Lögberg - 25.09.1952, Blaðsíða 3

Lögberg - 25.09.1952, Blaðsíða 3
3 bæði hvað málleysur snertir og það, sem eg hefi sleppt undan, stytt og aukið með hortittum; líka vísa mér á, hvar eg kunni að hafa annaðhvort misskilið sjálfan Hómer eða ekki skilið hann. í febrúar 1825 sendir Svein- björn Rask 16. þátt Ilíonskvæðis og er þá orðinn langeygður eftir athugasemdum hans við fyrri þáttinn, er hann hafði sent hon- um. Og í maí sama ár hefur Rask ekki ennþá litið á þýðingarnar, svo sem sjá má á bréfi Svein- bjarnar til hans 15. ágúst, en þar segir svo: Ástarþakkir fyrir yðar góða bréf, d. 2. maí þ. á. Þó þér enn þá ekkert hafið sagt mér um bögglinginn minn, þá vænti eg þó eftir því síðar, þá þér komizt höndum undir. Ég ætlaði að fara að fella saman þær tvær bæk- urnar af Ilias, sem eg hafði sent yður, en þá kom Þorgeir, og hann gerði barn í sögunni, svo eg hefi síðan hvorki haft tóm né lyst til neins þess háttar. En aldrei held eg, að þetta verði gert svo vandlega af mér, að sýnanda væri öðrum en kunn- ingja. Samt vona eg svo góðs af yður, að þér segið mér, hvað yður þykir vera ábótavant, sem margt mun vera, fyrr en þér seg- ið það öðrum. Vér sjáum, að Sveinbjörn er orðinn óþolinmóður, og er ekki að efa, að þetta tómlæti Rasks hefur smám saman dregið kjark- inn úr honum, því að hann lauk aldrei við nema 3 kviður af Ilíonskvæði (16., 18. og 23.), þó að þýtt hafi hann brot úr ýms- um þeirra, svo að alls mun hann hafa snúið í ljóð um 1/6 hluta kvæðisins. Stóð til, að þýðingar þessar yrðu prentaðar í 2. bindi ljóðmæla hans, en það kom aldrei út, eins og fyrr segir. En þótt Rask gæfi sér, aS því er vírðist, aldrei tíma til að líta yfir ljóðaþýðingar Sveinbjarnar, erfði Sveinbjörn það ekki við hann, því að ekki lét hann á sér standa að senda honum þýðingu sína á Odysseifsdrápu, jafnskjótt og hún kom út. Hefur Rask þá séð að sér, þótt um síðir væri, og sent Sveinbirni fögur hvatning- arorð. Birti ég hér kafla úr bréfi Rasks til hans 27. apríl 1829: Ástarþakkir fyrir sendinguna, sem mér var í sannleika mjög kærkomin. Ég hefði kannske heldur séð Odysseifsdrápuna á vers, en mér líkar mikið mál og tón í yðar útleggingu, og eg sé það, að hún mun nytsamari í sundurlausri ræðu. Síðan gerir hann örfáar at- hugasemdir, en heldur svo á- fram: Þó er þetta víst mjög ó- merkilegt hjá því, að útlegging- in sé rétt og orðatiltækið snoturt og efninu og textanum sam- hljóða, sýnizt þér mér þar í svo heppnir, að eg vildi mikillega þér hélduð þessu starfi áfram allt til endans og fengjuð svo kórónu lífsins. Lætur að líkum, hve glaður Sveinbjörn hefur orðið við þessa hvatningu Rasks, enda sneri hann, svo sem fyrr segir, báðum kviðunum í óbundið mál. ☆ ☆ ☆ Ljóðaþýðingarnar freistuðu hans þó eftir sem áður, en urðu jafnan að sitja á hakanum. Hvert verkið rak annað, og skyldustörf hans við skólann reyndust hon- um erfiðari og vafstursmeiri en hann hafði vænzt í upphafi. Rof- aði ekki til fyrr en sumarið 1851, er honum var veitt lausn frá embætti sínu við skólann. Margur hefði í hans sporum kastað mæðinni og slegið slöku við það sem eftir var sumars. En Sveinbjörn var ekki alveg á því, þar eð 14. ágúst skrifar hann Rafni etazráði bréf og sendir honum sýnishorn af ljóðaþýð- ingu sinni á Odysseifskvæði, 23. þáttinn. Sýndi Rafn síðan þátt- inn Jóni Sigurðssyni, er varð stórhrifinn af honum og hvatti