Lögberg - 20.11.1952, Blaðsíða 3

Lögberg - 20.11.1952, Blaðsíða 3
3 „Álykt-arorð" Mætir vinir falla að folcL, felast liljuþaki; geymast þeir í mjúkri mold, minnigin þó vaki. Það hefir verið minst á Björn Hinriksson vel og verðuglega við óvænta burtköllun hans. Ég vona að mér leyfist að fara nokkrum orðum um þær endurminningar þeirrar reynslu, sem mér hlotn- aðist við tuttugu ára samvinnu með honum. Það var árið 1929 meðan ég var enn lítt kunnugur safnaðar- meðlimum Concordia safnaðar. Eitt sinn eftir messu komu nokkrir menn saman til gleði- móts; flutti Björn þá nokkur orð í tilefni fundarins, og kamst heppilega að orði; drógst þá at- hygli mín að Birni, og komst ég að þeirri niðurstöðu, að hann myndi reynast liðsmaður góður í þeim málum, sem hann tæki þátt í. Hann kom þá fram eins og einatt, snyrtimannlega í búnaði og framgangsmáta. Sannaðist hugboð mitt æ betur, því lengur sem við nutum samstarfs. And- legur þroski Björns fór vaxandi með aukinni lífsreynslu og við lestur valdra bóka. Hafði hann mikla ánægju af að lesa um at- burði liðinna tíma, og færði sér þá þekkingu vel til gagns í mál- um, sem hann hafði afskipti af. Og þau málefni voru mörg. Manni fanst iðulega, að þau mál- efni væru lítt undirbúin, sem Björn átti ekki þátt í; enda var það sjaldnast. Reyndist hann liðsmaður góður í hvívetna. Sönghæfni Björns hefir verið getið, enda hafði hann laglega rödd og tónvissa. Þegar haldið var upp á íslendingadag, og við skemtum okkur með því að syngja: „Þú vorgyðja svífur“ eða „Ég elska yður, þér íslands fjöll“ eða „Þú bláfjallageimur“ og ýms önnur dásamleg ljóð. Björn söng með hug og hjarta svo dásam- lega, að nálega verður engin minnig um hann bjartari eða fagnaðarríkari. Þótt minnig þessi sé eðlilega tregabundin, mun hún vera fjársjóður til daganna enda. Enda var fleiru sönghæfu fólki á að skipa. Vel og heppilega gat Björn verið fyndinn og hafði gaman af öllu kýmilegu og fór vel með það; en á bak við kýmnina bjó hugsun hins græzkulausa al- vörumanns, svo vel fór á öllu. Kristindómurinn var Birni í brjóst borinn frá barnæsku; var það beinn arfur frá foreldrum hans; kom það fram í öllu starfi hans í söfnuðinum og í öllum kristilegum viðfangsefnum. Con- cordiakirkjan mun með prýði- legustu guðshúsum meðal íslend- inga. Er mikil rækt lögð að við- haldi hennar og prýði. Guðshús þetta var Birni sýnilegt tákn hins guðlega náðarboðskapar, sem er lífsnauðsyn hverju mannlegu hjarta. Hann bar hag þess fyrir brjósti til síðustu stundar. At- höfnum hans er lokið fyr en varði. Mun að öllu samanlögðu verða kveðið um hann: „Fáir munu vonarmenn vera, ef hann er ei fullsæll.“ Einatt mun hugurinn reika að hinum hljóða hvíldarstað hins andvana holds, og flytja hljóð- lega þakkargjörð honum, sem veitti svo margar ánægjustundir, og ómetanlega fagnaðarríkar endurminningar; ekki sízt á þeim samverustundum, þegar við komum saman til mannfagnað- ar um blíða sumardaga, þegar alt fór fram frjálst og óþvingað, tilgerðarlaust og hjartanlegt. Við minnumst Björns með þakklæti þess þáttar, sem hann tók í sorg okkar og gleði; vegna hans hýrleika og hlýleika í garð allra þeirra, sem áttu við mis- jöfn kjör að búa, og síðast en ekki sízt vegna hans heilleika í starfi hins guðlega málefnis. Það er vel, að dánarbeður hans framliðna holds er í skjóli við guðshús það, sem honum var kærast á þessari jörð; þar er LOG.BERG, FIMTUDAGINN, 20. NÓVEMBER, 1952 skjól fyrir norðan vetrar vind- svala og fárvindum. Þung er spor að þinni hljóðu gröf, Þegi langa hér þú áttir töf. Þegar ríkti gleðignœgð og gaman, Gleðistundir margar áttum saman. Farðu vél, í friðarbjörtu löndin, Fjarlæg er nú mæðu-rauna ströndin. Dásamlegur þér er dagur runninn, Dýrðlegur í Kristi sigur unninn. —S. S. C. dáinn ættingja — ástvin — sem ekki gleymist meðan við lifum. Á hinn bóginn eru margar ó- skráðar sælusögur úr landnámi íslendinga vestan