Lögberg - 02.10.1952, Page 2

Lögberg - 02.10.1952, Page 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 2. OKTÓBER, 1952 FERÐASAGA frá íslandi til Ameríku sumarið 1887 Séra Valdimar J. Eylands, er komst yfir þessa gömlu og fróðlegu ferða- sögu, lét Lögbergi hana góðfúslega í té til birtingar; höfundur hennar, Asgeir J. Lríndal, er lézt I Vistoria, B.C., var skáldmæltur skýrleiks- maður. —Ritstj. Miðvikudaginn þann 6. júlí, kl. 6.30 e. h., lagði ég af stað frá heimili mínu í Miðhðpi í Húna- vatnssýslu (á íslandi), áleiðis til Ameríku. Ég fór um daginn að Þorkelshóli í sömu sýslu og var þar um nóttnia. — Þenna dag var ágætt veður, logn og sól- skin, ca. 20 stiga hiti á R.; loft- þyngdarmælirinn stóð ágætlega (7,8 metre). Daginn eftir (7. júlí) fór ég kl. 9.30 f. h. frá Þorkelshóli og vest- ur að Þóroddstöðum í sömu sýslu. Allan daginn var allra bezta veður, logn og sterkur sóiarhiti. Daginn eftir, eður 8. júlí, var ég um kyrrt á Þóroddstöðum; það átti sem sé gufuskipið „Camoens“ að koma til Borð- eyrar þenna dag til þess að taka vesturfara, eftir áætlun þeirri, er eigendur skipsins (Slimon & Co. á Skotlandi) höfðu samið, en umboðsmenn (Agents) Allan- línunnar birt alþýðu, því með þeirri línu ætluðum vér að flytja. Ekki kom skipið þenna áætl- unardag sinn, og bannaði þó ekki veður, því það var ágætt allan daginn. — Fjöldi af fólki var komið að Þóroddstöðum þegar ég kom þangað og á bæina þar í kring, sem ætlaði sér til Vesturheims (Ameríku) með áðurnefndu -skipi þegar það kæmi. Daginn eftir (9. júlí) var ágætt veður, en allt fyrir það kom ekki Camoens. Á sömu leið fór daginn eftir (10. júlí) að það kom ekki; veðrið var þó indælt, glaða sólskin og sterkjuhiti allan daginn. — Næsta dag (11. júlí) var storm- ur og heljar kuldi; ekki „bólaði á barða“ þann dag. Seinni part dagsins fór ég frá Þóroddstöðum austur að Miðhópi til þess að fá mér vinnu, því ekki leit út fyrir að Camoens kæmi bráðlega fyrst hann var ekki kominn. — Fjöldi af vesturförum fóru þá frá Þóroddstöðum og bæjum þeim, er þeir höfðu beðið á í Hrútafirðinum, austur í sveitir til þess að leita sér að vinnu,- sem þá var mjög illt að fá. Ég var í Miðhópi 10 daga, eður til 22. júlí. Allan þann tíma var ég við heyvinnu hjá Jósef Jón- atanssyni bróður mínum. Flesta dagana, sem ég dvaldi í Miðhópi, var norðan stormur, þoka og kuldi. 22. júlí var sunnan krapa- slettingshríð og versta veður allan daginn. Þann dag kl. 2 f. h. lagði ég af stað (í annað sinn) frá Miðhópi, því nú var komin ný áætlun, sem tilkynnti að Camoens ætti að koma til Borð- eyrar 23. júlí (daginn eftir). — Ég hélt vestur að Þóroddstöðum um daginn, og kom þangað kl. 12 um nóttina. — Næsta dag, eður áætlunardag- inn (23) var norðan krapahríð og þoka svo lítið sást. Ekki kom Camoens þann dag. Allir þeir, sem ég gat um að farið hefðu í burtu til þess að leita sér að vinnu (11. og 12.), voru nú sam- an safnaðir á Þóroddstöðum, Borðeyri og fleiri bæjum í kring um fjörðinn, því allir ætluðu að vera til taks þegar skipið kæmi, sem eðlilegt var. — 24. júlí var bjart og gott veður fyrripartinn, en gekk á með rigningarskúrum seinnipart dagsins. Þann dag fluttum við margir farangur okkar, sem á