Lögberg - 25.09.1952, Page 2

Lögberg - 25.09.1952, Page 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 25. SEPTEMBER, 1952 FINNBOGI GUÐMUNDSSON: Sveinbjörn Egilsson skóld 1852 — 17. ágúsl — 1952 (Úr Lesbók 'Morgunblaðsins á dánarafmæli skáldsins) : DAG eru liðin 100 ár frá andláti Sveinbjarnar Egilssonar, og 1 langar mig sökum þess að minnast hans að nokkru. Ævisaga Sveinbjarnar eftir Jón Árnason, er birtist framan við ljóðmæli hans 1856, er enn aðalheimild vor um líf og starf Svein- bjarnar, því að um sérrannsóknir á hinum einstöku þáttum í starfi hans er naumast að ræða. Vér höfum t. a. m. skáldið, þýðandann, orðabókarhöfundinn og kennarann Sveinbjörn Egilsson, þar sem hvert þessara atriða væri ærið rannsóknarefni. Það lætur því að líkum, að hér verður ekki stiklað nema á stóru. En áður en snúið verður að helztu verkum Sveinbjarnar, skulu æviatriði hans rakin í fá- um dráttum. Sveinbjörn Egilsson var fædd- ur 24. febrúar 1791* í Innri- Njarðvíkum í Gullbringusýslu. Faðir hans var Egill bóndi Svein- bjarnarson, en móðir hans hét Guðrún Oddsdóttir, og voru þau bæði af bændaættum. Er ég því miður ófróður um foreldra Sveinbjarnar og framættir, en set hér til gamans það, sem Benedikt Gröndal, sonur Svein- bjarnar, segir um föðurætt sína í upphafi Dægradvalar: Föður- ætt mín er að sunnan, en Jón Pétursson háyfirdómari, sem er ættfróður mjög, hefur ekki getað rakið hana nema skammt upp eftir. En hún nær sjálfsagt eins langt fyrir það, þó milliliði vanti, og í Landnámu stendur: Ásbjörn Özurarson, bróðurson Ingólfs, nam land milli Hraunsholtslækj- ar og Hvassahrauns, Álftanes allt, og bjó á Skúlastöðum; hans son var Egill, faðir özurar, föð ur Þórarins, föður Ólafs, föður Sveinbjarnar, föður Ásmundar föður Sveinbjarnar, föður Styrk- árs, föður Hafur-Bjarnar, föður þeirra Þorsteins og Gizurar Seltjarnarnesi. Hér eru sömu nöfn, sem hafa enn haldizt í föð- urætt minni og eru efalaust heit- in eftir þessum mönnum: Svein björn, Egill, Ásbjörn, Þorsteinn — þeir hafa allir verið bændur og merkismenn á sinni tíð, þó ekki hafi farið sögur af þeim. ☆ ☆ ☆ Sveinbjörn Egilsson Reykjavík, er tekið skyldi til af- nota haustið 1846. Varð Svein björn því fyrsti rektor Reykja- víkurskóla, og gegndi hann því embætti fram á sumar 1851, er honum var veitt lausn í náð. Sveinbjörn hafði kvænzt sum- arið 1822 Helgu, dóttur Bene- dikts dómara Gröndals. Unni Sveinbjörn henni mjög, og urðu samvistir þeirra g ó ð a r, þótt heilsa hennar væri ekki ávallt sterk. Þau eignuðust 10 börn. Sveinbjörn hefur vafalaust hugsað gott til þess að losna frá skólanum eftir rúmra 30 ára kennslu og geta snúið sér frjálst að hverju því, er hugurinn kysi. En dagar hans voru senn á þrot- um. Heilsan var aldrei örugg eftir mislingana, sem hann fékk vorið 1846, og snemma í ágúst sumarið 1852 veiktist hann snögglega, varð innkulsa, og steig ekki í fæturna eftir það. Að hálfum mánuði liðnum, 17. ágúst 1852, var hann látinn. Þegar Sveinbjörn var tíu ára gamall, kom Egill faðir hans honum fyrir til náms og fósturs hjá Magnúsi yfirdómara Steph- ensen, er þá bjó að Leirá. Reynd- ist Magnús honum mjög vel, fékk honum hina færustu kenn- ara, og var Sveinbjörn braut- skráður árið 1810 af sr. Árna Helgasyni. Hefði Sveinbjörn þá þegar siglt til frekara náms, en ófriður úti í álfunni hamlaði för hans í 4 ár. Sat hann því áfram hjá Magnúsi fóstra sínum og hefur eflaust notað tímann vel til lestrar og lærdómsiðkana. Hefur vist