Lögberg - 02.10.1952, Side 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 2. OKTÓBER, 1952
Lögberg
GefiB út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WXNNIPEG, MANITOBA
Utanáskrift ritstjúrans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 21804
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press L#td.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized aa Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Líknarsamíag Winnipegborgar
Síðastliðinn mánudag hófst hin árlega fjársöfnun í
sjóð Líknarsamlags Winnipegborgar, og nemur upphæð
sú, er safna skal $767,000. Er hér um talsvert hærri
fjárhæð að ræða en í fyrra, er að mestu leyti stafar
frá aukinni fólksfjölgun í borginni og hlutfallslega
hækkandi tölu þeirra, er hjálpar þurfa við; að söfnun-
inni vinna um fimm hundruð sjálfboðar.
Tuttugu og níu mannúðarstofnanir samtals njóta
góðs af Líknarsamlagi Jborgarinnar, og á næsta ári er
áætlað, að nálega þrjú þúsund börn þurfi á verulegri
aðstoð að halda.
Hvað verður um æskuna sé eigi drengilega að
henni hlúð í tæka tíð?
Pjöldi mæðra, sem af óviðráðanlegum atvikum
þarfnast liðsinniö, eiga siðferðilega heimting á að þeim
sé aðstoð veitt. Og hvað er um farlama fólk og gamal-
menni, £em rás viðburðanna hefir þannig leikið, að það
getur enga björg sér veitt? Hver er sá, sem einhvers
megnar, að hann eigi finni til skyldu sinnar, þar sem
svo er háttað, um að rétta fram hjálparhönd?
Framkvæmdarnefnd Líknarsamlagsins gerir þá
sanngirniskröfu, að sérhver hraustur og vinnandi ein-
staklingur innan vébanda borgarinnar, leggi fram í
þessu augnamiði eins dags kaup sitt, og mun þá naum-
ast verða réttilega sagt, að til of mikils sé mælst.
Þessa dagana umfaðmar okkar vingjarnlegu borg
einmuna veðurblíða, ein hin sérstæðasta, er hér um
slóðir sögur fara af. En það er ekki ávalt lengi að breyt-
ast veður í lofti, og getur þá nær, sem vera vill, kald-
rifjaður Manitobaveturinn gengið í garð.
Leggjum það á minnið, að líði meðbræðrum okkar
illa, án þess að við sé gert, getur okkur engan veginn
liðið vel.
☆ ☆ ☆
Sala nýrra verðbréfa
Sambandsstjórn er nú í þann veginn, að veita al-
menningi kost á að kaupa hin nýju Spariverðbréf, er
gefa af sér 23/±% í vöxtu; aðferð þessi til fjáröflunar
á undanförnum árum naut hvarvetna vinsælda og
mun svo einnig verða að þessu sinni; og það liggur vita-
skuld í augum uppi hve hollara það sé, að afla lánsfjár
heimafyrir, en leita til erlendra markaða gegn hærri
vöxtum.
Um kaup og greiðslur áminstra verðbréfa má
semja við hvaða banka, sem er og fésýslufélög, er
heimild hafa til fyrirgreiðslu þess konar viðskipta.
Forstjóri þjóðbankans canadiska, Mr. Graham
Towers, fylgir verðbréfasölunni úr hlaði með svo-
feldum orðum:
„Sala stríðsskuldabréfa og spariverðbréfa hefir á
ákveðinn hátt glætt skilning canadiskra þegna á gildi
sparseminnar, og er slíkt út af fyrir sig ærið fagnaðar-
efni; þjóðin vill, að svo miklu leyti, sem framast er auðið,
vera sjálfbyrg og búa að sínu, og þetta er eitt af feg-
urstu einkennum hinnar canadisku þjóðar.“
Vel að verki verið
Vöruvöndun er jafnan eitt höfuðskilyrðið fyrir
traustri efnahagsafkomu hvaða þjóðar, sem er; vörur
þurfa að vera samkepnisfærar eigi þær að ryðja sér
til rúms á hinum ýmissu mörkuðum og geta gefið af
sér sanngjarnan arð.