hafs, sem deyja nú með hinu aldraða fólki voru. Það væri skemtilegra að lesa um þær sigursögur fremur en um sumar svaðilfarirnar,.sem ýmist tókust vel eða illa. Það er vel líklegt að nú séu íslenzku vikublöðin einu. heim- ildirnar fyrir afarmörgum sælu- stundum landnámsheimilanna, þó líklega séu beztu sögurnar um það efni nú dánar með horfnum landnemum. Væri ekki fermur skemtilegt að fá nú fáeinar sælusagnir af landnámi voru hér vestra frá þeim, sem ennþá lifa og geta talað? Það væru sannar sagnir og þar með góðar heimildir um eitt og annað. Skáldsögur eru vanalega á- róðurs lygasögur um glæpi og klandur, og svo um heimatilbú- inn engil, svikinn. sem á að vera fyrirmyndin. Það er ennþá guðamáttur í íslenzku vikublöðunum, Lög- bergi og Heimskringlu. Lifið svo vel og heilir um langa tíma! 9. nóvember 1952 Með virðingu Guðmundur S. Johnson Glenboro, Man. Til ritstjóra og útgefenda Lögbergs Ég þakka ykkur fyrir „prufu- blað“ af Lögbergi sent mér nýlega. íslendingar eru fremur bók- hneigðir menn, þess vegna hafa þeir mjög oft skipzt á um blöð og bækur. Gott nágrannafólk mift hefir all-lengi léð mér Lögberg þegar það góða fólk hafði lesið blaðið. Þessi siður, og eins lestrarfé- lög eru ekki mjög arðvænleg fyrir blaða- og bókaútgefendur. Þess vegna veit þó fleira fólk um góðkosti íslenzkra blaða og bóka þar eð margir sjá og lesa það. — Lögberg er prýðilegt blað, bæði fyr og síðar. Á fyrri árum voru íslending- ar hér vestra nokkuð orðhvassir í hvers annars garð (persónu- lega) í ritum sínum. Það gerði hið mikla persónufrelsi hér vestra í landnámstíð vorri, og máske ennþá — að menn urðu gleði-ölvaðir og notuðu of mörg orð um hvern annan, sem ekki voru nauðsynleg í ræðum þeirra. Ég hefi lesið íslenzku blöðin hér vestra í 64 ár og er þess vegna all-vel kunnugur sögu landnámsfólks vors hér í Can- ada. Þar að auki hefi ég talað við fjölda landnámsmanna, á fyrri árum, og hefi þar með lifað landnámið að nokkru leyti. Nú hafa hörðu orðin engin á- hrif á mig, né huga minn, til þess að draga stryk á það fólk, sem þau orð áttu að límast á. Þau hörðu orð eru bara dálítið óhæg fyrir huga vorn þegar við lítum í gegnum spennandi landnámsævintýrið. Samt sem áður eru hörðu orðin ljós sem lýsa á milli lína um frelsisákafa landnámsfólksins, sem sver sig í ættir við forfeður vora, Goðana fornu. sem vildu sjálfir hafa frjálsa og óháða skoðun á mönn- um og málefnum, og það var eitt hinna meðfæddu einkenna hvíta aríanska mannflokksins, að vera andlega skilið jafn snjallir sjálfum guði. Þar með er vel líklegt að allir fals- og svika- guðir verði um alla tíð að láta í minni pokann fyrir heilvita Is- lendingum, og verði að draga sig í skúmaskot og svarthol, þar sem sá falguða-fénaður sómir sér bezt. Mér finnst að frásagnir nú- tíðarfólks geri fullmikið úr tor- færum landnemanna hér vestra, sem þeir urðu að vinna sigur á. Landnemarnir voru sælu- frjálsir og auðugir í fátækt sinni, en öruggir til lífstíðar á land- nemabújörðum sínum í hlýleg- um heimilum, í flestum tilfell- um. Sú góða von og heimilis- sæla sveik ekki lit né líf af þolinmóðum og trúverðugum bændum og rauf ekki heimilis- friðinn, jafnvel um aldur og ævi. Tökum til samanburðar gott og göfugt ungt fólk á sjálfu Is- landi, í nekt og mætti, í upp- gangi þekkingar og menningar. Þar eru víða við sjávarsíðuna ungir, vaskir menn að sækja á hafið — fiskinn — björg í bú og bæ. Þessir menn vita aldrei hvort þeir komast lífs úr fiski- ferðinni, jafnvel nú á dögum með öllum öruggu skipunum sínum. Of margir Islendingar liggja á hafsbotni — ungir menn tapaðir frá ungum börnum, konu eða öldruðum foreldrum. Þeirra sigur, sjálfra íslendinga, er ekki heldur með öllu þrauta- laus. Allmargir landnámsmenn hér vestra féllu við veginn, létu líf sitt í kaupphlaupi landnámsins. Sorgin hjó þar nærri mörgum eftirlifandi ættingjum og ást- vinum. Við flest öll nú geymum í minni eitt eða fleiri tilfelli um Erkibiskup . . . Framhald af bls. 2 er syndugur eins og aðrir dauð- legir menn!