Lögberg - 01.01.1953, Blaðsíða 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTBE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
66 ÁRGANGUR
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas • Oil • Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 1. JANÚAR, 1953
NÚMER 1
LÖGBERG FLYTURISLENZKA MANNFÉLAGINU HUGHEILAR NÝARSÖSKIR
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
Prófessor Halldór Hermannsson hólf-óttræður
Nú er loks komið vetrarveður
á' Islandi. Snemma í vikunni
sem ieið brá til frosta eftir lang-
varandi þíður og hægviðri, og
kom á norðaustan átt með nokk-
urri snjókomu norðanlands og
frosti um land allt. í gær var
5 til 16 stiga frost í byggð og
jókst er á daginn leið.
☆
Ólafur Thors atvinnumála-
ráðherra er nú staddur 1 París
og situr fund ráðherranefnd-
ar efnahagssamvinnustofnunar
Evrópu og síðan ráðherrafund
Atlantshafsbandalagsins. 'Þátt-
taka hans í þessum fundum var
ákveðin og tilkynnt í byrjun
nóvembermánaðar. Aðalerindi
ráðherrans er að vinna að mál-
stað íslands í landhelgismálinu.
I för með ráðherranum er Hans
G. Andersen þjóðréttarfræðing-
ur utanríkisráðuneytisins. — Á
leið sinni til Parísar ræddi at-
vinnumálaráðherra við Anthony
■ Eden, utanríkisráðherra Bret-
lands, um vandamál þau, sem
risið hafa á milli landanna í
sambandi við stækkun landhelgi
Islands.
Brezka stjórnin sendi íslenzku
stjórninni nýlega orðsendingu
varðandi löndunarbannið og
landhelgina og kom þar ekkert
nýtt fram.
☆
Verkfall hófst hérlendis 1.
desember og eru nú samtals 46
verkalýðsfélög í verkfalli, og
mun félagatala þeirra vera um
20.000 manns. Nokkur félög, sem
Alþýðusamband íslands hafði
mælzt til að gerðu vinnustöðvun
í samúðarskyni, hafa ekki orðið
við þeirri beiðni, meðal þeirra
Sjómannafélag Reykjavíkur og
Hið íslenzka prentarafélag. —
Verkalýðsfélag Akraness veitti
undanþágu til uppskipunar og
vinnslu á afla togarans Akur-
eyjar, sem bæjarútgerðin þar á.
Sáttasemjari ríkisins hélt fundi
með samninganefndum deilu-
aðilja dag hvern framan af.
Sáttanefnd var skipuð á mánu-
daginn og eiga sæti í henni Torfi
Hjartarson sáttasemjari ríkisins,
Emil Jónsson alþingismaður,
Gunnlaugur Briem skrifstofu-
stjóri í atvinnumálaráðuneytinu
og Jónatan Hallvarðsson hæsta-
réttardómari. Sáttanefndin hélt
fundi með deiluaðilum, og báru
þeir engan árangur. Viðræðum
var þá slitið í bili á fimmtudags-
kvöldið, og voru engir fundir á
föstudag og laugardag. — Kaup-
skip flest liggja nú í höfn af
völdum verkfallsins, póstur er-
lendis frá hefir ekki fengist til
afgreiðslu, hvorki úr skipum né
flugvélum, þar til í gær að eitt-
hvað liðkaðist um það. Vöru-
skortur er nokkur í matvöru-
búðum, sérstaklega er lítið um
viðbit og kaffi hvarvetna gengið
ti! þurrðar. Mjólkurskammtur
handa ungbörnum hefir verið
^jög lítill og minni en læknar
töldu að þyrfti nauðsynlega, en
ookkuð hefir á því borið að
^jólk væri flutt til Reykjavíkur
sölu utan Mjólkursamsöl-
Uílnar og hafa verkfallsverðir
s öðvað nokkra slíka flutninga.
ki hafa orðið neinar róstur.
olatré öll, sem flutt hafa verið
tU landsins, eru í skipi í Reykja-
13. DESEMBER
víkurhöfn og fást ekki í land,
fremur en aðrar vörur. Strætis-
vagnar ganga ekki í Reykjavík,
en leigubílstjórar aka, þar eð fé-
lag þeirra gerir ekki verkfall.
Áætlunarbílar eru í förum á
langleiðum, og er enn fært milli
Reykjavíkur og Akureyrar, þótt
færð sé orðin þung á Öxnadals-
heiði. Flugferðir innanlands hafa
lagst niður með öllu að heita má.