Smjörframleiðsla í Vestur-Canada hefir mjög
færst í aukana á hinum síðari árum þótt hitt sé meira
um vert, hvers álits hún nýtur á alþjóðarvettvangi; í
þessu efni standa rjómabú Manitobafylkis í fremstu
röð, eins og ráða má af því, að á framleiðslusýning-
unni, sem haldin var í Toronto á nýliðnu sumri, unnu
þau 45 af hundraði allra þeirra verðlauna, sem þar
voru veitt; en alveg sérstaka viðurkenningu hlaut
rjómabúið að Lundar, sem er eign íslendinga og íslend-
ingurinn J. K. Breckman veitir forstöðu; það hlaut
hæztu verðlaun fyrir fullkomriustu og beztu smjörgerð
frá hafi til hafs.
☆ ☆ ☆
Merkur fræðimaður látinn
Hinn 22. september síðastliðinn lézt í Reykjavík
Dr. Ágúst H. Bjarnason þjóðkunnur rithöfundur og
fyrrum prófessor í heimspeki við Háskóla íslands.
Hann var fæddur á Bíldudal 20. september árið 1875.
Foreldrar hans voru Hákon kaupmaður Bjarnason og
Jóhanna Kristín Þorleifsdóttir prófasts í Hvammi í
Dölum. Dr. Ágúst tók stúdentspróf í Danmörku 1894
en lauk meistaraprófi í heimspeki við Kaupmanna-
hafnarháskóla 1901. Hann var meðlimur brezkra,
þýzkra og norrænna vísindafélaga og þótti jafnan
manna liðtækastur hvar, sem hann gekk til verks; hann
hafði með bókum sínum Yfirlit yfir sögu mannsandans,
djúpstæð áhrif á alþýðumentun íslenzku þjóðarinnar
í samtíð sinni og var alla sína ævi í sífeldri sannleiksleit.
Þau Dr. Ágúst og frú, heimsóttu eitt sinn íslend-
inga vestan hafs og dvöldu um hríð í Winnipeg; munu
margir hér um slóðir minnast þeirra hlýlega frá þeim
tímum.
Dr. Ágúst var kvæntur Sigríði Jónsdóttur ritstjóra
ólafssonar og lifir hún mann sinn.
Er hægt oð sprengja spila-
bankann í Monte Carlo
Aðsókn að spilabankanum
fræga 1 Monte Carlo hefir aukizt
gífurlega eftir styrjöldina, og all-
ir vita, hvað það er, sem dregur
fólk þangað suður eftir. Það er
óskadraumurinn um að ,sprengja‘
bankann, breyta svolitlum höfuð
stól í mikla fúlgu í einni svipan.
Það eru ekki aðeins Norður-
landabúar, sem láta glepjast á
þessu, segir blaðamaðurinn
Jörgen Bast í Berlinske Aften-
avis nýverið, heldur streyma til
Monte Carlo menn af hinum ó-
iíkustu þjóðum, en hafa allir
þetta sameiginlega markmið og
ósk, að „sprengja“ bankann.
Flestir eru þeir þess fullvissir,
að þetta muni takast, og þannig
hefir þetta verið, allt frá því er
bankinn tók til starfa fyrir nær
hundrað árum, og sjálfsagt verð-
ur þetta svona meðan bankinn er
við líði.
Sumir koma á eigin spýtur,
aðrir mynda með sér „hlutafé-
lög“, sem skipta spilaborðunum
milli sín, eða menn koma sem
fulltrúar einhverra samtaka í
heimalandi þeirra, sem hafa látið
telja sér trú um, að nú hafi verið
fundið upp öruggt kerfi til þess
að græða í Monte Carlo.
Aðsóknin eykst enn, þegar
fréttist með stuttu millibili, að
spilamenn hafi „sprengt11 bank-
ann, en það þýðir í raun og veru
ekki annað en að borðið, sem
spilað var við, hefir orðið að
senda eftir nýjum spilapening-
um til gjaldkerans.
Allir vita, að til eru heppnir og
óheppnir spilamenn. Um það er
ekki að ræða hér. Hér er spurn-
ingin: Er yfirléitt mögulegt að
setja fram sérstakar reglur á
stærðfræðilegan hátt um breyt-
ingu vinningsmöguleikanna til
þess að mynda öruggt spilakerfi?
