Lögberg - 25.09.1952, Síða 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 25. SEPTEMBER, 1952
Lögberg
Gefið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 21804
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Samvinnustefnan og áhrif hennar
Áður en heimsstyrjaldirnar tvær brutust út og
ógnuðu mannheimi, voru norrænu þjóðirnar þrjár, Nor-
egur, Danmörk og Svíþjóð, allra þjóða lengst á veg
komnar með að útrýma örbirgðinni úr heimahögum
sínum, og þrátt fyrir öll þau skakkaföll, er í kjölfar
styrjaldanna sigldu, hefir viðreisnarstarfinu með þjóð-
um þessum miðað örar áfram en á nokkrum öðrum stað
á bygðu bóli.
Árum saman hafa jafnaðarmenn, Sósíal-Demó-
kratar, farið með völd í ríkjum þessum án þess að á-
bærilegra árekstra yrði vart milli samvinnustefnunnar
og einstaklingsframtaksins; á þetta lagði forsætisráð-
herra Svía, Erlander, mikla áherzlu, er hann var á ferð
um Bandaríkin í vor, sem leið; hann fór ekki í neina
launkofa með það, að í heimalandi sínu væri báðum
þessum viðskiptastefnum gert nákvæmlega jafn hátt
undir höfði þrátt fyrir það, þótt í Svíþjóð hefði sam-
vinnustefnan fest dýpri rætur en annars staðar á Norð-
urlöndum nema ef vera skyldi á íslandi.
Ekki alls fyrir löngu sendi Benedikt Gröndal blaða-
maður, sem nú er ritstjóri Samvinnunnar, Lögbergi sér-
staka útgáfu af Tímanum, sem helguð er hálfrar aldar
afmæli Sambands íslenzkra samvinnufélaga, en það
hóf göngu sína hinn 20. febrúar árið 1902 og var stofn-
fundurinn haldinn að Yztafelli í Köldukinn; að stofnun-
inni stóðu bændur, en fyrstu aðilar Sambandsins voru
þrjú kaupfélög og meðlimir þeirra um 600 samtals; nú
er svo komið, að í Sambandinu standa 55 kaupfélög og
er meðlimatalan 31,343. Af þessu má ljóslega ráða hve
þróunin hefir orðið ör og hve samtaka á þessum grund-
velli var mikil þörf.
Til samvinnukaupskapar á íslandi var vitaskuld
stofnað löngu áður en Samband íslenzkra samvinnu-
félaga fyrst leit dagsljósið; nægir í því efni að benda á,
að Kaupfélagi Þingeyinga var hrundið af stokkum árið
1882 og átti það því sjötugsafmæli í ár.
Frá viðskiptalegu sjónarmiði séð, er Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga orðið að stórveldi, sem einka-
rekstrinum, að minsta kosti í ýmissum tilfellum, virðist
hrjósa hugur við.
Samband íslenzkra samvinnufélaga nýtur um
þessar mundir forustu frábærs athafnamanns þar sem
Vilhjálmur Þór á í hlut, er sjaldan gengur svo til verks
að eigi verði eitthvað undan að láta.
Það er ekki einasta að Sambandið gefi sig að al-
gengri verzlun, heldur rekur það jafnframt stóriðju-
fyrirtsWíi, svo sem Ullarverksmiðjuna Gefjun á Akur-
eyri, sem er stærsta og fullkomnasta iðnfyrirtæki ís-
lenzkra samvinnumanna; þá starfrækir Sambandið,
auk fjölda annarra fyrirtækja, hráðfrystihús, og hefir
komið sér upp álitlegum verzlunarflota; um þetta atriði
farast Skúla alþingismanni Guðmundssyni þannig orð
í áminstri Minningarútgáfu:
„Það hefir verið áhugamál samvinnumanna í tæp-
lega hálfa öld að eignast eigin kaupskip. Var fyrst
safnað fé til skipakaupa innan Sambandsins á fyrri
stríðsárunum og í stríðslok keyptur hlutur í mótorskip-
inu „Svölu“, sem fórst 1922. Hið fyrsta af núverandi
skipum Sambandsins var „Hvassafell“, 2300 þunga-
lestir, sem keypt var frá ítalíu og kom til heimahafnar
á Akureyri 1946. Næsta skipið var „Arnaifell“, einnig
2300 þungalestir, smíðað í Svíþjóð og kom til heima-
hafnar í Húsavík 1949. Loks var „Jökulfell“, 1045
þungalesta kæliskip, smíðað í Svíþjóð, og kom til heima-
hafnar á Reyðarfirði 1951.“ —
Þetta bendir afdráttarlaust til þess, hverju megi
til vegar koma leggist menn á eitt, í stað þess að hýrast
hver í sínu horni.