hans með Magnúsi og sú menntun, sem hann hlaut á heimili hans, orðið honum býsna raundrjúg og affarasæl. Veturna 1814-19 var Svein- björn í Kaupmannahöfn við guð- fræðinám, og lauk hann em- bættisprófi í ársbyrjun 1819 með ágætum vitnisburði. Skömmu síðaf sótti hann um kennara- embætti á Bessastöðum og var veitt það. Hóf hann að kenna þar haustið 1819. Urðu aðal- greinar hans gríska og saga, en auk þeirra kenndi hann ýmist lengur eða skemur íslenzkan og latneskan stíl, landafræði, dönsku og danskan stíl. — Eftir flutning skólans til Reykjavíkur 1846 var íslenzka kennd sem sér- stök námsgrein, og annaðist Sveinbjörn þá kennslu, u n z Halldór Kr. Friðriksson tók við henni haustið 1848. Vorið 1846 var Sveinbjörn skipaður rektor Lærða skólans og hafði þá um veturinn dvalizt í Kaupmannahöfn til að kynna sér skólastjórn. Hafði skólanum verið reist nýtt og vandað hús í • Samkv. prestsþjönustubók NjarS^ víkursóknar. Svelnbjörn er pó víða talinn fæddur 6. marz 1791, og svo telur hann sjálfur í æviágripi, er hann heíur samið og prentað var fyrst með ljóðmæium hans 1856. ☆ ☆ ☆ Lítum nú lauslega á kveðskap Sveinbjarnar. Komu ljóðmæli hans út árið 1856 að tilstuðlan nokkurra manna, er keypt höfðu handrit hans. Var Jón Árnason einn þeirra, og sá hann um út- gáfuna. Var í ráði, að annað bindi kæmi síðar, en varð ekki úr. Eru þafna þó komin flest ljóðmæli Sveinbjarnar önnur en Hómersþýðingar hans, en að þeim vík ég síðar. Tæpur sjötti hluti ljóðmælanna eru latínu- kvæði, bæði frumsamin og þýdd, en um þriðjungur íslenzku ljóð- anna þýðingar úr ýmsum mál- um. Kennir því margra grasa í kveðskap Sveinbjarnar, þótt sjá megi ættarmótið á þeim flestum. Sveinbjörn byrjaði ungur að yrkja og að því er virðist jöfn- um höndum á latínu og íslenzku. Eru sum helztu latínukvæði hans ort, áður en hann sigldi til Kaupmannahafnar 1814. En Jón Árnason telur, að af íslenzkum kveðskap hans fram að þeim tíma séu aðeins varðveittar 9 vísur ferskeyttar og 7 undir forn um háttum. í Höfn yrkir hann að kalla ekkert, en lifnar yfir honum við heimkomuna. Hygg- ur Jón hann hafa ort jafnmest á árunum 1819-30, en þó ekkert ár eins margar lausavísur og ár- ið 1845. Kveðskapur Sveinbjarnar er ekki stórbrotinn, en yfir honum einhver notalegur blær, oft gam- ansamur, en einnig alvarlegur, ef því er að skipta. Eitt þekkt- asta kvæði hans mun vera þetta: Ei glóir æ á grænum lauki sú gullna dögg um morgunstund, né hneggjar loft af hrossagauki né hlær við sjór og brosir grund. Guð það hentast heimi fann það hið blíða blanda stríðu; allt er gott, sem gjörði hann. En síðasta erindið er þannig: Þú bróðir kær, þó báran skaki þinn bátinn hart, ei kvíðinn sért; því sefur logn á boðabaki og bíður þín, ef hraustur ert. Hægt í logni hreyfir sig sú hin kalda undiralda, ver því ætíð var um þig. í svipuðum anda eru hinar fallegu skilnaðarvísur föður við son sinn, en þrjár hinar fyrstu hljóða svo: Far heill, sonur, fylgi þér á vegum hæstur himna guð. Veri þér í minni, þau er mælir faðir orð í síðsta sinn. Sæll eg þá væri, ef eg þig sjá mætti og heim aftur heimta son hinn sama, sem þú hverfur nú föður húsum frá. Vertu dyggð trúr dögum öllum, þá muntu ævi una og líf þitt líða sem lækur renni dals í grænu grasi. Alkunnar eru sumar bama- vísur Sveinbjarnar. Ég tek sem dæmi: Þó eg kalli þrátt til þín, þú kannt ekki heyra. Þuríður, Þuríður, Þuríður mín, þykkt er á þér eyra. Komdu hérna, krílið mitt, komdu litla morið; enn er liðið ekki