I Monte Carlo eru spiluð alls-
konar spil, en það er einkum
,,rúlettan“, sem menn reyna að
finna kerfin við. Það er þessi
háðska beinkúla, sem hefir kom-
ið hinu stærðfræðilega hug-
myndaflugi á hreyfingu. — Það
er í þessu spili, sem margir halda
því statt og stöðugt fram, að
unnt sé að sigra bankann. I fáum
dráttum eru möguleikarnir þess-
ir: Rautt eða svart? Jöfn tala eða
ójöfn? Er unnt að mynda ein-
hverjar reglur um hvernig
þessir möguleikar skiptast á og
þannig spila samkvæmt þeim?
Margir eru þeir, sem hafa ár-
um saman gert tilraunir með
rúlettur í heimahúsum, áður en
þeir lögðu upp í Monte Carlo-
förina, en annars má gera sér
ótal kerfi og reglur samkvæmt
skýrslum þeim, sem upp konna
daglega, og þær fást hjá bóksöl-
um, ásamt ýmsum bókum um,
hvernig unnt sé að græða fé í
Monte Carlo, eins og t. d.: —
„Hundrað örugg kerfi til þess að
græða í Monte Carlo.“
Þetta er þó ekki eins auðvelt
og maður skyldi ætla samkvæmt
þess háttar skrumi. — Sennilegt
er, að á hverju ári komi spila-
menn til Monte Carlo með um 50
miljónir krðna í vasanum. Af
þessu fé tekur bankinn um 90%,
að því er fróðir menn telja. En
þetta dregur ekki kjark úr þeim
bjartsýnu. Að minnsta kosti hélt
hinn kunni spilamaður Rosslyn
lávarður því fram, að hann og
bróðir hans, Fritzroy Erskine,
hefðu fundið upp kerfi, sem
dygði. Að vísu krefðist það
styrkra tauga og þrautseigju, en
það væri öruggt. Hann byrjaði
með lítilli upphæð, þrefaldaði ef
hann tapaði, en sjöfaldaði í
þriðja skipti. — Hann hélt því
fram, að með 15 þúsund sterlings
punda höfuðstól hlyti þetta kerfi
að gefa af sér 1000 pund á dag,
eða 365.000 pund á ári, en hins
vegar hefir aldrei heyrzt að
Rosslyn og bróðir hans hafi farið
frá Monte Carlo með slíkar upp-
hæðir. Þeir hrepptu hlutskipti
flestra -spilamanna að tapa að
lokum.
Segja má, að möguleikar rú-
lettunnar, sem til greina koma,
Haust er komið
Haust er komið, himinn kafinn,
heiðið bláa falið sýn. —
Þótt þú hnykkir hurð á stafinn
hrollinn leggur inn til þín.
Gulna lauf og grána viðir,
gustur napur bítur kinn,
þagnað hafa kvæðakliðir
kvíði sækir huga þinn.
Haust er komið hárin grána
hrukkur lýta brún og kinn,
stráið jiitt í loka ljána
leggst um síðir, vinur minn.
Ferli mæðra og ferða sinna
fylgir maður hrörsins til.
Allir tapa, engir vinna
örlaganna happaspil.
Dauðinn fjör til feigðar eltir,
fölna hlýtur sérhvert strá.
Jörð mót sólu vöngum veltir
vetrar og sumur skiptast á.
Njót þess ljúfa er lífið gefur,
litast engi bleik og græn.
Eyra drottins ennþá hefur
aldrei fundið nokkur bæn.
—PÁLL GUÐMUNDSSON
Free
Winter Storage
Send your outboard motor in now and have
it reody for Spring.
Free Estimate on repairs
Specialists on . . .
Johnson - Evinrude & Elto Service
Breen Motors Ltd.
WINNIPEG Phone 92-7734
séu þrír. í fyrsta lagi, að til sé
stæðfræðilegt lögmál um skipt-
ingu möguleikanna. í öðru lagi,
að unnt sé að finna eitthvert
kerfi, sem unnt sé að sigra bank-
ann með. í þriðja lagi, að tilvilj-
un ein ráði.
