Lögberg - 25.09.1952, Page 1
Phone 74-6643
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
Phone 74-6643
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
65. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 25. SEPTEMBER, 1952 NÚMER 39
- ■■ .........................- . -> ■ . —----------------—------------------------------------------------—--------------------------------------------------*
Heiðurssamsæti í Blairte
Merkur maður lótinn
Jóhann Straumfjörð, um langt
skeið bóndi nálægt Blaine, en
nú búsettur þar í bænum, átti
áttræðisafmæli nýlega. I tilefni
af því héldu meðlimir fjölskyldu
hans og aðrir vinir honum veg-
legt samsæti í samkomuhúsi
lútersku kirkjunnar þar, sunnu-
daginn 7. september s.l.
Klukkan þrjú síðdegis, þann
dag, voru um 75 manns saman-
komnir í salnum til að heiðra
þennan mæta mann með gjöfum
og ávörpum. Er menn höfðu
skipað sér í sæti, gekk Mrs. H.
Sigmar fram og afhenti Mrs.
Straumfjörð blómvönd frá söfn-
uðinum.
Dr. H. Sigmar var samkvæm-
isstjóri. Lét hann fyrst syngja
sálm og flutti bæn. í ávarpi sínu
til heiðursgestsins lét hann svo
um mælt, að það væri söfnuð-
inum ánægja og heiður að votta
þessum dygga þjóni kirkjunnar
maklega viðurkenningu. Þakk-
aði |ann svo heiðursgestinum
starfsemi hans í þágu safnaðar-
ins, og kirkjunnar yfirleitt. Lét
hann orð falla á þá leið, að
„vinir Mr. Straumfjörðs dá
hann, ekki aðeins fyrir það, sem
hann hefir gert, heldur fyrir það
sem hann er — kristinn heiðurs-
maður.“ Andrew Danielson tók
þá til máls, og ávarpaði heiðurs-
gestinn fyrir hönd byggðarfólks;
brá hann í ræðu sinni upp mörg-
um myndum af ósérhlífni Mr.
Straumfjörðs og gifturíku starfi
hans í þágu sveitar og safnaðar-
-mála síðastliðin fimmtíu ár.
Sætaskipun í salnum var
þannig hagað að heiðursgestur-
inn sat annars vegar, ásamt
fjölskyldu sinni, við skraut-
búið borð, en andspænis þeim,
hinum megin, voru veizlugest-
irnir. Safnaðarkvenfélögin tvö,
ásamt 'meðlimum fjölskyldunn-
ar, stóðu fyrir ríkmannlegum
veitingum. Margar verðmætar
gjafir voru fram bornar frá fjöl-
skyldunni og einnig frá söfnuð-
inum; en safnaðargjöfina af-
henti formaður sóknarnefndar,
Mr. A1 Lundstrom, og flutti
hann um leið ávarp. Mrs. Har-
old Mix (Lillian) mælti fyrir
munn barnanna og afhenti heið-
ursgestinum útvarpstæki að
gjöf. Joan Mix afhenti ömmu
sinni blómvönd, og sagði um
leið: „Við gefum þér þetta,
amma, fyrir að líta svo vel eftir
afa.“
Nancy Mae Scheving mælti
fyrir munn barnabarnanna, og
Það munar
um minna
Bóndi nokkur í Marquette-
bygðinni hér í fylkinu, John A.
MacMillan, sáði í vor höfrum í
átta ekrur og fékk í haust til
jafnaðar 132 mæla af ekrunni;
er þetta sú mesta uppskera
þessarar tegundar, sem um get-
ur í sögu bygðarlagsins.
