Lögberg - 04.12.1952, Síða 2

Lögberg - 04.12.1952, Síða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 4. DESEMBER, 1952 Merkir íslenzkir gestir heimsækja landana í Seattle Það er sannarlega vert að minnast lítið eitt á þá merku íslenzku gesti, sem hafa heim- sótt okkur landana hér í Seattle á þessu nýliðna sumri og hausti. Þá er þar fyrst að telja herra prófessor Finnboga Guðmunds- son, sem hingað kom 29. júlí s.l., eftir að hafa haldið aðalræðuna á íslendingadeginum í Blaine. Þetta sama kvöld, sem pró- fessorinn kom hingað, var hon- um haldið veglegt samsæti, sem íslendingadagsnefndin í Seattle stóð fyrir. Samsætið fór fram í hinu stór- myndarlega og velþekta heimili frú Jakobínu Johnson, hinnar velkunnu skáldkonu og rithöf- undar. Stóru stofurnar í húsi frú- arinnar urðu fljótt vel skipaðar með um eða yfir 60 broshýrum og ánægjulegum löndum, sem fyltu húsið. Frú Jakobína hafði því nóg að gera nokkrar fyrstu mínúturnar við að kynna pró- fessorinn persónulega öllum gestunum, enda var frúin hýr á svip, og auðsjáanlega átti slík gestakoma vel við hana, og mun það ekki hafa verið nýtt, að þar væri gestkvæmt og glatt á hjalla, því heimilið er orðlagt fyrir gestrisni og vingjarnlegar mót- tökur. Kl. 8 um kvöldið hófst dynj- andi söngur undir stjórn Tana Björnssonar, en Mrs. H. M. Eastvold var við hljóðfærið. — Margir íslenzkir söngvar voru sungnir með lífi og fjöri. Að því búnu tók til máls formaður ís- lendingadagsnefndarinnar, herra Jón Magnússon, sem bauð pró- fessorinn velkominn með nokkr- um vel völdum orðum. All- margir fleiri tóku þá til máls og létu ánægju sína í ljósi yfir komu herra Finnboga Guð- mundssonar til Seattle. Líka þótti það nýbreytni, að herra H. M. Eastvold, lögfræðingur, flutti stutta og fallega ræðu á norskri tungu, og var honum þakkað fyrir ræðuna á norsku af forseta Vestra, Guðm. P. Johnson, sem stjórnaði samsætinu. Þá söng herra Tani Björnsson nokkra einsöngva öllum til á- nægju. Á meðal þeirra, sem til máls tóku, var frú Louis frá New York, prófessor í heimilis- fræðum; hún er tengdasystir K. Frederick ræðismanns Islands í Seattle. Svo eftir nokkra fleiri íslenzka söngva kallaði sam- komustjóri á heiðursgestinn Finnboga Guðmundsson. Pró- fessorinn talaði um ferðalög sín á íslandi og margt söguríkt og skemtilegt, sem fyrir hann bar í því sambandi; var bæði skemti- legt og fróðlegt að hlusta á pró- fessorinn og var honum klappað mikið lof í lófa. Þar tók líka til máls menta- maður heiman af Islandi, herra Ásgeir Pétursson, lögfræðingur, sem hér var að ferðast á vegum íslenzku stjórnarinnar, er hann ungur og skemtilegur maður og vel máli farinn. Eftir mikinn söng og ræðu- höld voru frambornar rausnar- legar veitingar af félagskonum Islendingadagsnefndarinnar. Var kvöldstund þessi hin ánægjuleg- asta í alla staði og allir fóru heim glaðir og ánægðir. Sunnudaginn á eftir samsæt- inu, sem var 3. ágúst, var pró- fessor Finnbogi Guðmundsson aðalræðumaðurinn á Islendinga- deginum við Silver Lake, í nánd við Seattle; prófessorinn talaði fyrir Minni íslands, og var gerð- ur hinn bezti rómur að ræðu hans. — Fylgi honum hamingja og beztu lukkuóskir Islendinga í Seattle. Séra Valdimar J. Eylands og fleiri Það þóttu gleðitíðindi, þegar það fréttist seint í september, að séra Valdimar J. Eylands frá Winnipeg, væri væntanlegur hingað til Seattle sntmma í október. Það þótti því sjálfsagt og vel viðeigandi að Þjóðræknis- deildin „Vestri“ beitti sér fyrir því að bjóða séra Valdimar