Lögberg - 18.09.1952, Síða 2

Lögberg - 18.09.1952, Síða 2
2 LÖGBE^G, FIMTUDAGINN, 18. SEPTEMBER, 1952 Biskupsgöngin í Skálholti eru „forskálinn" sem um getur Sturlungu af viðureign Gizurar og Órækju Dr. Björn Sigfússon segir frá fornleifagreftrinum í Skálholti Eins og frá hefir verið skýrt í fréttum hefir farið fram allmikill fornleifagröftur í Skálholti, og hefir dr. Björn Sigfússon annazt hann. Dr. Björn hefir ritað eftirfarandi frásögn af uppgreftrinum og árangri hans fyrir Tímann. Væntir blaðið að lesendur fagni því, að fá svo greinargóða frásögn þess manns, er gerzt þekkir það, sem komið er í ljós um þessar merku fornleifar. Hví er Skálholt rústir 1952? Svar: Af því að íslendingar hafa ekki þurft á því að halda utn hálfa aðra öld. — Þetta segi ég hvorki til lofs né lasts um menningarframfarir okkar. Og ekki er ég á máli þeirra, sem telja, að Skálholts vegna hefðum við fyrir löngu átt að reisa þar eitthvað merkilegt úr steini. Sjálfs sín vegna þarf Skálholt einskis, aðeins að bíða nýrra hlut- verka í fylling tímans, og brýnna er að hér eftir sé þar allt gert vel en að allt sé gert fljótt. Þó mun ekki vanþörf að leggja þar nýja hornsteina sem fyrst. Það, sem ég man fyrst til Skál- holts af eigin sjón fyrir f jórðungi aldar, um það bil sem jörðin komst í þjóðeign á ný og Jör- undi bónda var fyrirskipað, xéttilega, að reisa enga varan- lega bygging á staðarhólnum, var þýðingarleysi helgistaðarins í sunnlenzkra augum. Okkur Norðlendingum,, sem minna þekktum landslag fyrir austan fjall, gleymdist, að Skál- holt væri afskekkt mýrajörð í hvarfi niður frá Spóastöðum, gleymdist, hve brúin hjá Spóa- stöðum var miklu merkari vegar- áfangi en kúrulega kirkjan, sem vegfarendur sáu húka þarna reðra, meðan mýrarbungan var að yppa sér drýgindalega í milli og lauma henni í hvarf. Hvenær sem nefnt var Skál- holt, hugsuðum við: Hólar — og sáum rísa mót auganu staðinn, dómkirkjuna, laufgaðan lund 20. aldar. Undir hárri hlíð í miðjum dal var hann settur, og vitundin um mikilvægi Hóla fyrir líðandi stund veik ekki úr hug neins Norðlendings né fölnaði fyrir sögufrægðinni. Hvenær sem leið okkar lá um héraðið, sáum við gegnum fjallið „heim að Hólum“. Það orð heim að Hólum missti aldrei töfravald sitt, þótt Norð- lendingar, sem fæddust á sein- ustu árum Hólabiskupa um 1800, væru látnir eða flestir á grafar- barm komnir, þegar tókst að gera staðinn okkar að skólasetri á ný. Breyting Skálholtsbiskups í Laugarnesbiskup reykvískan þýddi miklu minna afhroð fyrir Suðurland en afnám biskups- stóls þýddi fyrir norðan. Hefnd- ar hugur norðlenzkra eftir miss- inn entist og vann að því að stæla menn til endurreisnar a Hólum og Möðruvöllum (Mennta skóli Norðurlands síðar). Færslan úr Skólholti til hæfari staðar innan fjórðungsins var miklu sjálfsagðara mál, eins og ástatt var um 1800, og einskis missis að hefna, engra ófull- nægra þarfa að minnast, sem Skálholt væri sjálfsagður staður til að uppfylla. Það er þess vegna, sem menn gleymdu Skál- holti, mundu Hóla, og þess '^gna er Skálholt enn í rústum, sem bíða hlutverks. Rústir varðveita fortíð. — Könnunarþörf nú Ekki er það lítils vert, að forn- leifar geymast furðanlega, með- an ekki er djúpt grafið fyrir