Lögberg - 18.09.1952, Síða 7

Lögberg - 18.09.1952, Síða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 18. SEPTEMBER, 1952 7 Biskupsgöngin Framhald af bls. 2 brunann að bráðnum málmi og sérhverju verðmæti. Þetta lag vildum við ekki skemma í kirkju grunni, en hirtum glerbrot fá- ein og eirnagla úr yfirborði þess, fyrir sýnishorn. Árnagrunnur frá 1311 (kennd- ur við þáverandi biskup, Árna Helgason, sem reit sögu Staða- Árna, fyrirrennara síns) ætti að vera finnanlegur að allmiklu ltyti í þessu öskulagi, sem grein- ir skarpt milli tímans fyrir og eftir 1527. Slík greining er ómet- anleg stoð fyrir framhaldsrann- sókn. Finnur biskup Jónsson hélt því fram í kirkjusögu sinni (Hist. eccl. II.), að Árnakirkja hafi verið svo há og mikil, að slíkt timburhús hafi eigi borið sig, og af þeirri ástæðu hafi það verið, sem ofviðri laskaði mjög stöpul og kirkju á Þorláksmessu fyrir jól 1318. Viðgerð kirkjunnar eftir það áfall hefir líklega engum stór- breytingum valdið. Árnakirkja hefir víst verið glæsilegasta hús sinnar tíðar á landinu og ögrað Auðuni rauða til að hefja enn stórkostlegri kirkjusmíð á Hól- um. En Auðun kom aldrei verk- inu af, það féll í rúst, og eldri kirkjan varð að duga Hólum enn lengi. Fram til 1527 hefir því Árnakirkja orðið stílfyrirmynd- in, sem menn þekktu eftirlíkta í beztu kirkjum lands og líktu síðar eftir á ný í smækkandi dóm kirkjum Ögmundar og Brynjólfs. Þannig er eins og kynslóðin, sem var ung, þegar Njála var skrifuð, hafi einnig skapað okkur það fremsta, sem við eignuðumst á miðöldum í kirkjulist. í SkólhoSti . . . garðinn vígi gott. Forskáli (göng) lá frá bæ til kirkju, og væntu þeir atsóknar inn eftir þaki hans, báru vatn á þakið, svo að frysi og yrði hált, og reistu þar og líklega víðar á kirkju- garðsvegginn viðu til varnar. Jarðrask varð eigi gert á vetri. Gizur svaf í kirkjustöplinum og fylgdarmenn hans, víst tugum saman. Þeir Órækja komu ofan traðir og sóttu að. Maður, sem viðskila varð við lið hans, gekk einn und- ir kirkjugarð að vestan, hugði Órækjumenn þar upp komna, rétti hendur upp í móti þeim, og drógu garðsverjendur hann til sín og bundu. Af þessu sést, að garðurinn var um seiling á hæð og hlaðinn svo í varnarskyni. Grímsnesingar vörðu garðinn norðan og til Líkahliðs, sem ver- ið hefir í brekkunni beint neðan við núverandi kirkjugarðshlið. Söðlabúr er nefnt þar áfast við garðinn að norðvestan, og var fast sótt til uppgöngu á það búr. Biskupstungnamenn og Skeiða \örðu garðinn austan og allt til gestahúsa, er virðast hafa verið rétt hjá forskálanum, því að Gizur varði hvort tveggja saman með fylgdarmönnum sínum, og þar voru sögulegust vopnaskipt- in. Rétt þar fyrir vestan var á suðurveggnum hlið, „er til kirkju er gengit neðan frá húsum.“ Hreppamenn vörðu þaðan vest- ur til Líkahliðs. í engu getur frá- sögnin Virkishóls, sem nú er að- ems 2 metra frá kirkjugarði austanverðum, og ber það því vitni, að þá var ekki til neinn Virkishóll þar, sem máli skipti, heldur mun hann hækkaður upp síðar. Myndir úr Sturlungu Virðum fyrir okkur Skálholts- sögu ársins 1242; lengri Sturl- unguþáttur yrði blaðagreininni ofviða. Höfuð Sturlunga voru fallin, Sighvats og sona hans fjögurra á Örlygsstöðum 1238 og Snorra í Reykholti fyrir fáum mánuðum. Til hefnda voru Órækja Snorrason og Þórður kakali. Þegar Órækja fór að Gizuri Þorvaldssyni um nýár, stökk hann í Skálholt með fylgdarlið sitt og hóf liðssöfnuð um hérað. Menn hans vildu eigi flýja ann- að, því að þeir kölluðu kirkju- Sparið peninga! Sparið meira en