þitt æsku- blíða -vorið. Fuglinn segir bí, bí, bí, bí, bí, segir Stína; kvöldúlfur er kominn í kerlinguna mína. Fljúga hvítu fiðrildin fyrir utan glugga; þarna siglir einhver inn ofurlítil dugga. Þegar Sveinbirni var farið að leiðast einlífið, orti hann þessa vísu: Leit eg yfir landsins sumar- blóma, leiðindi mér foldar skrautið bjó; las eg í tómi lærða merkisdóma, lærdómsiðn mér samt ei veitti ró. Hvar er gleði hér á jörð að finna? — Hjörtum í, sem ástir saman tvinna. Hvar er blíða hjartað, sem eg á að hugga mig og þar við gleði ná? Til konu sinnar, Helgu, hefur íann ort margar fallegar vísur. Ég nefni aðeins: Þá bleik á hár og blíð á kinn mín bezta kemur til mín inn, hlæjandi lifnar hugur minn og hana í faðmi vefur. Til hennar einnar hugurinn flýr, þá heimur við mér baki snýr; hún ein í mínu hjarta býr og himins sælu gefur. Sveinbjörn hefur gert nokkur erfiljóð, og eru þau æðimisjöfn, sum með 18. aldar bragði, en önnur í ætt við erfiljóð þeirra Bjarna Thorarensens og Jónasar Hallgrímssonar, er marka, svo sem kunnugt er, tímabót í þeirri kveðskapargrein. Ég minnist sér- staklega erfiljóðsins eftir þá Gísla Brynjólfsson og Lárus Sigurðsson, einhverja hina efni- legustu menn, er báðir dóu fyrir aldur fram. Gísli drukknaði í Reyðarfirði, en Lárus lézt úr brjóstveiki í Reykjavík, þá ný- kominn frá Kaupmannahöfn. Ég set hér kvæðið: Fær mér unaðs (kvað fold Isa), er eg ungan kvist upp renna sé; fær mér angurs, er í fang mér skal algrænn hníga fyr ýmsum gusti. Grátlegt mér þótti, að Gísla skyldi belti mitt að bana verða; hitt mig hlægir, að hann nú skín heiðblám ofar hjálmi mínum. Þann vissa’g guma geðspakastan, og gjarnastan gott að vinna, fróðleiks fullan og fornra stafa, og þjóðvitrings vísast’ efni. Iðgjöld hans eg hugðumst aftur mundu fá í Sigurðar snotrum arfa. Svo eru fagrar fíra vonir sem dropi daggar dags morgni á. Vottuðu svinnir snillingar Dana, að væri Lárus laukur ungmenna. Las hann og mundi, las hann og undi, nam háleg rök helgra fræða. Þá nam að vaxa vitra í hyggju, heilög hyggindi og hógværð bæði; lét sér vegleg vísdóms-gyðja sess einvalið í unglings brjósti. Unz lífkaldur líkams eyðir heilsu gekk hans að spilla. Óð borðjór und’ brjósti móðu Sigurðssonar Snælands á vit. Þar lét hann mælt, áður munnur lykist, vonarorð fyrir vinabrjósti. Nú grær grund græn yfir honum guði vígð á Víkur ströndu. Um sálma og kveðskap Svein- bjarnar guðrækilegs efnis, bæði frumsamdan og þýddan, mætti nefna ýmis dæmi. Ég minni að- eins á Heims um ból, er hann hefur að lagi og hugsun tekið eftir þýzka kvæðinu: Stille Nacht, — og kvöldversið fallega eftir Foersom, Nu lukker sig mit Öje, sem Sveinbjörn hefir snúið svo: Nú legg eg augun aftur. Ó guð, þinn náðarkraftur veri mín vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, þinn engil láttu vaka yfir mér, svo eg sofi rótt. ☆ ☆ ☆ Skal nú horfið að Hómersþýð- ingum Sveinbjarnar og lýst að nokkru starfi hans að þeim. Ætla má, að gríska hafi verið kennd við' latínuskólana frá því um aldamótin 1600, og var þá fyrst og fremst miðað við það að gera pilta biblíufæra í henni. Hélzt grískukennslan í svipuðu horfi í um það bil tvær aldir, en þá varð gagngerð breyting á með stofnun Bessastaðaskóla og þó einkum við komu Sveinbjarnar að skólanum. Jók hann brátt grískukennsluna um allan helm- ing og kom henni á þann grund- völl, er hún hélzt á fram yfir síðustu aldamót. Sveinbjörn tók þegar haustið 1819 að lesa Ilíonskviðu með nemendum