undirstöðum húsa í gömlu rúst- unum. Það er óleyfilegt á fræði- mennskutímum okkar að reisa svo nokkurt hús á merkum forn- grunni, að ekki séu kannaðar þar minjar áður eða um leið, og er m. a. refsivert að landslögum. Kostnaður við þá könnun hlýtur að verða nokkur, fræðileg tækni til hennar er á framfaraskeiði á Norðurlöndum, og þetta tvennt mælir með því að ráðast ekki í stórvirki í rústakönnun fyrr en jafnóðum og ráðgerð eru ný- virki og umrót á hverjum stað. Skálholtsfélagið beitir sér fyr- ir endurreisn í Skálholti og mið- ar að dómkirkjusmíð á næstu árum. Pn&essor Magnús Már hefir einnig beint athygli að byggingarstíl Skálholtskirkna, sem urðu síðan um 1100 ein merkasta fyrirmyndin að öllum kirkjustíl hér á landi, unz torf- kirkjustíllinn sigraði á 18. öld. Af þessum tveim rökum þótti eigi mega dragast öllu lengur að hyggja að því, hvað finna má undir grassverðinum í Skál- holtskirkjugarði. Hvers þurfti að leita í sumar? Segja má, að fullnaðarrann- sókn megi bíða, og héðan af mun hún ekki dragast lengi. En atvika vegna var nauðsynlegt að vinna það í fyrsta áfanga, sem þurfti til svars við ákveðnum spurningum, en gæta þess vand- lega að skemma ekki þá hluti, er vandasamast er við að eiga í kirkjurústum Skálholts, t. d. dýpstu undirstöður og grafir, sem aldrei verður hægt að rann- 40 & (0 WATTS 18‘ Wkstinghouse Westinghouse Lamps give you plenty of good light and last longer. Check the lighting in your home . . . replace burned out or blackened bulbs with Westinghouse lamps. Get your supply before the long winter evenings come. Order them from your Hydro meter reader, bill deliverer or collector. Cr, Portage & Kennedy Phone 96-8201 saka oftar, þegar þær hafa einu sinni verið opnaðar. Prófessor Magnús Már hafði í'orgöngu um þessa rannsókn í vor og undirbjó hana. En dag- inn, sem gröftur skyldi hefjast, forfallaðist hann og gat ekkert við gröftinn verið, svo að ég hljóp í skarð hans til verkstjórn- ar þar og með teikningar hans og leiðsöguhugmyndir að láni. Kristján Eldjárn þjóðminjavörð- ur var samtímis bundinn við gröft í Þjórsárdal, en fylgdist vitanlega með því, sem í Skál- holti var gert. Sláttur var hafinn, er verkið var unnið, dagana 10.—21. júlí, svo að Einar Sigurfinnsson á Iðu var eini Árnesingurinn, sem þar vann. En Jökull Jakobsson, stud. art., Engihlíð 9, Reykjavík, vann með mér alla dagana. Verkefnin, sem bæði tíma- skortur og fræðlegri ástæður takmörkuðu okkur við, voru þessi: 1. Leit að öllum þeim stoðar- steinum Brynjólfskirkju frá 1650—1673, sem finna mætti eigi dýpra sokkna í jörð en rúma skóflustungu. Mæling á útlínum þess kirkjugrunns með saman- burði við álnafjölda þann, sem upp er gefinn í ýmsum heim- ildum um kirkjuna á 17.—18. öld, sbr. athuganir Magnúsar Más. Leit að járnnöglum og við- líka leifum úr þeirri kirkju. 2. Athugun á merkjum um grunn eldri kirkna, ef finnanleg væru jafngrunnt undir yfirborði, þ. e. Ögmundarkirkjugrunn síð- an um 1529 og Árnakirkjugrunn frá 1311. Oftar en svo hefir Skál- holtskirkja ekki skipt um grunn síðan á Sturlungaöld. 3. Könnun undirgangs eða ganga, sem vitað er, að voru í notkun 17. og 18. öld, heiman úr skólahúsi staðarins upp í grunn undir framkirkju, og sýndi jarð- vegslægð, hvar þau lágu undir. 