Lögberg - 02.10.1952, Side 8

Lögberg - 02.10.1952, Side 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, fc. OKTÓBER, 1952 Úr borg og bygð — HÚSNÆÐI — Eitt herbergi og eldhús (án húsgagna) er til leigu nú þegar að 515 Simcoe St. — Nánari upp- lýsingar gefur THOR VIKING, Sími 39 631 ☆ Mr. Walter J. Johannson leik- hússtjóri frá Pine Falls, Man., kom heim úr nokkurra daga ferðalagi suður um Bandaríkin um miðja fyrri viku. ☆ Mr. og Mrs. B. K. Johnson frá Brú í Argylebygð, voru stödd í borginni um síðustu helgi. ☆ Richard Porter, 9 ára að aldri, sonur Mr. og Mrs. Warren Porter, Lone Rock, Wisconsin, lézt á sjúkrahúsi í borginni Madison þar í ríkinu á föstu- daginn þann 29. ágúst síðastlið- inn eftir þriggja daga legu; löm- unarveiki varð honum að bana; móðir hins látna sveins, er Matt- hildur Porter, dóttir Jóns Há- varðssonar í Vancouver og lát- innar konu hans Maríu. Útförin fór fram, að viðstöddu miklu fjölmenni, frá Congregational- Community Church, Lone Rock á mánudaginn þann 1. sept. s.l. ☆ Mrs. B. P. Bjarnason, Ste. 16 Corine Apts., hér í borginni, kom heim í fyrri viku sunnan frá Lone Rock, Wis., en þar hafði hún dvalið í þriggja vikna tíma hjá systurdóttur sinni og manni hennar, Mr. og Mrs. Warren Porter. M/s. Bjarnason fór flugleiðis suður vegna veik- inda og fráfálls frænda síns, Richards Porter, sem sagt er frá á öðrum stað hér í blaðinu. ☆ Þjóðræknisdeildin „FRÓN" þakkar hér með eftirtöldu fólki fyrir bækur gefnar í bóka- safn deildarinnar: Mrs. A. V. Johnson, Dr. Sig. Júl. Jóhannes- syni og Mrs. J. B. Skaptason, er afhenti bókasafninu þó nokkra árganga af Ársritinu HLÍN sem gjöf frá fröken Hall- dóru Bjarnadóttur, Akureyri, íslandi. Innilegt þakklæti til ykkar allra, sem bækur gefið í bóka- safn Fróns. Fyrir hönd deildarinnar Frón J. Johnson, bókavörður ☆ Mrs. Helga Westdal, 652 Home Street, er nýlega komin heim úr skemtiferð sunnan frá New York, en þangað fór hún flug- leiðis til fundar við bróður sinn, Jón Aðalstein Sveinsson, sem er 1. vélstjóri á Lagarfossi; fund- um þeirra systkinanna hafði ekki borið saman í síðastliðin 22 ár, og liggur það því í augum uppi hve ánægjulegt það hafi verið þeim að hittast á ný. Mrs. Westdal dvaldi 10 daga í New York í gistivináttu frú Ingibjargar Lindal. — DÁNARFREGN — Sigurbjörn Oscar Jónasson lézt á Almenna spítalanum hér í borginni á föstudaginn 26. sept. 56 ára að aldri. Hann var fædd- ur á Engimýri við íslendinga- fljót; foreldrar hans voru hin merku landnámshjón Tómas A. Jónasson og Guðrún Jóhannes- dóttir, bæði eyfirzk, fluttust vestur um haf árið 1876. Beggi, eins og vinir hans kölluðu hann, var kvæntur Láru Borgfjörð frá Árborg. Þau fluttust til Winni- peg 1930 og varð hann Stationary Engineer við Provincial Govern- ment power house. Hann var meðlimur Capitol lodge, A7 og A. M., G. R. M. — Auk ekkjunn- ar lætur hann eftir sig tvær dætur, Mrs. L. G. Reed og Miss Dorothy Mae, er stundar hljómlistarnám við Toronto Conservatory of Music; enn- fremur lifa hann þrjár systur, Mrs. H. Thorarinson, Mrs. J. P. McLennan og Mrs. T. Addison, og tveir bræður, Tómas og Jóhannes. Beggi heitinn var prúður maður og vandaður; hann hafði unun af hljómlist, lék á fiðlu og var í Riverton hornleika- flokknum um eitt skeið. Útförin fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju á mánudaginn að viðstöddu fjölmenni. Séra Valdimar J. Eylands flutti kveðjumál; jarðað var í Chapel Lawn Memorial Gardens. ☆ Gail Johnson, 12 ára að aldri, lauk nýlega fimmta árs píanó- prófi við Royal Conservatory of Music og hlaut þá $15 náms- verðlaun. Þessi ungi efnilegi píanisti er dóttir Dr. og Mrs. A. V. Johnson, 217 Hertforjd Ave., Tuxedo. ☆ — MANNFAFNAÐUR — Nokkrir vinir og vandamenn Mr. og Mrs. Kristinn Pétursson, hópuðu sig saman síðastliðið föstudagskveld á heimili Mr. og Mrs. Benedikt Ólafsson í St. Vital, Winnipeg. Er Benedikt bróðir Mrs. Pétursson (Petru). Var tilefni heimsóknarinnar, að Pétursson hjónin hafa flutt al- farin úr Winnipeg til Oak Point, Man., og komið sér þar prýði lega fyrir. Fannst þessum hóp, vina Jpeirra, tilhlýðilegt að minn- ast samverustundanna mörgu og þægilegu í áratugi hér í bæ, með því að koma þarna saman eina kveldstund enn og þakka þeim alla gestrisnina og hlýleg- heitin, sem þeir hefðu notið fyr og síðar á heimili þeirra hér í borginni, og til minja um þær endurminningar, færðu þeir þeim hjónum vandaðann stól, er þau skyldu hvíla sig í eftir unnið dagsverk. Var þessi kveld- stund hin ánægjulegasta í alla staði: söngur, ræður fáar, sam- töl og baðstofuhjal, að ógleymd- um ferðalýsingum og ævintýra- legum frásögnum, sem Bensi FIIL THOSE EMPTY SOCKETS Wfestinghouse Westinghouse Lamps give you plenty of good light and last longer. Check the lightmg in your home . . . replace burned out or blackened bulbs with Westinghouse lamps. Get your supply befofe the long winter evenings come. Order them from your Hydro meter reader, bill deliverer or collector. Have them sent C.O.D. or charged to your light bill. 1 b* Portage & Kennedy Phone 96-8201 sagði frá úr íslandsferð sinni í sumar, sem hann málaði á sína alkunnu iðnaðarmannsvísu, með hnittiyrðum og gamansömu spaugi, sem alla gladdi en engan meiddi. Um lágnættið fór fólk að tínast heim, ánægt með að hafa enn átt eina kveldstund með Petru og Kristni PéturS' son. — Megi þeim líða sem bezt í hinum nýju heimkynnum. ☆ Mr. og Mrs. Páll H. Anderson frá Glenboro komu til borgar innar á mánudaginn ásamt Mar gréti dóttur þeirra, sem nám stundar við Home Economics deild Manitobaháskólans. ☆ Mr. Carl Hanson, Royal Crest Apts., hér í borginni, er nýkom inn vestan frá Climax, Sask., þar sem hann á góða bújörð og vann að uppskeru sinni. ☆ Gefin voru saman í hjónaband í Fyrstu lútersku kirkju þann 27. september síðastliðinn, þau Douglas Stewart Gordon og Frances Beryl Bowley. — Séra Valdimar J. Eylands gifti. ☆ Mrs. Gunnbjörn Stefánsson frá Vancouver er hér í heim- sókn hjá vinum sínum og systur sinni á Gimli. ú Næstu fundur Stúkunnar HEKLU No. 33 I.O.G.T. verður haldinn á þriðjudagskvöldið 7. október n.k. Meðlimir eru beðnir að at- huga þetta. ☆ Mrs. J. B. Johnson frá Gimli dvelur í borginni þessa dagana í heimsókn til barna sinna, þeirra Helga, Pálínu og Láru. ☆ Þorsteinn Johnson fiskimaður að Winnipegosis, lézt á Dauphin Hospital hinn 17. september s.l. 76 ára að aldri; fæddur á Gils- bakka á Hvítársíðu; kom til Vesturheims aldamótaárið 1900. Lætur eftir sig ekkju, Málfríði Friðriksdóttur frá Sámsstöðum á Hvítársíðu, ásamt þrem dætr- um og einum syni; dæturnar eru Mrs. Guðrún Oliver, Mrs. Málfríður Johnson og Mrs. Sæunn Turner, allar búsettar