Lögberg - 06.11.1952, Side 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 6. NÓVEMBER, 1952
Úr borg og bygð
— GIFTING —
Á laugardaginn 25. október kl.
7 um kvöldið voru gefin saman
í hjónaband í lútersku kirkjunni
á Lundar Sheila Lenore Brand-
son, elzta dóttir Friðrikku og
Ólafs L. Brandsonar frá Lundar,
og Roy Alexander Buchanan,
sonur Mr. og Mrs. A. V. Buchan-
an frá Warren, Man. Brúðurina
aðstoðuðu Sheridan Brandson,
Anna Thorgilson og Mrs. Fred
Hayword. Aðstoðarmaður brúð-
gumans var Harvey Buchanan:
Brúðurin var leidd til altaris af
bróður sínum Raymon Brand-
son. Miss Georgina Sullivan
söng „Because“. Irene Guttorms-
son atstoðaði við orgelið. Séra
Jóhann Fredriksson, frá Glen-
boro, framkvæmdi hjónavígsl-
una. Fjölmenn brúðkaupsveizla
var setin í samkomuhúsinu á
Lundar. Séra Jóhann mælti fyr-
ir minni brúðarinnar. Brúðgum-
inn, tígulegur maður, þakkaði
fyrir sig og mæltist vel. Ungu
hjónin verða til heimilis 199
Crescent St., Winnipeg. Mr
R. A. Buchanan er í lögregluliði
bæjarins.
☆
— DÁNARFREGN —
Bessi Byron var fæddur
Vestfold, Manitoba, þ. 19. febrú
ar 1897. Hann dó af slysi í grend
við heimili sitt að Oak Point
Man., þ. 16. okt. s.l. Foreldrar
hans voru hin kunnu hjón
Stefán B. Byron og Guðbjörg
Sigurðardóttir, sem lengi bjuggu
rausnarbúi við Vestfold. Bessi
er einn af 10 börnum. Ein syst-
irin, Mrs. Grímur Thorkelson er
dáin fyrir nokkrum árum. Hin
eru: Kári, að Lundar, Man., odd-
viti Coldwell sveitarinnar; Björn
og Friðþjófur, bændur að Oak
Point; Mrs. J. Vigfússon að
Lundar; Mrs. F. Taylor, að Oak
Point; Mrs. Kilcup og Mrs.
Cheats, í Winnipeg, og Mrs.
Mason, Vancbuver, B.C.
Bessi var í föðurgarði þar til
hann kvæntist 1938 May Ellen
Ems frá Oak Point. Þau eiga
tvö börn Alfred Stefán, 13 ára
og Guðbjörgu Catherine Pearl,
11 ára. Þau áttu heima í Winni-
peg á stríðsárunum. Árið 1947
fluttu þau til Oak Point og
byggðu sér þar sérlega vandað
og fallegt hús. Bessi stundaði af
miklum dugnaði fiskiveiðar,
loðdýra- og griparækt. Hann bjó
vel, var vinnugarpur hinn mesti
og ósérhlífinn. Hann var þrek-
maður mikill og karlmenni að
burðum. Á unga aldri missti
hann aðra hendina. Einhentur
gekk hann að verki sem ófatl-
aður væri. Hann bar sína byrði
og kvartaði aldrei. Hann var
barngóður, elskuríkur heimilis-
faðir og drengur hinn bezti. —
Hans er sárt saknað af öllum,
sem þekktu hann. Kveðjuathöfn-
in fór fram frá samkomuhúsinu
í Oak Point og var ein sú fjöl-
mennasta útför, sem sést hefir
þar um slóðir, ber það nokkurn
vott um ítök þau, sem hann átti
í hjörtum margra. Bessi var jarð
sunginn þ. 21. okt. við hlið for-
eldra sinna að Otto, Man. Séra
Jóhann Fredriksson jarðsöng.
J. F
— DÁNARFREGNIR —
Sigurður Péturss var fædd-
ur þ. 25. maí 1873, lézt í Winni-
peg þ. 6. okt. 1952, 79 ára gam-
all. Foreldrar hans voru hjónin
Pétur Pétursson og Anna Sig-
ríður Thorarensen úr Reykja-
vík. Sigurður ólst upp með for-
eldrum sínum í höfuðstað lands-
ins. Börnin voru fjögur: Dr.
Helgi Péturss, hinn þjóðkunni
fræðimaður, nú látinn; Kristín,
einnig látin, og Ásta Von Joden,
gift austurrískum manni og á
heima í Evrópu.