hann til að snúa báðum kviðun- um í ljóð. Jafnframt beitti hann sér fyrir því, að Bókraenntafé- lagið semdi þegar við Sveinbjörn um þýðingu Odysseifskvæðis, og LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 25. SEPTEMBER, 1952 yrði það síðan prentað á kostnað félagsins. Tókust þeir samning- ar 4. febrúar 1852. Minnist Sveinbjörn á þetta í bréfi sínu til Jóns Sigurðssonar 3. marz 1852: Með hálfum huga hefi eg boð- izt til að taka að mér útleggingu á Hómer í ljóðum samkvæmt upphvatningu yðar í yðar góða bréfi frá 20. des. f. á. og sam- kvæmt fyrirspurn próf. P. Pét- urssonar, og hefi eg selt honum í hendur útl. af 3 fyrstu bókum Odysseae og af 4. bók til vers 537, meira hef ek ekki tilbúið. I yfirskrift kvæðisins hefi eg fylgt yðar uppástungu, og yfir höfuð geri eg mig ánægðan með yðar athugasemdir og lagfæringu, þar sem þér viljið vera láta. Eins læt eg yður ráða, hvort þér hafið þessa stafsetningu, sem eg hefi fylgt, eða breyta henni eftir því, sem yður sýnist. Ég hafði hana með gömlu móti bæði af því svo hafði verið gjört í Paradísar- missi og Messías og af því út- leggingin hnígur sumstaðar nokkuð að fornyrðalagi og eldri orðmyndum. Verst á eg með þá staðina, ubi bonus dormitat Homerus,* og í mannanöfnum og örnefnum. Segið mér yðar á- lit, eg veit, að eg hefi gott af því. Biðjið og, að kraftar mínir end- ist og elja og langlundargeð ekki veikist, því eg er seinn í verki, en síg heldur á, ef mér er fritt og ekki amar mikið að utan frá. Undir því er komið, hvort eg get ent ádrátt minn við félagið, að hafa aflokið Odyssea að jafn- lengd næsta ár. Bragarháttur- inn, sé eg, verður einhver meðal- háttur milli fornyrðalags og ljúflingslags þess, sem er í Barnaljóðum séra Vigfúsar í Stöð og Æviflokki séra Einars Sigurðssonar. Eg tala ekki meira um þetta, það dugar lítið tala, þegar eitthvað á að gera. Tók Sveinbjörn nú til óspilltra málanna og sóttist verkið mun betur en hann ætlaði, því að 2. ágúst að kveldi var hann tæplega hálfnaður með 19. þátt. En um nóttina eftir veiktist hann, svo sem fyrr segir, og lézt hálfum mánuði síðar. Seinasta erindið, sem Svein- björn sneri (135. erindi 19. þátt- ar), voru huggunarorð Odysseifs við Penelópu, er hún var orðin úrkula vonar um heimkomu mannsins síns. — Hefði erindi þetta alveg eins getað verið kveðju- og hughreystingarorð Sveinbjarnar til Helgu, konu sinnar, er hann unni mjög og alið hafði honum 10 börn, en varð nú að sjá á bak honum. Orðin eru þessi: Lát-attu lengr litarhátt þinn fríðan fölna (firna’k þó eigi), né hjarta þitt um hjartkæran ver af sorg sárri í siga renna. Benedikt Gröndal, sonur Sveinbjarnar, lauk við það, sem óþýtt var af kvæðinu, en 23. þátturinn var látinn halda sér, eins og Sveinbjörn hafði upp- haflega frá honum gengið. Kom Odysseifskvæði út í Kaup- mannahöfn á árunum 1853 til 1854. Hómersþýðingar v o r u þ a ð verka Sveinbjarnar, er lengsta átti samleið með honum, og lík- lega hefur hann ekki haft meira yndi af neinu þeirra. Það væri freistandi að rita ýtarlega um þýðingarnar sjálfar, sýna, hvernig Sveinbjörn þýðir, bera saman hinar eldri og yngri gerðir, bundnu þýðinguna sam- an við hina óbundnu—og þannig lengi. En þess er ekki kostur hér, og skal nú örlítið skýrt frá öðr- um þýðingum Sveinbjarnar úr grísku. ☆ ☆ ☆ Sveinbjörn fór ekki aðeins yfir Hómer í grískukennslu sinni, heldur las