Lögberg - 02.10.1952, Síða 1

Lögberg - 02.10.1952, Síða 1
Phone 74-6643 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs 65. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 2. OKTÓBER, 1952 Phone 74-6643 BARNEY'S SERVICE STATION NOTRE DAME and SHERBROOK Gas - Oil - Grease Tune-Ups Accessories 24-Hour Service Repairs NÚMER 40 ---------( Góður gestur Nýlega er kominn hingað til borgar Jónas Kristjánsson for- stjóri mjólkur- og smjörgerðar- deiidar Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri, en þessa deild stofn- aði hann fyrir liðugum aldar- fjórðungi; hann kom flugleiðis frá íslandi til Bandaríkjanna og lagði af stað að heiman hinn 18. september síðastliðinn og hefir heimsótt Washington, Chicago og Minneapolis. í Chicago skoð- aði hann Dairy Industries sýningu, sem er ein hin um- fangsmesta slíkrar tegundar í Bandaríkj unum og þótti honum mikið til hennar koma; mun hann dveljast vestan hafs um hríð til að kynna sér helztu nýj- ungar í mjólkuriðnaðinum. Jónas er fæddur í Víðigerði í Eyjafirði, prúður maður, hag- sýnn og velviljaður; hann er bróðir frú Guðrúnar Anderson í Glenboro og hafði fundum þeirra eigi borið saman síðan 1930, er frú Guðrún heimsótti ísland; hann dvelur um þessar mundir í Glenboro hjá áminstri systur sinni og manni hennar Páli H. Anderson. Fegursti heimilisblóma- garður fylkisins Nýlega hafa þrír sérfræðingar í blóma- og garðrækt ferðast um alt fylkið til þess að dæma um það hverjir væru beztir og fegurstir heimilisgarðar í Mani- toba, voru það þeir F. W. Brod- rick, Próf. E. T. Anderson og F. Wier. Kom þeim saman um að blóma- og ávaxtagarður Mrs. J. Walter Johannson að Pine Falls, Manitoba væri bezti og fegursti heimilisgarðurinn í Manitoba og hlaut hún The Shaughnessy Trophy að verð- launum. Mrs. Johannson hafði áður sigrað í garðyrkjukeppn- inni í Pine Falls og einnig í samkepninni, er um var að ræða garða er höfðu lengri en 66 feta framhlið. Ennfremur hefir hún hlotið verðlaun fyrir ávexti og blóm úr garði sínum. Hún er dóttir þeirra Mr. og Mrs. J. J. Thorvardson. Nýjar olíulindir Imperial olíufélagið mikla hefir lýst yfir því, að nú sé kom- ið að því, að olíuvinsla hefjist þá o% þegar á tveimur nýjum stöðum í grend við bæinn Virden hér í fylkinu; hve mikið olíumagn er hér um að ræða, er enn eigi vitað þótt líkur þyki til, að það sé hreint ekkert smáræði; þessar nýju olíulindir eru á bújörð Geralds Benjamíns Haskett, sem er geisistór og á hann þar mikilvæg námu- réttindi. Skattafnóms krafist Neytendafélagið canadiska, sem nú hefir nýverið háð hið fimta ársþing sitt í Toronto, krafðist þess af sambandsstjórn að hún beiti sér nú þegar fyrir • því að afnuminn verði 10% skattur af tei og kaffi; virtust fundarmenn á einu máli um það, að skattur þessi væri með öllu óréttlætanlegur og íþyngdi aðallega þeim stéttum, sem minnst hefðu gjaldþolið. Tala lömunartilfella Fréttir fró ríkisútvarpi íslands 21. SEPTEMBER Mr. og Mrs. William Ralph Lawler Virðuieg og