sínum, og hafði hún þá verið kennd örlítið áður eða fyrst árið 1810. Sveinbjörn þýddi sjálfur kviðuna og las þýðing- una fyrir nemendunum. Hafði hann vorið 1830 farið þannig yfir alls 17 þætti kviðunnar. Sneri hann sér þá að Odysseifskviðu og hafði lokið við hana 1844, en tók að því búnu aftur til við Ilíonskviðu. , Sveinbjörn hlýtur brátt að hafa fundið, að mikið hagræði mundi í því verða, ef þýðingar hans yrðu prentaðar. Þegar það var ákveðið haustið 1827, að kon- ungur skyldi heiðraður á af- mælisdegi sínum ár hvert með útgáfu rits eins á vegum skól- ans, mun Sveinbjörn hafa séð sér leik á borði (ef hann hefur þá sjálfur átt frumkvæðið), þar eð annað árið, sem rit þetta kom út, flutti það fyrstu 2 þættina af Odysseifskviðu eða Odysseifs- drápu, eins og Sveinbjörn kall- aði hana. Var hún prentuð í Við- eyjarklaustri og kom síðan smám saman út, unz hún var öll árið 1840. Náði þýðing þessi brátt mikl- um og almennum vinsældum, og fengu hana færri en vildu. Varð það til þess, að stiftsyfirvöldin, þ. e. biskup og stiftamtmaður, skrifuðu Sveinbirni (12. nóv. 1844) og kváðust fús að gefa þýðingu hans á Odysseifsdrápu út að nýju, en þau höfðu þá um- sjón með hinni svonefndu Lands- prentsmiðju í Reykjavík. — Jafnframt spurðu þau hann, hvort hann óskaði að breyta ein- hverju í henni, og eins, hvort hann væri fús að snúa Ilíons- kviðu. ☆ ☆ ☆ Vér vitum, að Sveinbjörn féllst á að endurskoða Odysseifs- drápu, en ekki, hverju hann svaraði um Ilíonskviðu, Ég birti hér smákafla úr bréfi Svein- bjarnar til Bjarna Thorsteins- sonar 4. febrúar 1845, þar sem minnzt er á þetta: Það var vel þér minntuð mig á Odysseuna. . . .Annars er bráðum von á ann- arri útgáfu af henni. Stiftið skrif- aði mér til um það fyrir jólin, að það hefði í hyggju að gefa hana út í Rvíkurprentsmiðju so- sem einhverja skemmtunarbók fyrir almenning, sísona til hús- lestra. Eg gat ekki, þá so var komið, undan því mælzt að endurskoða útlegginguna og yfirfór 4 fyrstu bækurnar í upp- lestrartímanum um jólin, varð að hreinskrifa þær sjálfur, því pappírinn á þeim bókum er slæmur og öll útgáfan annars svo þéttprentuð, að ekki verður á skrifað. Einhverra hluta vegna lauk Sveinbjörn aldrei við endurskoð- un Oddysseifsdrápu. Höfum vér hreinrit hans fram í upphaf 14. þáttar og nokkur drög úr því aftur í byrjun hins 16. Fundust þau drög nýlega í Landsbóka- safni, og var þeim fylgt í hinni vönduðu útgáfu Hómerskviðna, er þeir Kristinn Ármannsson og Jón Gíslason sáu um ekki alls fyrir löngu á vegum Menningar- sjóðs. Odysseifskviða (endurskoðaða þýðingin) kom, svo sem kunnugt er, aldrei út á vegum stiftsins og ekki heldur með ritum Svein- bjarnar eftir hans dag, þótt það stæði til. Rættist ekki úr um út- gáfu hennar fyrr en árið 1912, er Sigfús Blöndal gaf hana út í Kaupmannahöfn að frumkvæði og á kostnað Sir William Paton Ker, háskólakennara í Lundún- um. Um Ilíonskviðu fór á aðra leið, því að Sveinbjörn sneri sér af al- efli að henni árið 1847 og lauk við fullnaðarþýðingu hennar á gamlaársdag. 