hálf útgjöld við reykingar! Vélvefjið vindlinga yðar með CIGARETTE Þegar Sigvarði biskup, sem var í kirkju með klerkum sínum, þótti fullnóg barizt, hljóp hann út eftir forskálanum og yfir við- una móti vopnum þeirra Órækju og hóf yfir þeim bannsetning. Hætti þá bardagi, og bráða- birgðasættir tókust. Skálholt og Þórður kakali Um haustið hóf Þórður kakali hefndarferðir feínar. í nóv. söfn- uðust nær 6 hundruð (720) Ár- nesinga í Skálholtskirkjugarð til að verjast honum þar og höfðu umbúnað til bardagans. Þórður reið heim í geilarnar með lið þrefalt færra, en orustuvanara. Hann sendi á undan Hrafn Odds son og Teit Styrmisson að ræða um sættir og þó meir til að njósna um vígbúnaðinn á garð- inum, hve torsóttur væri. Þeir komu aftur og sögðu, að bændur væru torsóttlegir, ef nokkur dáð væri í þeim. Þórður gekk þá að samningum heldur en berjast. Þessu sinni höfðu bændur tóm fengið til að gera varnir garðsins sterkar, og mætti ráða af um- sögn Hrafns og Teits, að það hafi verið gert. Sums staðar á Norðurlöndum og einkum í Svíþjóð var alsiða að víggirða kirkjugarða og þá helzt rammlegar en nokkurn tíma var reynt í Skálholti. Þess- ar Skálholtsmyndir opna því nokkra fjarsýn, sem tengir hern- aðarþróun hér við sögu hinna Norðurlandanna. Eldri sögur um varnir herflokka í kirkjugörðum, s. s. á Helgastöðum í Reykjadal 1222, eru þýðingarminni. Á hinn bóginn var Sigvarði, friðgjörnum biskupi, og flestum kirkjumönnum stórilla við þessa hernaðarnýjung að breyta kirkju görðum, sem til þess hentuðu, í vígi. Löngun til slíks hafði víst enginn biskup Skálholts fyrr en Jón Gerreksson settist að stóli og hélt þar málalið, kringum 30 atvinnuhermenn, sem landsmenn ímynduðu sér, að væru írskir. Hvað segja jarðgöngin okkar? Við mokuðum upp úr göngun- um fornu, sem liggja utan gegn- um kirkjugarðsvegg inn undir kirkju, 15 metra leið. En sá gangahluti, sem utan kirkjugarðs lá og heim til bæjarhúsa, mun að mestu rifinn í grunn og eins skólarústirnar á þeirri leið (eink- um rifið grjótið úr skólaveggjun- um við hlöðubygging á staðnum 1902.). Það vil ég fullyrða nú, að for- skálinn í Sturlungu er sama og þessi göng eða hefir verið á sama stað. Hjá Vestur-Skaftfellingum hefir forskáli þýtt til okkar daga göng til útihúss. Göngin fornu til Snorralaugar í Reykholti hétu íorskáli í Sturlungu, og svipaðs forskála er getið í Bæ 1 Borgar- firði, en við Keldur hafa nýlega verið grafin upp slík göng, ef- laust frá Sturlungaöld. Lega grunnklappar í garðinum sýnir, að menn hefðu aldrei farið að byggja slík kirkjugöng austar (í bogakamb yfir háa klöpp), fyrst hægt var að hafa þau styttri, auðreistari og látlausari nákvæmlega við klapparendann, þar sem þau eru nú. Kirkjan hefir aldrei náð til muna vestar en er, svo að varla er tilefni til að halda, að menn hefðu viljað hafa göngin vestar en þau eru og láta þau þrengja að mann- fjölda, sem safnast kunni fyrir aðaldyrum kirkju. Botn gang- anna þurfti frá öndverðu að liggja undir kirkjuvegg sem mest, svo að þau spilltu síður heildarsvip húshliðar. Og fremur lág voru þau, meira að segja niðri í húsasundinu utan garðs, fyrst þar þótti vænlegra til að- sóknar en í nokkrum öðrum stað. Klöpp ræður hinu, að gólfhellur gátu ekki legið dýpra að jafnaði en þær liggja nú í göngunum. Þar erum við því að troða a. n. 1. sömu hellur og á Órækju dögum og sjáum lifna vegghleðslur rúmra sjö alda. Breidd ganganna er víðast metri við gólf, nema á kafla tæpir 80 sm., og hafa þar hleðsl- ur sigið eitthvað fram. Á köflum er hleðsla mestöll hrunin