Lögberg - 25.09.1952, Page 8

Lögberg - 25.09.1952, Page 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 25. SEPTEMBER, 1952 Úr borg og bygð I.O.D.E. Annual Tea The Jon Sigurdson Chapter, I.O.D.E. will hold its annual Thanksgiving Tea and sale of home cooking on Saturday after- noon, Sept. 27, from 2.30 to 5.00, at the T. EATON Co. Assembly Hall. A special attraction at the tea will be the playing of lovely new Icelandic recordings, both old favorites songs and new compositions. General conveners are Mrs. G. Gottfred and Mrs. W. S. Jónas- son. Others in charge will be: tea-table conveners, Mrs. G. Gunlaugson, Mrs. S. Gillis and Mrs. H. F. Danielson; home cooking, Mrs. P, J. Sivertson and Mrs. J. F. Kristjanson; Novelty sales, Miss Vala Jonasson and Mrs. E. W. Perry. Receiving with the regent, Mrs. B. S. Benson and Mrs. J. B. Skaptason. Hon. Vice-Regent will be, Mrs. J. A. Argue, Pro- vincial president and Mrs. J. C. Irlam, Municipal vic. regent. Engin hækkun eignaskatts undir forusfru Juba Með að aðhyllast stefnuskrár atriði mín, eiga Winnipeg- skattgreiðendur það ekki á hættu, að skattar þeirra hækki næstu árin. Fullnaðarskýring- ar út í æsar verða ekki birtar á þessu stigi málsins, en verða kunngerðar seinna. Hinir al- géngu borgarar þessa bæjar, munu fagna þessari nýlundu, ekki sízt með hliðsjón af hækkandi framfærslukostn- aði. Mr. Juba er enginn „já- bróðir“, heldur maður með hugrekki og ákveðna sann- færingu. Þurfum að breyta til Ungur maður með þekkingu og framsóknarhug Þér skuldið það sjálfum yður og fjölskyldu, að rasa ekjíi um ráð fram, en bíða eftir því að kynnast stefnuskráratriðum allra frambjóðendanna um borgarst j óraembættið. Kosningar 22. okóber FYRIR BORGARSTJÓRA Stephen JUBA J 1 The chapter cordially invites all its good friends and support- ers to attend and enjoy the good fellowship of getting together once again at the opening of the fall season, in the pleasant sur- roundings so courtously supplied by the T. EATON Company. ☆ Miðaldra kona, sem vön er innanhússtörfum og matreiðslu, óskast til að veita forstöðu heimili utan Winnipegborgar sem allra fyrst; þrír í heimili, húsbóndinn og tvö börn; þess er vænst, að konan taki að sér þessa stöðu að minsta kosti ár- langt. Lágmarkskaup auk fæðis og húsnæðis, 45 dollarar á mán- uði. — Upplýsingar hjá Keystone Fisheries Limited, 4. hæð Scott Block. Sími 925 227. ☆ — RABB — Ég hafði nú hugsað það verra en það var að vera í þeim sjúklinga grúa, því langur er dagur og dauflegur þar, sem dauðinn og læknarnir búa. —Þ. E. Flestir sem íslenzkt mál tala kannast við þessar snjöllu ljóð- línur Þorsteins Erlingssonar, enda þótt allir geti ekki tileink- að sér þær, þar sem margir hafa lifað sínar sárustu og síðustu stundir á spítölum; en þetta er lögmál lífsins, sem engan er um að saka; hitt gengur manni ver að fyrirgefa þegar stór mis- munur er á viðmóti og viður- gjörning, lækningu og iiðsinni á tveimur spítölum, en það get ég borið um af eigin reynslu, og á ég þar við General og St. Boniface spítalana, sem ég gisti báða síðastliðið sumar; hefir St. Boniface spítalinn ýmsa kosti fram yfir General spítalann. — Manni verður þetta hugstæðasta umtalsefnið eftir fjögra vikna rúmlegu og um leið fulla bót á margra ára sjúkdómi, enda vert að geta þess sem vel er gert. Daníel Halldórsson ☆ HJÓNAVÍGSLUR í Fyrstu lútersku kirkju (fram- kvæmdar af séra Valdimar J. Eylands): 12. sept. George Cyril Cart- wright, 637 Atlantic Avenue, og Florence Archibelle Jónína Pol- son, Ste. '26, Cambridge Apts., Winnipeg. 