Sigurður heit. var velgefin og
naut góðrar menntunar. Er hann
var enn ungur að árum hneig
hugur hans til ævintýra og út-
landa. Hann ferðaðist víða um
lönd á unga aldri, en hvarf aftur
til föðurhúsa. Árið 1897 fluttist
hann alfarinn til Canada. Hann
staðnæmdist að Brú í Argyle-
byggð við fyrstu komu. Hér
kvæntist hann um aldamótin
eftirlifandi konu sinni, Lilju
Jónsdóttur Ólafssonar. Þau
hjón voru landnemar í íslenzku
byggðinni að Sinclair, Manitoba
og bjuggu þar í nokkur ár. Síðan
hurfu þau aftur að Brú, bjuggu
þar um hríð, en fluttu svo í
bæinn Cypress River. Þar stund-
aði Sigurður verzlunarstörf. —
Hann sinnti einnig öðrum störf-
um, var ritari bæjarráðsins o. fl.
Hann leysti öll sín störf af hendi
með trúmennsku og vandvirkni.
Börn Sigurðar og Lilju eru
fjögur: Anna Sigríður, Mrs. J.
Mushan, dó árið 1848; Jón Helgi,
til heimilis í St. Vital, Man.;
Sigurður í Brandon, Man., og
Björn Pétur í Ottawa. Barna-
börn þeirra eru tvö. Þann 20.
nóvember 1951 var hjónunum
haldin vegleg gullbrúðkaups-
veizla í samkomuhúsinu að Brú.
í veizlunni tóku þátt börn þeirra,
ættingjar og vinir, sem samleið
höfðu átt með þeim í 50 ár eða
lengur. Þau voru heiðruð með
gjöfum og þakkað af alúð fyrir
langt og vel unnið starf í félags-
lífi sveitarinnar. Hjónin voru
einhuga og samhent í öllu. Einn
vinur þerira, G. J. Oleson í Glen-
boro, kemst þannig að orði, er
hann skrifar um brúðkaups-
veizluna:
Sigurður er gáfaður maður
og listrænn . . . Hann kvæntist
Lilju Jónsdóttur Ólafssonar .
er það fólk alþekkt fyrir mann-
kosti og Iistræni. — Munum við
gömlu mennirnir, sem nú erum
að verða örvasa, eftir því er þau
léku Ævintýri á gönguför alda-
mótaárið, og við höfum lifað á
því í 50 ár og lifum á því eins
og öðru andlegu sælgæti.“
Þannig kemst einn vinur
aeirra að orði um þessi merku
hjón, Áhrif þeirra til góðs og
gleði vara lengi. Sigurður heit.
var söngelskur og góður söng-
maður, einnig var hann mælskur
og sagðist vel á mannamótum.
Kveðjuathöfnin fór fram frá
kirkjunni á Brú þ. 10. okt. s.l.
Sóknarpresturinn jarðsöng.
J. Fredriksson
☆ '
Hin nýja lækningamiðstöð
Gimli — Medical Centre — hef-
ir nú formlega verið tekin til
afnota; var almenningi boðið að
skoða hina myndarlegu stofnun
á sunnudaginn 2. nóvember.
☆
The Women’s Association of
the First Lutheran Church will
hold their regular meeting on
Monday Nov. lOth at 2.30 p.m.
in the Lower Auditorium of tþe
Church.
☆
Mr. og Mrs. Jón Júlíus John-
son á Gimli munu fara til Van-
couver og dvelja þar í vetur.
Verkir um allan líkamann
HafiS þér kvalir um allan líkamann?
ESa reynist ySur erfitt aS lúta eSa
beygja ySur? FáiS þegar þarin bata, er
þér æskiS með Templeton’s T-R-C’s.
T-R-C’s eru sérstaklega til þess gerSar
aS nema á brott úhægan hjartslátt,
úgleBi, vöSvasárindi og bakverk af
öllum tegundum. 65 c., $1.35 í lyfja-
búSum. T-834..
Mr. og Mrs. Chris. Fredriks-
son, frá Lampman, Sask., urðu
fyrir þeirri þungu sorg að missa
dóttur sína — Leslie Dianne —
tveggja ára gamla þ. 5. október
síðastliðinn. Leslie var fallegt og
myndarlegt barn og er sárt
saknað. Chris. Fredriksson er
sonur séra Jóhanns í Glenboro
og fyrri konu hans, Guðrúnar
Hornfjörð, dóttur Guðleifar og
Jóns heit. Hornfjörðs frá Leslie,
Sask.
„Hví fölnar jurtin fríða
og fellir bljóm svo skjótt?