eða hefir verið rifin um leið og Brynjólfskirkja fyrir 150 árum. Upp við kirkju eru um 190 sm. frá gólfbitum hennar niður á klöpp, en yngstu gólfhellur þó ofar en svo, að manngengt hafi verið þar undir ytri gólflægjur í Brynjólfskirkju. Tröppurnar þar virðast nú að fullu rifnar og er slæmt. Að öðru leyti er hellu- gólfið í göngunum órótað og vandað eins og sómdi sér handa skrýddum biskupum og frúm að ganga í hrakviðrum þá leiðina úr bæjarhúsum til messu. Og þessa leið gengu munkar og klerkar miðaldanna á hverri nótt til óttusöngs og bæna. Dýpt ganganna er mínna en mannhæð, nema dálítið dýpri syðst niður við kirkjugarðs- vegginn, þar sem leiðin til skóla- skálans lokast enn af mold og tveim stórum steinum. Lauslega fyrirhleðsla ofarlega í göngun- um er ungleg og gat verið höfð í stað hurðarláss fyrir þessum aukadyrum kirkjunnar árin sem hún var að grotna niður um 1800. En lengi fram eftir 18. öld (fram yfir 1764 a. m. k.) hafði verið myndar torfþak á göngunum og undir því átta (5) þverbitar með dvergstoðum á. Þessu líkt verður að þekja göngin nú, halda þeim við. Upp úr göngunum kom marg- víslegasti ruðningur grjóts og torfs og viðarkolaösku. Ekki hef- ir þak þeirra hrunið og lagzt á gólf, heldur voru mannaverk á öllu, og tínt hafði verið burt hvert sprek sem hæft var til elds- neytis og meginið af hleðslu- hæfu grjóti. En við fundum nóg af smáum glerbrotum, ryðnögl- um, sviðnum og ósviðnum viðar- leifum í graut, — ennfremur brotnar krítarpípur tóbaksmanna á Brynjólfsdöguni o. s. frv.* Eina skýringin, sem ég veit á þessum blendingi í göngunum, er sú, að þegar Brynjólfsgrunnur var að nokkru hreinsaður undir nýja kirkju 1803 (og aftur 1851), voru göngin nýrifin eða rifin þá og áttu að fyllast með þessum ruðningi. HUgsanlegt er, að í sama tilgangi hafi þá verið sótt rusl heiman frá bæ og látið í göngin, eins og sum brot af gler- og leirvöru benda til. En önnur gler eru samkynja við gler fund- in austast í kór. Virkið austur á hólnum Virkishóll, sem ég heyrði ein- hvern fyrir löngu nefna Virkis- búð (vegna blöndunar við Þor- láksbúð í Skálholti og Virkisbúð á Þingvöllum?) er álagablettur einn fyrir austan kirkjugarðinn. Ekkert gerðu menn að vísu með þau álög framan af 20. öld, og eigi mun reimt þar lengur. En hugmynd hefir verið til um það, að vígbúnaður setuliðs Jóns Gerrekssonar hafi gefið hólnum hið einkennilega nafn og þá sennilega óorðið með. Þetta gæti verið seinni tíma ályktun, en gæti verið lífseig, deyjandi sögn. Við grófum þar til að vita, hvort líkur fengjust með eða mót. Eldri en svo munu fáir ætla virkið þar, sbr. það, sem áðan var sagt frá 13. öld. Jón Egilsson segir í Biskupa- annálum (Safn 1,90) *og yngri sagnamenn að mestu eftir hon- um (J. H. í Lbs. 647,4to,408—12), að þegar Jón biskup Arason vildi . ná Skálholti 1548, stjórnaði Jón Bjarnason ráðsmaður vörn og lét að ráðum Gleraugna-Péturs Ein- arssonar „gjöra virki fyrir norð- an búðina og bera þangað byss- urnar, og svo var gjört; suður hjá smiðju bjuggu þeir líka um þær til varnar . . . . en sem þeir (Jón) komu heim yfir túngarð- inn, þá skutu þeir heima í virk- inu; hinir þorðu þá ekki lengra . . . .