Lögberg - 06.11.1952, Side 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
65. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 6. NÓVEMBER, 1952
NÚMER 45
Dwight D. Eisenhower kjörinn forseti Bandaríkjanna með miklu afli atkvæða
Republicanar taka við völdum
■ Bandaríkjunum
Eftir tuttugu ára hrakning um
eyðimörkina, hafa Republicanar
litið augum fyrirheitna landið
og fengið kosinn forseta úr sín-
um flokki, þar sem Dwight D.
Eisenhower á í hlut; oflangt
tímabil valdameðferðar, og
gamlar og nýjar pólitískar
syndir, urðu Demokrötum að
fótakefli; nákvæmar kosninga-
fréttir eru enn eigi við hendi,
þó víst megi telja, að Eisenhower
ráði yfir eins mörgum kjörfull-
trúum og Franklín D. Rosevelt
gerði, er hin pólitíska stjarna
hans var hæzt á himni; enn er
óvíst um hvort Republicanar
njóti meirihluta fylgis í þinginu,
og geri þeir það ekki, verður
hinum nýkjörna forseta erfiðara
um framkvæmdir áhugamála
sinna en ella myndi verið hafa.
Nánari kosningafréttir verða
að bíða næstu viku.
richard m. nixon
Hinn nýkjömi varaforseti
Bandaríkfanna
DWIGHT D. IISENHOWIR
Hinn nýkjörni forseti Bandaríkjanna
Brezka þsngið sett
Síðastliðinn mánudag setti
Hennar Hátign Elizabeth drottn-
ing brezka þingið og flutti þing-
heimi meginatriði stjórnarboð-
skaparins; var þar meðal annars
lýst eindregnu fylgi við stefnu
sameinuðu þjóðanna varðandi
Kóreustríðið, og eins við Norður
Atlantshafsbandalagið; þá var
því og lýst yfir, að stjórnin væri
staðráðin í því, að nema úr gildi
þjóðnýting stáliðnaðarins og
skila honum í *hendur sínum
fyrri eigendum, en þessu hét
íhaldsflokkurinn í síðustu kosn-
ingum; eins og vitað er, þjóð-
nýtti verkamannastjórnin á-
minstan iðnað og vill ógjarna
að hann komist aftur í einstakl-
inga hendur.
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
26. OKTÓBER
Hinn 22. þessa mánaðar var
Vilhjálmur Finsen aðalræðis-
maður íslands í Hamborg skip-
aður sendiherra Islands í Vestur
Þýzkalandi. Sendiherrann mun
hafa aðsetur í Hamborg og
gegna áfram aðalræðismanns-
störfum fyrir íslands.
☆
Á miðvikudagskvöldið komu
til Reykjavíkur þeir Victor Bod-
son, samgöngumála- og dóms-
málaráðherra stórhertogadæm-
isins Luxemborg og Pierre
Hamer flugmálastjóri í opinbera
heimsókn. Á fimmtudaginn und-
irrituðu þeir Bjarni Benedikts-
son utanríkisráðherra og Bod-
son samgöngumálaráðherra loft
ferðasamning milli íslands og
Luxembourg.
☆
Hinn 22. þessa mánaðar var
Thor Thors sendiherra formað-
ur íslenzku sendinefndarinnar á
allsherjarþingi sameinuðu þjóð-
anna einróma kjörinn framsögu
maður stjórnmálanefndarinnar í
þriðja sinn.
☆
Háskólahátíðin var í gær og
var þá flutt ný kantata eftir dr.
Pál ísólfsson við háskólaljóð eft-
ir Þorstein Gíslason. Dr. Alex-
ander Jóhannesson háskóla-
réktor flutti skýrslu um störf
skólans á liðnu ári, en minntist
áður Ágústs H. Bjarnasonar
prófessors, sem kennari var við
Háskóla íslands í 34 ár. Hann
skýrði og frá því, að Magnús
Jónsson prófessor hefði sagt
starfi sínu lausu, en hann hefir
verið háskólakennari í 30 ár.