Líklega er það svo, að flestir
þeir, sem spila eftir einhverju
kerfi, líta svo á, að í hvert skipti,
sem „rauður litur kemur upp“,
séu líkurnar meiri fyrir því, að
næst komi svart. Hins vegar
hafa margir kunnir spilamenn
enga trú á þessu, og segja sem
svo, að enda þótt rautt komi upp
40 sinnum í röð, eru jafn miklar
líkur fyrir því að rautt komi upp
aftur eins og svart. Hér er því
um að ræða misskilning, segja
þeir, sem gert hefir margan
manninn öreiga, en samt halda
menn þessari skoðun til streitu.
Flestir byggja á „tvöföldunar-
kerfinu“, þ. e. a. s., að maður
kyrjar t. d. með því að setja 100
franka á svart. Komi rautt upp,
setur maður næst 200 franka á
svart, síðan 400 og koll af kolli,
þar til þetta hefir margfaldazt.
Þegar loksins litur spilarans
kemur, hefir hann aðeins unnið
aftur þá litlu, upphæð, sem hann
byrjaði á, og síðan hefst leikur-
inn á ný.
Þetta er nefnt Martingale-
kerfið, og er líklega hið vinsæl-
asta, með ýmsum afbrigðum þó,
sem ekki verða rakin hér.
Ef svo væri, að möguleikarnir
væru alltaf jafnir 50 á móti 50,
hlyti spilamaðurinn auðvitað að
hafa sömu möguleika á gróða og
bankinn, og þetta væri því allt
„upp á grín“, en svo er ekki. Til
er núll í spilinu, sem hvorki er
rautt né svart, jöfn eða ójöfn
tala. — Núllið „frystir“ það, sem
sett hefir verið í borð, þar til
kúlan nemur staðar næst, en þó
græðir bankinn eitthvað en þeir
heppnu fá'sitt fé aftur. Þeir, sem
mest hafa hugsað um þessa hluti,
telja, að möguleikar bankans séu
raunverulega 50 V2 á móti 4914 og
það er nóg með svo gífurlegri
veltu.
Hinn frægi enski rithöfundur,
Somerset Maugham, segir 1 einni
smásögu sinni frá manni, sem ár-
um saman lifði á því að spila í
bankanum í Monte Corlo. Á bana
legunni segir hann svo frá leynd-
armáli sínu: Hann leit í kringum
sig í spilasalnum og fann borð,
þar sem einhverjir spilamenn
voru, sem ekki gátu dulið, að nú
var um að gera fyrir þá að duga
eða drepast. Þess konar fólk
vinnur aldrei, og ef ég spilaði á
móti því, hlaut ég að vinna.
Það er víst óhætt að segja, að
það kerfi hefir ekki verið fundið
upp, sem unnt er að sprengja
bankann með, en nóg er til af
fólki, sem hefir óbilandi trú á
því, og það kemur aftur og aftur.
—VISIR, 15. ágúst
ICELANDIC RECORDS imported on
##HIS MASTER'S VOICE" are available . . .
Write for your FREE Icelandic record catalogue. We carry the
most complete record stock in Canada—in every language—on all
three speeds: ‘78’ — ‘45’ — í33%’.
Write us your requests, or send for FREE catalogue—please
state language, type of music, etc.
»..ncDMllN’S MUSIC 714 College Street
SNlUtnWPl" HALL TORONTO 4- Ontario
All shipraents are sent via C.O.D.—caretnlly packaged and insured
against hreakage.
PUT VOUR
HEART
IN VOUR
CHEST
This year your Community Chest and its 29 Red
Feather agencies need $767,000.
This is not a chance figure. Careful study has
shown that this amount is the absolute minimum
required if each of the 29 agencies is to continue
its work during the coming year.
Your Community Chest asks you to be generous.
Remember the children, the youth, the aged, the
blind—the many unfortunate people who depend
on you! That's why this year, your Red Feather
elogan is "PUT YOUR HEART IN YOUR CHESTl"
When you're called upon—whether at work or
at home—take a minute to think of those in your
commúnity who need the help which only you
can give. So give generously—give until
you've put your REAL heart into a REAL COM-
MUNITY effortl
Support all 29---------$767,000 needed
COMMUNITY CHEST
ofGreater Winnipeg
Gefið að minsta kosti hálft dagkaup