Hlýtur námsstyrk
Miss Dorothy Mae Jónasson,
sem nýfarin er til Toronto til
framhaldsnáms í fiðluleik við
Toronto Conservatory of Music,
hefir enn á ný hlotið $250.00
námsstyrk frá kennara sínum,
Elli Spivak, og sýnir það hve
mikið álit hann hefir á hljóm-
listarhæfileikum þessarar ungu
stúlku.
las um leið kvæði, sem móðir
hennar, Mrs. Ruby Straumford
Brown, hafði ort fyrir þetta
tækifæri, og afhenti um leið
gjöf. Önnur dóttir þeirra hjóna,
Mrs. Dóra Peherson frá Bell-
ingham, talaði fyrir munn barna-
barna-barnanna, en Mrs. Ed.
Peterson (Mae), sem einnig var
viðstödd, sneið brúðarkökuna.
Einkasonur þeirra hjóna, Jó-
hann Straumfjörð yngri, sem
búsettur er í California, gat ekki
verið viðstaddur, en hann talaði
við föður sinn í síma á sunnu-
dagsmorguninn.
Einsöngva sungu þau Mrs.
Nancy Mae Scheving, Mrs. E.
H. Sigmar og séra Eric Sigmar,
en tvísöng sungu þau hjónin,
Mr. og Mrs. Scheving. Einnig
söng kirkjukórinn hátíðarsöng,
undir stjórn Mrs. H. Sigmar.
Kveðjur fluttu þau áéra G. P.
Johnson í Seattle, Mrs. Charles
Wells í Blaine, séra Eric H. Sig-
mar frá Seattle og séra Albert
Kristjánsson í Blaine. Að lokum
risu heiðursgestirnir úr sætum
og þökkuðu fyrir auðsýnda vel-
vild frá ástvinum og öðrum sam-
ferðamönnum, og hinar mörgu
og fögru gjafir. Fjöldi kveðju-
skeyta kom úr ýmsum áttum frá
fjarlægum vinum, þar á meðal
frá séra Harold Sigmar á Gimli,
og séra Valdimar J. Eylands, í
Winnipeg, fyrrum presti í
Blaine, og nú forseta hins lút-
erska kirkjufélags íslendinga í
Ameríku.
Lauslega þýli úr
—Blaine Journal
Sfórhækkuð
íbúatala
Að því er nýjustu hagskýrslur
herma, er íbúatala Bandaríkj-
anna nú komin upp í 157 miljón-
ir og eykst enn hröðum skref-
um; þess er ennfremur getið,
að þrátt fyrir hinar mörgu og
miklu borgir og stóriðjuna, sem
þar er rekin, standi landbúnað-
urinn engu að síður í miklum
blóma og þéttbýli haldist við í
flestum sveitum landsins.
Vinnur að hljóm-
lisfarrannsóknum
Frank Thorolfson
Hinn kunni píanóleikari og
tónlagahöfundur, Frank Thor-
olfson, sem um allmörg ár hefir
iðkað list sína í Chicago, fluttist
til New York síðastliðið sumar,
og gefur sig þar mjög að hljóm-
listarrannsóknum, einkum í
sambandi við gamlar, franskar
óperur, sem hann nú er að búa
undir prentun; hann starfar við
International Music Institute í
New York, en dvelur nú hér í
borg um hríð vegna veikinda
foreldra sinna.
Paul Reykdal
Pioneer Honored
In a special ceremony during
the annual fall Gamalmennamót
at Lundar last Sunday, Paul
Reykdal unveiled a portrait
of the deceased Paul Reykdal.
There was no spiritualistic
mysticism involved — one is a
grandson of the other.
The memorial dedication serv-
ice was held undir the auspices
of the Lundar Community Club
and the Grettir Amateur Ath-
letic Association, which Paul
Reykdal organized and directed
for many years. Einar Johnson
and Oscar Thorgilson, early-day
athletic stars of the Grettir Club,
formed a guard of honor during
the unveiling, along with D. J.
Lindal, Walter Breckman, O. F.
Eyolfson and A. V. Olson, vice-
president of the club.
