Lögberg


Lögberg - 06.11.1952, Qupperneq 5

Lögberg - 06.11.1952, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 6. NÓVEMBER, 1952 5 wwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwww% ÁHU©A/HAL LVENNA Ritstjón: INGIBJÖRG JÓNSSON KONUR HAFA SETIÐ Á VALDASTÓLI f ENGLANDI í 137 ÁR AF SÍÐUSTU 400 Hin síðasia — Vikioría — ríkii í 64 ár. Valdaiímar drolininganna hafa verið blómaskeið Á SEINUSTU 400 árum, síðan Mary, elzta dóttir Henriks VIII. tók við völdum árið 1553, hafa drottningar setið á valdastóli í Bretaveldi í 137 ár. Þessi stað- reynd á sér engan líka í verald- arsögunni, og nú er enn ný drottning tekin við völdum þar í landi. Englendingar segja sjálfir, séu þeir spurðir, að stjórnartímar drottninga hafi alltaf verið hag- jsælir fyrir land og þjóð. En það getur átt rætur að rekja til þess, að þeim er þá eðlilegast að muna eftir þeim drottningum, sem hafa skarað fram úr, eins og Elísabetu og Viktoríu, er af miklum dugnaði ríktu saman- lagt í 115 ár af þessum 137. Sú fyrsta hefir þegar verið nefnd, sem með lítilli sanngirni hefir verið kölluð Blóð-María, en svo var til önnur Maria, sem fæstum kemur til hugar. Er það María II., dóttir Jakobs II., sem var á smánarlegan hátt hrakinn frá ríkjum og varð áð flýja land, fyrir ofríki tengdasonar síns, eiginmanns Maríu, hins mikla hollenzka stríðsmanns Vilhjálms af Oraniu. Vilhjálmur tók-síðan við ríkjum og nefndist Vil- hjálmur III. María áiti að víkja Hefðu lög og réttur verið í heiðri höfð á byltingarárinu 1688, hefði María átt að taka við völdunum, eins og Elísabet nú- verandi drottning gerir, og Vil- hjálmi af Oraniu hefði ekki bor- ið önnur né meiri virðingar- staða, en að vera maður drottn- ingarinnar, eins og hertoginn af Edinborg verður að láta sér lynda. En sú hugsun, að hinn einráði og snjalli Vilhjálmur yrði „maður konu sinnar“, var á þeim tíma blátt áfram hlægi- °S sjálfum mun honum ekki einu sinni í draumi hafa komið til hugar að fallast á það hlut- skipti. Hið frjálsa þing, sem var kall- að saman, til þess að ganga frá stjórnarháttunum, vissi um skil- yrðin: Annað hvort óskorað konungsvald eða snúið yrði aftur til Hollands. Og það vissi einnig, hvað það myndi hafa í för með sér, nefnilega öngþveiti, nýja; borgarastyrj öld, og ef til vill, að hinn hataði Jakob II. tæki á ný við völdum. Lögin voru sniðgengin Þess vegna þarf engan að undra, þótt fundizt hafi sam- komulagsgrundvöllur í stjórn- málum þess Englands, sem ætíð hefir verið nefnt föðurland malamiðlunarinnar. Þess vegna var sú nýlunda upptekin í stjórnarháttum, að Vilhjálmur var gerður að ríkjandi konungi af Guðs náð með Maríu drottn- ingu af Guðs náð sér við hlið. Þannig var löggjöfin sniðgengin, án þess að hún væri brotin og England frelsað. Eins og sjá má af þessu, væri ekkert því til fyrirstöðu, að Elísabet og Philip væru gerð að drottningu og kóngi, þótt líkur bendi ekki til þess að svo verði — að minnsta kosti ekki fyrst í stað. Síðar var lýst yfir því, að Vil hjálmur og María væru konung- ur og drottning Englands, og síðar yfir Skotlandi. í reyndinni hafði þetta fyrirkomulag þá þýð- ingu, að þegar Vilhjálmur III. var í Englandi, var valdið allt í höndum hans, en þegar hann, var fjarverandi, en það var hann bæði oft og langdvölum, ríkti María II. með aðstoð leynd- arráðsins. Hún sýndi það líka, að hún var ekki hrædd við að taka á- kvarðanir, ef á þurfti að halda — t. d. þegar hún lét handtaka frænda sinn, Henrik jarl af Clarendon, fyrir að vera með undirróður