vel- kominn til þessarar stórborgar, þar sem hann er ekki aðeins merkur og vellátinn kirkju- maður, heldur og forseti Þjóð- ræknisfélags Islendinga í Vestur heimi. Þriðjudagurinn 7. október 1952 var einn af þessum dásam- legu björtu og sólfögru dögum hér í Seattle, og allir voru glað- legir á svip, þó sérstaklega land- arnir, því þetta kvöld hafði ver- ið ákveðið að halda séra Valdi- mar J. Eylands heiðurssamsæti í Islenzku lútersku kirkjunni í Ballard. Kl. 8 um kvöldið var kirkjan orðin sæmilega vel skipuð fólki. Samsætið hófst með því að allir risu úr sætum og sungu „Hvað er svo glatt, sem góðra vina fundur“. Söngnum stjórnaði séra Eric H. Sigmar, þar sem okkar aðalsöngstjóri, Tani Björnsson, gat ekki komið fyrr en svolítið seinna; einnig var sungið „Ó, Guð vors lands“. Þá ávarpaði forseti „Vestra“, séra Guðm. P. Johnson, samsætisgesti og bauð séra Valdimar velkominn, ásamt öllum öðrum gestum. Að því loknu söng séra Eric H. Sigmar tvo einsöngva, „Bæn Árna“ og „Draumalandið”; — var mikið klappað fyrir þeim góða söng- manni. Þá kynnti séra Eric H. Sigmar heiðursgestinn og talaði nokkur vel valin orð í hans garð. Að því búnu talaði heiðursgesturinn; umtalsefni hans var „Hin ís- lenzka sál“. Ræða séra Valdi- mars var hin ágætasta í alla staði, með afbrigðum fróðleg og flutningur hennar hinn ánægju- legasti; enda þarf ekki að skýra það hér, að séra Valdimar J. Ey- lands er löngu orðinn viður- kendur fyrir merkar og vel flutt- ar ræður. Mikið var klappað fyrir ræðumanni, og margir hafa minst á það síðan að æskilegt væri, að þessi ræða kæmi út á prenti, því allir dáðust að henni og þótti hún sérstaklega vel samin og fróðleg. Þessu næst söng Tani Björns- son einsöng á íslenzku og fékk hann dynjandi lófaklapp, sem helzt ekki ætlaði að enda. Þá þótti það líka mjög ánægju- legt að sjá þau merku hjón Dr. Rúnólf Marteinsson og frú hans frá Winnipeg vera hér komin, því ekki hafði borizt til eyrna undirbúningsnefndar þessa sam- sætis, að þeirra væri von. Kynti þá forseti Vestra þessi góðu hjón og bað Dr. Rúnólf að á- varpa samkomugesti; við þeirri beiðni brást séra Rúnólfur vel og talaði nokkrar mínútur falleg og uppörfandi orð til landanna í Seattle og bað um blessun Guðs yfir þá alla. Ræðumanni var vel fagnað með lófaklappi. Nokkrir fleiri tóku þá til máls, þar á meðal Hallur Magnússon, fyrrverandi forseti Vestra, sem talaði nokkur hlý og vel valin orð til séra Rúnólfs og séra Valdimars og bauð þá velkomna. Einnig tók til máls herra Andrew Danielson frá Blaine, sem komið hafði með séra Eylands til Seattle. Sagðist honum vel að vanda og fékk mikið lófaklapp. Þá voru sungnir allmargir ís- lenzkir þjóðsöngvar undir stjórn Tana Björnssonar. — Því næst þakkaði forseti fyrir góða hjálp og innilega samvinnu allra til þess að gera þennan mannfögnuð ánægjulegan; að því búnu var sungið „Eldgamla Isafold" og „My Country“. Síðan var sest að rausnarlegum veitingum í neðri sal kirkjunnar frambornum af félagskonum „Vestra“. Eftir mikið og glaðvært sam- tal, sérstaklega við heiðursgest- inn og séra Rúnólf, skildu allir ánægðir og glaðir í anda. — Samsætið sóttu um 90 manns. Talar hjá Norðmönnum Laugardaginn 11. október, flutti séra Valdimar J. Eylands aðalræðuna á hinni stóru sam- komu „Leifs Eiríkssonar“, sem Norðmenn gangast fyrir á hverju ári hér í Seattle. Samkomuna sóttu yfir eitt þúsund manns. Séra Valdimar talaði um Leif Eiríksson og fund hans á Ame- ríku. Ræðan var stórmerkileg og fræðandi, enda kom ræðu- maður