Dr. Guðmundur Pálsson, presi-
dent of the Grettir Club, deliver-
ed a brief address covering
Paul’s activities with that or-
ganization. “Human happiness,”
he said, “is not made up of
wealth, power or position, but
setting a goal and striving un-
selfishly towards it. Many of us
would not wish to return to the
hardships of pioneer days, but
it would be well to emulate the
spirit created by those pioneer-
ing conditions.”
A. V. Olson spoke on behalf
of the Community Club on Paul’s
activities in community under-
takings. Rev. P. M. Petursson,
chairman of the meeting, com-
pleted the speeches. P. V. Reyk-
dal, Paul’s eldest son, thanked
the community on behalf of the
Reykdal family for the honor
done their father.
A mixed choir under the direc-
tion of V. J. Guttormson render-
ed several Icelandic tunes.
Líf í skókinni
Bæjarstjórnarkosningar í Win-
nipeg fara fram þann 22. októ-
ber næstkomandi og verður þá
kosið um borgarstjóra; að þessu
sinni verður eigi dregið í efa,
að nokkurt líf verði í skákinni,
því þrír verða í kjöri um borgar-
stjóraembættið; núverandi borg-
arstjóri, Garnet Coulter, leitar
endurkosningar, en auk hans
bjóða sig fram Donovan Swailes
fylkisþingmaður af hálfu C.C.F.-
sinna og Stephen Juba verk-
smiðjueigandi, er hefir það æðst
stefnuskráratriða sinna, að koma
á fót samdrykkjustofum í borg-
inni fyrir konur og karla; telur
hann það meðal annars hina
mestu óhæfu, að kvæntir menn
rnegi ekki einu sinni í sterkasta
sumarhitanum, bjóða konum
sínum upp á ölglas á löglegum
stað.
Mr. Coulter er kunnur af-
bragðsmaður, er reynst hefir
um alt hinn hæfasti maður í
embætti sínu, og ætti þar af leið-
andi að eiga endurkosningu
vísa.
Nýlega er látinn í borginni
San Francisco í Californíu, Mr.
Ellis Stoneson, frábær athafna-
maður og miljónamæringur, 59
ára að aldri. Hann var fæddur í
Victoria, B.C., hinn 15. dag júlí-
mánaðar árið 1893. Foreldrar
hans voru Þorsteinn Þorsteins-
son og kona hans Ingibjörg
Einarsdóttir úr Stafholtstungum
í Borgarfirði hinum meiri.
Hinn látni naut mentunar í
Washington State College. Hann
fluttist til San Francisco fyrir
þrjátíu árum og hóf þar í félagi
við Henry bróður sinn umfangs-
mikinn byggingariðnað; auk
geisilegs fjölda íbúðarhúsa,
reistu þeir bræður margt stór-
hýsa, en urðu frægir um öll
Bandaríkin fyrir að koma á fót
heilu borgarhverfi, Stonestown;
íbúðahverfið kostaði hátt á
níundu miljón dollara, en verzl-
unar- og viðskiptaparturinn
seytján miljónir; nákvæm lýsing
á þessu risafyrirtæki birtist í
Lögbergi í fyrra.
Mr. Stoneson var um langt
skeið formaður Associated Home
Builders í San Francisco og var
meðlimur fjölda félaga þar í
borginni; hann var miljónamær-
ingur að því er San Francisco-
Ánægjulcg
kvöldstund
Síðastliðið laugardagskvöld
var gestkvæmt á heimili þeirra
Jochums Ásgeirssonar forstjóra
og frú Ingibjargar Ásgeirsson að
126 Lodge Street, Silver Hights,
vestan við Winnipegborg; var
hér um að ræða óvænta heim-
sókn, er milli sextíu og sjötíu
menn og konur tóku þátt í; til-
efni heimsóknarinnar var það,
að samgleðjast þessum vinsælu
°g ágætu hjónum vegna þess að
þau voru flutt í sitt nýja og
fallega heimili, sem þau létu
reisa í sumar.