19. sept. Elman Kreisler Gutt- ormson, Winnipeg, og Hildur Margaret Thorsteinsson, Winni- peg, Man. 20. sept. Max Herold Jorgen- sen og Margaret Magnússon, Winnipeg. 20. sept. Nicholos Soko, Win- nipeg, og Doreen Ericksson frá Lundar, Man. 20. sept. James Robert Morri- son, og Irene Sigurrós Page, Winnipeg, Man. ☆ íslenzk kona óskar eftir her- bergi til leigu frá 1. október n.k., um óákveðinn tíma, helzt með aðgang að eldavél. Sími 72-3593. ☆ Þau Páll S. Pálsson skáld og frú hans frá Gimli, brugðu sér norður til Lundar í fyrri viku í heimsókn til ættingja og annara vina. Dr. David Stewart frá lækna- deild Aberdeen-háskólans á Skotlandi heimsótti æskustöðv- ar sínar í sumar ásamt fjöl- skyldu sinni; hann er sonur Dr. D. A. Stewart stofnanda og yfir- umsjónarmanns Ninette berkla- hælisins; Dr. D. A. Stewart var mikill gáfumaður og íslending- um að góðu kunnar. Hann átti mikið og gott bókasafn og kom sonur hans því fyrir hjá Mani- tobaháskóíanum, en tók samt með sér til Skotlands nokkrar uppáhaldsbækur föður síns, en meðal þeirra voru þrjár þýðing- ar af íslendingasögunum. ☆ Leikflokkur Dorcas kvenfé- lags Fyrsta lúterska safnaðar sýnir tvo sjónleiki í Parish Hall á Gimli á þriðjudagskveldið, 30. september; fer leikflokkurinn þangað í boði Dorcas-félags Gimli-safnaðar. — Mr. Alvin Blöndal mun syngja þar. ☆ Skapti Halldórsson frá Sandy Hook, Man., lézt á Grace spítal- anum hér í borg á miðvikudag- inn, 17. sept., 56 ára að aldri. — Hann var fæddur að Mountain, Norður-Dakota, en fluttist til Manitoba fyrir 40 árum og stundaði fiskiveiðar. Hann læt- ur eftir sig móður sína, Mrs. J. Halldórsson; sex bræður, Daníel, Halldór, Noel, Dóra, Sigurð og Böðvar; ennfremur tvær systur, Mrs. J. Thordarson og Mrs. J. Wisewell. Útförin fór fram frá lútersku kirkjunni í Husavick síðastliðinn laugardag. ☆ FRÓNS-fundur Þjóðræknisdeildin Frón held- ur fund í Good Templar-húsinu á mánudagskveldið 6. okt. Ágæt skemtiskrá, — auglýst nánar í næsta blaði. ☆ Nýlega komu til bæjarins, Mr. og Mrs. W. Sigurgeirsson; hafa þau verið í Minaki í sumar. Mr. Sigurgeirson starfar fyrir C. N. j ár nbrautarf élagið. ☆ Á miðvikudaginn 17. septem- ber átti frú Margrét Ólafsson, Morris Ave., Selkirk,. Man., 99 ára afmæli. Lögberg óskar henni til hamingju. ☆ Mr. Dóri Thorkelson, gull- smiður og skrautmunasali á Gimli flytur jí nýja búð á Centre Street þar í bæ um 1. nóvember næstkomandi. Fréftir frá íslandi Framhald af bls. 4 kvöldi opnaði Gerður Helga- dóttir sýningu þar og sýnir á annað hundrað myndir, smíðað- ar úr járni, gerðar úr gibsi mót,- aðar í leir og höggnar í sand- stein og marmara, og teikningar og skurðmyndir. Gerður hefir stundað nám í Flórens og París undanfarin 5 ár, og sýnt tvisvar í París, síðast nú í vor. Enn- fremur hefir hún sýnt þar með öðrum listamönnum. — Finnur Jónsson listmálari opnaði nýlega málverkasýningu í Gagnfræða- skólanum á Akureyri og sýnir þar um 100 myndir. Sýningu hans lýkur í kvöld. — Þá hefir Kristinn Pétursson listmálari sýningu á olíumálverkúm og pastelmyndum í veitingasal Iðn- sýningarinnar í Reykjavík. ☆ Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri dagblaðsins Tímans, er nýlega farinn til Bandaríkjanna til þriggja mánaða