Hví sveipar barnið blíða
svo brátt hin dimma nótt?
Hví verður von og yndi
svo varpað niðr’r í gröf?
Hví berst svo burt í skyndi
hin bezta lífsins gjöf?‘
„Ég lít þig í anda í ljósgrænum
kjól
með lýsigulls kniplinga um
brána
hjá ungbörnum konungsins
austan við sól
í álfunni vestur af mána.“
—AFI
A meeting of the Jon Sigurd-
son Chapter I O D E will be held
at Headquarters Winnipeg Audi-
torium on Friday Eve., Nov. 7th
at 8 o’clock.
☆
— DÁNARFREGN —
Lilja Rögnvaldsdóttir Oliver
var fædd þ. 10. sept 1869 í Hóla-
koti á Reykjaströnd í Skaga-
strönd í Skagafjarðarsýslu. Hún
lézt á heimili barna sinna í Win-
nipeg þ. 27. ágúst s.l. 82 ára
gömul. Foreldrar hennar voru
hjónin Rögnvaldur Jónsson frá
Ingveldsstöðum á Reykjaströnd
og Sigurlaug Guðmundsdóttir
Kristjánssonar Sveinssonar frá
Utanverðunesi.
Lilja heit. kom 4il þessa lands
árið 1876. Hún á einn bróðir á
lífi, Jón Rögnvaldsson, búsettan
í Ackton, Ont. Lilja giftist Al-
bert Jónssyni Oliver þ. 10. febr.
1893. Þau reistu sér bú að Brú í
Argyle-byggð, Man., og bjuggu
þar til maður hennar dó árið
1929; þá flutti Lilja til Glen-
boro, dvaldist þar um hríð, en
fór síðar til barna sinna í Win-
nipeg og var hjá þeim til síð-
ustu stundar. Lilja og Albert
æignuðust átta börn: Rögnvald-
ur, dó í æsku; Helgi, á heima í
Vancouver; Albert Jón, bóndi í
Baldur, Man.; Mrs. A. Schneider,
í Edrans, Man.; Mrs. L. Jóhanns-
son, Jónas, Fjóla Jónína og
Helga í Winnipeg. Ennfremur
lifa hana sex barnabörn.
Lilja heitin var framúrskar-
andi mikil og góð kona. Þau
hjónin voru samhent og heimili
þeirra fyrirmynd. Það var hlut-
skipti Lilju h. að hafa á heimili
sínu og sjá um foreldra sína og
tengdaforeldra í elli þeirra, og
þar að auki stóran barnahóp.
Það er erfitt og vandasamt dags-
verk. En hún var verkinu vaxin
og sá um hópinn sinn af alúð og
umhyggju. Hún tók einnig
mikinn þátt í félagslífi sveitar
sinnar og var ætíð boðin og búin
til að hjálpa öllum, sem til henn-
ar leituðu. Hún var atkvæða-
mikill kvenskörungur, trúkona
mikil, sem starfaði af einlægu
hjarta og dugnaði í söfnuðum
sínum og kvenfélaginu. Hún var
falleg kona, háttprúð, göfug og
elskurík eiginkona og móðir. —
Hún var jarðsungin að Brú af
sóknarprestinum þ. 30. ágúst s.l.
☆
Correction
Mr. E. P. Jónsson,
Editor, Lögberg,
Winnipeg, Man.
Dear Mr. Jónsson:
I thank you very much for
giving space in your paper to
our article on the Langruth
Lutheran Church.
Thera are a few corrections:
Pastor Walter R. Keim wrote
the article regarding the im-
provement of the church. He
did not write the constitution.
Mr. (not Mrs.) A. M. Johan-
son presented the gift to Mr.
Keim.
I misspelled the name Gordon
McGuinnis, which should be
Mclnnis.
Sincerely,
Elizabeth H. Bjarnarson
☆
Nýkominn er hingað til borg-
arinnar Guðmundur Hjaltason
ungur maður ættaður úr Reykja-
vík ásamt konu sinni og fjórum
börnum; hygst fjölskylda þessi
að setjast hér að.
75 ára afmæli lútersku kirkju-
unnar á Gimli er í þessum mán-
uði og verður þess minst með
hátíðahöldum. Eftir hádegi á
sunnudaginn 9. nóvember verð-
ur haldin íslenzk samkoma; þar
flytja ræður tveir fyrrverandi
prestar safnaðarins, séra Rún-
ólfur Marteinsson og séra Sig-
urður Ólafsson.