í Winnipegosis og Friðrik, einnig búsettur þar. Barnabörnin eru 28, en barnabarnabörn 16. Útförin fór fram í Winnipeg- osis sunnudaginn þann 21. sept. Rev. Davidson prestur Presbyt- eriukirkjunnar þar á staðnum jarðsöng. Bullmore • Funeral Home í Dauphin undir forustu Árna Eggertssonar yngra, annaðist undirbúning útfararinnar. ☆ Þriðja og fjórða deild Kven- félags Fyrsta lúterska safnaðar efna til kaffisölu á miðvikudag- inn þ&nn 8. þ. m., þar sem einn- ig verður á boðstólum lifrar- pylsa og annað góðgæti, að heimili Mrs. S. O. Bjerring, 550 Banning Street síðdegis og að kvöldinu. ☆ Davíð Björnsson bóksali, er fyrir nokkru gekk undir alvar- legan uppskurð, er nú komínn í umferð á ný og er hinum mörgu vinum hans hér um slóðir það mikið fagnaðarefni. ☆ FRóNS-f undur Fréttir fré ríkisútvarpi íslands Fyrsti fundur deildarinnar Frón verður haldinn í G. T.-hús- inu á mánudaginn 6. okt. n.k. kl. 8 e. h. Eins og tíðkast hefir undan- farin ár fer fram skemtiskrá að fundarstörfum loknum. Að þessu sinni gefst fólki tækifæri til þess að hlusta á Hr. Gísla Jónsson, ritstjóra Tímarits Þjóðræknis- félagsins, sem mun flytja kveðj- ur að heiman, en hann er ný- kominn úr íslandsferð og hefir að sjálfsögðu frá mörgu að segja eftir sumarlanga reisu til út- landa og ættlands okkar. Annað til skemtunar og fróðleiks verð- ur brezk kvikmynd, Northern Story, sem tekin var á íslandi. Myndina sýnir Snorri Jónasson, Framhald af bls. 5 veiði yfirleitt verið með betra móti í sumar og laxagengd mikil, þótt veiðiskilyrði hafi verið óhagstæð að ýmsu leyti. Veiðiþjófar hafa verið allágeng- ir og leikur grunur á að þeir hafi framið veruleg spellvirki og varpað sprengjum í hylji á tveimur ám. Komist hefir upp um þrjá menn að þeir hafa farið í óleyfi í nokkrar ár og dregið þar á fyrir lax. ☆ I gær hófust í nokkrum verka- lýðsfélögum kosningar til Al- þýðusambandsþings, og á þeim að vera lokið um land allt 13. október næstkomandi. Kjörnir verða um 300 fulltrúar fyrir 159 félög, en samtals eru í félögum þessum um 25. 000 manns. ☆ Um miðja s.l. viku stunduðu 26 íslenzkir togarar saltfisk- veiðar, nær allir þeirra við Grænland. Sumir þessara tog- ara leggja upp afla sinn hér- lendis, aðrir sigla með hann til Esbjerg og enn aðrir til Aber deen. Fáeinir togarar veiða fyrir Þýzkalandsmarkað. ☆ Dr. Trausti Einarsson pró' fessor fer seint í þessum mán- uði í fyrirlestrarferð til Hol- lands og flytur fyrirlestra við jarðfræðideildir háskólanna í Amsterdam, Utrecht, Leyden og Delft, og ennfremur í Haag. — Fyrirlestrarnir fjalla um kafla úr jarðfræðisögu íslands og rannsóknir dr. Trausta á Heklu- kosinu síðasta. Félagasambönd stúdenta í jarðfræði og náma- verkfræði standa fyrir heim- boðinu í sambandi við kennslu- málaráðuneyti Hollands. ☆ Það slys varð í gær í námunda við Reykjavík, að togari sigldi á lítinn vélbát, sem lá fyrir stjóra á Faxaflóa, og færði í kaf, en fjórir menn, sem á bátnum voru við fiskveiðar, köstuðu sér útbyrðis litlu áður en árekstur- inn varð. Þeir héldu sér uppi á sundi og voru teknir upp í tog- arann eftir um það bil stundar- fjórðung. Einn þeirra lézt, Krist- ján Þorgrímsson, framkvæmda- stjóri Austurbæjarbíós í Reykja- vík. ☆ Á miðvikudaginn var opnuð í nýja Þjóðminjasafninu í Reykja vík heimilisiðnaðar- og listiðn- aðarsýning frá félaginu „Sel- skabet til Handarbejdets Fremme“ í Danmörku. Sýningin er haldin í boði Sambands ís- lenzkra heimilisiðnaðarfélaga og með fyrirgreiðslu Þjóðminja- safnsins, og er þarna til sýnis hvers kyns útsaumur,. m. a. út- saumuð teppi gerð eftir fyrir- myndum í dönskum söfnum, vefnaður, leirmunir og skraut- gripir. Félagið Handarbejdets Fremme var stofnað 1928 í því skyni að hefja danskan útsaum og handvefnað til vegs og virð- ingar að nýju og stuðla jafn- framt að því að handavinna yrði nokkur tekjugrein fyrir heimil- in. Frú Gertie Wandel, formað- ur félagsins, kom með sýningar- gripina hingað. Heimilis og list- iðnaðarsýning þessi verður opin til mánaðamóta. íslendingar taka þátt í Evrópu meistaramótinu í bridge, sem hófst í írlandi í fyrradag. 1 þeirri keppni taka þátt 16 þjóðir, og er keppendum skipt í tvo flokka eftir úrslitum á mótinu í Fen- eyjum í fyrra. Islendingar keppa í A-flokki. Húsmæðraskólinn á Lauga- landi í Eyjafirði var settur í dag og jafnframt minnst 75 ára af- mælis kvennaskólans eldri, sem þar starfaði á árunum 1877 til 1896. Héraðssamband eyfirzkra kvenna hyggst gróðursetja þar trjáreit til minningar um kenn- ara og námsmeyjar gamla skólans. í fyrrakvöld hófust að nýju sýningar í Þjóðleikhúsinu á ó- perettunni Leðurblökunni eftir Jóhann Strauss, en sú óperetta var sýnd í vor við mikla að- sókn. — í Iðnó í Reykjavík sýn- ir leikflokkur Gunnars Hansen sjónleik eftir Guðmund Kamb- an, „Vér morðingjar," en leik þann hefir flokkurinn sýnt víða um land í sumar. ☆ Þorsteinn Hannesson óperu- söngvari hefir dvalist hérlendis nokkrar vikur og syngur á veg- um Tónlistarfélagsins í Reykja- vík á þriðjudaginn. Hann er fastráðinn hjá Convent Garden óperunni í London og hefir starfað þar í fjögur ár. Oftast hefir hann sungið í Wagners- óperum. Sendinefnd frá Sovétríkjun- um er nýkomin til Reykjavíkur í boði félagsins Menningartengsl íslands og Ráðstjórnarríkjanna, en annar landsfundur þess hófst í Reykjavík í gær. Rússnesku boðsgestirnir eru fjórir, og meðal þeirra kunnur píanóleik- ari, Tatjana Nikolajeva. — Sex íslendingar eru lagðir af stað til Peking í boði stjórnarinnar þar, meðal þeirra eru skáldin Þór- bergur Þórðarson og Jóhannes úr Kötlum. Nýlega lauk námskeiði íþrótta kennara, sem haldið var í íþrótta kennaraskóla íslands að Laugar- vatni. Meðal kennara á nám- skeiðinu voru forstöðumaður í- þróttakennaraskóla Noregs Har- ald Wergeland og kona hans Helga, fyrrverandi umsjónar- kennari með fimleikum kvenna í félögum íþróttasambands Nor- egs. Séra Valdimar J. Eylands Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ — VEITIÐ ATHYGLI — í fjarveru sóknarprests, séra Valdimars J. Eylands, prédikar við morgunguðsþjónustuna í Fyrstu lútersku kirkju á sunnu- daginn kemur hinn 5. þ. m., séra Stefán T. Guttormsson frá Cavalier, N. Dak., en að kvöldi flytur messu séra Harald S. Sigmar frá Gimli. Á sunnudaginn þann 12. þ. m. (þakkarhátíðarsunnudag), pré- dikar að morgni Rev. Clifton L. Monk, skrifari Canadian Luth. World Relief samtakanna, en að kvöldi séra S. S. Cristophersson. ☆ Gimli Luiheran Parish H. S. Sigmar, Pastor Oct. 5th 9.00 a.m. Betel 10.00 a.m. Sunday School 11.00 a.m. Gimli 2.00 p.m. Riverton (Confirmation Certificate Ser- vice). 