gegn Vilhjálmi, hin- um ástkæra eiginmanni hennar, en öryggi hans virðist hafa verið henni mikið áhyggjuefni. María var ekki hamingjusöm drottning. Vilhjálmur var veik- geðja og það var hún líka, en auk þess fékk hún beizka lífs- reynslu af stöðugri andstöðu yngri systur sinnar — Önnu, er síðar varð drottning — sem fylltist hatri gegn henni, þegar Vilhj álmur bolaði hertoganum af Marlborough, forföður Chur- chills, frá starfi, en hann var eiginmaður beztu vinkonu Önnu. Þreytt á líkama og sál lézt hún úr verstu plágu þeirra tíma, bólusóttinni, þann 28. des. 1694, aðeins 32 ára. Blóð-María og kaþólskan Og hvað vita menn svo yfir- leitt um hina fyrstu Maríu, hina óhamingjusömu dóttur Henriks VIII. og Katrínar frá Aragoníu? Það er nóg að vita, að hún var kölluð hin blóðuga María, sem með báli og brandi innleiddi kaþólska trú á Englandi, að hún missti Calais úr höndum sér, seinasta yfirráðasvæði Breta á megirtlandinu og lézt með nafn borgarinnar skráð í hjarta sitt. Svo einfalt er málið samt ekki. Skyldi María I. ekki vera sú kona sögunnar, sem hefir orðið að þola mestar álygar, jafnt for- smáð af veraldlegum og hinum frómu hræsnurum? Það var þó reisn og virðuleiki drottningar- innar yfir henni — hún elskaði fátæka og var áreiðanlega ekki „blóðugri“ en öryggi veldis hennar krafðist. Faðir hennar, öfgafullur og einráður, hafði farið illa með hana, og eins bróð- ir hennar, Játvarður VI., og er þá ekki að undra, þótt hún flýði á náðir sömu trúar og hin spænska móðir hennar, kaþólsku trúarinnar. Það verður því líka skiljanlegra, hvers vegna hún réðst gegn trúleysinu, sem Hen- rik VIII. hafði sannarlega fyrst- ur fallið fyrir, í þeim tilgangi einum að auðvelda skilnað sinn, svo að hann gæti tekið sér Önnu Boleyn fyrir konu. Þar sem hún var kona þröngsýn og svartsýn urðu trúmálin henni samvizku- mál. Mægðirnar við Spánarkonung Hún var gift Filip II. af Spáni. Það hjónaband var ákaflega ó- vinsælt á Englandi, og eins og fjandskapurinn milli þessara stórvelda varpaði það skugga sínum á framtíðina. Hefði það þó frekar átt að leiða til vin- áttu mestu sjóveldanna, Eng- lands og Spánar, er konungs- ættirnar mægðust, og hefði þá mátt leggja grundvöllinn að heimsveldi, sem aldrei hefði áður þekkzt. Nú fór sambandið undir eins út um þúfur við lát Maríu og krýningu yngri hálfsysturinnar, Elísabetar, sem tók við ríkjum 1558. Og fáum árum síðar sáust blaktandi segl spænska flotans ósigrandi á Ermarsundi .... Elísabet varð hin ævarandi stjarna á himni ensku konugs- ættarinnar. Hún ríkti í 51 ár og stjórnartíð hennar er kannske kunnari almenningi en stjórnar- tíð nokkurs annars ensks þjóð- höfðingja. Þó er vert að minnast þess, að hún var sú eina af Eng- landsdrottningum, sem aldrei giftist. Hefir sagnfræðingum síðari tíma orðið tíðrætt um á- stæðuna, og hún hefir einnig valdið öðrum miklum heilabrot- um. En skyldi ekki hjónaband systurinnar, Maríu, hafa verið henni nægileg aðvörun? Hin mikilhæfa drottning lifði sínu lífi' ein og óstudd, og hefir vafa- laust kunnað því bezt. Öðruvísi var farið með Önnu drottningu, systur Maríu II., sem tók við ríkjum eftir Vilhjálm III. Hún giftist næstelzta syni Frið- riks III., Jörgen, sem nefndist George prins í Englandi. Jörgen hafði, áður en hann kvæntist Önnu, sótzt eftir pólsku krún- unni. Jörgen eða George prins náði aldrei mikilli hylli í Eng- landi, og ófögur er lýsing Macauleys á honum, því hann lýsir honum sem drykkfelldum heimskingja. Það er að minnsta kosti