Nú eru 692 stúdentar innritað-
ir í háskólann og kennarar eru
58 að meðtöldum aukakennur-
um. í haust innrituðust 165 nýir
stúdtentar. Margir kennarar há-
skólans fluttu opinberlega fyrir-
lestra á liðnu ári, auk erlendra
gesta háskólans, en þeir voru
Gwyn Jones prófessor frá Wales,
prófessor Seip frá Oslóarhá-
skóla, Sean MacBride prófessor
og fyrrum utanríkisráðherra
íra, og prófessor Hans A. Muller
frá New York. Haldið var nám-
skeið í íslenzku fyrir stúdenta
á Norðurlöndum og sóttu það
25 stúdentar, eða fleiri en nokkru
sinni áður. Á undanförnum
þremur árum hefir ríkisstjórnin
boðið til náms við háskólann er-
lendum stúdentum, og hafa stú-
dentar frá Englandi, írlandi,
Þýzkalandi, Sviss og Spáni þegið
boð stjórnarinnar 1 ár. — Á ár-
inu, sem leið, voru háskóíanum
gefnir tveir sjóðir, — Minning-
arsjóður Benedikts Sveinssonar
sýslumanns til styrktar efnileg-
um stúdentum, og Minningar-
sjóður Jóns Þorlákssonar til
styrktar verkfræðinemum við
skólann. Háskólinn hefir gefið
út skrá um rit háskólakennara
frá 1911 til 1946, í ár kemur út
ritskrá fyrir árið 1947—51, og er
áformað að gefa út slíka skrá
framvegis á 5 ára fresti. Nú er
að mestu lokið við að laga há-
skólalóðina, og eru þar nú gras-
vellir, gangstígar og trjágróður
Háskólaráð hefir hug á að láta
gera myndastyttur af merkustu
íslendingum á sviði þjóðlegra
Róstusamt í Kenya
Að því er fregnir frá Nairobi
herma, er svo að segja alt í
grænum sjó í Kenya um þessar
mundir; óaldarlýður sá, sem
gengur undir nafniriu Mau
Mau og reka vill alla hvíta
menn úr nýlendunni, hefir
framið eitt morðið á fætur öðru
og verið valdur að eldsvoðum og
geisilegu eignatjóni. Bretar hafa
sent aukinn herstyrk til nýlend-
unnar til að skakka leikinn og
nú er nýlenduráðherra þeirra
þangað. kominn til að kynnast
ástandinu persónulega og reyna
að ráða fram úr vandanum.
V
Skrif brezkra blaða um landhelgina
Nú keyrir fram úr hófi! segir límarilið World Fishing um töku
logarans „YORK CITY" í landhelgi við Island
í septemberhefti brezka tíma-
ritsins World Fishing, sem út
er gefið í Lundúnum, er hin
nýja fiskveiðilandhelgi Islend-
inga og landhelgisbrot brezka
togarans York City gerð að um-
talsefni í stuttri ritstjórnargrein.
Er ljóst af fyrirsögn greinar-
kornsins að höfundi þykir sem
íslendingar hafi með töku tog-
arans að ólöglegum veiðum í
landhelgi sýnt Bretum slíka á-
reitni að keyri úr hófi fram.
Kærkominn gestur af Fróni
Síðastliðinn sunnudag kom
hingað til borgarinnar Vilhjálm-
ur Þ. Gíslason, þjóðkunnur
mentamaður og skólastjóri við
Verzlunarskóla íslands; hann
lagði af stað frá Reykjavík þann
27. september s.l. í boði utan-
ríkisráðuneytis Bandaríkjanna
og hefir þegar ferðast allmikið
þar syðra, heimsótt Boston,
Californíu og Kyrrahafsströnd-
ina og dvaldi meðal annars
nokkra daga í Seattle, en þar er
búsettur tengdabróðir hans, Jón
Árnason læknir frá Skútustöð-
um í Mývatnssveit.