Séra Philip M. Pétursson
hafði orð fyrir gestum og skýrði
tilgang þessarar skyndi-innrásar
á heimilið; stuttar ræður fluttu
einnig Jakob F. Kristjánsson,
Guðmann Levy, Mr. Björling,
fyrir hönd sænska karlakórsins,
og Einar P. Jónsson.
Þeim Jochum og Ingibjörgu
voru færðir fallegir munir að
gjöf, en þau þökkuðu hvort um
sig með hlýyrðum gjafirnar og
vinsemdina, er lægi til grund-
vallar fyrir heimsókninni; sung-
ið var margt íslenzkra söngva
og rausnarlegar veitingar reidd-
ar fram; var kvöldstund þessi
um alt hin ánægjulegasta.
blöðum segist frá og mannkosta-
maður hinn mesti. Elliheimilið
Stafholt í Blaine átti honum
mikið gott upp að unna, og hið
sama gildir um íslenzku deildina
við Manitobaháskólann.
Auk áminsts bróður síns,
lætur Mr. Stoneson eftir sig
konu sína, Berthu, einn son og
tvær dætur; einnig lifa hann
tvær systur, Mrs. Kay Christop-
herson og Mrs. Andrés Oddstad,
báðar til heimilis í San Franc-
isco.
Síðastliðna viku hefir verið
hlýtt veður hér á landi og stund-
um 20 stiga hiti sums staðar
norðanlands og austan. Á Fljóts-
dalshéraði hefir hver dagurinn
verið öðrum fegurri og göngum
hefir verið frestað. Þykir líklegt
að heyfengur nálgist þar meðal-
lag að notagildi, ef tíðin helzt
þessu lík út septembermánuð.
Sunnanlands hefir verið hið
mesta þurrkasumar og heyskap-
ur því gengið vel, þótt illa væri
sprottið. Áveituengjar spruttu
ágætlega. Frostnætur í ágúst-
mánuði seint valda því, að kar-
töflu-uppskera verður yfirleitt
léleg, eða svo lítur út. Víða fyrir
norðan verður bún sáralítil.
☆
Um helgina sem leið hafði
samtals verið saltað í 24.327
tunnur síldar sunnanlands, þar
af 18.500 tunnur til útflutnings
upp í samninga. Um 150 bátar
stunda þessar veiðar með rek-
netjum, en það hefir valdið
miklum erfiðleikum, að í aflan-
um er mikið af smárri síld, sem
ekki er söltunarhæf, en senda
verður í bræðslu, og töldu eig-
endur bátanna að þeir bæru of
lítið úr býtum til þess að veið-
arnar svöruðu kostnaði. Var að
því komið að flotinn stöðvaðist
vegna misræmis á framleiðslu-
kostnaðarverði og markaðsverði.
Verðlagsráð Landsambands ís-
lenzkra útvegsmanna efndi þá
til fundar með útvegsmönnum
og síladarsaltendum og síldar-
útvegsnefnd, og var þar kjörin
nefnd manna til þess að ræða
við ríkisstjórnina um úrræði, á-
samt síldarútvegsnefnd. Nefnd-
ir þessar gerðu tillögur til ríkis-
stjórnarinnar, og svaraði stjórn-
in þeim í fyrradag á þann veg
að hún telji rétt að gerðar verði
tilraunir til þess að framleiða
íslenzka millisíld, stærð 28—31
sentimetri, og leitað verði fyrir
sér sem víðast um sölu þessarar
nýju framleiðsluvöru. í því
íhaldsmenn
vinna kosningar
Á mánudaginn var fóru fram
fylkiskosningar í New Bruns-
wick og lauk þeim á þann veg,
að íhaldsflokkurinn, undir for-
ustu Mr. Flemmings, vann hinn
glæsilegasta sigur; hann fékk
kosna 36 þingmenn, en Liberal-
ar aðeins 16.