víða við sögu, var gerður hinn ágætasti rómur að ræð- unni og ræðumanni fyrir sköru- legan flutning og fallegt mál- færi. Önnum kafinn Sjálfsagt hafa fáir Islendingar, sem komið hafa hingað til Seattle að heimsækja landana, haft eins margvíslegt og mikið erindi og séra Valdimar hafði, því þó hann væri svona upptek- inn við að gleðja fólk með fróð- legum fyrirlestrum og vinsam- legu samtali, þá var það hans aðalerindi að sitja hið 18. alls- herjarkirkjuþing hinnar sam- einuðu lútersku kirkju í Ame- ríku, U.L.C.A., og var hann full- trúi hins íslenzka lúterska kirkjufélags. Séra Valdimar pré- dikaði í íslenzku lútersku kirkj- unni hér, sunnudaginn 12. októ- ber kl. 11 f. h., og hafði hann þar meira en 160 tilheyrendur. Hið áminsta kirkjuþing var sett 8. október og stóð yfir til 16. sama mánaðar. Þingið hófst kl. 8 á miðvikudagskvöldið með sálmasöng og altarisgöngu, þar sem yfir sex hundruð prestar og fulltrúar neyttu hinnar Heilögu máltíðar; var það hrífandi guðs- þjónusta og dásamlega skipu- lögð; það hvíldi bæði alvara og heilög lotning yfir þessari guð- dómlegu athöfn. Þingið var frá byrjun til enda stórmerkilegt og sérstaklega tilkomumikið, enda margs konar mikilvægum störf- um ráðstafað og allmörgum hrint til framkvæmda, og aldrei hef ég, sem þessar línur rita, verið eins sannfærður um það að hið íslenzka lúterska kirkjufélag Is- lendinga í Vesturheimi steig sitt mesta hamingjuspor þegar það sameinaðist þessari sterku heild lúterskra bræðra og systra. — Megi Drottinn blessa framtíðar- starf þessa mikla bræðralags. Aðrir íslenzkir prestar, sem ég varð var við á þessu stóra kirkju þingi, voru þeir séra Octavius Thorlaksson, frá California, líka fulltrúi hins íslenzka kirkjufé- lags, og séra Harald Sigmar frá Gimli í Canada, einnig séra Kol- beinn Sæmundsson, prestur í Seattle, og Dr. H. Sigmar frá Blaine og séra Eric Sigmar, prestur okkar hér í Seattle. Enn- fremur Dr. Rúnólfur Marteins- son, sem var hér einhvern hluta þingsins en þurfti að flýta ferð sinni til baka til Canada. Það eina sem fólki hér féll miður viðvíkjandi komu séra Valdimars J. Eylands var það, að hann gat alls ekki þegið heim- boð til ýmsra, sem hefðu verið mjög glaðir að hafa hann sem gest á heimilum sínum; en hann var svo upptekinn við óteljandi störf allan tímann, jgem hann dvaldi hér, að hann mátti ekki um frjálst höfuð strjúka. — En hann gladdi marga með komu sinni til Seattle, fylgi honum lukka og blessun Guðs. Vilhjálmur Þ. Gíslason Mánudaginn, 20. október, kom hingað til borgarinnar hinn mikilhæfi mentamaður frá Is- landi, herra Vilhjálmur Þ. Gísla- son, skólastjóri Verzlunarskóla íslands, sonur mentamannsins Þorsteins sál. Gíslasonar, sem lengi var ritstjóri Lögréttu og útgefandi fjölda bóka og tíma- rita. Ég þarf ekki að lýsa menta- ferli Vilhjálms Þ. Gíslasonar, því ég sé að Lögberg hefir þegar gert það svo ýtarlega, að ekki gerist þörf að bæta þar við. Aðalerindi Vilhjálms Þ. Gísla- sonar hingað til Seattle mun hafa verið að heimsækja tengda- bróður sinn, Dr. Jón Árnason, vel látinn lækni hér í borg; — einnig hélt Vilhjálmur fræðandi fyrirlestur hér yfir útvarpið, sem gerður var að hinn bezti rómur. Strax þegar stjórnarnefnd Þjóðræknisdeildarinnar „Vestri“ frétti um komu þessa merka manns, kallaði hún saman fund, þar sem ákveðið var að heiðra Vilhjálm Þ. Gíslason með sam- sæti, svo hann gæti kynst nokkr- um löndurmhér persónulega, og svo líka að fá tækifæri til þess að hlusta á hann og fræðast af honum um