Karl Kristjánsson alþingismaður ritar í Minningar-
útgáfuna um sjötíu ára afmæli elzta samvinnufélags
íslenzku þjóðarinnar, en þar er átt við Kaupfélag Þing-
eyinga; er hér um að ræða snildarlega samda ritgerð,
er hefst með svofeldum orðum:
„Allir dagar í lífi manna og þjóða, eru með örlaga-
þráðum tengdir liðnum dögum.
Suma örlagaþræði er hægt að rekja og mæla frá
líðandi stundum til vissra daga að baki. •
Þess vegna halda menn hátíðir og afmæli.
Frá deginum í dag er auðrakinn örlagaþráður 70
ár aftur í tímann eða til 20. febrúar 1882 — hamingju-
þráður fyrir hagsæld lands og þjóðar. •
Lítum litla stund til baka yfir þessi 70 ár og þang-
að, sem þá voru að verki þeir menn, sem vitað er að
gáfu deginum sérstakt gildi fyrir ísland og íslendinga
og frá þeim er þráðurinn kominn.“
Um nöfn þeirra manna, er ruddu samvinnuhug-
sjóninni veg, svo sem þeirra Jakobs Hálfdánarsonar,
Benedikts á Auðnum og Péturs á Gautlöndum, mun
bjart verða í aldir fram.
Álirif samvinnustefnunnar fara jafnt og þétt í vöxt
og hafa miklu góðu til leiðar komið.
Fleiri erlendir ferðamenn,en minna um ferðir
íslendinga, bæði utanlands og innan
Kaþólska kirkjan
hefur trúboð
norðanlands
Laxveiðimennirnir bandarísku
eru hrifnir af íslenzku
veiðiánum
Forstöðumaður ferðaskrifstof-
unnar hér í bæ, Jón Egilsson,
átti í gær erindi inn í skrifstofu
„Dags,“ og greip fréttamaður
blaðsins þá tækifærið og spurði
hann frétta af starfsemi ferða-
skrifstofunnar nú í sumar. Sagði
Jón, að sér virtist að heldur
hefði dregið úr ferðalögum inn-
lendra manna frá því, sem verið
hefur, síðan ferðaskrifstofan tók
hér fyrst til starfa, og ætti það
nokkuð jafnt við um ferðalög
innanlands sem utan. Hins veg-
ar kvað forstjórinn ferðamanna-
straum frá útlöndum sízt minni
en áður, eða þó öllu heldur
meiri. Þó er það segin saga, að
þeir kvarta flestir yfir því ——
jafnt þeir, sem efnaðri virðast og
hinir, sem léttari hafa sjóðina—
hversu dýrt sé að ferðast og fyr-
irgreiði allur kostnaðarsamur.
Þá þykir þeim á skorta, að fá
engan hentugan bækling með
upplýsingum um það, sem helzt
sé hér markvert að sjá og skoða
í bæ og héraði, og ennfremur um
helztu ferðamannaleiðir héðan
og annað því um líkt. Virðist það
hæfilegt og sjálfsagt verkefni
fyrir ferðaskrifstofu ríkisins að
sjá fyrir slíkum bókakosti, en að
henni frágenginni verða aðrir
aðiljar, sem hagsmuna hafa að
gæta í þessu sambandi gístihúá-
in hér eða bærinn sjálfur, að
bæta úr þessari þörf, því að hvar
vetna annars staðar, þar sem
ferðamanna er von að nokkru
ráði, munu slíkar leiðsögubæk-
ur, svo og handhæg kort og
myndir, vera á boðstólum við
skaplegu verði.
