá mundi mér ekki vera kalt á fótunum! iað ur væri verða þær væntanlega afgreidd- ar á 2. til 4. ársfjórðungi þessa árs. Þá skýrði formaður frá því, að lokið sé nú samningagerðum við Reykjavíkurbæ um lóða- leigu, við hafnarstjórn Reykja- víkur varðandi hafnarmann- virki og við Sogsvirkjunina um raforku til áburðarverksmiðj- unnar. Þegar aðalfundarstörfum lauk, fóru fulltrúar á fundinum inn í Gufunes, skoðuðu verksmiðju- stæðið og framkvæmdir þær, og drukku kaffi í matsal verka- manna þar. MBL., 16. maí 17. júní á Mountain Sparið peninga! Sparið meira en hálf útgjöld við reykingar! Vélvefjið vindlinga yðar með ót&i CIGARETTE MAKER í EINU! Notiö VINDLINGA PAPVÍK 200 14c vindlingar HEXMSÆKIÐ NÆSTU TÓBAKSBtTÐ mnrnnfíÁ Framhald af bls. 2 að hugi fólks fyrir fágaða og prúða framkomu. Blandaður kór, undir stjórn Mrs. Olgeirson, söng stutt og fjörug lög, sem tókust ágætlega. Einnig hafði Mrs. Olgeirson æft fjölmennan barnakór, eða það, sem við köllum Rythin band, höfðu krakkarnir alls konar "instruments'', að vísu ekki með gull- og silfurröndum, og höfðu þess vegna ekki kostað ærna peninga — en þau gerðu skyldu sína samt — var þeim þakkað með lófaklappi. Forseti þessarar dagskrár get- ur fleira en stjórnað samkomum og flutt ræður, hann getur sung- ið líka — í þetta sinn söng hann 2 falleg sólólög: Sólskríkjuna eftir Jón Laxdal og Drauma- landið eftir Sigfús Einars- son. Mrs. Fáfnis var við hljóð- færið. Þá var röðin komin að hinum aðalræðumanninum, okk- ar einlæga og duglega ættjarð- arvini, Dr. Beck, ég kalla hann okkar, því hann er Bárumaður, og liggur aldrei á liði sínu. Dr. Beck byrjaði mál sitt með því að flytja tvær kveðjur og heilla- óskir frá forsætisráðherra ís- lands, Steingr. Steinþórssyni og frá hinum nýkjörna forseta Þjóðræknisfélagsins, séra V. J. Eylands, var báðum þessum kveðjum vel tekið. Erindi sitt nefndi Dr. Beck: „Minni land- nemanna,“ var þar margt fallega sagt og blátt áfram; í lok ræðu sinnar minnti hann á, að þessi bygð eða bygðir ættu 75 ár að baki næsta sumar, og að mjög áríðandi væri að þess yrði minnst á viðeigandi hátt, kvaðst hann skyldi ljá því máli alt það lið, sem hann ætti yfir að ráða. G. J. Jónasson flutti ávarp og kvæði tileinkað deginum, var ívorutveggja vel tekið. Samkoman var hin bezta og Jór vel fram, öllum ræðum slilt mjög í hóf að því er tímann snerti, ætti það að vera sem oftast regla að hafa Vz tíma ræðuhöld, líklega verður þó að gera undantekningar, þegar pólitískar kosningahríðar æða yfir landið — þeir hafa svo mik- ið á hjarta, blessaðir, svona rétt fyrir kosningadagana. Snjall og æfður ræðumaður getur sagt margt gott á Vz tíma, og reynir ekki um of á þolinmæði tilheyr- énda sinna eða þreytir þá um skör fram. í samkomulok þakkaði forseti öllum, sem komið höfðu, þakkaði þeim, sem talað höfðu og fyrir söng og aðra skemtun, sérstak- lega þakkaði hann hinum góða gesti fyrir komuna og erindið, sem hann flutti og árnaði honum allra heilla. Sungnir voru að síðustu, af öllum, — Eldgamla ísafold og My Country. — Ágætar og ríku- legar veitingar biðu svo allra í neðri sal samkomuhússins. A. M. A. MESSUBOÐ Séra Valdimar J. Eylands Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Sumarfrí stendur yfir. Guðsþjónustur hefjast 10. á- gúst n. k. ☆ Pastor Virgil Anderson will conduct Church Services as follows — Sunday July 6. Vidir 2 p.m. Arborg 8 p.m. Sunday July 13ih Geysir 2 p.m. Riverton 8 p.m. CONVENTION Icelandic Evangelical Lutheran Synod of America St. Paul's Church, JUNE 29lh Minneota, Minnesota JULY 2nd. 1952 Convention Program: SUNDAY, JUNE 29th—10.30 a.m., Ordination Service. Rev. K. K. Olafson, D.D., preaching. SUNDAY AFTERNOON—3 p.m., Speaker, Rev. Paul E. Bishop, D.D., representing The United Lutheran Church in America. SUNDAY EVENING—7.30 p.m., Communion Service. Rev. H. Sigmar, D.D., preaching. President’s Annual Report. MONDAY, JUNE 30th—9 a.m., Sessions. Report of officers and standing committees. MONDAY, JUNE 30th—1.30 - 5.00 p.m., Sessions. MONDAY, JUNE 30th—8.00 p.m., Cand. Theol. Thorir Kr. Thordarson, Reykjavik, Iceland, speaker. “Archaelogy and Recent Bible Marruscript Discoveries”. TUESDAY, JULY lst—9.00 a.m. -12.00 p.m., Sessions. TUESDAY, JULY lst—1.30 - 5.00 p.m., Sessions. TUESDAY, JULY lst—7.30 p.m., Speakers: Rev. V. J. Ey- lands, “Evangelism”; Rev. S. T. Guttormsson, “Steward- ship”. WEDNESDAY, JULY 2nd—9.00 a.m., Elections. Sessions. WEDNESDAY, JULY 2nd—12 a.m., Closing of Convention. Convention Agenda: Missions and Benevolence. Christian Higher Education Publications: Sameiningin, Parish Messenger, The Minutes. Stewardship. Evangelism. Christian Education. Year Appeal. Old People’s Homes, Pensions. Lutheran Women’s Work. Lutheran Laymen’s Work. Lutheran World Relief. Mountain, North Dakota, June 16th, 1952. REV. E. H. FAFNIS, President. REV. H. S. SIGMAR, Secretary.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.