Þóroddstöðum voru, vestur á Borðeyri, en sökum húsþrengsla þar varð flutningurinn allur að vera úti þangað til að skipið kom; svo kom vatn í hirzlurn- ar og fatnaður og annað fúnaði, bæði hjá mér o. fl. — Ekki kom Camoens þennan dag. Ég var á Þóroddstöðum það sem eftir var af júlímánuði, eður til 1. ágúst; allan þann tíma voru norðan kuldar og óþurrkar, að undanteknum 2 síðustu dögun- um af mánuðinum (30. og 31.), þá daga var gott veður, logn og sólskin. — 28. júlí kom hinn alþekkti fjár- og hrossakaupmaður, herra John Coghill að Þóroddstöðum, hann var á suðurleið. Honum féll mjög illa þessi Iánga bið og kostnaður sá, er vér þyrftum að líða við hana; hann sagðist bú- ast við að gufuskipið „Miaca“ kæmi til Reykjavíkur um líkt leyti og hann kæmi þangað, og sagðist hann þá skyldi gjöra allt er hann gæti til þess, að fá hana til að fara norður á Borðeyri og sækja okkur, því hann bjóst við að eins víst væri að Camoens hefði eitthvað bilað eða jafnvel farizt fyrst hann væri ekki kominn. Bezt sagði hann að væri fyrir okkur að vera viðbúna ef hún kæmi, því hún mundi ekki standa öllu lengur við en ca. 6 klukkutíma. Cogell hélt suður, en aldrei kom Miaca og því síð- ur Camoens; en þessi ráðagjörð hans var nóg til þess, að enginn þorði að fara neitt úr Hrútafirð- inum til þess að leita sér að vinnu, þó hana hefði einhvers staðar verið að fá, af ótta fyrir því að annað hvort skipið kynni að koma á þeirri og þeirri stund- inni. — 1. ágúst var logn og glaða- sólskin; þann dag fór ég frá Þóroddstöðum að Kjörseyri, sem er að vestanverðu við Hrúta- fjörð, því mér var farið að leið- ast að sitja á Þóroddstöðum al- gjörlega aðgjörðarlaus. — Ég var á Kjörseyri í 21 dag, eður til 23. ágúst. Flesta þessa daga var norðan þoka og kuldi. — Allan þann tíma, sem ég var á Kjörseyri, var ég við heyvinnu, án þess þó að fá nokkurt kaup, nema það sem ég borðaði á með- an ég var þar! — Þetta hefði nú einhvern tíma þótt „hart í brotið“, og það var það líka sannarlega, en eins og þá stóð á þótti heldur gott að geta fengið að vinna fyrir fæði, þar sem annar eins fjöldi var saman kominn af fólki eins og þar (í Hrútafirðinum), eitthvað um 300 manns; í það minnsta var það betra en að ráfa aðgjörðarlaus og kaupa sér fæði fyrir hvern dag eins og flestir gjörðu af þessum hóp, mest sökum áður- nefndra ástæðna. — Þennan tíma, sem ég var á Kjörseyri komu margar fregnir um komu Camoens á Borðeyri, sem allar reyndust ósannar. — 17. ágúst var haldinn fundur á Borðeyri af oss vesturförum og fulltrúar úr nokkrum Hrepp- um í Húnavatnssýslu; einnig mættu nokkrir úr Dala- og Strandasýslum. Herra Sigurður E. Sverrirson sýslumaður í Strandasýslu, var kosinn fund- arstjóri. Tilgangur fundarins var að ræða um endurgjald fyrir þann skaða er vér vesturfarar höfðum liðið við þessa langvinnu bið, og sem beinlínis var svikum Slimons & Co. að kenna, eins og síðar vérður drepið á. — Ýmsar urðu tillögur manna á fundin- um. Nokkrir vildu biðja um 2—3 kr. í skaðabætur fyrir hvern dag, er vér biðum, fyrir þá er borga þyrftu fullt far- gjald (130 kr.), og sem að mínu áliti mátti ekki minna vera, þó að eingöngu væri miðað við vana legt kaupgjald yfir sláttinn heima á íslandi, hvað þá