Laxveiðimennirnir ánægðastir
Langflestir ferðamannanna
virðast að öðru leyti ánægðir og
telja hér gott að koma og dvelj-
ast. En laxveiðimennirnir virð-
ast þó að jafnaði ánægðastir.
T. d. gat Jón þess, að tveir Banda
ríkjamenn, er dvalizt hafa hér
norðanlands að undanförnu
þeirra erinda m. a. að kynna sér
veiðarnar, væru nú nýfarnir úr
bænum, og hefðu þeir látið mjög
vel af komu sinni hingað, og það
þótt þeir væru engan veginn
heppnir með veður, meðan þeir
voru við veiðarnar.—Annar þess
ara manna er ritari Bartmouth
College í bænum Hanover í New
Hampshire, Sidney C. Hayward
að nafni, en hinn heitir Paul
Sample og er hann listmálari og
kennari við þennan sama skóla.
Hinn kunni landkönnuður og
Vestur - íslendingur, d r. V i 1 -
hjálmur Stefánsson, er og einn
af kennurum þessa skóla, og
greiddi dr. Vilhjálmur á ýmsan
hátt fyrir för þessara samstarfs-
manna sinna hingað til lands.
Skrifa í víðlesin tímarit
Mr. Hayward hefur tekið að
sér að skrifa grein um þessa för
sína og laxveiðar á íslandi fyrir
veiðimannatímaritið ameríska,
Field and Stream, og félagi hans
Mr. Sample, mun myndskreyta
greinina, en báðir eru þeir félag-
ar þaulvanir laxveiðimenn og á-
hugasamir um þá íþrótt. Er einn-
ig í ráði, að ýmis önnur tímarit
þar vestra birti ferðapistla frá
þeim félögum, m. a. mjög víð-
lesið mánaðarrit, sem Holiday
heitir.
Gamli bærinn að Burslafelli féll
þeim vel í geð
Þá höfðu þeir félagar mikinn
áhuga fyrir því að kynnast sem
bezt lífinu til sveita hér á landi
og munu í ferðapistlum sínum
reyna að bregða upp svipmynd-
um af því og öðrum aðalatvinnu-
vegi þjóðarinnar að fornu og
n ý j u, landbúnaðinum. í þ v í
skyni meðal annars lögðu þeir
leið sína austur að Burstafelli í
Vopnafirði og dvöldust þar um
hríð. Höfðu þeir heyrt gamla
bæjarins getið, áður en þeir fóru
að heiman, og höfðu mikinn hug
á að kynnast þeim forna og sér-
kennilega mannabústað nánar í
sjón og raun, en Burstafellsbær-
inn mun nú um 200 ára gamall
og í honum búið enn. En af
þeirri kynningu er það skemmst
að segja, að enda þótt þeim fé-
lögum þætti mikils um vert lax-
veiðina í Selá þar í firðinum, var
þ e i m þ ó Burstafellsbærinn
gamli, heimilið þar og aðbúnað-
ur allur ennþá hugstæðri. „Þang
að er ykkur óhætt að senda
hvern sem er, jafnvel hina
vandfýsnustu ferðalanga, og
mun þeim þar þykja gott að
koma.“
— DAGUR, 7. ágúst
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands,
Framhald af bls. 1
steini úr gufunní á Námafjalli
á þennan hátt. Tæknilegur und-
irbúningur að vinnslu brenni-
steins úr gufunni er hafinn.
☆
í byrjun þessa árs höfðu sam-
tals 205 læknar lækningaleyfi
hér á landi. Af þessum hópi voru
184 búsettir á lahdinu, þar af
103 í Reykjavík. Tannlækninga-
leyfi höfðu 35 tannlæknar hér á
landi, og voru 20 þeirra búsettir
í Reykjavík, en hinir í öðrum
kaupstöðum.