“ Virki fyrir norðan búðina, þ. e. Þorláksbúð kirkjugarðsins, getur ekkert verið nema Virkishóll, þótt hálfskökk sé áttin, enda hggur sá hóll svp vel til að skjóta af boga og byssu bæði í traðirn- ar og að hverjum, sem uppgöngu reyndi austan á kirkjugarðinn, að vart hefðu menn farið að gera þar forvirki garðsins á öðrum lægri stað. Umbúnaður þeirra Péturs hefir verið sams konar og gerist í skotgröfum og sennilega fiaustrað upp ýmsum varnar- hleðslum á kirkjugarðsvegg og hús, en þetta nægði til að fá biskup til að hætta við árás á staðinn. Við Jökull rufum hauginn. í 60 sm. dýpi uppi á 7—8 metra breiðum kolli Virkishóls kom í ljós hringlaga gólf, nær 6 m. í þver mál og vandlega púkkað með völdum smáhnullungum, sem geta ekki skroppið til eða sporðreistst eins og hellur þær, sem mest var annars gólflagt með á staðnum. Kringum gólf- flötinn hefir verið hringhleðsla ur smáu grjóti og torfi, en stórir steinar í þeirri hlið hringveggs- ins, sem út sneri, svo örðugra væri að rjúfa. Milli hringveggs og kirkjugarðs virðast hafa ver- ið tveir metrar, en plógur mun hafa gengið þar yfir við túna- sléttun fyrir all-löngu, svo að ég vil ekki fullyrða það, sem þó er sennilegast, að þakin göng hafi legið úr virkinu inn í kirkjugarðs griðin. Líkur eru þannig, að þetta vandaða verk, sem eigi er full- rannsakað, sé eldra en Gler- augna-Pétur, en hann hafi látið hressa það við fyrir byssur sín- ar. Ekki voru íslenzku biskup- arnir næst á undan líklegir til að nota virkið nema þá fyrir hesta- létt í viðlögum, og berast nú sterklega böndin að Jóni Gerr- ekssyni um frumsmíð þess. Hann var gæðingur Eiríks af Pommern og hraktist fyrir Svíum úr erki- biskupsstóli Uppsala. Þá sendi Eiríkur kóngur hann hingað, en fyrir herskap hans drekktu lands menn honum í Brúará 1433. Um setulið útlends drottnara á íslandi á þeirri öld eru varla sýnilegar minjar nema í Skál- holti: Iragerðisþúfur tvær í túni og líklega þessi hóll. Björn Sigfússon —TÍMINN, 31. júlí Mot norrænna kirkjutónlistar manna háð í Reykjavík Fimmta mót norrænna kirkju- tónlistarmanna v a r h á ð í Reykjavík dagana 3.-10. júlí sl. Varu þar viðstaddir 10 fulltrú- ar frá Danmörku og 9 frá hverju landi: Noregi, Finnlandi og Sví- þjóð, auk allmargra fulltrúa héð an. Á meðal hinna erlendu full- trúa voru ýmsir kunnustu tón- listarmenn Norðurlandakirkn- anna. Færeyingar komu því ekki við að senda fultrúa að þessu sinni. Hófst mótið með því að guðs- þjónusta fór fram í Dómkirkj- unni 3. júlí kl. 12 síðdegis. Pró- fessor, séra Ásmundur Guð- mundsson—flutti prédikun, en dómprófastur og dómkirkju- prestur þjónuðu fyrir altari. Félag íslenzkra organleikara annaðist móttökurnar og setti formaður þess dr. Páll ís.lfsson mótið í Háskólanum kl. 3, sama dag. Flutti hann þar ávarp þar sem hann lýsti ánægju sinni yfir komu hinna erlendu full- trúa til Islands og bauð þá vel- komna. Talaði hann meðal ann- ars um markmið þessara móta og fagnaði því, að fleiri íslenzkir tónlistarmenn fengju nú að taka þátt í slíku móti en áður hafði verið unnt. Kvaðst hann ekki ef- ast um að samstarf kirkjutón- listarmannanna erlendu og ís- áhrif á þróun kirkjutónlistar á lenzku mundi hafa mikil og góð Islandi. Á meðal hinna erlendu full- trúa má nefna próf. Emelíus Bangert dómorganista í Hróar- skeldu, próf. Arnas Masalo og John Sundberg, próf. frá Hel- sinki, Norðmanninn Arild Sand- vold dómorganista og Svíann próf. David Ahlén, sem allir fluttu ávörp, en á eftir hverri ræðu sungu íslenzkir kirkjukór- ar þjóðsöngva hvers lands. í sambandi við mótið voru kirkju- tónleikar haldnir á hverju kvöldi að kalla mátti, þar skiptust á söngur og orkanleikur. Höfðu íslenzku kórarnir verið sérstak- lega æfðir undir þessa sam- söngva. Dómkirkjukórinn af dr. Páli ísólfssyni, Kirkjukór Hall- grímskirkju af Páli Halldórs- syni, Kirkjukór Nessóknar af Jóni ísleifssyni og Kirkjukór Hafnarfjarðarkirkju af Páli