áreiðanlegt, að hann var enginn vitringur. Meðan Vil- hjálmur og María sátu að völd- um, var kveðin vísa með þessu efni: Vilhjálmur kóngur hugsar allt, María drottning hirðir allt, George prins drekkur allt, og Anna prinsessa etur allt. Hannogveringar erfa krúnuna Sagt er þó, að sambúð Georges og Önnu hafi verið góð, og þau lifað hamingjusömu lífi að því undanteknu, að börn þeirra öll dóu í æsku, svo krúnan gekk eftir daga Önnu til hinna sið- lausu Hannogveringa. Anna barðist lengi fyrir því að fá George viðurkenndan sem kon- ung, eins og Vilhjálmur III. hafði verið það, en henni tókst það aldrei. Anna drottning var engin vís- dómsmanneskja, ag lagði alltaf lítið til málanna, en á dögum hennar voru uppi snjallir menn, svo að hagur landsins stóð með miklum blóma. Englendingar telja líka ríkisstjórnarár hennar- ennþá meðal hamingjuadaga þjóðarinnar. Þá er röðin loks komin að hinni miklu, eða öllu heldur langlífu drottningu, Viktoríu, sem sat að völdum í 64 ár. Á dögum Viktoríu náði brezka heimsveldið hátindi sínum, og brezk verzlun, iðnaður og fjár- mál náðu til alls heimsins. Viktoría var móðir hins auguga, þröngsýna og siðavanda enska ríkis, en áhrifa hennar gætir víða enn í dag — meira en hálfri öld eftir dauða hennar. Húsfreyja með þýzku sniði Gagnstætt hinni fyrri miklu drottningu, þ. e. Elísabetu, var Viktoría ekki meydrottning, heldur öllu heldur húsfrú eftir þýzku sniði með eldhúsi, kirkju og barnahóp. Hún mótaðist á þroskaárum sínum alveg af hin- um laglega, greinda, en heldur leiðinlega eiginmanni sínum, Albert prins. Þá má líka alveg eins kenna tímabilið við hann og hana, og hefði mátt gera það í enn ríkara mæli, ef honum hefði enzt aldur. Hann lézt ung- ur, og með honum hvarf konan Viktoria. Því má heldur ekki gleyma, að Bretlandshátíðin í fyrra var. til minningar um hina ógleym- anlegu sýningu hans 1851. Hún teízt til meistaraverka hans, og var eins konar þýzkt innsigli Viktoríutímans. Albert hlaut aldrei konungs- titilinn í orði, eins og Vilhjálm- ur, en á borði var hann sannar- lega konungur síns tíma. Þegar þau tvö, Albert og Viktoría, sátu gegnt hvort öðru árla morguns og fóru í gegnum himinháa skjalastafla, var um samvinnu að ræða, þar sem ýmislegt gat ráðið úrslitum. Hver verður samvinnan nú? Meftn ættu ekki að láta það eftir sér, að vera með spádóma, en ekki virðist ólíklegt að svipuð samvinna muni komast á milli Elísabetar og Filips hertoga. Það verður ekki komist hjá því að bera þau í huganum saman við Viktoríu og Albert. Það er hægt að sjá þau fyrir sér, bæði fríð sýnum en þurrleg, þar sem þau sitja hvort sínum megin við skrifborðið. Þau halla sér lítið eitt fram, svo að ljósu höfuðin nærri mætast, og erfiða gegnum skjalastaflana, sem sannarlega h'afa ekki minnkað síðan Viktoría var ung. I Englandi þykjast menn sjá fram á nýtt Viktoríutímabil. —VISIR, 9. október Fréttir . . . Framhald af bls. 4 á Rangárvöllum, samtals um 660 lömb. ☆ Slippfélagið í Reykjavík átti nýlega 50 ára afmæli. Tryggvi Gunnarsson vra frumkvöðull að því fyrirtæki og var formaður fyrstu stjórnar þess. Nú er par dráttarbraut fyrir 1500 lesta skip, hin stærsta á landinu. ☆ Sænski söngvarinn heims- kunni, Jusse Björling, kemur til Reykjavíkur hinn 5. nóvember n.k. á vegum Norræna félagsins og syngur hér þrisvar sinnum — tvisvar í Þjóðleikhúsinu fyrir almenning og einu sinni á skemmtifundi Norræna félags- Herflugvélar yfirgnæfðu, en margar farþegaflugvélar vöktu mikla athygli Meðal farþega á Gullfaxa seint