1848. Hafði hann áður farið yfir rúma 2/3 hluta kviðunnar í kennslu sinni og sú yfirferð að sjálfsögðu auðveldað honum smiðshöggið. Eru sumar eldri þýðingar Sveinbjarnar til í eigin handriti, en þó flestar með hendi nemenda hans. Eru þær að vonum fróðlegar til samanburð- ar við fullnaðarþýðinguna. Ekki er ljóst, hvers vegna Sveinbjörn hætti við Odysseifs- kviðu og sneri sér að Ilíonskviðu. Má vera, að stiftið hafi óskað eftir, að Ilíonskviða yrði prentuð fyrst og Sveinbjörn skipt um þess vegna. En hvernig sem það hefur verið, kom stiftið hvorugri kviðunni frá sér, og raknaði ekki úr um útgáfu Ilíonskviðu fyrr en eftir daga Sveinbjarnar árið 1855. Megum vér þó vissulega þakka stiftinu fyrir íhlutun þess, því að óvíst er, hvort vér hefð- um ella endurskoðaða kaflann úr Odysseifskviðu og hina frábæru þýðingu Sveinbjarnar á Ilíons- kviðu. Eru þýðingar þær, sem nú hefur verið skýrt frá, allar í ó- bundnu máli, og skal þessu næst vikið að ljóðaþýðingum hans. ☆ ☆ ☆ Af bréfum Sveinbjarnar verð- ur ljóst, að hann hefur snemma tekið að snúa Hómerskviðum í ljóð. Sjáum vér'það fyrst í bréfi hans til Rasmusar Rasks 7. ágúst 1823, en þar segir svo: Einu sinni í vetur komu í mig skáldagrillur, svo eg tók til að yrkja og útlagði átjándu bókina af Homeri Iliade undir fornyrðalagi. Eg skal sýna yður það, þegar þér komið hing- að, og biðja yður að lagfæra það fyrir mig. Og í bréfi til eins vinar síns í Kaupmannahöfn 27. júlí 1824 segir Sveinbjörn: Nú sendi eg þér endirinn af 23. Rhapsodíu Odysseifardrápu, sem eg hefi verið að mylkja úr mér smátt og smátt. Eg finn, að mig vantar þol til þessa til lengdar, og þá éer að verða dauft og vatnsblandað. Sé eg líka, að sumstaðar kann að vera vel frítt útlagt, en kynni þó að mega bæta, betur sjá augu en auga. Mér dugaði varla annað en að láta liggja hjá mér svo fleiri árum skipti, að eg gleymdi öllu aítur og liti svo á það kaldur til að verða réttlátur. Þess vegna er betra að bera það undir aðra skynuga, smekkgóða menn. — Þess þurfa kannske ekki náttúru- skáldin, en þess þarf eg og önn- ur eins ónáttúruskáld. Eg voga ekki að láta Rask sjá það og lesa til að heyra, hvað hann segir, hann er soddan hetja í grísku og gömlu máli ísl. Ef hann stælist í það hjá þér, þá tækirðu eftir, hvað margar hrukkurnar yrðu báðumegin við nefið á honum og hvernin þær væru lagaðar. Bíddu við, gefðu ekki um að sýna Rask þetta af Odysseu, eg er góður með að varpa í hann einhverju öðru frá mér til að heyra hans meiningu og máta. Þú heldur kannske eg hugsi upp á nokkuð stórt, sosem að útleggja allan Hómer eða meira! Nei, þar til er eg allt of elju- og gáfulaus. Bágt er að kenna gömlum hesti gang, það, að þess háttar við- burðir hafa sýnt sig so seint hjá mér, sýnir, að það er eitthvert ó- notabrölt. En að vita ýmsra skynugra manna dóm er ekki einber hégómadýrð, heldur brúka eg það til að vega mína eigin krafta bæði á mína reiðslu og annarra, síðan dívidera eg resultatinu með 2, 3, etc. ☆ ☆ ☆ Fimm dögum síðar en þetta er ritað skrifar Sveinbjörn Rask og sendir honum sýnishorn af þýð- ingu sinni. Segir Sveinbjörn í bréfinu m. a.: Þessu næst vil eg sýna yður og sanna, hvað eg er vogaður. Milli bókanna, sem eg sendi yður, sting eg blaði. Þar á hef eg skrifað útleggingar- ómynd af 18du bókinni í Ilias, sem ég bögglaðist við í fyrra. Það er hálfillt í mér við hana, og þessi geðsnefill er kominn af því að eg í vetur bað einhvern lærð- an mann hér að yfirsjá hana, fyrir mig og segja mér til lýt- anna. Á meðan hún lá hjá hon- um, komu milli okkar brosur út af veraldlegum efnum, og þó þetta ekki hefði átt að ná til þeirra andlegu efnanna, þá fékk eg þó blöðin aftur með öngvum einlægum úrskurði, en sá er kallaður vinur, er til vamms segir. — Þennan ómaga dirfist eg nú senda yður til yfirskoð- unar í þeirri von, að þér segið mér til allra minna yfirsjóna,

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.