☆
í sumar hefir verið unnið að
hafnarbótum í Ólafsfirði. Tveim-
ur steinkerjum hefir verið
sökkt við enda nyrðri hafnar-
garðsins og lengdist hann við
það um 40 metra og er þar nægi-
legt dýpi fyrir stærstu skip, sem
hér eru í strandsiglingum. Sam-
tímis hefir verið unnið að botn-
hreinsun.
☆
Katalínuflugbátur frá Flugfé-
lagi íslands lenti síðastliðinn
mánudag á nýjum flugvelli við
Meistaravík á áusturströnd
Grænlands, og var það fyrsta
lending flugvélar á vellinum.
Framkvæmdir við gerð vallar-
ins hófust fyrir rúmum mánuði
og voru stórvirkar vélar notað-
ar við vallargerðina og unnið
nær því allan sólarhringinn.
Flugbrautin sjálf er fullgerð, en
hún er 1800 metrar á lengd og
50 á breidd. Flugfélag íslands
hefir í sumar séð um flutninga
þangað norður, þar sem unnið
er að rannsóknum á blýnÆriun-
um, er dr. Lauge Koch fann, og
heldur félagið áfram þeim
ferðum.
☆
Geysimikil aðsókn hefir verið
að Iðnsýningunni í Reykjavík.
Á sunnudaginn voru sýningar-
gestir 3200, og síðan hvern dag
að jafnaði um 1200. Efnt hefir
verið til hópferða frá nokkrum
stöðum á landinu til að skoða
sýninguna, m. a. frá Akureyri,
og kom fyrsti hópurinn þaðan í
fyrradag.
☆
í dag er alþjóðadagur sam-
vinnumanna haldinn hátíðlegur.
í þrítugasta skipti. Hérlendis
verður dagsins minnst með dag-
skrá í útvarpinu í kvöld, og tala
þar m. a. Steingrímur Steinþórs-
son forsætisráðherra og Eysteinn
Jónsson fjármálaráðherra. Sam-
koma verður í Bifröst félags-
heimili samvinnumanna í Norð-
urárdal.
☆
Sambönd barnakennara og
framhaldsskólakennara og Nem-
endasamband Kennaraskólans
hafa ákveðið að láta gera alls-
herjar kennaratal hér á landi og
falið Ólafi Þ. Kristjánssyni
kennara við Flensborgarskólann
í Hafnarfirði að búa rit þetta
til prentunar. Send hafa verið
spurningaeyðublöð til allra
starfandi kennara á landinu og
nokkurra fleiri.
☆
Síðastliðnar sex vikur hefir
hópur brezkra skólapilta dvalist
hér í óbyggðum. Þeir eru 65
saman og með þeim 10 farar-
stjórar og læknar. Leiðangur
þessi var gerður á vegum Rann-
sóknarfélags brezkra skóla, og
er annar leiðangurinn, sem það
félag sendir hingað. Tilgangur
þess er að venja skólapilta á
aldrinum 16 til 19 ára við örðug-
leika og kenna þeim að hjálpa
sér sjálfir í óbyggðum. Piltarnir
fóru margar gönguferðir á há-
lendinu, unnu að jarðfræðileg-
um athugunum, söfnuðu plönt-
um og skordýrum og gerðu upp-
drátt af allstóru svæði. Hópur-
inn fór héðan 1 gærmorgun.
☆
Sjö jarðfræði- og grasafræði-
nemar frá háskólanum í Glas-
gow, Edinborg og Leeds dvöld-
ust hér í sumar í leit að plöntu-
basaltinu. Þeir fundu steingerv-
inga á nokkrum stöðum á Aust-
fjörðum, þar sem ekki var vitað
áður að þeir fyndust.