nútíma ísland og á- standið heima eins og það er nú. Samsætið hófst föstudaginn 24. október kl. 8 að kvöldi. Eftir nokkra fallega íslenzka söngva undir stjórn Tana Björnssonar, ávarpaði forseti „Vestra“ sam- komuna og bauð heiðursgestinn velkominn. Þá söng séra Eric H. Sigmar einsöng, og var honum þakkað fyrir sönginn með miklu lófaklappi. Því næst kynnti frú Jakobína Johnson heiðursgest- inn með fallegri og velorðaðri ræðu. Þá sungu þau herra Tani Björnsson og frú Árnason tví- söng, sem vakti mikla hrifningu áheyrenda. Að því búnu kallaði forseti „Vestra“, séra Guðm. P. Johnson, sem líka stjórnaði sam- sætinu, á heiðurshestinn, sem þá gekk upp á ræðupallinn undir dynjandi lófaklappi. Herra Vilhjálmur Þ. Gíslason hélt hrífandi og mjög lærdóms- ríka ræðu um Island, þó sér- staklega um mentamálin og þar á meðal Þjóðleikhúsið og hina vaxandi aðsókn og áhuga fyrir þeirri stofnun. Einnig fór ræðu- maður mörgum fögrum orðum um þær geisimiklu farmfarir á flestum sviðum, sem orðið hafa þar heima á síðastliðnum ára- tugum. Talaði hann vel og fallega um þjóðfélagsmálin yfir- leitt; minntist á jafnrétti og al- menna vellíðan hjá æðri og lægri. Dró ræðumaður upp fagra mynd af okkar gamla Fróni í þeim nýja menningarskrúða, er það sýnist nú vera íklætt, og var það bæði yndislegt og upplyft- andi að hlusta á slíka ræðu, sem bæði var flutt af persónulegri þekkingu og sannri mentun. — Ræðumaður naut aðdáunar allra viðstaddra. Þá söng Bergljót Árnason ein- söng „Svanasöng á heið“. Frú Bergljót er kona Dr. Jóns Árna- sonar; hún er af norskum ætt- um og talar og syngur á íslenzku, norsku og ensku. Frú Bergljót er söngelsk og hefir með af- brigðum fallega söngrödd; hún er nýbyrjuð að syngja opinber- lega fyrir landana í Seattle og nýtur aðdáunar allra; hún er há- menntuð og mjög prúð í allri framkomu. Þau hjónin hafa eitt af fallegustu heimilum í Seattle. Þau eru bæði ágætlega starfandi í Þjóðræknisdeildinni „Vestra“ og fús að styrkja starf á meðal landanna hér í Seattle. Tani Björnsson stjórnaði þá nokkrum íslenzkum þjóðsöngv- um; því næst var sýnd hreyfi- mynd frá íslandi; var hún af ferðalögum Vilhjálms Þ. Gísla- sonar um mikinn hluta af land- inu, til þess að skemta sér og sínu fólki ásamt föðurbróður sínum Hjálmari Gíslasyni skáldi í Winnipeg, þegar hann heim- sótti Island fyrir nokkrum árum síðan. Myndin er ljómandi góð og allir gátu séð að Hjálmar hafði skemt sér ljómandi vel í öllu því ferðalagi, því hann var broshýr og góðmannlegur eins og að vanda. Eigandi eins stærsta teppa- útflutningsfirma í Indlandi, E. R. Meherally, er um þess- ar mundir á ferð hér á landi í viðskiptaerindum. — Er hann hingað kominn á veg- um verzlunarfirma Gísla Jónssonar & Co., en það firma hefir haft viðskipti við E. R. Meherally frá 1946. Firma E. R. Meherally stend- ur á gömlum merg. Faðir hans hóf verzlunarrekstur um alda- mótin, fyrst í smáum stíl en á- vann sér fljótlega trausts og firma hans óx hröðum skrefum. Er Meherally eldri lézt árið 1940 tók Meherally yngri við verzl- unarrekstrinum sem nú er orð- inn mjög víðtækur. — Má víða í heiminum sjá vörur frá Meher- ally-firmanu, m. a. á Norður- löndum. Vill kaupa þorskalýsi Tíðindamaður blaðsins hitti E. R. Meherally sem snöggvast að máli í gær á heimili Gísla Jónssonar alþ.m., og fórust hon- um orð á þessa leið: — Koma mín hingað til lands að þessu sinni er í sambandi við verzlunarmál, þó það hafi ýtt undir að mig Iangaði til að litast um á landi ykkar. Ég hefi átt nokkur