í gærkvöldi frá Eng- landi var Björn Pálsson flugmaður, en hann fór utan fyrir skemmstu á flugsýning- una miklu í Farnborough. ins. ☆ Norski harmoníkuleikarinn Toralf Tollefsen er staddur hér á landi og hefir haldið nokkra tónleika við mikla aðsókn. ☆ Þegar Skógaskóli undir Eyja- fjöllum var settur hinn 15. þ. m. gat skólastjórinn Magnús Gísla- son þess, að Byggðasafni Vestur- Skaftfellinga, sem er til húsa í skólanum, hefði nýlega borizt nærri 100 ára gamall áttæringur með öllum farviði. Jón Halldórs- son kaupmaður í Vík í Mýrdal gaf skipið, sem heitir Pétursey og var alla fíð mesta happaskip Ætlunin ér, að byggja yfir skipið í Skógum, og sagði skólastjóri að takmarkið væri að skipið kæmist í hús áður en núverandi árgangur nemenda hyrfi skólanum. ur Tíðindamaður frá Vísi átti við- tal við Björn Pálsson í morgun og leitaði fregna hjá honum af för hans. „Ég hafði að sjálfsögðu mikinn áhuga fyrir að komast á sýning- una,“ sagði Björn, „fyrst og fremst með tilliti til sjúkraflugs- ins, til að komast að raun um, hvort þarna væri ekki eitthvað að s'já og læra, sem tiltækilegt væri fyrir okkur í sambandi við það. Til þess að komast á sýn- inguna naut ég fyrirgreiðslu Slysavarnafélags íslands og Flug félags íslands.“ „Hve lengi varstu á sýning- unni?“ „Ég var þar í tvo daga, sem sér staklega voru ætlaðir boðsgest- um, en þá var þarna miklu færra um manninn en þá dagana, sem hún var opin almenningi. Við vorum þarna saman þrír Is- lendingar þessa daga, auk mín, þeir Sigurður Jónsson forstjóri Loftferðaeftirlitsins og Björn Jónsson flugumferðarstj. Þessa tvo daga gátu boðsgestir farið um að vild og skoðað flugvél- arnar, sem til sýnis voru, og fengið alla upplýsingar, sem þeir óskuðu eftir varðandi þær. Hver f lugvélaverksmiðja um sig hafði sína upplýsingaþjónustu á flug' vellinum.,, „Og hvað vakti mestu athygli þína við „fyrstu kynni“ — ef svo mætti segja?“ „Hve margar herflugvélar voru sýndar, miklar og glæsi- legar, þar sem mest áherzla var lögð á hraðann, sem er svo gífur- legur, að menn gera sér ekki fyllilega grein fyrir því almennt. Minnstu flugvélarnar voru af Auster-gerð, af sömu stærð og sjúkraflugvélin okkar, og allt upp í stærstu farþegaflugvélar og flugbáta. — Stærsta flugvél in var flugbátur, sem tekur um 200 manns. — Athygli mína vakti fiugvél af Pioneer-gerð, sem Saga fimmtíu kynslóða lesin úr mefraþykkum rústum þorps Fyrsta heila beinagrindin aj kú frá því um 1200 sannar hve smáir gripimir voru Úr rösklega metraþykku jarð- lagi eru nú danskir fornleifa- fræðingar að lesa sögu fimmtíu kynslóða í dönsku sveitaþorpi. Þessum rannsóknum er stjórnað af dr. Axel Steenberg, og þorpið, sem verið er að grafa upp, er Stóri Valby, og það er talið, að hinir fyrstu bændur þar hafi staðið í nánu sambandi við vík- ingana í Þrælaborg og séð þeim fyrir vistum. Saga kynslóðar í hverjum tveimur sentimetrum Þarna hafa íbúarnir öld af öld reist hús sín á grunni hinna gömlu, sem hrunin voru eða brunnin. Allt jarðlagið morar af minjum um líf fólksins, starf og strit, og í hverjum tveimur senti- metrum birtist vitnisburður heillar kynslóðar. Hinir fyrstu lifðu lífi sínu við hlóðir á beru moldargólfi, en hinir síðustu inn- an hvítkalkaðra veggja í byrjun seytjándu aldar. Litla kýrin Þessi uppgröftur hefir kostað mikið fé, og einn dag átti dr. Steenberg ekki eftir nema tíu krónur í sjóði sínum. En hann gafst ekki upp, heldur treysti heppninni og lét halda áfram uppgreftrinum. Þá varð fyrir fornleifafræðingnum