fjölmenn brúðkaupsathöfn Síðastliðið föstudagskvöld voru gefin saman í hjónaband í Fyrstu lútersku kirkju þau Miss Sigrún Dolores Eylands og William Ralph Lawler ílugstjóri frá Lindsay, Ont. Faðir brúðarinnar, séra Valdimar J. Eylands framkvæmdi hjóna- vígsluna, Miss Lilja Eylands söng einsöngva og vakti hin mikla og tæra rödd hennar ábærilega hrifningu; við hljóð- færið var frú Björg ísfeld. Að lokinni vígslu var setin ríkmannleg og fjolmenn veizla í samkomusal kirkjunnar og skorti þar hvorki gleði né góðan fagnað. Séra Egill H. Fáfnis flutti bæn, en Paul Bardal, fylkisþingmaður, mælti fyrir minni brúðarinnar, eða í raun og veru brúðhjónanna, en einnig flutti ræðu móðurbróðir brúðarinnar Nels Johnson frá Bismarck, fyrrum dómsmálaráðherra North Dakotaríkis; viðstaddli voru og bræður hans tvem, Einar lögfræðingur frá Lakota, N.D., og Kristján læknir frá Rugby. Með ein- söng skemti Erling Eggertson, sem hefir djúpa og áhrifa- mikla bassarödd; við hljóðfærið var Miss Sigrid Bardal. Sægur mikill heillaóskaskeyta barst brúðhjónunum víðs- vegar að, þar á meðal frá Eggert lækni Steinþórssyni og frú Gerði í Reykjavík, séra Pétri Sigurgeirssyni og Ástmars- hjónunum á Akureyri. — Heimili ungu hjónanna verður fyrst um sinn að Trenton, Ontario. Lögberg flytur þeim hugheilar árnaðaróskir. Að því, er síðast fréttist, var tala lömunarveikitilfella í Mani- toba nú í ár, komin yfir hundrað og sjötíu; dánartilfelli urðu fram að þessum tíma nokkru fleiri en í fyrra, en yfir höfuð mun veikin hafa verið heldur vægari; heilbrigðismálayfirvöldin hafa undanfarið verið að leita fyrir sér um aukinn liðsafla hjúkrun- arkvenna vegna þessa ískyggi- lega faraldurs. Á leið vesfur að hafi Forseti íslands og ríkisstjórn hafa ráðið Hinrik Sveinsson Björnson sendiráðunaut í París, ritara forseta Islands. Hann verður jafnframt starfsmaður í utanríkisráðuneytinu að nokkr- um hluta. Hinrik S. Björnsson er lögfræðingur að menntun og hefir starfað í utanríkisþjón- ustunni sjðan 1939. ☆ Nýlega eru hafnir fjárflutn- ingar norðan úr Þingeyjarsýslu á fjárskiptasvæðið sunnanlands og komu fyrstu bílarnir í fyrra- dag í Árnessýslu, en þangað verða flutt um 16 þúsund líf- lömb úr Þingeyjarsýslu og nokkrum hreppum í Eyjafjarð- arsýslu. Auk þess hafa verið keypt um 9000 lömb frá Vest- fjörðum, og. verða 2000 þeirra flutt á bifreiðum frá ísafjarðar djúpi, en hin sjóveg. Loks hefir komið til orða að kaupa eitt- hvað af lömbum austur í Ör æfum og á Síðu. ☆ Fiskaflinn í júlímánuði s.l. varð um 22.700 lestir, eða rúm- lega 4.000 lestum minni en i sama mánuði í fyrra, og veldur Séra Eiríkur Brynjólfsson Sef-tur inn í embætti Á sunnudaginn kemur verður séra Eiríkur Brynjólfsson fyrr- um prestur að Útskálum settur inn í embætti hjá íslenzka lút- erska söfnuðinum í Vancouver, B.C. Innsetningarathöfnina fram kvæmir forseti hins Evangeliska lúterska kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi, séra Valdimar J. Eylands; einnig tekur þátt í at- höfninni