Samninganefnd verkalýðsfélag-
anna í vinnudeilunni hefir á-
kveðið að leita til verkalýðssam-
bandanna á Norðurlöndum, Bret
landi og í Bandaríkjunum, um
fjárhagslegan stuðning við verk-
fallsmenn, þar eð verkfall hefir
nú staðið hálfan mánuð. Áður
hafði verið leitað til Sambands
frjálsra verkalýðsfélaga.
☆
Á þessu ári fóru íslenzkir
togarar samtals 136 söluferðir til
Bretlands og Þýzkalands með ís-
fisk, fluttu þangað 29.000 lestir
og seldu það magn fyrir rúm-
lega 54 miljónir króna. Fyrstu
Framhald á bls. 4
HINN 6. þessa mánaðar
verður hálf-áttræður einn af
gagnmerkustu og kunnustu ís-
lendingum, sem nú eru uppi, og
jafnframt einhver allra ágætasti
og afkastamesti fræðimaður ís-
lenzkur að fornu og nýju, en það
er dr. phil. Halldór Hermanns-
son prófessor í Ithaca, New
York. Var hann, eins og al-
kunnugt er, áratugum saman
bókavörður við hið fræga Fiske-
sáfn íslenzkra rita í Cornell-há-
skóla í Ithaca og samtímis há-
skólakennari í norrænum fræð-
um, en lét af því tvíþætta starfi
fyrir aldurs sakir fyrir nokkrum
árum.
Ég þekki minn gamla kennara
og tryggðavin nógu vel til þess
að vita það, að honum er það
mjög fjarri skapi, að bumbur
séu barðar fyrir honum, enda
má um hann í ríkum' mæli með
sanni segja, að umfangsmikil
bókavarðar- og fræðistörf hans
tala sínu máli betur og varan-
legar en nokkur lofgjörð frá
minni hálfu eða annarra. Eigi að
síður verður hann að sætta sig
við það, að mér virðist það með
engu móti viðurkvæmilegt, að
75 ára afmælis hans sé eigi að
einhverju lgyti getið í blöðum
vorum vestur hér, enda væri
annað hið rammasta vanþakk-
læti; veit ég einnig, að landar dr.
Halldórs almennt hér í álfu taka
í sama streng, að ég nú ekki tali
um fræðimenn víða um lönd,
hvað þá gamla nemendur hans,
sem æði margir eru, og munu,
að verðleikum, allir bera honum
hið bezta söguna sem kennara.
Þar sem ég hefi áður rakið að
nokkru ævi- og starfsferil Hall-
dórs prófessors Hermannssonar
bæði í ritgerð í Tímariti Þjóð-
ræknisfélagsins og, í styttra
máli, í afmælisgrein um hann
sjötugan hér í blaðinu, verður
það eigi gert að þessu sinni á
ný; enda er greinarkorni þessu
aðeins ætlað að vera stutt af-
mæliskveðja til hans og þakkar-
orð á þeim merku tímamótum í
ævi hans, sem hér er um að
ræða.
Fyrir margt og mikið megum
vér, landar hans, beggja megin
hafsins, þá einnig þakka honum,
er hann nú hálfnar áttunda
tuginn.
Verður þar fyrst á blaði há-
skólakennsla hans í norrænum
fræðum í Cornell, sem náð hefir,
eins og þegar er gefið 1 skyn, til
fjölmargra innan veggja kennslu
stofu hans, og áhrif þeirrar
kennslu síðan með nemendum
hans miklu víðar, eins og komið
hefir fram með ýmsum hætti í
bókmennta- og fræðistarfi þeirra,
þó það verði eigi nánar rakið að
sinni. Sjálfur get ég bætt því
Állatíu og sex manna týna lífi
Á laugardaginn hinn 20. des-
ember vildi til hið geigvænleg-
asta flugslys, sem sögur fara af
við Moses Lake í Washington-
ríkinu; brann þá til kaldra kola
amerísk risaflugvél af hinni svo-
nefndu C-124 Globemastergerð;
alls hafði flugvélin innanborðs
ásamt áhöfn, hundrað þrjátíu og
fjóra menn, flest hermenn, sem
voru á leið til heimila sinna fyr-
ir jólin; vélin hafði svo að segja
nýhafið sig til flugs, er hún
Prófessor Halldór Hermannsson
við af eigin reynd, hversu stað-
góð fræðsla hans var og hefir
orðið mér, enda svipmérktist
hún af sömu nærfærni og sann-
leiksást eins og víðtæk ritstörf
hans.