Vilhjálmur er fæddur í Reykja
vík 16. september árið 1897. Fað-
ir hans var Þorsteinn Gíslason,
mikilhæfur blaðamaður og skáld
gott, um langt skeið ritstjóri
Lögréttu og útgefandi Óðins,
sem látinn er fyrir all-löngu, en
móðir Vilhjálms, Þórunn Páls-
dóttir, er enn á lífi. Þorsteinn
var Austfirðingur, en kona hans
ættuð úr Kelduhverfi.
Vilhjálmur lauk stúdentsprófi
við Mentaskóla Reykjavíkur
1917, en tók meistarapróf í ís-
lenzkum fræðum við Háskóla
íslands 1922; framhaldsnám
stundaði hann í Kaupmanna-
höfn, Osló, London og Oxford.
Hann var skipaður skólastjóri
fræða og skáldskapar á komandi
árum. Þess er vænzt að bygging
náttúrugripasafns geti hafist á
næsta ári og verið er að gera
uppdrætti af félagsheimili stú-
denta, en stúdentaráð hefir beitt
sér fyrir því máli og hefir heim-
ilinu verið valinn staður sunnan.
íþróttahússins.
☆
Nokkrir íslenzkir togarar hafa
að undanförnu selt afla sinn í
Þýzkalandi, og nýlega voru átta
togarar á veiðum fyrir Þýzka-
landsmarkað, 9 veiddu handa
hraðfrystihúsunum, og hafa
margir komið með fullfermi af
karfa eftir fárra daga veiðiferð,
og 17 eru á saltfisksveiðum við
Grænland.
☆
Iðnþing íslendinga, hið 14. í
röðinni, var háð í Reykjavík í
vikunni sem leið og lauk á föstu-
dagskvöldið. Helgi Hermann Ei-
ríksson skólastjóri, sem verið
hefir forseti Landssambands
iðnaðarmanna frá því það var
stofnað fyrir 20 árum, sagði af
sér formennsku, og var hann
kjörinn heiðursfélagi sambands-
ins. Forseti Landssambandsins í
hans stað var kjörinn Björgvin,
Frederiksen járnsmíðameistari í
Reykjavík. Þingið fól sambands-
stjórninni að vinna að því við
ríkisstjórn og alþingi að sölu-
skatturinn verði úr gildi num-
Framhald á bls. 4
Vilhjálmur Þ. Gíslason
við Verzlunarskóla Islands 1931
og hefir það embætti enn á
hendi; hann hefir tekið mikinn
þátt í opinberum störfum, verið
ráðunautur útvarpsráðs, setið í
stjórn Norræna félagsins, varð
fyrsti formaður Stúdentaráðs
Háskólans, en er nú formaður
Þjóðleikhússráðs og jafnframt
formaður Fegrunarfélags Reykja
víkur; hann á einnig sæti í
Mentamálaráði.
Vilhjálmur er mikill afkasta-
maður við dagleg störf og mikil-
virkur rithöfundur; meðal bóka
hans má nefna: íslenzk endur-
reisn, Sjómannasaga, Jón Sig-
urðsson í ræðu og riti, Bessa-
staðir, þættir úr sögu höfuðbóls
og Eiríkur á Brúnum; hann hef-
ir gefið út Alþingisrímur með
skýringum, ásamt ljóðmælum
þeirra Hannesar Hafsteins og
Guðmundar á Sandi og fylgt
þeim úr hlaði með ýtarlegum
formálsorðum; einnig hefir Vil-
hjálmur samið fjölda fyrir-
lestra og nú síðast um hundrað
ára dánarafmæli Sveinbjarnar
Egilssonar og um Gest Pálsson
í tilefni af aldarafmæli hans, en
frá fæðingu Gests voru liðin
hundrað ár hinn 25. september
síðastliðinn. Vilhjálmur er þjóð-
kunnur maður sem útvarps-
þulur og kunnur að mælsku.