☆
Miss Dorothy Mae Jónasson,
sem nú stundar nám í fiðluleik
við Royal Conservatory of Music
í Toronto hefir á ný hlotið náms-
verðlaun; hafði hún áður á þessu
ári hlotið 350 dollara náms-
verðlaun frá kennara sínum Eli
Spivak, en nú hlaut hún 100
dollara námsverðlaun frá skól-
anum; aðeins fjórum hljóm-
listarnemendum skólans voru
veitt þessi verðlaun.
☆
Gefið til
Sunrise Lutheran Camp
Mrs. Steinunn Valgardson,
Gimli, $3.00 í minningu um Sæ-
björn Einarsson; Mrs. Magnea
Helgason, Wpg., $5.00; From The
Estate of Hrólfur Sigurdson
$1.000,00.
Meðtekið með innilegu þakklæti
Anna Magnússon
Box 296, Selkirk, Man.
☆ .
— DÁNARFREGN —
Jón Guðmundur Guðjónsson
lézt í Mikley 21. október síðast-
liðinn; hann var fæddur að Sól-
heimum í Arnardal í ísafjarðar-
sýslu 17. október 1875; foreldrar
hans voru Guðjón Jónsson og
Hildur Jakobsdóttir og var hann
einn af níu börnum þeirra
hjóna; fjölskyldan fluttist vest-
ur um haf 1892 og settist að í
Mikley, og eru nú tveir bræður
úr þessum hóp á lífi, Jens og
Jóhann Johnson, báðir í Mikley.
Jón heitinn kvæntist 1908
Guðrúnu Þorvaldsdóttur og
bjuggu þau á Hlíðarenda í
Mikley; Guðrún lézt 2. nóv. 1945.
Þeim hjónum varð átta barna
auðið; tvær dætur þeirra dóu
1930, en á lífi eru þessi: Mrs.
Hildur Kristjana Mercer; Mrs.
Sólborg Jóhannsson; Mrs. Elísa-
bet Guðrún Lundberg; Mrs.
Solveig Jóna Hálfdánsson; Thor-
valdur Guðjónsson, öll búsett í
Mikley og Guðjón Guðjónsson í
Thicket Portage.
Jón heitinn stundaði fi
inn arð í
úðlegur fjölskyldu sinni. Útför-
kveðja á
mar flutti kveðjumál.
Fjölskyldan biður Lögberg að
kveðjurnar og hin fögru blóm
og sérstaklega söngflokknum og
organleikaranum Miss Irene
Eggertson. j Fredriksson
☆
börnum á miðvikudaginn í fyrri
viku og dvelja þau hér fram um
næstu helgi. Mrs. Tómasson
Mr. Hjalti Tómasson frá Min-
neapolis, Minn., kom hingað á-
samt konu sinni og tveimur
(Margrét) er dóttir þeirra Mr. og
Mrs. Marino Thorvaldson, sem
eiga heima að 906 Bannig Street
hér í borg.
MN|i
Fyrirlestur í Fyrstu lútersku kirkju
Á fimtudagskvoldið hinn 6. þ. m., flytur
HR. VILHJÁLMUR Þ. GÍSLASON, skólastjóri frá
Reykjavík fyrirlestur um
Athafnir og andlegt líf á Islandi
Hér gefst Islendingum þéss kostur að hlusta á þjóðkunnan
ræðuskörung.
Samkoman hefst kl. 8 og er ókeypis; til hennar er efnt af
Þjóðræknisfélaginu. —Fjölmennið!
Mr. Pálmi Sigurðsson tré
smíðameistari frá Boston, Mass.
er nýlega farinn heim eftir
nokkurra daga dvöl hér í borg-
inni í heimsókn til ættingja og
annara vina. Pálmi er ættaður
af Seyðisfirði og verður honum
jafnan tíðrætt um æskustöðvar
sínar, er þær ber á góma; hann
hefir aflað Lögbergi kaupenda í
Boston og anriast jafnframt um
innheimtu fyrir blaðið; á Lög-
berg þar góðan hauk í horni þar
sem Pálmi á í hlut.
☆
Ungur Islendingur, J. Harvey
Johnson, sem starfað hefir að
blaðamensku fyrir Port Arthur
Chronicle í nokkur undanfarin
ár, hefir verið kosinn fram-
kvæmdarstjóri Chamber of Com-
merce samtakanna í Fort Wil-
liam, og er hann talinn ágætlega
til slíkrar stöðu fallinn, að
því er blöðum þar eystra segist
frá; hann hefir haft á hendi
skrifara- og forstjórastarf hjá
Thunder Bay District Fish and
Game Association og getið sér
þar sem annars staðar ágætan
orðstír.