“ Kommúnistinn mundi ekki átta sig á þessu, fyrr en Stalín væri búinn að flengja hann nokkra mánuði í tugthús- um sínum, og þá væri það um seinan. Menn verða að reka sig á heimsku sína. Þjáningin hefir ævinlega verið hinn áhrifaríkasti kennari. Áður en menn öðlast vizku, verða þeir að skírast blóði cg eldi. Ef menn trúa ekki rödd hins góða hirðis, sem sagði: — „Nýtt boðorð gef ég yður. Þér skuluð elska hvern annan,“ þá er engin önnur leið fyrir mann- kynið en læra af hörmungum sínum og óförum. Bók biskupsins af York er skrifuð af mikilU hreinskilni, yfirgripsmikilli þekkingu og glöggri athugun á gangi heims- málanna. Hann sér hætturnar og orsakir þeirra. Hann efast ekki um að kristindómurinn einn get- ur frelsað, ef mannkynið fæst til að ganga á hans vegum. En vand- kvæðin eru þessi, að kristindóm- urinn skírskotar til eðlisþátta í mönnunum, sem enn eru tiltölu- lega lítt þroskaðir. Enn er það satt, að Kristur er kominn í heim inn og mennirnir hafa ekki tekið á móti honum. Sjálfselskan er ríkari en bróðurkærleikurinn. Menn skygggnast í allar áttir, biðja um tákn og stórmerki og halda að guðsríkið sé þar eða hér. En guðsríkið er hvergi finn- anlegt, nema hið innra með mönnunum. Fyrst, er þeir fara að temja manngöfgi sína, rís það úr rústum tímanna. Viðfangsefni allra tíma er hið sama, að leysa manninn úr álög- um. Sigríður Benónýs 1894 — 1952 Þann 9. apríl s.l. andaðist að Jackson Rest Home í Berkeley, California, íslenzk kona, frú Sigríður Benónýs. Hún var mörgum að góðu kunn, bæði hér á ströndinni og í Reykjavík á íslandi. Jarðarför hennar var 12. apríl. Séra O. S. Thorlakson flutti líkræðuna, en dóttir hans, Margarethe, söng sálma þá er hinni framliðnu höfðu verið kærir. Viðstaddir voru, ásamt börnum hennar, margir tryggir vinir. Þeir höfðu auðsýnt stöð- uga hluttekningu og ástúð í langvinnum veikindum frú Sig- ríðar. Börnum hennar verður það lengi minnisstætt. Þau votta hér með djúpar og einlægar þakkir vinum móður sinnar nær og fjær. Eigi er unnt að nafn- greina þá alla, en umhyggja og framtak þeirra séra O. S. Thor- laksonar og konu hans, ásamt Jacks og Olive Brown, verð- skuldar sérstaklega alúðar- fylstu þakkir. Nánustu ættingjar frú Sigríð- ar, sem lifa, eru tvö börn — Gunnar Benónýs, í Berkeley, og frú Fay Kauzer, í Lafayette, California. Barnabörn eru fjög- ur: Linda og Luana Benonys og Michael og Mark Kauzer. — I Reykjavík býr ein alsystir, frú Fanny Benónýs, og tvær hálf- systur, Hjördís og Ólöf Helga. Sigríður Benónýs var fædd 1. júlí 1894 í Reykjavík á Islandi. Þar ólst hún upp og átti heima til fullorðins ára. Foreldrar hennar voru þau hjónin Benóný Benónýsson, kaupmaður, og ólöf Þorsteinsdóttir, systir séra Bjarna tónskálds og þeirra vel þekktu systkina. Hún naut góðs uppeldis og góðrar almennrar skólamenntunar. I eðli sínu var hún listræn kona og lagði fyrir sig hljóðfæraslátt og söng alt frá æskudögum. En sem at- vinnugrein tók hún fyrir fata- saum og var bæði snillingur í höndunum og ötull verkmaður. Hún var því prýðilega sjálfstæð hvar sem hún fór. Ung að aldri giftist hún í Reykjavík Vilhelm Jakobsen, Sigríður Benónýs vel gefnum manni. Vegir þeirra skildu eftir stutta sambúð. Þá fluttist hún af landi burt og sá fyrir sér og báðum börnunum upp frá því. Hér á Kyrrahafs- ströndinni hafði hún átt heima eitthvað rúmlega 30 ár. Um nokkur ár bjó hún í Seattle, þar næst í Portland Oregon, en síð- an í Berkeley. Þar höfðu bæði hún og börnin komist vel áfram. Þar féll hún einnig vel inn í fé- lagsskap íslendinga, því að upp- lagi var hún sérstaklega félags- lynd, lífsglöð og frjálsleg í fram- komu. Hún var ætíð sjálfsögð við hljóðfærið þegar fólk kom saman — og fljót að „taka lagið.