hann með nem- *þar sem só. góíSi Hómer dottar. endum sínum ýmsa aðra höf- unda, svo sem Platon, Eskýlus, Lúkíanus og Plútarkus. Nefnir Jón Árnason 17 brot grískra rita, er til séu í handriti, ýmist með hendi Sveinbjarnar sjálfs eða nemenda hans. Er það allt óprentað, enda voru þýðingar þessar einungis gerðar í þágu nemendanna, en ekki með prent- un fyrir augum. Er þarna þó ágætur efniviður hverjum þeim, er ráðast vildi í að þýða þessi rit. Verður nú vikið að biblíu- þýðingum Sveinbjarnar, en við þær fékkst hann talsvert. Getur hann þess í bréfi sumarið 1824, að hann sé þá ásamt Hallgrími Scheving að endurskoða þýðing- una á Nýja testamentinu, en það kom síðan út í Viðey 1827. Var aðalskerfur Sveinbjarnar til þeirrar útgáfu þýðing hans á Opinberunarbók Jóhannesar. í 6. útgáfu biblíunnar allrar, prentaðri í Viðey '1841, hafði Sveinbjörn þýtt alls 17 bækur: 2. Mósesbók og allar bækur spá- mannanna, hinna meiri og minni nema bók Jeremíasar (og Harma grátinn), og svo í Nýja testa- mentinu Opinberunarbókina, eins og fyrr getur. Er það dómur allra, sem at- hugað hafa, að Sveinbjörn — og Oddur Gottskálksson ----- séu snjöllustu biblíuþýðendur, sem vér höfum átt. 1 ritgerð um íslenzkar biblíuþýðingar eftir Steingrím J. Þorsteinsson (í IV. árg. Víðförla) er þýðing Svein- bjarnar borin á nokkrum stöð- um saman við eldri þýðingu, Grútarbiblíu svonefnda, og eins við nýjustu þýðingu biblíunnar, og er sá samanburður býsna fróðlegur. Að honum loknum kemst Steingrímur m. a. svo að orði: Þeir Oddur Gottskálksson og Sveinbjörn Kgilsson eru vafa- laust mestir stílsnillingar 'allra íslenzkra biblíuþýðenda fyrr og síðar, sem hafa þó margir verið ritfærir vel, og verður þá hlut- ur hinna tveggja að meiri. Þeir hafa megnað að búa þýðingum sínum þann tignarsvip og helgi- blæ, sem þeim ber. Það er sem þeir lúti ekki aðeins að guðs- orðinu í auðmýkt sinni, heldur verði það þeim einnig á köflum innbbástursefni, hefji þá sjálfa til flugs, lyfti stílgáfu þeirra upp í æðra veldi. Þó að síðasta biblíu- þýðing okkar sé vafalaust nákvæmari og réttari en hjá Oddi og jafnvel Sveinbirni, þá efast ég um, að aðrar biblíuþýð- ingar okkar flytji sannara guðs- orð í eiginlegasta skilningi, séu vænlegri til sálubótar. — Sveinbjörn hefur líklega byrjað á Gamla testamentis-þýðingunni 1837, því að 18. október það ár segir hann í bréfi til Jóns Sig- urðssonar: Núna er eg með Ezekíel, Daníel og alla smærri spámennina fyrir Biblíufélagið. — En 16 mánuðum síðar virðist hann kominn litlu lengra, enda mörg( störf, sem kölluðu að sam- tímis. Vér skulum líta í bréf hans til Jón Sigurðssonar 1. marz 1839, þar sem hann segir: Nú er komið eitthvert ofboð í Biblíufélagið, svo eg kvíði fyrir. Eg átti að revidera eða gefa lag- færða útleggingu af Ezekíel, Daníel, 12 smærri spámönnun- um og Exodus; — en meðan eg var að ljúka við 11. b. af Fms., var Ezekíel farinn að myggla, og í Daníel sást ekki fyrir ryki, en spámennirnir allir mosavaxnir. Sveinbjörn lauk þó við þetta allt á tilskildum tíma, og voru þýðingar hans prentaðar, sem fyrr segir, í útgáfunni 1841, en síðan endurprentaðar í 7. útgáfu biblíunnar allrar, í Reykjavík árið 1859. ☆ ☆ ☆ Af enn öðrum þýðingum Svein bjarnar skal næst fræga telja þýðingu hans á 11 bindum Forn- mannasagna, en sú var á latínu, Scripta Historica Islandorum, og var prentuð á árunum 1828-42. Hafði