4. Afla vitneskju um notkun kirkjugarðsins á miðöldum fyrir hæli og vígi og meðal annars um það, hvort undirgangurinn væri sama hús, sem nefnt er í Sturl- ungu forskáli og lá frá bæ til kirkju, að nokkru leyti til þess að auðvelda mönnum, sem þurftu snögglega kirkjugriða að njóta, að komast þá leið. 4. lið- urinn tilheyrði að vísu ekki starfsáætlun Magnúsar Más, svo að mér þótti rétt að verja til hans minnstum tíma, fullkanna eigi. hefir náð miklu austar en Brynj- ólfskirkjan og snúið öðruvísi eða h. u. b. 5 gráðum norðaustar. Réttari þekking Brynjólfs á him- insáttum hefir komið honum til að snúa kirkju eins og rétt er og nú er gert frá vestri til aust- urs. Kór Ögmundar sýnist hafa verið einni Hamborgaralin (57,8 sm.) breiðari en Brynjólfs (en varla 3 álnum). Torskilin undirstaða steinahleðslu liggur að vísu 2 Hamborgarálnum norð- ar en ég hygg útvegg Ögmundar- kórs. hafa s,taðið. Gæti það annað hvort verið leif eldra húss eða grjótbálks þess, sem Stefán biskup Jónsson lét hlaða með fram kirkjunni til að hlífa henni fyrir stórviðrum. Arngrímur lærði taldi um 1600, að Skálholtskirkja hefði tvisvar brunnið og endurreist smærri en áður (Brevis Com- mentarius 69), en vitað er að Brynjólfur reisti síðar kirkjuna með minni kór en Arngrímur þekkti. Brunalag finnst Brunar þeir tveir, sem Arn- grímur á við, urðu 1309 og 1527 (eða 1524). Ástæðulítið er að leggja mikið upp úr því, sem felast kynni í orðum hans, að kirkjan frá 1311 hafi verið smærri en hin brunna. En um bruna 1527 og smækkun kirkj- unnar síðan gat hann vitað margt, sem nú er gleymt. Minningarorð um merka konu .4 , f Hvað fannst í grunninum? Þessum viðfangsefnum fjórum og árangrinum verður að lýsa sundurgreindari en þau voru í sjálfu starfinu. Um Brynjólfsgrunn er skemmst að segja, að þegar þeir undirstöðusteinar fundust, er hafa mátti fyrir fasta mæh- punkta, þurfti eigi annað en ganga með kvarða um grunninn og stinga þar niður, sem Magnúsi Má hafði mælzt eftir lýsingu, að næsta stoðarsteinarið ætti að liggja, og þar lá hún undir gras- rótinni. Núverandi kirkja stend- ur í suðvesturhorni framkirkju- grunnsins, sem var. Þverskip og kór byrja fyrir austan hana, og forkirkjan hefir verið vestan við hana, en framkirkjan með út- brotum að norðan og sunnan hefir verið rúmum 4 metrum breiðari en núverandi kirkjan. Um 2. lið mætti skrifa heila tímaritsgrein, þar sem mest bæri á ósvöruðum spurningum. Því fyrsti árangur fræðiathugana eru efasemdir og heilabrot, sem gera málin æ flóknari og dularfyllri, þangað til fullnaðarleit kynni að veita efalaus svör um suma hlut- ina, en kenna manni leiðir til samanburðarályktana við aðrar fornkirkjur og menningarsögu- gögn. í fyrsta lagi virðist mér þó sannað við *þessa yfirborðslegu athugun, að Ögmundargrunnur Anna Thordarson 1872 — 1952 þAÐ VAR almennur harmur í héraði hjá okkur, íslenzka fólkinu í Seattle, þegar lát Önnu Thordarson fréttist, 2. júlí s. 1. Hún hafði legið rúmföst aðeins nokkra daga. En vinir hennar vissu, að þrátt fyrir glaða og örugga framkomu, þjáðist hún af alvarlegum sjúk- dómi síðustu árin. Jarðarförin 5. júlí var fjölmenn og virðuleg. Það fannst á öllu sem fram fór, að hér var um djúpan