Fimmtíu og tveir þingmenn
eiga sæti í New Brunswick-
fylki.
Forsætisráðherrann, Mr. Mc-
Nair, féll í hinn pólitíska val.
Gert er ráð fyrir að ný stjórn
takkvið völdum í fylkinu innan
þriggja vikna.
skyni og til þess að reknetja-
veiðarnar stöðvist ekki veitir
ríkissjóður ábyrgð á söluverði
síldarinnar samkvæmt tiltekn-
um reglum, og er þar miðað við
að framleiðsluverð millisíldar-
innar að frádregnum tilteknum
gjöldum verði 290 krónur á
tunnu með 100 kg. nettóþunga.
Ábyrgð þessi nær til allt að
10.000 tunnum.
☆
Nokkrir togarar hafa selt í
Þýzkalandi að undanförnu og
fengið heldur lágt verð fyrir
afla sinn. — Frá Vestfjörðum
hefir sjór aðallega verið stund-
aður á smábátum í sumar, og
hefir þorskafli víða verið góður
og sums staðar ágætur.
í ágústmánuði var vöruskipta-
jöfnuðurinn við útlönd óhag-
stæður um 200 þúsund krónur.
Inn voru fluttar vörur fyrir 60,3
miljónir króna, en út fyrir 60,1
miljón. Fyrstu átta mánuði árs-
ins var vöruskiptajöfnuðurinn
óhagstæður um 252 miljónir
króna. Inn voru fluttar- vörur
fyrir 600,9 miljónir króna, en út
fyrir 348,9 miljónir. Fyrstu átta
mánuði ársins 1951 ' var vöru-
skiptajöfnuðurinn óhagstæður
um 178,5 miljónir króna.
☆
Framleiðsluráð Landbúnaðar-
ins hefir tilkynnt hækkað verð
á mjólk, rjóma og skyri, og gekk
sú hækkun í gildi um helgina.
Svarar hún til hækkunar þeirr-
ar, sem orðið hefir á verðlags-
grundvelli landbúnaðarafurða,
en hann hafði hækkað um rúm-
lega 12%.
☆
í ráði er, að brennisteins-
vinnsla hefjist á Námafjalli í
haust, en þar hefir ekki verið
unninn brennisteinn svo nokkru
nemi um 100 ára skeið, og hafa
þar safnast fyrir nokkur þúsund
lestir af þessu hráefni. Hlutafé-
lag, sem nefnist íslenzka brenni-
steinsvinnslan, er að undirbúa
vinnslu á þessu magni og er
smíði véla vel á veg komin. 1
sumar hefir verið unnið að því
að safna brennisteininum á
vinnslustað. Gizkað er á, að
verðmæti þess brennisteins, sem
þarna hefir safnast fyrir, nemi
fjórum til sex miljónum króna,
og auðvelt er að selja þessa vöru
á erlendum markaði. Það hrá-
efni, sem liggur þarna á jörð-
inni, þrýtur fljótlega,- og hafa
verið rannsakaðir möguleikar
þess að vinna brennisteininn
beint úr hveragufunni. Hafa
verið boraðar nokkrar holur í
því skyni að rannsaka þetta.
Þykir mega 'fullyrða, þótt rann-
sóknum sé ekki lokið, að vinna
megi að minnsta kosti tvö til
þrjú þúsund lestir af brenni-
Framhald á bls. 4
ATVI KAVÍSUR
Eftir PÁLMA
Skugga-myndir
Heimsins prjál er víða valt,
veldur táli drauma:
Skugga máluð mynd er alt
manna sálar strauma.
I
Þó að hjarta leggi lið
ljósa-skartið hlýja,
litir bjartir blendast við
bólstra svarta skýja.
í Chicago
Læt nú fúinn lausann taum,
ljúft að snúinn könnum:
Skal því nú við glasa glaum
gleyma búi og önnum.
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands
14. SEPTEMBER __________________