dvalar þar og nýtur til þess styrks frá utan- ríkisráðuneyti Bandaríkjanna. Hann hyggst ferðast víða um landið og kynna sér þar blaða- útgáfu og kaupfélög. ☆ Ellefta þing Æskulýðsfylking- arinnar, sambands ungra sósíal- ista, var sett á Akureyri í- fyrra- dag og sitja það 60 fulltrúar. ☆ í fyrradag átti Margrét Björns dóttir á Hvammstanga 100 ára afmæli, og hélt kvenfélagið þar henni samsæti í tilefni dagsins. Mr. Harald Stephenson frá Montreal kom nýlega hingað í heimsókn til móður sinnar, frú Önnu Stephenson, og systkina sinna. ☆ Gísli Jónsson ritstjóri kom heim úr heimsókn til íslands síðastliðinn þriðjudag; hann lagði af stað héðan þann 10. júní og átti því langa dvöl á íslandi, sem varð honum til ósegjanlegs yndis; er vestur kom heimsótti hann börn sín þau dr. Helga pró- fessor við Ruthger College, New Jersey og frú Bergþóru Robson í Montreal. ☆ Gimli Kinsmen klúbburinn hélt nýlega árfund sinn og var Butch Arnason kosinn forseti, fyrrverandi forseti var Eric Ste- fánsson. Þetta félag hefir látið mikið gott . af sér leiða, meðal annars safnað $1600.00 tiLstyrkt- ar kryppluðum börnum. ☆ Frú Guðrún Stefánsson, sem bjó um langt skeið að Cypress River, er nýkomin frá Van- couver, en þar dvaldi hún í tvö ár hjá dóttur-dóttur sinrii, Mrs. Fred Johnson. Hún er nú hjá dóttur sinni og tengdasyni, Mr. og Mrs. Jónas Anderson, Leigh- ton Apts. hér í borg, en ráð- gerir að dvelja hjá dóttur siiini, Mrs. G. Björnsson, Glenboro, í vetur. Frú Guðrún er á fjórða árinu yfir nírætt og nýtur enn ágætrar heilsu og skemtir sér við lestur ^g prjóna. ☆ Hear Stephen Juba Sunday, October 12, in a public meeting at the Winnipeg Auditorium. GAMAN 0G A L V A R A Anna: — Hvenær varstu trú- lofuð honum Jóni? Beta: — Bíddu við, það eru eitthvað um 5 trúlofanir síðan. ☆ 1. leikkona: — Hugsaðu þér, leikstjórinn er búinn að svíkja mig um hlutverkið mitt í nýja leikritinu. 2. leikkona: — Hvað ertu að segja, kona, og báðar línurnar? ☆ Tveir bændur voru að ræða saman um að fara í heimsókn til kunningja síns í næstu sveit. Annar vildi fara í bíl, en hinn aftók það með öllu. Skýringin sem hann gaf var þessi: — Konan mín er bílveik, krakkarnir mínir eru bílveikir, ég er sjálfur bílveikur og hund- urinn minn er bílveikur. Þetta er ættgengur andskoti! ☆ — Hvað? Er þetta ekki demant ur, sem er í hringnum þínum. Ég hélt ekki að þú værir svo rík, að þú gætir keypt þér slíkt, eða þá að þú ættir svo ríka kunn- ingja! — Enda er það líka rétt, en gamall frændi minn kallaði mig á fund sinn, rétt áður en hann dó, og lét mig fá 10.000 krónur, til þess að kaupa stein til minn- ingar um hann og þetta er steinninn! ☆ Mikið skelfilega er það leiðin- legt að grammófónninn skyldi ekki vera til, þegar Lizt var uppi. J.: — Nei, það var alls ekki svo leiðinlegt, því annars hefði hann setið allan daginn og hlust- að á hann! ☆ Strætisvagnabílstjóri rétti konu, sem var að borga honum með tveggja krónupeningi, peninginn aftur og sagði: — Hann er falsk- ur, og þér verðið að borga með einhvexri annarri mynt. — Hvaða vitleysa, hann er ekkert falskur. Hann, sem var sleginn árið 1902 og það væri þá sannarlega einhver búinn að taka eftir því. Free * Winter Storage Send your outboard motor in now and have it reody for Spring. Free Estimate on repairs Specialists on . . . Johnson - Evinrude & Elto Service Breen Motors Ltd. WINNIPEG Phone 92-7734 Minnmgarorð Þann 