Mr. Johnson er fæddur í Win-
nipeg, sonur Jakobínu Johnson-
Alexander og fyrra manns henn-
ar Stefáns Johnson, sem var í
mörg ár prentari hjá The Colum-
bia Press Ltd.; móðir hans og
stjúpfaðir eru til heimilis að
Ste. 12 Thelmo Mansions hér í
borginni.
☆
— TOMBÓLA —
Hjálparnefnd Sambandssafn-
aðar heldur Tombólu í neðri sal
Sambandskirkjunnar á Banning
Street á mánudagskveldið 10.
nóvember. Ágætir drættir, þar
á meðal tonn af kolum, epla-
kassi, svínslæri o. s. frv. Byrjar
kl. 8 e. h.; miðarnir seldir við
dyrnar.
☆
Mrs. Björg Christopherson,
ekkja Henriks heitins Christoph-
ersonar, andaðist síðastliðinn
fimtudag, 30. okt. 1952, í sjúkra-
húsinu að Baldur, Man. Útför
hennar fór fram á sunnudaginn,
2. nóvember frá heimilinu og
kirkjunni, Grund, Manitoba. —
Séra Jóhann Frederiksson jarð-
söng. Hana lifa þrjú börn: Sigur-
veig, Mrs. Chris Helgason; Her-
bert og Jóhann, öll að Baldur,
P.O.; einnig fjögur stjúpbörn:
Mrs. Baldur Pétursson, Gimli,
Man.; Pétur og Sigurður, Bald-
ur, og Jón Christopherson lög-
fræðingur, Winnipeg, Man.
☆
Mr. Gísli Einarsson frá River-
ton var staddur í borginni á
þriðjudaginn.
M ESSUBOÐ
Séra Valdimar J. Eylands
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Services in Gimli Parish
Nov. 9th
9 a.m. Betel. Séra Rúnólfur
Marteinsson prédikar.
11 a.m. Gimli. Special Armis-
tice Service and Legion Parade
(In place of Remembrance Day
Service.
2 p.m. Icelandic Pioneer
Memorial Service. Sermons by
former Pastors, Rev. R. Mar-
teinsson and Rev. S. Ólafsson.
People from all over New Ice-
land are specially invited to this
service which will mark the
75th Anniversary of the beginn-
ings of organized Lutheran work
in New Iceland.
7 p.m. Gimli. Evening service
followed by a congregational
meeting.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 9. nóv.
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir
S. Ólafsson
Innköllunar-menn Lögbergs
Bardal, Miss Pauline Minneota, Minnesota
Minneota, Minnesota Ivanhoe, Minn., U.S.A.
Einarson, Mr. M. ..Arnes, Manitoba
Fridfinnson, Mr. K. N. S. Arborg, Manitoba
Arborg, Manitoba Geysir, Manitoba Hnausa, Manitoba Riverton, Manitoba Vidir, Manitoba
Arnason, Mr. R * ...Elfros, Saskatchewan
Gislason, T. J. - . Morden, Manitoba
Gislason, G. F. Churchbridge, Sask. Bredenbury, Sask.
1 Grimson, Mr. H. B. . Mountain, North Dak.
Mountain, N.D. Edinburg, North Dak. Gardar, North Dak. Hallson, North Dak. Hensel, North Dak.
/ Johnson, Mrs. Vala Selkirk, Manitoba i
Bjarnason, Mrs. L Gimli, Manitoba
Gimli, Manitoba Husavik, Manitoba 1 “Betel”, Gimli, Man. Winnipeg Beach, Man.
Lindal, Mr. D. J. . .Lundar, Manitoba
Lyngdal, Mr. F. O. 5973 Sherbrook St. Vancouver, B.C. Vancouver, B.C.
Middall, J. J. 6522 Dibble N.W. Seattle, Wash., U.S.A. ...Seattle, Wash., U.S.A.
Myrdal, S. J. ...Point Roberts,
Box 27 Wash., U.S.A.
Oleson, G. J. ...Glenboro, Manitoba
Glenboro, Man. Baldur, Manitoba
Cypress River, Man.
Olafson, Mr. J. Leslie, Saskatchewan
Simonarson, Mr. A. .. Blaine, Washington
R.F.D. No. 1, Blaine, Wash. Bellingham, Wash.
Sigurdson, Mrs. J. Backoo, North Dak.
Backoo, N.D., U.S.A. Akra, North Dak. Cavalier, North Dak. Walhalla, North Dak.
Valdimarson, Mr. J. Langruth, Manitoba
Langruth, Man. Westbourne, Manitoba