hefði verið tekið tillit til tíðkanlegra vinnulauna hér í Ameríku um þann tíma árs, sem reyndar lá beinast við að gjöra. En með því að flestir voru með því, að biðja ekki um meiri skaðabætur en 1 kr. á dag fyrir fullorðna og 50 aura fyrir börn, þá var það sam- þykkt með meiri hluta atkvæða. Fundurinn kaus svo hr. S. E. Sverrisson til þess að semja bænaskrá í þessa stefnu til lands höfðingjans yfir íslandi, herra Magnúsar Stephensens, nefni- lega að honum mætti þóknast að sjá um að vér fengjum þess- ar skaðabætur borgaðar af á- byrgðarsjóði þeim, sem Allan- línan hefir sett til þess að mega flytja fólk frá íslandi til Ame- ríku, og sem einnig er fyrir því að „forsvaranlega“ sé farið með það fólk, sem flytur með henni. Yfir þessum sjóð hefir lands- höfðinginn svo mikið umboð, það mér er kunnugt, að hann hefir fullt vald til að endur- borga íslendingum þeim er líða skaða af meðferð Allan-línunn- ar. Álit fundarins var, að vér vesturfarar ættum aðganginn að Allan-línunni (í gegnum lands- höfðingja), en hún ætti aftur að- ganginn að Slimon & Co., sem hún hafði gjört samning við, að flytti það fólk af Islandi til Skotlands, sem með henni (Allan-línunni) ætlaði að flytja til Vesturheims. — Þessari bæn- arskrá okkar fylgdu vottorð frá tveimur Englendingum, (er þá dvöldu í Húnavatnssýslu), sem sönnuðu að það voru bein svik af yfirráðendum eða eigendum Camoens að hann ekki kom 8. júlí til Borðeyrar, eins og að framan er getið að auglýst hafi verið. Vottorðin voru á þá leið: að þegar þeir ætluðu að taka sér farbréf (,,Ticket“) í Granton til Borðeyrar, var þeim sagt að þeir skyldi ekki gjöra það, heldur að- eins taka það til Stykkishólms, því þeir væru hættir við að fara til Borðeyrar í þessari ferð, og ætluðu þeir ekki lengra en til ísafjarðar, eins og þeir líka efndu. En einmitt í þessari ferð hefði CamoenS' sem bezt getað komið til Borðeyrar hefði hann reynt það, því þá var Húnaflói alveg íslaus. Þessu til sönnunar er það, að einmitt þessa dagana kom kaupfar til Borðeyrar og jjtrandferðaskip á Skagaströnd, og hvorugt þessara skipa hafði séð nokkurn ís, er þeim gæti verið til hindrunar. 28. ágúst kl. 8.15 e. h. kom Camoens loksins til Borðeyrar. Ég held mér sé óhætt að segja að enginn af oss vesturförum, er biðum eftir Camoens í þetta sinn, verði nokkurri stundu fegnari á ævinni en einmitt þeirri, er Camoens lagði inn á Borðeyri. 23. ágúst lá Camoens á Borð- eyrarhöfn, og þann dag fóru allir vesturfarar „um borð“, sem ekki voru hættir við ferðina, en það voru nokkrir, sem við hana voru hættir, sumir vegna þess að þeir voru búnir að eyða svo miklu af fargjaldi sínu að þeir komust ekki, en aftur voru aðrir, sem leiddist svo biðin að þeir hurfu frá fyrir þá skuld. — Þennan dag var norðan stormur og þoka. — Herra Sigfús Ey- mundsson í Reykjavík, útflutn- ingsstjóri Allan-línunnar á ls- landi, kom með Camoens til Borðeyrar. Hann var búinn nokkrum dögum áður en skipið kom að láta auglýsa á Borðeyri: að hver fuilorðin persóna af þessum margnefnda vesturfara- hóp skyldi fá 10 kr. og börn 5 kr. í skaðabætur fyrir biðina „til bráðabirgðar." En ekki fengu aðrir þessa þóknun en þeir, sem höfðu „skrifað sig á“ fyrir 8. júlí hjá umboðs- mönnum