Hann er kvæntur Ingileif Odd-
nýju Árnadóttur prófasts Jóns-
sonar frá Skútustöðum.
Vilhjálmur er manna glæsi-
legastur og prúðastur í fasi; þá
daga, sem hann dvelur hér 1
borginni, er hann til heimilis
hjá föðurbróður sínum, Hjálm-
ari skáldi Gíslasyni, að 66 Mary-
land Street.
Á fimtudagskvöldið 6. þ. m.
flytur Vilhjálmur fyrir atbeina
Þjóðræknisfélagsins fyrirlestur
í Fyrstu lútersku kirkju, er
hann nefnir „Athafnir og and'
legt líf á íslandi", og er þess að
vænta, að kirkjan verði þétt-
skipuð. Samkoman hefst kl. 8.
Klykkir greinarhöfundur út
með því að skora á stjórnarvöld
í Bretlandi, að gera reka að
því að útgerðarmenn fái bætt
tjón, sem þeir verða fyrir af
völdum Islendinga, ella muni
togaramenn krefjast skýringa á
afstöðu stjórnarvaldanna. Grein-
in sem nefnist „This is too
much!“ fer hér á eftir í lauslegri
þýðingu.
Má segja að hún sé eins kon-
ar spegilmynd af ýmsu því sem
um þessi mál hefir verið ritað
í brezk blöð, þar sem skýrt er
villandi frá málunum og ein-
hliða túlkaður málstaður Breta.
Virða skoðanir Breta
að veiiugi
„Sú var tíðin, að brezka stjórn-
in með aðstoð flotans verndaði
rétt brezkra þegna til að reka
viðskipti hvar sem var í heim-
inum og kom í veg fyrir að
þeir væru ofríki beittir. Þessari
venju, sem á skylt við þjóðar-
stolt Englendinga, hefir án efa
stundum verið beftt af lítilli
sanngirni og með réttu urðu
frjálslyndari sjónarmið yfir-
sterkari og færðu framkomu
okkar til betra vegs.
Nú er hins vegar svo komið
að við höfum horfið frá einum
öfgunum til annarra — of mik-
illar tregðu til-að aðstoða brezka
þegna sem hindraðir eru í að
sinna daglegum störfum sínum
handan hafs. Þetta hefir haft
)ær afleiðingar, að hinar tíðu
frásagnir af ofbeldi erlendra
ríkja gegn brezkum kaupmönn-
um hafa freistað annarra þjóða
til að virða sjónarmið brezku
stjórnarinnar að vettugi.
Frá kveldskólanum
við Broadway
Námskeið í íslenzkum bók-
menntum hófst síðastliðið þriðju
dagskveld. I næstu viku færist
það yfir á miðvikudagskveld kl.
8, þar eð þriðjudagurinn 11. nóv.
er almgnnur frídagur. Síðan
verður haldið áfram á þriðju-
dagskveldum. Þeir sem vilja
taka þátt í námskeiði þessu geta
enn tilkynnt þátttöku sína. —
Upplýsingar í síma 36 626.
Tito flytur ræðu
Einvaldsherra Júgóslavíu —
Tito marskálkur — flutti nýver-
ið ræðu á ársþingi kommúnista-
flokksins í landi sínu, þar -sem
hann úthúðaði Rússum fyrir að
hSfa gengið af trúnni í pólitísk-
um skilningi, því nú hugsuðu
þeir um lítið annað en landrán
og undirbúning þriðja stríðsins;
en ef til stríðs kæmi kvaðst Tito
hiklaust veita vestrænu þjóðun-
um að málum.