Þá hefir Halldór Hermanns-
son eigi síður unnið íslenzkum
fræðum og Islandi ómetanlegt
gagn með frábæru bókavarðar-
starfi sínu við Fiske-safnið, er
hann rækti með þeirri hagsýni
og alúð, að safnið meir en tvö-
faldaðist að stærð í vörzlu hans;
en eigi myndi bókavarðarstarf
hans hafa verið með jafn mikl-
um fyrirmyndarbrag og raun
ber vitni, ef hann hefði eigi ver-
ið eins fágætur bókfræðingur og
rit hans í þeirri grein bera ó-
rækastan vottinn.
Er þá einnig komið að þeirri
hliðinni á nytjastarfsemi hans í
þágu íslenzkra fræða og menn-
ingar, sem víðast hefir borið
nafn hans og lengst mun því á
lofti halda, en það eru umfangs-
mikil ritstörf hans. Ber þar fyrst
að nefna hinar miklu bókaskrár
hans yfir Fiske-safnið, sem út
komu í þrem bindum, og eru í
senn brautryðjendarit á sínu
sviði og með öllu ómissandi
þeim, sem fæst við íslenzk og
norræn fræði. Þó ekki væri öðru
til að dreifa, standa fræðimenn
í þeim greinum þess vegna í
ævarandi þakkarskuld við Hall-
dór Hermannsson.
Með ritsafninu Islandica (31
bindi samin eða gefin út af hon-
um) hefir hann einnig lagt
mikilvægan skerf og varanleg-
an til íslenzkra fræða, en í þess-
um ritum hans kennir bæði
margra grasa og góðra, og öll
auðkennast þau af víðtækum
lærdómi höfundarins, vand-
virkni hans og gjörhyggli.
Margs er því að minnast og
mikið að þakka á 75 ára afmæli
dr. Halldórs Hermannssonar
prófessors, og þó að framan að-
eins stiklað á allra stærstu stein-
hrapaði og kviknaði þá sam-
stundis í benzíngeymum henn-
ar; áttatíu og sex manns týndu
lífi, en flestir þeirra, sem af
komust liggja í sjúkrahúsum.
Hernaðaryfirvöld Bandaríkj-
anna tóku málið þegar til rann-
sóknar, en um niðurstöður er
enn eigi vitað.
Annað stærsta flugslysið, sem
um getur, gerðist í Cardiff í
Wales fyrir tveimur árum, en
þar létu lífið áttatíu manns.
um. Hann hefir eigi aðeins ver-
ið brautryðjandi á sviði íslenzkr-
ar bókfræði og óvenjulega mikil-
virkur rithöfundur í íslenzkum
fræðum á breiðum grundvelli,
heldur einnig verið þjóð vorri
Innn ágætasti landkynnir á er-
lendum vettvangi, í hinum víð-
lenda enskumælandi heimi.
Það allt skal honum nú hjart-
anlega þakkað á 75 ára afmæli
hans, að ógleymdum manndóm-
inum og heillyndinu, því hann
er í einu orði sagt: heilsleyptur
drengskaparmaður. Um hann má
með sanni segja, að þar er
„merkur, mætur, heill maður“
að baki fjölþættra fræðistarf-
anna.
I þeim þakkarhug og virðing-
ar hylli ég Halldór Hermanns-
son hálf-áttræðan, og bið honum
blessunar, nú er kvelda tekur,
eftir hinn langa og frjósama
starfsdag hans.
RICHARD BECK
Á leið til
Bandaríkjanna
Winston Churchill forsætis-
ráðherra Breta, lét úr höfn í
gær áleiðis til Bandaríkjanna til
fundar við Truman forseta og
Dwight Eisenhower, sem við
forsetaembætti tekur þann 20.
yfirstandandi mánaðar. Mr.
Churchill hélt fund með ráð-
herrum sínum skömmu áður en
hann steig á skipsfjöl; um niður-
stöður fundarins er flest á
huldu að öðru leyti en því, sem
Lundúnablöð telja víst, að við-
ræður forsætisráðherra við
Eisenhower muni snúast að
miklu um Kóreustríðið og
viðhorf Asíumálanna í heild; að
fleira beri á gófna verður eigí
efað, svo sem afstaða Bretlands
til Norður-Atlantshafsbandalags
ins og væntanlegir friðarsamn-
ingar við Austurríki.
Ekki þykir líklegt að Mr.
Churchill heimsæki Ottawa að
þessu sinni, þó ekki sé vitað um
það með vissu.