Sveinbjörn unnið að henni samhliða öðrum störfum 1826—38. Síðasta bindinu, hinu 12., sem er skrá yfir nöfn og ýmislegt fleira í sögunum, sneri Grímur Thomsen. í útgáfu þeirri af Snorra-Eddu, er prentuð var í 3 bindum í Kaupmannahöfn á vegum Árna- nefndar (1842, 1852, 1880-87), var latnesk þýðing Snorra-Eddu allrar og málfræðiritgerðanna í fyrstu 2 bindunum og vísna- skýringanna í 3. bindi 'eftir Sveinbjörn. Hefur Sveinbjörn stundum verið með nær allar þessar þýð- ingar í takinu í einu, svo sem sjá má á bréfi hans til Jóns Sigurðssonar 19. september 1838: Nú er eg kominn langt með 11. bindið (þ. e. af Fornmannasög- umj og vona að geta sent það með póstskipi að vori. Eg á eftir chronologiskt registur og ættar- töluskratta einhverja pro forma og formálamynd, sem eg verð að geyma til jólanna, því þeir nauða á mér með prógramm [framhald Odysseifsdrápu] í vetur. Eg varð að slíta mig frá Ezekíel í sumar vegna Knytlingu, og þótti mér þó hitt miklu skemmtilegra. En þá tekur ekki betra við, þegar Snorra-Edda kemur, eg held eg drepist af leiðindum yfir henni. Þó að latínuþýðingar Svein- bjarnar séu nú á latínulausri öld orðnar eins konar forngrip- ur, þá eru þó ^pn til menn úti í löndum sums staðar, er telja þær hreinan kjörgrip og lesa þær sér til hugbótar, sem væru þeir með Cicero eða einhvern annan forn- snillinginn undir höndum. Svo frábær þykir þeim latínustíll Sveinbjarnar. ☆ ☆ ☆ Ég minntist í upphafi á orða- bókarhöfundinn Sveinbjörn Egilsson og skal nú skýra ögn frá honum. Augljóst er, m. a. af elzta kveðskap Sveinbjarnar, að hugur hans hefur s n e m m a sveigzt að hinum fornu bók- menntum íslendinga. í Kaup- mannahöfn vann hann ásamt öðrum að útgáfu Stuflungu á vegum Bókmenntafélagsins, en Jón Árnason telur, að hann hafi þó ekki fráskákað sig „annað við fornfræðina en það, sem hann gerði að Sturlungu, þangað til hann var búinn að taka embætt- isprófið í janúarm. 1819; en þá sló hann sér að henni fyrir al- vöru.“ 1 bréfi, sem Sveinbjörn skrifar Rask 18 apríl 1819, kynnumst vér nokkuð hug hans í þessum efnum. Hann hefur skýrt frá þeirri ákvörðun sinni að gerast kennari á Bessastöðum og segir að svo búnu: Ekki hefi eg svo strax lyst til að verða prestur, en næst væri það skapi mínu, ef eg með tíðinni gaéti kennt eitt- hvað guðfræðilegt við skólann, því svo mikið sem eg annars held af historia og philologia, þá sýn- ist mér þó meiri matur í hinu. En síðar í sama bréfi segir Sveinbjörn: í vetur hefi ég ver- ið að samanlesa Jónsbók (lögin) því hún á að prentast heima og þar með verið að lesa sögur mér til dægrastyttingar, milli þess eg hefi borið við að kenna hér dá- lítið af íslenzku og grísku. Hvorki hafa mig bitið hér slys eða vanheilindi nema heimfýsi nokkur nú eftir hálft fimmta ár. Þegar Sveinbjörn talar um, að hann hafi verið að lesa sögur sér til dægrastyttingar, á hann lík- lega við fornar sögur, og hann lét sér ekki nægja að lesa þær, heldur skrifaði hann sumar þeirra eftir handritúnum. Eru til syrpur með hans hendi frá þessum tíma, og var Ólafs saga Tryggvasonar t. d. prentuð eftir afskrift Sveinbjarnar í útgáfu Fornmannasagna og fyllir þar hvorki meira né minna en 3 fyrstu bindin. Síðar átti hann meiri þátt í þeirri útgáfu, samdi t. a. m. vísnaskýringar yfir allt verkið og ártala- og atriðaskrá. Komu Fornmannasögurnar út á vegum Fornfræðafélagsins á