viðskipti við firma Gísla Jónssonar frá 1946 og tel að slík viðskipti mættu vera meiri og báðum að- iljum til hagsbóta.. Ef samning- ar takast nú, mun firma mitt kaupa nokkurt magn af þorska- lýsi, sem í Indlandi verður notað til framleiðslu læknislyfja. Á hinn bóginn hafa Indverjar á boðstólum margs konar vörur er íslendingar verða að flytja inn og vöruverð í Indlandi er miög lágt, sérstaklega verð bómullar- afurða, og munu þær vart fást annars staðar fyrir lægra verð. Eftir myndasýninguna var sungið „Eldgamla ísafold11 og „My Country“. — Því næst var sest að ljúffengum veitingum, sem félagskonur „Vestra“ fram- reiddu af mikilli rausn. Fólkið hópaðist kringum heiðursgest- inn og spurði hann spjörunum úr um ættingja á gamla Fróni. Eftir ánægjulega samveru- stund, sem entist langt fram á kvöld, fóru allir heim þakklátir fyrir kvöldstundina. Þjóðræknisdeildin „Vestri“ gleðst yfir komu allra góðra landa. — Heimsækið okkur í Seattle og verið velkomin! Myndarlegt gestaboð Miðvikudaginn 22. október s.l. höfðu Dr. og Mrs. Jón Árnason veglegt gestaboð á heimili sínu hér í Seattle. Tilefni boðsins var að gefa fólki tækifæri til að heilsa upp á hinn merka og ný- komna gest, herra Vilhjálm Þ. Gíslason, tengdabróður Dr. Árna sonar. Fólk skemti sér með söng, hljóðfæraslætti og fjörugu sam- tali, svo var sest að ríkmann- legum veitingum þar sem ekkert var sparað. Frú Árnason gekk um beina, aðstoðuð af frú Finnu Thorfinnsson, var þetta ánægju- leg kvöldstund og allir skemtu sér vel. G. P. J. Aðal-framleiðsluvara f i r m a míns eru teppi, en auk þess húðir, skinn, vefnaðarvara alls konar, auk striga t. d. í fiskum- búðir og poka. Útflutningsverzl- un okkar er mjög umfangsmikil m. a. höfum við selt mikið af vefnaðarvöru og striga til Norð- urlanda. Leiðtogi fjölmenns trúarflokks Er R. Meherally er mikils met- inn maður í heimalandi sínu. — Hann er m. a. einn helzti leið- togi Khoja félagsskaaprins, sem er einn af mörgum trúarflokk- um innan Muslamtrúarhreyf- ingarinnar. Innan þess trúar- flokks hefir Meherally verið falin mörg trúnaðarstörf m. a. það, að vega hinn nafnkunna Aga Khan er fjölmargir trúar- flokkar gáfu honum þyngd hans af demöntum á sextugsaf- mæli hans árið 1946. Viðstaddir þá athöfn voru á aðra miljón manna. Sem kunnugt er endur- galt Aga Khan þessa veglegu gjöf með því að gefa andvirði demantanna aftur til mannúðar- starfsemi, en Aga Khan er einn dáðastí trúarhöfðingi Indlands, og tekur virkan þátt í trúarstarf- semi. Er á förum E. R. Meherally er senn á förum héðan eftir mjög stutta heimsókn. Hann kvaðst hverfa héðan með endurminningar um fagurt land, vingjarnlega og kur teisa þjóð, sem á ótrúlega mögu- leika framundan ónýtta, sérstak- lega á sviði iðnaðar. — —Mbl., 26. okt. Mæði Fái8 bata viS mæSi, rensli úr nefi, andarteppu og brjóstþyngslum meS þvi a8 nota RAZ-MAH töflur, sem til þess eru sérstaklega gerBar. Þá geti8 þér sofi8 rótt og unniS reglubundiS. Liggi8 eigi andvaka fleiri nætur. NotiS Templeton’s RAZ-MAH strax. 65 c., $1.35 i lyfjabúðum. R-58. STRIVE FOR KNOWLED6E In these modem times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Commence Your Busines9 Training Immediately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PRESS LIMITED PHONE 74-3411 695 SARGENT AVE., WINNIPEG KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMUNDSSON FREYJUGATA 34. REYKJAVÍK Indverjar og íslendingar geta ótt mikil viðskipti saman

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.