A
Staðfest hefir verið breyting
á reglugerð Háskóla íslands, sem
miðar að meiri fjölbreytni í
námsvali til kennaraprófs, cand.
mag. prófs, við háskólann. Gefst
stúdentum nú kostur á að nema
eina aðalgrein, íslenzku eða
sögu, ásamt einni aukagrein, er-
lendu tungumáli, landafræði,
eðlisfræði eða stærðfræði, auk
þess sem þeir geta eins og hingað
til lesið íslenzk fræði ein saman.
☆
Ættingjar Matthíasar skálds
Jochumssonar hafa fyrir nokkru
keypt jörðina Skóga í Þorska-
firði, en þar bjuggu foreldrar
skáldsins sem kunnugt er. —
Bróðursynir skáldsins, Kristján
og Jochum Eggertssynir, hafa
unnið þar að því að stofnsetja
uppeldis- og tilraunastöð fyrir
trjáplöntur, einkum með tilliti
til framtíðarnytja.
☆
í fyrrakvöld lauk í Lista-
mannaskálanum í Reykjavík
Septembersýningunni, en þar
sýndu 12 málarar og mynd-
höggvarar um 70 myndir. í gær-
Framhald á bls. 8
Kaupir húseign á Akureyri fyrir
þá síarfsemi
Kaþólska kirkjan hefur fyrir
skemmstu fest kaup á húseign
á Akureyri og verður þar mið-
s t ö ð starfsemi kirkjunnar á
Norðurlandi á næstunni.
Skýrði fréttaritari blaðsins á
Akureyri svo frá í morgun, að
kaþólska kirkjan hefði fest kaup
á húseigninni Eyrarlandsvegi 26
sem er gamalt timburhús ekki
langt frá Menntaskólanum. Er
ætlunin, að þar verði komið upp
kapellu, og byggingin verði, eins
og þegar er sagt, miðstöð fyrir
starfsemi kirkjunnar norðan-
lands.
Séra Hákon Loftsson hefur
flutzt norður og mun verða bú-
settur þar framvegis, og hafa á
hendi stjórn starfseminnar norð-
anlands, en hér er vitanlega um
trúboðsstarf að ræða, því að
kaþólskir menn munu vera fáir
norðanlands.
Vísir átti sem snöggvast tal
við herra Jóhannes Gunnarsson,
Hólabiskup, í morgun, er blað-
inu hafði borizt þessi fregn að
norðan, og skýrði hann blaðinu
svo frá, að það hefði lengi verið
ósk og fyrirætlun kaþólsku
kirkjunnar hér, að hún hefði
einnig miðstöð fyrir starfsemi
sína úti á landi, og þá hefði Ak-
ureyri helzt komið til greina.
Enn væri starfið á Akureyri þó
á frumstæðasta byrjunarstigi,
því að séra Hákon Loftsson væri
til dæm'is kominn þangað fyrir
svo skömmu, að hann væri ekki
einu sinni búinn að koma sér
fyrif þar.
— VÍSIR, 21. ágúst
COPENHAGEN
Bezta munntóbak
heimsins
“Dráttarvélar mínar
afla mér
peninga þegar
í stað!”
Biðjið um ein-
tak af þessum
ðœkllngi, .. þar
sem skýrt er
frd þúbótaidn-
um.
”Ég VISSI það þegar að iðju-
lausar dráttarvélar öfluðu ekki pen-
inga. En ég átti ekki peninga fyrir
aðrar búvélar svo ég gæti haldið
dráttarvélunum starfandi. Af þeirri
ástæðu fór ég að leita fyrir mér um
búbóta'lán í Royal bankanuih.
Forstjóri bankans kom láninu fljót-
lega í gegn og ég fékk þau verkfæri,
sem ég þarfnaðist. Nýju áhöldin hafa
borgað sig vel—og nú er hið sama
um dráttarvélarnar að segja!”
BÚBÓTALÁN
má einnig noia vegna
• Nýrra verkfæra, véla og annars
ótbúnaðar.
• Nýrrar undiratöBn og tll kynbóta
búpenlngs.
• Raflýsingar býla.
• Girðinga, framræslu og annara umbóta.
THE ROYAL BAHK
OF CANADA
Þér getið borið fult traust til “Royal”
RB-52-2