beinagrind af kú, sem bjargaði fjárahagnum. mundi henta til sjúkraflugs, en er óskaplega dýr fyrir okkur — um 17.000 stpd. — Einna mesta athygli vöktu Comet-langflugs- vélarnar, glæsilegar og renni- legar, ennfremur Britania, næst stærsta farþegaflugvél Breta, glæsileg vél, sem þegar hefir verið tekin í notkun, en ekki var þar Bristol-Brabazon, mesta landflugvél þeirra. — Þá vakti geisilega athygli Vickers-Vis- count, fjögurra hreyfla farþega- flugvél á stærð við Comet, sem flaug þarna ágætlega á einum hreyfli. Delta-sprengjuflugvélin, sem er þríhyrnd, vakti stórkost- lega athygli. Hún lenti ekki, og var aðeins sýnd á flugi. Hún er mjög falleg og hefir mikið hraðasvið.“ '„Voruð þið þarna á laugardag, er slysið varð?“ „Nei, við vorum þar á þriðju- dag og fimmtudag. Þetta var De Havilland-110, sem kunnugt er. Þegar flogið er með hraða hljóðs ins, er farið upp í um 40.000 feta hæð og flugvélunum steypt beint á nefið og flogið niður með þess- um geisilega hraða yfir 1100 km. á klukkustund. Þegar flugvél fer fram úr hljóðhraða heyrast eins og sprengingarhvellir eða högg frá jörðinni áður en flugvélin sést, og eftir þessum höggum bíða áhorfendur með mikilli eftirvæntingu. Vélin var búin að ná hraða hljóðsins, er sprenging- in varð, og var á láréttu flugi í um 300 metra, hæð, er hún sprakk. Segja sumir, að stélið hafi fyrst dottið af henni, en hreyflarnir flugu áfram, og lenti sá, sem skemmra fór, í mannhafi á hæð, og myndaði þar geil, og varð þarna mest manntjón. Til þess að beina athygli manna frá hinum ægilegu af- leiðinngum þessa slyss, fór kunn- ingi hins látna flugmanns þegar upp í flugvél af Hawker-Hunter- gerð, og fór fram úr hraða hljóðs- ins 3 mínútum eftir að slysið varð. Þurfti sannarlega góðar taugar til þess að fara í þessa flugferð.“ „Er nokkuð fleira, sem þú gætir sagt okkur?“ „Margt fleira, þótt ekki séu tök á því í stuttu viðtali, en ég vil að síðustu láta í Ijós mikla ánægju yfir, að hafa átt þess kost, að sækja sýninguna." —VISIR, 20. sept. Beinagrindin var frá því um 1200, og þótt bein úr kúm frá þeim tíma hafi oft fundizt, er þetta fyrsta heila beinagrindin, sem fundizt hefir í Danmörku. Borgarstjórinn í Slagelsi hóf fjársöfnun til rannsóknanna, er hann frétti um þennan fund. Það, sem athyglisverðast þykir við þessa beinagrind, er það, að hún staðfestir það, sem áður hafði verið ráðið af beinaleyfum af kúm frá þessum öldum, að danskar kýr hafa verið mun smá- vaxnari þá en nú. Þessi fundur varðar einnig okkur íslendinga, því að líklegt er, að sama naut- gripakyn hafi þá yfirleitt verið á Norðurlöndum, og þessi smá- vaxna kýr því verið af sama stofni og landnámsmenn fluttu hingað. —TÍMINN, 13. sept. Prófessor þurfti að fara út úr svefnvagninum um nóttina til þess að fá sér vatn að drekka. Og lestin fór áfram með mjög miklum hraða, en hann gat alls ekki munað hvar það var sem hann hafði sofið. Lestarþjónn- inn varð að vísa honum leið. — Og hvaða númer var á klef- anum yðar? spurði hann. Það gat prófessorinn alls ekki munað. — Þér hljótið þó að muna eftir einhverjum kennimerkjum, sagði lestarþjónninn. — Jú, víst man ég eftir ein- hverju, sagði þá prófessorinn, og glaðnaði heldur en ekki yfir honum. — Ég man svo greini- lega að þegar ég leit út um gluggann, þá sá ég svo dæma- laust fallegan lítinn rauðan kofa, sem stóð við svolítið vatn! KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMUNDSSON FREYJUGATA 34 . REYKJAVÍK

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.