hans (Sigfússon), en sumir munu ekki hafa verið búnir að rita sig á fyrir þann tíma, því að þeir hafa hugsað að það mundi ekki gjöra stórt til hvenær þeir rituðu sig, en eftir þessari auglýsingu S. E. að dæma þá áttu þeir ekkert að fá. — Nú þegar Sigfús kom á Borðeyri þá gjörði hann okkur það ágæta tilboð: að vér skyld- um fá þessar 10 og 5 kr. í skaða- bætur, ef vér hættum við að biðja um meira, en ef vér vild- um halda því fram að fá meiri, þá skyldum vér ekkert fá! Okkur þótti þetta tilboð Sig- fúsar nokkuð undarlegt, því fyrst og fremst álitum vér að hann hefði ekkert leyfi eða vald til þess að taka af okkur þessar 10 kr. og 5 kr., sem hann var búinn að auglýsa, að vér fengj- um og það „til bráðabyrgðar.“ Út úr þessu „bráðabirgða“-orði gátum vér ekki fengið þá mein- ingu að vér ættum að tapa þess- um krónum þegar skipið kæmi, heldur miklu fremur það, að vér fengjum meiri þóknun síðar. — Vér sögðum því Sigfúsi, að vér mundum halda þessari skaða- bóta-bænarskrá okkar áfram, en neituðum jafnframt að sleppa þessum 10 og 5 kr.; þær áttu sem sé að takast af fargjaldinu. Þetta varð líka niðurstaðan; það borgaði enginn fullorðinn maður meira í fargjald en 120 kr. (sem hafði ritað sig á fyrir 8. júlí), og fyrir börn 45 kr.; og varð Sigfús að sætta sig við það, eða að öðrum kosti a hætta við að flytja okkur, sem reyndar var ómögulegt. 24. ágúst kl. 6 f. h. lagði Camoens af stað frá Borðeyri. Þann dag var norðan stormur og þreifandi þoka. Skipinu gekk mjög illa norður Húnaflóann vegna þoku og hafíss. — Margir urðu sjóveikir þetta kvöld. — Næsta dag var engu betra veður og ís heldur meiri; skipið lá því að mestu leyti kyrrt um daginn. Þennan dag kusum v4ð þrjá menn til þess að fram- fylgja bænarskrá okkar við landshöfðingjann þegar til Reykjavíkur kæmi. — Daginn eftir, eða hinn 26. á- gúst, komumst vér af Húnaflóa. Þegar vér komum vestur fyrir Horn á Hornströndum var alveg ís- og þokulaust, og gekk þá ferðin vel. Vér komum til Reykja víkur kl. 6 morguninn eftir (27.). Ég og annar maður tókum á móti öllum farbréfum vestur- fara á Reykjavíkurhöfn, (er Sig- fús lét oss fá á Borðeyri og á leiðinni), og fórum með þau í land til þess að bæjarfógetinn undirritaði þau; einnig veittum við móttöku hjá Sigfúsi farbréf- um á ensku, því að hver vestur- fari átti að hafa tvö. — Við hinir sömu reyndum að fá íslenzkum bankaseðlum býttað í Reykja- vík fyrir vesturfara, en það gekk ekki vel. Sigfús Eymundsson sagðist ekki geta býttað, en vís- aði okkur til Coghill og sagði að hann mundi hafa nóg af enskum peningum, en þegar til Coghills kom sagðist hann ekki hafa neitt af gulli eða silfri, og sér væri því ekki hægt að býtta við okkur. Seinast fórum við til Landsbankans og ætluðum að fá þar býttað seðlum fyrir danska peninga (gull og silfur) því ekki sýndist oss það álitlegt, að fara með íslenzka bankaseðla til Englands eða Ameríku. Ekki vildi bankinn býtta heldur nema fáeinum krónum (ca. 20—30 kr.), og máttum við því fara svo bún- ir úr Reykjavík. Vér vesturfarar bjuggumst því við að oss yrði ekkert úr seðlunum fremur en verkast vildi, þar sem bankinn er ekki eða var ekki kominn í neitt samband við útlenda banka, og þar af leiðandi