Þakkarorð
Þegar ég er nú að leggja af
stað heimleiðis til hins nýja
heimilis okkar hjónanna í
Walters, Minnesota, eftir að
hafa dvalið á þessum slóðum
síðan í byrjun nóvembermánað-
ar til lækninga, finn ég hjá mér
sterka hvöt til að þakka af
grunni hjarta míns þeim öllum
fjær og nær, er auðsýndu mér
kærleiksríka samúð í velkind-
um mínum og glöddu mig á einn
eða annan hátt.
Orð mín fá á engan hátt lýst
þeirri þakkarskuld, er ég stend
í við Dr. P. H. T. Thorlakson,
er skar mig upp á sjúkrahúsinu
og veitti mér, ef svo mætti segja,
föðurlega umhyggju frá þeim
tíma, unz ég nú hefi náð heilsu.
Við hjónin, sonur okkar og
allir vinir endurtökum þakkir
okkar til þeirra allra, er tóku
innilegan þátt í kjörum okkar
meðan á veikindum mínum stóð.
Winnipeg, 29. des. 1952
Sigríður Sigurgeirson
UMFERÐARSLYS
Um jólin týndu 714 manns lífi
af völdum umferðarslysa í
Bandaríkjunum, en í Canada 92.
Dánartalan í Canada varð helm-
ingi hærri en í fyrra.
Eins og vér fyrirgefum
Eftir ALFRED NOYES
A meðan börn þín voru vexti háð,
þú veizt það, drottinn; þeirra eina ráð,
var það að biðja bljúg um vœgð og náð.
Þau féllu auðmjúk fram, við hástól þinn,
sem fyrirlitnir þrælar, drottinn minn,.
og hétu á þig að hvítþvo klœðnað sinn.
Þau lágu á bæn um niða dimma nótt. —
En nú er birting — Ijósið veitir þrótt
og fjöldinn rís, þótt fari undur hljótt.
Já, rís á fætur, reisir höfuð hátt
og hrœðist ekki vald úr neinni átt —
en hæðir ekki himins dýrð né mátt.
Hinn þögli fjöldi — öll þín eigin börn,
sem enga hljóta í nauðum sínum vörn,
en aumka þig og eru líknargjörn.
Þau allar sömu gjafir gefa þér,
í gamla daga er þau kúsu sér,
en það var margt, og það skal talið hér.
Já: meðaumkun — það mesta gjöfin er,
hin mesta og bezta, sem þau færa þér, —
því œgileg er byrðin, sem þú ber.
Og þó þau furði — skilji ekki að
hins illa þurfi — nokkrum gagni það;
í hljóði spyrja hví það á sér stað.
Þau fyrirgefa samt í fullri sátt
öll syndagjöld, er í þau tóku þátt;
það er ein góða gjöfin, sem þú átt.
Þau hreyfa ekki eins manns hörmungum,
sem ofboð reynist þér og himninum —
já, þér með sigurdraum í dauðanum.
Þau kenna þér ei þennan hrykaleik,
sem þúsund þúsund gerir dauða bleik,
né alla von, sem oss með kossi sveik.
Nei, kenna þér ei — þyngsta kvöl að sjá
er þegar œskan fellur eins og strá
og ástvin dauðum ástvin slitinn frá.
Vér kennum þér ei þó að flest, — nei alt,
sem þú oss hefir gefið, reynist valt,
og fyr en vér það virðum: dautt og kalt.
Já, dautt og kalt. Ó, drottinn, reynd er sú,
að dauf og veik og köld sé okkar trú:
Við gátum aldrei elskað líkt og þú.
Og loks í veikleik vorum hugsast oss,
er vœgðarleysið steypist eins og foss
á börn þín, undir þrauta og þyrna kross.
Vér, leirmyndirnar þínar, rétta þá
til þín um síðir hönd, sem kreppur þjá
og störum lemstruð, blind í loftin blá.
Og kom þá til vor: kveddu himininn! —
í kvaladauða allur mannfjöldinn
um síðlr birtir sýknu dóminn þinn.
Sig. Júl. Jóhannesson þýddi
ATHUGASEMD:
Höfundur kvæðisins hefir komið tvisvar til Winnipeg og lesið
þar ljóð sín í stórum kirkjum fyrir fullu húsi; þar á meðal þetta
kvæði. Hann er talinn meðal allra mestu skálda á Englandi. Alfred
Noyes er kaþólskur ipaður og kvæðið ber það með sér. En þrátt
fyrir það fanst mér það svo stórkostlegt, frumlegt, og fagurt að
viðeigandi væri að reyna að snúa því á íslenzku. —S. J. J.
--------------------———■—-----<
Geigvænlegasta flugslys, sem
sögur fara af