Dr. Rúnólfur Marteins- son. Dauðaslys og meiðsli Á miðvikudaginn varð spreng- ing í 'kornhlöðu Saskatchewan- hveitisamlagsins í Port Arthur, Ont., sem varð fimm mönnum að bana en fjórtán sættu alvar- legum meiðslum; mælt er að eignatjón nemi nálega þremur miljónum dollara; hér var um að ræða eina allra stærstu og fullkomnustu kornhlöðu austur við vötnin. Séra Valdimar J. Eylands í dag lagði af stað vestur á Kyrrahafsströnd séra Valdimar J. Eylands og mun hann dvelja þar vestra nálægt hálfsmánaðar tíma og síður en svo sitja auð- um höndum; á sunnudaginn kemur setur hann séra Eirík Brynjólfsson inn í embætti í Vancouver sem forseti kirkjufé- lagsins, en þaðan fer hann til Seattle og situr þar ársþing Hinnar sameinuðu lútersku kirkju í Norður-Ameríku, én hinn 11. þ. m., verður hann aðal- ræðumaður á Leifs Eiríkssonar- hátíð í Seattle, er norrænir menn víðsvegar um Kyrrahafs- strönd standa að. Auk séra Valdimars sitja á- minst ársþing þeir Séra S. O. Thorlakson í Berkeley, Cal., Skúli Stefánsson frá Hensel, N. Dak., og G. Pálsson úr Geysis bygð, en þessir menn voru kjörnir á kirkjuþinginu í Min- neota sem erindrekar á árs- þingið. Aðalræðumaður á Stórstúkuþingi Dr. Richard Beck var aðal- ræðumaður á Stórstúkuþingi Góðtemplara í Minnesota (The Northwest Grand Lodge oí I. O. G. T.), sem haldið var í Minneapolis laugardaginn og sunnudaginn 20. og 21. septem- ber; sóttu þingið fulltrúar og gestir víðsvegar úr ríkinu. í ræðu sinni rakti dr. Beck sögu Góðtemplarareglunnar, sem nú er rúmlega 100 ára gömul, og ræddi síðan um ýmsar þær leiðir, sem líklegastar væru til að bera árangur í starfsemi Góð- templara og annarra bindindis- vina. Hann flutti einnig á þing- inu kveðjur frá Stórstúku ís- lands og frá íslenzku stúkunum í Winnipeg. Lóta líf sitt í kafbót Franska flotamálaráðuneytið hefir kunngert, að neðansjávar- báturinn La Sybille, hafi fyrir skemstu sokkið á botn Miðjarð- ar hafs með fjörutíu og átta manna áhöfn innanborðs; frönsk stjórnarvöld höfðu skip þetta á leigu frá brezka flotanum og var það notað til æfinga; brök úr því hafa fundist svo ekki er um að villast örlög þess. Mæna vonaraugum til vesturs Aðstoðar framkvæmdarstjóri The Royal Bank of Canada, Mr. M. Walter, var staddur í Win- nipeg í vikunni, sem leið, og lét þannig um mælt, að nú væri svo komið, að stóriðjuhöldar í Austur-Canada mændu vonar- augum til Vesturlandsins vegna þeirra ótæmandi náttúrufríð- inda, sem það býr yfir og þeirr- ar stóriðju, sem-sé að komast á fót í Vesturfylkjunum frá ári til árs; á leið sinni héðan, ætlaði Mr. Walter að heimsækja Regina, Calgary, Edmonton, Vancouver, Chicago og Seattle áður en hann hverfur á ný til heimilis síns í Montreal. Sú var tíð, er iðjuhöldar og fésýslukóngar austanlands litu Vesturfylkin hornauga og hugðu að þar væri ekki feitan gölt að flá. Virkjun McArthurfossa Nú hefir raforkunefnd Mani- tobafylkis formlega kunngert, að hafist verði þegar handa um virkjun McArthurfpssanna með því að