gilda. íslenzkir bankaseðlar hvergi nema á íslandi sjálfu. Þrír eða fjórir íslenzkir vestur farar bættust við í Reykjavík; þar að auki unglingspiltur að nafni Daníel Daníelsson (Mark- ússonar) úr húsi Sigfúsar Ey- mundssonar og bróðir konu hans; hann átti að verða „túlkur“ okkar til Skotlands. — Æði margir Englendingar er dvalið höfðu lengri og skemmri tíma á íslandi um sumarið, komu á skipið í Reykjavík og fóru með því til Skotlands. — Hér um bil 400 hross tók Camoens í Reykja- vík líka. Hross þessi hafði Cog- hill keypt fyrir Slimon & Co. Ekki sinnti landshöfðinginn bænarskrá okkar að öðru leyti en því, að hann vísaði þessari þriggja manna nefnd okkar til danska konsúlsins í Leith á Skotlandi, það væri hann sem fyrst ætti að fjalla um þetta mál, en ef hann ekki vildi sinna því, þá skyldi sér verða send bænarskráin aftur. Herra Þor- lákur Ó. Johnson kaupmaður í Reykjavík ritaði herra Birni Pálssyni í Leith og bað hann að liðsinna okk'ur þegar þangað kæmi í þessu máli. — 28. ágúst kl. 5 um morguninn lagði Samoens af stað frá Reykja vík. Kl. 10 fórum vér fyrir Reykjanes, og hér um bil um miðjan dag hvarf okkur ísland! (Þessar 5 línur eru ritaðar síðar). Daginn, sem Camoens lá á Reykjavíkurhöfn (27. ágúst), kom um borð í hann um kvöld- ið hin nafnkennda heiðurskona, frú Sigríður Magnússon frá Cambridge á Englandi. Hún hafði með ferðis töluvert af fatnaði, t. d.: kjólum, treyjum, höttum, stígvélaskóm o. fl. (allt með ensku sniði) til þess að gefa fátæku fólki á skipinu. Sumt var hér um bil nýtt, en sumt nokk- uð slitið. En með því að bæði var orðið framorðið dagsins og hún fólkinu alveg ókunnug, þá bað hún mig að útbýta þessum fatnaði á meðal hinna fátækustu (fataminnstu) á skipinu; þetta gjörði ég með öðrum manni daginn eftir. Frú Sigríður hafði heyrt að sumt af þessu fólki, sem á skipinu væri, væri mjög fatalítið og yfir höfuð fátækt, og vildi hún því reyna að bæta úr því með þessu; enda get ég fullyrt það, að mörgum komu þessar gjafir mjög vel, því al- drei hefi ég séð aðra eins fá- tækt eins og hjá sumum vestur- förunum á skipinu, sem varla var heldur að undra, þar sem margir af þeim voru kostaðir af sveitunum — annað hvort að einhverju eða öllu leyti. En það hefir stundum viljað verða ó- nógur útbúningur á þeim mönn- um, er sveitirnar hafa kostað af íslandi til Ameríku, og væri það því óskandi, að þær sæju betur sóma sinn hér eftir en hingað til með því fyrst: að senda ekki til Ameríku örvasa gamalmenni og vanfærar stúlk- ur með ungbörnum (sem enga eiga þá hér að), og það stundum undir veturinn. Annað er það: að þær gjöri betur við fólk það er þær senda en hingað til hefir átt sér stað. Það var t. d. sumt af fólki því, sem ég hef áður minnst á, svo fatalaust að það hafi ekki nóg til að skipta um, eftir því, sem það sagði sjálft. Einnig urðu sumir fæðislausir til Skotlands, þar eð þeir llöfðu lítið eða ekk- ert af peningum til að kaupa sér fæði fyrir. Svo var flest ef ekki allt af þessu aumingja fólki, sem ekki hafði farbréf lengra en til Quebec, en það er nokkurs konar forsending að senda allslausar fjölskyldur og aðra fátæklinga mállausa þang- að; því í Quebec og þar í kring eru engir íslendingar, það ég til