28. júlí síðastliðinn and- aðist öldungurinn Jón Clemen- son. Hann var fæddur á Sigríð- arstöðum 4 Köldukinn. Foreldr- ar hans voru þau hjónin Klem- ens Jónsson og Sigríður Péturs- dóttir. Jón ólst upp á heimili foreldra sinna og var þar til full- orðins ára. Jón kvæntist á íslandi; kona hans var Þuríður Jónsdóttir frá Brettingsstöðum í Laxárdal. Árið 1905 fluttist Jón til Ame- ríku með Klemens son sinn, kona hans hafði farið til Ame- ríku nokkrum árum áður með tvö börn, og settist að í Argyle- bygð. Jón og Þuríður voru nokkur ár í Baldur, Man., vann hann þar hjá bændum, en síðar við járnbrautarvinnu. Árið 1915 flutti hann með fjölskyldu sína til Silver Bay, Manitoba. Jón misti konu sína árið 1821, en bjó eftir það í nokkur ár með börnum sínum. Árið 1929 settist hann að hjá syni sínum Ásgeiri og konu hans Halldóru og var hjá þeim til dauðadags. Hann var rúmfastur í fimm mánuði og naut þá nærgætni og hjúkr- unar Halldóru tengdadóttur sinnar. Jón var vel gefinn og skemmti- í tali. Hann var vel lesinn og fróður, en lét lítið yfir sér. — Hann.fylgdist með öllum bygð- armálum, tók góðan þátt í kirkjumálum og studdi vel kirkju sína. Hann var tryggur vinur og góður nágranni. Jón og Þuríður eignuðust sjö börn: Aðalbjörn, kvæntur, bóndi í Silver Bay; Kristín, gift, bú- sett á íslandi; Klemens, kvænt- ur, Section foreman í Wawanesa; Valdimar, dáinn 1920; Stefanía, dó í æsku á íslandi; Ásgeir, kvæntur, bóndi í Silver Bay; Stefanía, gift, búsett í Winnipeg. Barnabörnin eru 18 og 3 barna- barnabörn. Útför Jóns fór fram frá lút- ersku kirkjunni í Silver Bay 1. ágúst. Séra H. S. Sigmar, Gimli, jarðsöng. Þau hjónin, Mr. og Mrs. Ás- geir Clemenson, langar sérstað- lega til að þakka Gíslasons fjöl- skyldunni, Silver Bay, Joe Aust- man, Mr. og Mrs. Thorgilsson, Ashern, Mrs. Vala Scheske, er lék á orgelið í kirkjunni og einn- ig séra Eric H. Sigmar, Seattle, fyrir hans indæla söng, og öllum þeim, sem heiðruðu útför Jóns með nærveru sinni og blómum. H. S. Sigmar Farið eins langt og þér sjáið og þegar þér komið þangað, munið þér sjá ennþá lengra. —Sunshine Gazette Séra Valdimar J. Eylands Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnd. 28. sept. Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 12 íslenzk messa kl. 7. síðd. Fólk boðið velkomið. S. ólafsson ☆ Gimli Lulheran Parish H. S. Sigmar, Pastor Sept. 28th Sunday Services Betel 9 a.m. Gimli 11 a.m. Husavick 2 p.m. Gimli 7 p.m. Matreiðslubók, sem Dorcasfé- lag Fyrsta lúterska safnaðar lét undirbúa og gaf út; þegar þess er gætt, hve bókin er frábærlega vönduð að efni og ytri frágangi, er það undrunarefni hve ódýr hún er; kostar aðeins $1.50 að viðbættu 15 centa burðargjaldi. Pantanir, ásamt andvirði, sendist: Mrs. R. G. Pollock, 708 Banning St. Winnipeg, Sími 36 603 Miss Ruth BárdaL 5 — 54 Donald St. Winnipeg. Sírni 929 037 Handhæg ritvél Vér getum útvegað yður rit- vél, sem þér getið haldið á, með letri yðar eigin tungu. Samið um greiðslur THOMAS & COMPANY 88 Adclaide Strect West, Toronto EATON'S FallcWínterCatalogue! 636 blaðsíður — yðar mesta úrval og yfir hbfuð beztu kjörkaupin. *T. EATON Cí— WINNIPEQ CANAOA EATON ORPER OFFICES IN MANITOBA I Brandon - Oauphin • Flin Flon • Fort Churchill - Portage la Prairie I [ The Pas • ln Winnipeg, Miont or vitit thi Sales Koom ín Tht Mail 0ri» Bldgs. j

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.