Frá Kóreu
Snarpar orustur hafa verið
háðar á miðvestur vígstöðvum
Kóreu síðastliðna tíu dagq og
mannfall af hálfu kommúnista
orðið geisilegt; er mælt, að þrjá-
tíu og sjö jpúsundir af liði þeirra
hafi ýmist verið strádrepnar eðsi
teknar til fanga.
James Van Fleet hershöfðingi
lýsti yfir því í viðtali við blaða-
menn á mánudaginn, að her-
fylkingar sameinuðu þjóðanna
hefðu að fullu yfirhönd í Kóreu.
Landhelgisbrol York Ciiy
Það er með þetta í huga sem
við lítum á atferli íslenzka varð-
skipsins Ægis nýlega, er það tók
brezka togarann York City á
jeim forsendum, að hann væri
á veiðum á svæði sem íslenzka
ríkisstjórnin hefir upp á sitt
eindæmi lýst íslenzka landhelgi.
Skipherrann á Ægi skaut meira
að segja sjö skotum til að stöðva
York City, kom loks um borð
og ógnaði skipstjóranum með
skammbyssu. Dómstóll í Reykja
vík dæmdi hann síðan í 2000
sterlingspunda sekt.
Að hve miklu leyti skortur
ákveðinnar neitunar brezku
stjórnarinnar í sambandi við
nýju markalínuna hefir örvað
íslenzku stjórnina til slíkra at-
hafna verður ekki fullyrt, en
hefði skipstjórinn á H. M. S.
Mariner (brezka eftirlitsskipinu)
sem kom á vettvang með lofs-
verðum hvatleik, haft fyrirmæli
um að taka einbeittari afstöðu
er ástæða til að ætla, að skip-
stjórinn á Ægi hefði tekið á
málinu með öllu viðunanlegri
varfærni en raun bar vitni
ef til vill bókun málsatvika
vegna hugsanlegs „prófmáls
síðar.
Bótakröfur
Það er brezkum togaraeigend-
um uppörvun hversu skjótt H.
M. S. Mariner kom á vettvang.
En þeim er einnig kunnugt um,
að í orðsendingu brezku stjórn-
arinnar um nýju markalínuna
nýlega áminnir hún íslenzku
ríkisstjórnina um að þeir áskilji
sér rétt til að krefjast bóta af
Islendingum vegna afskipta
þeirra af brezkum fiskiskipum
á svæðum, sem „að áliti hennar
hátignar eru úthaf“.
Hún á að nota þennan rétt nú
þegar. Ef hún gerir það ekki vilja
10.000 togaramenn fá að vita
hverju það sætir.“
Síðan fárast greinarhöfundur
yfir því, að franskir togarar hafi
um langt skeið stundað ólögleg-
ar veiðar innan þriggja mílna
landhelgi Breta, og Belgíumenn
feti nú dyggilega í þeirra spor.
Bendir hann á að belgískur tog-
ari hafi nýlega verið tekinn að
veiðum í landhelgi við Bretland,
honum hafi ekki verið ógnað
með skammbyssu og hann ekki
sektaður, heldur aðeins á-
minntur.
Slíkar greinar sem þessi eru
áreiðanlega ekki til þess fallnar
að efla skilning almennings í
Bretlandi á sjónarmiðum íslend-
inga og rétti. Hvergi er að sjálf-
sögðu á það minnzt, að sam-
kvæmt mælingum íslenzka varð
skipsins var togarinn ekki að-
eins innan nýju markalínunnar
heldur einnig gömlu þriggja
mílna landhelgislínunnar við Is-
land. Ekki er heldur minnzt á
ölvun brezka skipstjórans sem
varðskipsmenn töldu áberandi
eða þá staðreynd að títtnefnd
skammbyssa var aldrei úr slíðr-
um dregin.
Skrif brezkra blaða eru mjög
í þessum dúr um þessar mundir
og hér aðeins tekið dæmi úr því
blaði, sem hendinni var næst.
World Fishing mun vera nýtt
tímarit í Bretlandi.
—Mbl., 30. sept.