Kr. Pálssyni. Tónleikarnir fóru alir fram í dómkirkjunni, íslenzkir, danskir finnskir, norskir og sænskir. Var kórunum stjórnað ýmist af ís- lenzku söngstjórunum eða þess- um erlendu söngstjórum: Próf. M a s a 1 o, dómorganista Arild Sandvold og próf. David Ahlén. —Þeir sem léku á dómkirkju- orgelið á þessu kirkjutónlista- mój;i voru: Dr. Páll ísólfsson, dr. Victor Urbancic, Páll Kr. Páls- son, Finn Viðarö, Sören Sören- sen, Harold F. Andersén, Arild Sandvold, Rolf Karlsen, Ludvig Nielsen og Gustav Carlman. Ein- söngvarar mótsins voru: Frú Þuríður Pálsdóttir, ungfrú Elsa Sigfúss, Guðmundur Jónsson, Einar Kristjánsson, Sulo Saarit og á fiðlu lék einleik * Björn Ólafsson. Lögin, sem leikin voru og sungin, voru öll eftir höfunda frá Norðurlöndum. Sunnudaginn 6. júuí fór fram útíguðsþjónusta á Lögbergi. Komu þar kirkjukórar úr Reykjavík og nálægum héruð- um og sungu þar, alls um 500 manns, en biskipínn prédikaði. Ferðir voru farnar um nágrenn- ið og til Gullfoss og Geysis. Far- ið var og til Hafnarfjarðar, þar sem notið var mikillar gestrisni og rausnar hjá bæjarstjórn. Ýms fróðleg erindi voru flutt á mótinu. Fyrirlesarar voru þessir: Sigurður E. Birkis, söng- málastjóri, Sören Sörensen, or- ganleikari, Magnús Már Lárus- son, prófessor, Erling Kjelsen organleikari, David Ahlén, pró- fessor og Carl Ljungdal. Mótinu lauk með samsæti í sjálfstæðis- húsinu. Mót þetta kostaði, eins og gefur að skilja, mikinn undir- búning, fé og fyrirhöfn. En það var eins og menn teldu þetta ekki eftir sér. Öllum virtist vera ljúft að gera sitt til að tónlistar- mótið gæti orðið íslendingum til sóma. Organleikarar með Dr. Pál Isólfsson í broddi farar og söngmálastjóri höfðu aðalfor- ystu. Söngfólkið kom til æfinga að segja mátti að nóttu jafnt sem degi. Ríkisstjórnin brást drengilega við um fjárstyrk til mótsins og dvalarkostnaðar hinna erlendu gesta. Ötull og á- gætur framkvæmdarstjóri var ráðinn hr. Edwin Árnason og var hann sífelt á ferðinni. Þátt^ taka í kirkjutónleikunum var á- gæt. En hvað er að öðru leyti að segja um þennan atburð? Hvern ig tókst mótið? Hvernig sungu íslenzku kirkjukórarnir og hvern ig leystu íslenzku söngstjórnir og organleikararnir hlutverk sín af hendi? Um það ættu ef til vill aðrir að dæma en vér sjálf- ir. Þó finnst mér ég ekki komast hjá því að segja það, að ég hygg að kirkjusöngs- og korkjutón- listarviðleitni okkar í nútíman- um, sé athyglisverð og þjóðinni fremur til sóma en lasts. Ég átti tal við ýmsa hinna erlendu fulltrúa, sem létu í ljós aðdáun sína á frammistöðu íslenzkra kirkjutónlistarmanna, organist- anna, fólksins, sem í kórunum söng og einsöngvaranna. Þeir dáðust að raddfegurð söngfólks- ins og hæfni þeirra, sem af okk- ar hálfu tóku þátt í mótinu. Tel ég víst, að organistafélagið ís- lenzka birti ummæli þeirra. Ég er ekki í vafa um það, að Kirkju- tónlistarmótið h e f i r góð og heillarík áhrif og að þeir sem tóku þátt í því eða að því komu sem hlustendur, eiga almennt um það hinar beztu endurminn- ingar. Þessvegna ber að þakka þeim, sem mestan og beztan þátt inn áttu í því að hið 5. mót norr- ænna kirkjuótnlistarmanna var haldið hér á landi. Það hefir orðið merkasti viðburðurinn í kirkjutónlistarsögu íslands til þessa dags. S. S. KIRKJUBLAÐIÐ OPPORTUNITY C4LLS In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Commcnce Your Busincss Training Immetliately! For Scholarships Consult THE COLIJMBIA PUESS LIMITED PHONE 74-3411 695 SARGENT AVE., WINNIPEG

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.