samkomulag við Winni- peg Eletric félagið hafi með öllu farið út um þúfur; áætlað er að þessi nýju orkuver með öllu þar að lútandi, muni kosta yfir tutt- ugu og fimm miljónir, og hafa samningar verið gerðir um vélar og vinnu, sem hlaupa upp á ellefu miljónir dollara. þar mestu, að nú veiddist sára- lítið af síld. Heildaraflinn fyrstu sjö mánuði ársins varð 220.500 lestir, en á sama tímabili í fyrra 251.700 lestir. ☆ Stjórn Síldarverksmiðja ríkis- ins hefir, að fengnu leyfi at- vinnumálaráðherra, ákveðið að hefja smíði hraðfrystihúss við Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði, og fengið til umráða í því skyni IV2 miljón króna af fé því, sem veitt var til atvinnu- bóta á síðustu fjárlögum. Kostn- aðurinn er hins vegar áætlaður um 3 miljónir króna, og vinnur stjórn S. R. að því að afla þess viðbótafjár, sem með þarf, svo og nauðsynlegra leyfa. Mikil atvinnubót .verður að þessum framkvæmdum, en atvinna hef- ir verið mjög lítil á Siglufirði að undanförnu, enda var sumarið í sumar áttunda síldarleysis- sumarið í röð. ☆ Um síðustu helgi höfðu Verið saltaðar um 30.500 tunnur af Suðurlandssíld upp í gerða samninga, og nokkuð að auki. Sænsk innflutningsyfirvöld veittu nýlega leyfi fyrir inn- flutningi á 20.000 tunnum af saltaðri Suðurlandssíld og var í ráði' að leyfi yrðu veitt fyrir 3000 tunnum til viðbótar. Er þá hægt að salta hér 80.000 tunnur af Suðurlandssíld, að meðtöldum þeim 10.000 tunnum af millisíld, sem ríkisstjórrlin ábýrgist verð á að nokkru leyti, þegar miðað er við sölusamninga, sem gerðir hafa verið. ☆ Rafmagnsveitur ríkisins, sem stofnaðar voru með lögum 1946, ná nú til 13 kaupstaða, kaup- túna og þorpa við sjó með sam- tals 9600 íbúum, og til rúmlega 400 bændabýla og um 200 ann- arra notenda í sveitum. Flestar þær veitur, sem í notkun eru nú, eru á orkuveitusvæðum Sogsins, Andakílsár og Laxár. Háspennulínur rafmagnsveitna ríkisins eru nú samtals or#ðnar Framhald á bls. 5 í heimsókn vestur ó Kyrrahafsströnd Krefst jafnréttis um kaupgjald Á nýafstöðnu ársþingi verka- mannasamtakanna, Canadian Congress of Labor, var afgreidd í einu hljóði þingsályktunartil- laga, er í þá átt gekk, að skora á stjórnarvöldin að hlutast til um að konum yrði greitt jafnt kaup og karlmönnum fyrir samskonar vinnu; frumkvæði að tillögunni átti frú Brida Gray frá Toronto. Dr. Rúnólfur Marleinsson og frú Ingunn Marteinsson í gær lögðu þau Dr. Rúnólfur Marteinsson og frú Ingunn af stað í heimsókn vestur á Kyrrahafsströnd; var þeim boðið vestur og tekur Dr. Rúnólfur þátt í athöfn þeirri í Vancouver næsta sunnudag, er séra Eiríkur Brynjólfsson verður settur inn í embætti; þau hjón munu einnig bregða sér til Seattle; þau eiga tvö börn sín búsett í British Columbiafylki, Dr. Hermann í Vancouver og frú Guðrúnu 1 Okanagandalnum. — Dr. Rúnólfur og frú eru enn, þótt hnigin séu nokkuð á efri ár, þrungin áhuga fyrir íslenzkum mannfélagsmálum, lífsglöð og ung í anda.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.