7.00 p.m. Gimli. Rev. E. Martin, R.C.A.F. Padre will eonduct the evening service. Oct. 12th 11.00 a. m. Gimli 7.00 p.m. Gimli Services conducted by the Rev. W. Weind—Lutheran Mis- sionary in Liberia, Africa. ☆ Lúferska kirkjan í Selkirk Sunnud. 5. október. Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli á hádegi íslenzk messa kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið S. Ólafsson en Próf. Finnbogi Guðmundsson talar fyrir henni og skýrir hana eins og þurfa þykir. Frón er nú í uppgangi og telur á þriðja hundrað meðlimi. Gam- an væri að sjá sem flesta þeirra þetta kveld og þá aðra sem ís- lenzkum málum unna þótt utan félags séu. Allir eru’boðnir og velkomnir. Aðgangur verður ekki seldur, en samskot verða tekin. H. Thorgrímsson ritari Fróns - ☆ A meeting of the Jon Sigurd- son Chapter I. O. D. E. will be held in the Winnipeg Auditorium (Headquarters) on Friday Eve. Oct., 3rd at 8 o’clock. THE MALTING BARLEY GRADES While the Canada Grain Act does not designate any grade of barley as malting it does indicate that certain statutory grades shall be composed of “Any six-row variety equal for malting purposes at O.A.C. 21.” These grades are No. 1 C.W. six-row and No. 2 C.W. six-row. No. 3 C.W. six-row shall be composed of “any six-row variety of fair malting quality.” No. 4 C.W. six-row is a commercial grade established and defined each year by the Board of Grain Commissioners. It is usually defined the same as No. 3 C.W. six-row with the exception that it may contain up to 3% more cracked and peeled kernels. VARIETIES No. 1 C.W. six-row and No. 2 C.W. six-row shall be com- posed of O.A.C. 21, Montcalm, Olli, Mensury, Manchurian. No. 3 C.W. six-row and No. 4 C.W. six-row shall be com- posed' of O.A.C. 21, Montcalm, Olli, Mensury, Manchurian, Gartons, Peatland or Kindred. A tolerance of 5% for other varieties ís allowed in No. 1 C.W. six-row, 10% in No. 2 C.W. six-row and 15% in No. 3 C.W. six-row and No. 4 C.W. six-row. WEIGHT PER MEASURED BUSHEL The minimum weight per measured bushel shall be No. 1 C.W. six-row 50 lbs., No. 2 C.W. six-row 48 lbs., No. 3 C.W. six-row and No. 4 C.W. six-row 46 lbs. SOUNDNESS No. 1 C.W. six-row shall be “sound, well matured, may contain slightly weather-stained kernels.” No. 2 C.W. six-row shall be “sound, reasonably well matured, may contain weather-stained, but not badly dis- colored kernels.” No. 3 C.W. six-row and No. 4 C.W. six-row shall be “practically sound, reasonably well matured, may contain weather-stained kernels. PURITY No. 1 C.W. six-row shall be practically free from small ' seeds, may contain up to about-Vá % wild oats, about 1% other grains with total impurities not more than 1%. No. 2 C.W. six-row shall be practically free from small seeds, may contain about %% wild oats, about 114% other grains and total impurities not to exceed 1%%. No. 3 C.W. six-row and No. 4 C.W. six-row may contain up to about 1% small seeds, about 1% wild oats, 3% other grain and not more than 4% total impurities. broken AND peeled kernels - The maximum broken and peeled kernels are No. 1 C.W. six-row 3%, No. 2 C.W. six-row and No. 3 C.W. six-row 5%, and No. 4 C.W. six-row 8%. Twenty-second in series of advertisements. Clip for scrap book. This space contributed by SHEA'S WIHNIPEG BREWERY LTD. MD-322

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.