“ Þegar hún var yngri tók hún off þátt í sjónleikjum og til- heyrði söngflokknum o. s. frv. Söngrödd hennar var bæði ljúf og skemmtileg. Frú Sigríður heimsótti frænd- ur og vini á ættjörðinni árið 1946 og dvaldi þar nokkra mán- uði. Islands-stjórn sæmdi hana Fálka-orðunni fyrir aðstoð veitta námsfólki, er sótti Berkeley- háskólann um tíma. Lengi, lengi mun hennar saknað úr hópi Islendinga suður með ströndinni fögru — einkan- lega „um sumardag er sólin skín,“ og sungin eru lög að heiman. Jakobína Johnson 22. september, 1952. DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street w SELKIRK, MAN. Phones: Office 26 — Res. 230 Office Hours: 2:30 - 6:00 p.m. Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg PHONE 92-6441 ' J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENIJE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgS, bifreiSaábyrgb o. s. frv. Phone 92-7538 SARGENT TAXI PHONE 20-4845 FOR QUICK, RELIABLE SERVICE Thorvaldson Eggertson Baslin & Slringer Barristers and Bolicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. PHONE 92-8291 CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Dlstributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: 74-7151 Res.: 72-3917 Office Phone 92-4762 Res. Phone 72-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment. A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook St. Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaCur sá bezti. StofnaiS 1894 Simi 74-7474 Phone 74-5257 70« Notre Dame Ave. Opposite Matemity Pavilion General Hospltal Nell's Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers, Funeral Designs, Corsages, Bedding Plants Nell Johnson Res. Phone 74-6753 Office 93-3587 Res. 40-5904 THORARINSON & APPLEBY BARRISTERS and SOLICITORS 4th Floor — Crown Trust Building 364 Main St. WINNIPEG CANADA SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hereinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- viö, heldur hita frá aö rjúka út meö reykum.—SkrifiS, simiö til KELLY SVEINSSON 625 WaU Strcet Winnipeg Just North of Portage Ave. Slmar: 3-3744 — 3-4431 J. WILFRID SWANSON & CO. Insurance in aU its branches. Real Estate - Mortgages - Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 937 181 Res. 403 480 LET US SERVE YOU Creators of Distinctive Printing Columbia Press Ltd. 895 Sargenl Ave., Winnipeg PHONE 74-3411 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh Si. Winnipeg PHONE 92-4624 Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON Ashphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs Country Orders Attended To 632 Simcoe St. Winnipeg, Man. GIMLI FUNERAL HOME Sími 59 Sérfrœðingcir < öllu, sem að útförum lýtur BRUCE LAXDAL forstjóri Licensed Embalmer Dr. A. V. JOHNSON DENTIST 506 SOMERSET BUILDING Telephone 92-7932 Home Telephone 42-3216 Dr. ROBERT BLACK Sérfræöingur í augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofuslmi 92-3851 Heimasími 40-3794 Comfortex the new sensation for the modern girl and woman. Call Lilly Mailhews, 310 Power Bldg., Ph. 927 880 or evenings, 38 711. Gundry Pymore Ltd. British Quality Fish Netting 58 VICTORIA ST. WINNIPEG PHONE 92-8211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage wUl be appreclated PHONE 92-7025 H. J. H. Palmason, C.A. Chartered Aecountant 505 Confederatlon Life BuUding WINNIPEG MANITOBA Parker, Parker and Kristjansson Barrisiers - Soliciiors Ben C. Parker, Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadlan Bank of Commerce Chambers Winnipeg, Man. Phone 92-3561 BULLMORE FUNERAL HOME Dauphin, Maniloba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr. VAN'S ELECTRIC LTD. 636 Sargent Ave. Authorized Home Appliance Dealers General Eleclric McClary Electric Moffat Admiral Phone 3-4890 Minnist I3ETEL í erfðaskrám yðar. G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise Street Simi 92-5227

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.