og einlægan söknuð að ræða. Dr. Haraldur Sigmar, náfrændi hinnar látnu, jarðsöng, en séra Kolbeinn Sæ- mundsson aðstoðaði. Tani Björn- son söng útfararsálma: Ó, bless- uð stund og Góða nótt, og einn enskan. Núorðið eru oftast fluttar tvær ræður, ein á hvoru tungu- málinu, og svo var að þessu sinni. Bréflegar kveðjur voru lesnar frá fjarverandi sóknar- presti, séra Erik Sigmar, og bróður hans, séra Harald Sig- mar, fyrverandi presti lúterska safnaðarins hér. Óteljandi blóm bar fyrir augu, en þó voru fleiri og að fegurð jafnar minningar þær sem lágu í lofti, er þessi vin- sæla kona var kvödd. Flest öll börn hennar voru viðstödd, sum langt að komin-------barnabörn, venslafólk og vinir eldri og yngri. Greftrunar athöfn fór fram í Pacific Lutheran Ceme- tery. Nánustu skyldmenni eru tvær systur í Winnipeg, Canada, Lára Burns og Jenny Johnson. Börnin eru níu—Dr. S. Stefán, Herman, Jón, Margrét, og Est- her (Mrs. Milton Hallgrímson) hér vestur frá—og Agnes (Mrs. T. C. Hendricks) í Oregon; Lou- ise (Mrs. R. H. Harris) í Fargo, N. D.; Metta (Mrs. H. Rehnberg) í New York; Inga (Mrs. Lloyd Tyo) í Alaska. Barnabörn eru sextán að tölu. Anna Thordarson var fædd 24. maí, 1872, á Einarsstöðum í Reykjadal í S. Þingeyjarsýslu á íslandi. Foreldrar hennar voru Jón Sigurjónsson, bóndi þar, og kona hans Sigurlaug Gísladótt- ir, sem var ættuð úr Skagafirði. Á Einarsstöðum býr enn föður fólk Önnu sál (og skyldfólk margt í sýslunni) þrír bræðurn- ir þaðan fluttu til Ameríku— Jón, Sigmar og Snorri. Þeir eiga m a r g a afkomendur í vestur- heimi. Þau Jón og Sigurlaug voru í „stóra hópnum“ 1876. Anna mundi vel eftir ferðinni, sérstaklega á flatbotnuðu bát- unum norður eftir Rauðá. Börn- in voru tvö—hún og tveggja ára drengur sem dó rétt - áður en til Gimli var komið og var jarðsettur þar. Fyrstu viðtök- urnar voru hjá Birni Jónssyni, bróður Kristjáns skálds; fólkið var skylt. Síðan var numið land tvær mílur upp frá vatninu. Næstu nágrannar voru þau Valdís og Símon Símonarson og Stefanía og Jón Magnússon. Anna virtist muna einkar vel eftir fólkinu, nefndi t. d. að það hefði verið glatt þegar það hitt- ist, og fult af ráðagerð með fram tíðina og það sem gera skyldi, Hún sagði ætíð frá þessum „löngu liðnu tímum“ með áhuga og skýrleik. Eins hélt hún ætíð til haga því sem gamansam(t eða fyndið hafði þótl;, þrátt fyrir alt og alt. Því margt dreif á dag- ana. Hún veiktist þegar bólan geisaði, og bar þess nokkur merki. Svo kom flóðið. Þá flutti fjöldskyldan til Selkirk—þaðan, eftir fjögur eða fimm ár, til Win- nipeg. Þar var heimilið jafnan eftir það. Nú voru- systurr\ar orðnar fjórar. Inga fæddist á Gimli (hjúkrunarkona, d. 1948); Lára í Selkirk og Jenny í Win- nipeg. Á Gimli höfðu fæðst tveir synir, en báðir dáið. Móðirin var ekki sterkbyggð kona, svo Anna vandist við, frá því fyrsta, að hjálpa henni á allan hátt, og annast um systur sínar.Eftir lát móður sinnar (1899) var hún þeim sem önnur móðir. Hjá henni átti Jenny heimili þar til Yztu merki um kórvegg þessa grunns ættu samkvæmt þessu að vera fremur frá kirkjunni, sem brann um 1527, heldur en þeirri, sem Ögmundur reisti eftir brun- ann. Enginn kirkjubruni hefir síðan orðið í Skálholti, en bær brann 1630. Merkasta