ár- unum 1825-37, en um latínuút- gáfu þeirra hef ég áður rætt. Kem ég þá loks að orðabókar- starfi Sveinbjarnar. Fáum vér fyrst upplýsingar um það í bréfi Framhald á bls. 7 Business and Professional Cards Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg PHONE 92-6441 J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgð, bifreiSaábyrgS o. s. frv. Phone »2-7538 SARGENT TAXI PHONE 20-4845 FOR QUICK, RELIABLE SERVICE DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK, MAN. Phones: Office 26 — Res. 230 •- Office Hours: 2:30 - 6:00 p.m. Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LögfræSingar 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. PHONE 92-8291 CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: 74-7451 Res.: 72-3917 StofnaS 1894 Slmi 74-7474 Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opposite Maternity Pavilion General Hospital Nell's Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers, Funeral Designs, Corsages, Bedding Plants Nell Johnson Res. Phone 74-6753 Office 93-3587 Res. 40-5904 THORARINSON & APPLEBY BARRISTERS and SOLICITORS 4th Floor — Crown Trust Building 364 Main St. WINNIPEG CANADA SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hereinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- vitS, heldur hita frá aC rjúka út meö reykum.—Skrifið, símiö til KELLY SVEINSSON 625 Wall Street Winnipeg Just North of Portage Ave. Slmar: 3-3744 — 3-4431 Office Phone Res. Phone 92-4762 72-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment. A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook St. Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaöur sá bezti. J. WILFRID SWANSON & CO. Insurance in all its branches. Real Estate - Mortgages - Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 937 181 Res. 403 480 LET US SERVE YOU Creators of Distinctive Printing Columbia Press Ltd. 695 Sargent Ave., Winnipeg PHONE 74-3411 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg PHONE 92-4624 Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON Ashphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs Country Orders Attended To 632 Simcoe St. Winnipeg, Man. GIMLI FUNERAL HOME Sími 59 Sérfrœðingar i öllu, sfin aO 'útförum lýtur BRUCE LAXDAL forstjóri Licensed Embalmer Dr. A. V. JOHNSON DENTIST 506 SOMERSET BUIEDING Telephone 92-7932 Home Telephone 42-3216 Dr. ROBERT BLACK SérfræÖingur 1 augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusími 92-3851 Heimasími 40-3794 Comfortex the new sensation for the modern girl and woman. Call Lilly Matthews, 310 Power Bldg., Ph. 927 880 or evenings, 38 711. Gundry Pymore Ltd. British Quality Fish Netting 58 VICTORIA ST. WINNIPEG PHONE 92-8211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage will be appreciated Minnist EETEL í erfðaskrám yðar. PHONE 92-7025 H. J. H. Palmason, C.A. Chartered Accountant 505 Confederation Llfe Building WINNIPEG MANITOBA Parker, Parker and Kristjanssom Barristers - Solicilors Ben C. Parker, Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnlpeg, Man. Phone 92-3561 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 404 SCOTT Blk. Síml 92-5227 BULLMORE FUNERAL HOME Dauphin, Manitoba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr. Kaupið Lögberg

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.