viti, sem gæti rétt þeim hjálparhönd, og svo hve vera oft lítið um vinnu þar, einkan- lega fyrir útlenda aumingja. — Ferðin gekk með öllu slysa- Jaust til Skotlands. Flestir voru nokkurn veginn frískir, en þó voru nokkrir töluvert veikir, bæði af „sjóveiki“ og fleiri sjúk- dómum, sem ekki var heldur undarlegt, því loftið (lífsloftið) á skipinu var mjög spillt og ó- hollt, sem náttúrlegt var, þar sem jafn mörgu fólki og hross- um var hrúgað saman á eitt skip, enda þótt það væri ekki bein- línis hvað innan um annað. Mér finnst það vera bæði lagaleg og siðferðileg skylda yfirvaldanna á Islandi, að sjá um að mannréttindum landa þeirra sé að engu leyti misboðið, þó þeir ætli að flytja af landi brott (til Ameríku). Ég segi þetta af þeirri ástæðu, að mér þykir það óþolandi að þau — yfirvöldin — skuli lítið eður ekkert skipta sér af því, þó mörg hundruð hrossa séu flutt á sama skipi í sömu ferð og mörg hundruð af vesturförum (Emigrants), það getur engum dulist að slíkt getur leitt mikið illt af sér í heilbrigðislegu til- liti. Sama er að segja um af- skiptaleysi yfirvaldanna í því, þó vesturfarar þurfi að bíða svo vikum og mánuðum skipti eftir skipi því, er á að taka þá, og sem oft er að mestu eður öllu leyti svikum „línanna“ að kenna, eða þeirra útsendurum. Það gekk vanalega mjög illa að fá vatn á Camoens, bæði heitt og kalt, þó öllu ver með það kalda; þó vér værum t. d. dauð- þyrstir, þá máttum vér bíða svo og svo lengi áður vér gætum fengið að drekka, og stundum fengum vér ekkert nema þá skólp; þeir „póstuðu" stundum upp í stamp og sögðu að vér gætum brúkað það vatn, bæði til að drekka og þvo okkur, en þeir lokuðu póstinum svo vér gætum ekki náð vatni nema með þeirra náðuga vilja!! Hvað snertir „stamp-vatnið“ þá hefði það getað verið nokkurn veg- inn brúklegt, hefðu ekki sumir landar verið svo óprúttnir að þeir sökktu ofan í það þvotta- skálum og öðrum miður hrein- um ílátum, svo vatnið varð ó- drekkandi, enda þótt þorstinn ræki stundum svo eftir mönn- um að þeir yrðu að svala sér á því! Ég held að aðalástæðan fyr- ir þessari vatnstregðu hjá skips- mönnunum hafi verið sú, að þeir voru hræddir um að þeir hefðu ekki nóg vatn handa þessum hrossafjölda alla leið; svo það kom fram í fleiri en einni mynd hversu illt vér höfðum af því að hross voru flutt á skipinu. Ég og þrír aðrir söfnuðum saman öllum þeim peningum (gulli, silfri og seðlum), sem vesturfarar á skipinu höfðu (á leiðinni frá Islandi til Skot- lands), til þess að hafa þá til taks þegar til Skotlands kæmi til þess að býtta þeim. — Tölu- verðar þokur fengum vér til Skotlands, en ekki mikinn storm. — 1. september kl. 6 f. h. komum vér að nyrzta tanganum á Skot- landi. Litlu seinn»- um daginn komum vér á höfn fyrir framan bæinn Thorsue; það kom strax bátur úr landi til þess að fá fréttir af Camoens, svo hægt yrði að „Telegraphere" til Gran- ton viðvíkjandi komu hans og hvað hann hefði að flytja. — Einn af ensku farþegunum fór í land með bátnum. Upp undir sjávarhömrunum á Skotlandi skammt fyrir norðan Orkneyjar sáum vér stórt gufu- skip nýlega strandað. — Þennan dag sáum' vér mörg skip á sigl- Framhald á bls. 3

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.