staðreynd athugan- anna nú er öskulag, sem hlýtur að stafa frá brunanum um 1527 og finnst um allan kirkjugrunn- inn, víða rétt undir grastónni. Við hverja endurreisn kirkjunn- ar síðan hefir eitthvað verið mokað í því, og sums staðar kann sú tilfærsla að valda því, hve nærri yfirborði það er. En tví- mælalaust er mikið af því ó- hreyft lag, nema hvað leitað hef- ir verið rækilega í því strax eftir Framhald á bls. 7 hún lauk námi sem skólakenn- ari. Enda var óvenjulega kært og náið samband með þessum systrum öllum. Anna sál var fermd af séra Jóni Bjarnasyni í fyrsta hópnum í fyrstu kirkju sem íslendingar byggðu í Winnipeg. Hún minnt- ist séra Jóns ætíð með hlýleik og aðdáun—nefndi ritverk hans auk allra annara starfa. Það íannst jafnan á, að hún dáði þá sem komu miklu í verk, enda mátti hún þar um tala. Séra Jón hafði látið þau orð falla að hún hefði þurft að eiga þess kost að ganga menntaveginn. En elztu börn innflytjendanna urðu sem fyrst að vinna fyrir sér. Anna varð á unga aldri bezta sauma- kona. Það þótti í þá daga góð at- vinna, og koma sér vel. Hvar sem hún átti heima tók hún ætíð þátt í kirkjulegri starf- semi og öðrum íslenzkum félag- skap. í Winnipeg var félagslífið í blóma; þeir Gestur Pálsson, Jón Ólafsson og Einar Kvaran, voru við ritstjórn blaðanna o.s.frv. og margt skemmtilegt og sögu- legt þótti bera við. Árið 1899 giftist Anna sál Kolbeini Sig- geirssyni Þórðarssonar, ættuð- um úr Borgarfjarðarsýslu, prent ara að iðn. Þau bjuggu fyrst í Winnipeg, síðan nokkur ár í Ed- inburg, N. D., þar næst á nokkr- um stöðum í Canada, þar sem Kolbeinn gaf út vikublöð. Frá Saskatoon, Sask. fluttu þau til Seattle, Washington, árið 1924, og gerðust á sínum tíma Banda- ríkja borgarar. Hér farnaðist þeim vel og komu öllum yngri börnum sínum til mennta. Þeim fæddust ellefu börn. Þau misstu einn son á barnsaldri og annan á uppvaxtarárum. Þau nutu al- mennrar aðdáunar fyrir prýði- legan barnahóp, vináttu og gest- risni í heimilinu, og takmarka- lausa aðstoð í íslenzkum félags samtökum hér. í gullbrúðkaupi þeirra vottaði fólkið hér af mik- illi alúð, þakklæti sitt og virð- ingu. Nokkrum mánuðum síðar andaðist Kolbeinn. Anna hélt heimilinu við, og bjó þar það sem eftir var, í nánu sambandi við hin ástriku börn sín. Hún bar ellina vel—sókti messur og mannfundi—ferðaðist til systra sína og barnanna í fjarlægð—og fylgdist með þvf sem var að ger- ast. Eins las hún mikið. Alla æfi hafði hún yndi af góðum bók- um—og ljóðum, eins og flestir íslendingar. Hún var eftirtekta- verð kona. Henni var í ríkum mæli gefið flest það sem út heimtist til að stjórna og leið- beina á stóru heimili. í fram- komu bar hún með sér bæði ástúð og hugprýði. Jafnvægi hennar virtist óraskanlegt, hvað sem að höndum bar, og trúin á sigur þó móti blési, óbilandi. Af þessu þreki miðlaði hún öðrum alla daga. Hún var svo hlý og einlæg í örlæti sínu og gestrisni, í samúð ef sorg bar að höndum, og í aðdáun sinni ef henni þótti eitthvað vel eða fallega gert, að börninn hennar og vinum er það ógleymanlegt. Dagsverkinu er lokið og um það ljómar*blíðasti aftanroði bjartra minninga. Jakobína Johnson 9. september, 1952

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.