Lögberg - 15.01.1953, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 15. JANÚAR, 1953
3
Torfærur trúarbragðanna
Erfðir Bramairúarinnar er erfiðasii þröskuldur beiri lífs-
kjara í Indlandi. Sex millj. beilarar. „Óhreinir" menn.
Heilagar kýr. Krúnurakaðar ekkjur.
Eitt þeirra ríkja, sem vestræn-
ar þjóðir hugsa mikið um hvaða
stefnu muni taka á komandi ár-
um, er Indland. Hvar mun það
skipa sér í flokk í átökum þjóð-
anna? Og hvernig mun ríkis-
stjórn landsins takast að sigrast
á fátækt og eymd með þjóðinni.
Verður auðið að komast hjá
verulegum árekstrum við Múha-
meðstrúarmenn?
Þannig spyrja menn með eftir-
væntingu. En skýringu á öllu
því, sem liggur bak við þessi mál,
fá menn ekki nema þeir kynni
sér trúarhugmyndir Indverja og
ýmsar hættulegar erfðir, sem
fylgt hafa Bramatrúnni öld fram
af öld.
Sex miljónir betlara
Það eru nú sex miljónir betlara
í Indlandi, og auk þess 2 miljónir
„heilagra manna“, sem yfirleitt
eru alls ekki heilagir menn eftir
vestrænum skilningi. Þetta eru
menn, sem hafa óbeit á vinnu og
vilja heldur betla en vinna. Það
þykir engin skömm að vera
betlari. Guðrækilegar hugleið-
ingar og fátækt verðskulda virð-
ingu alþjóðar samkvæmt ind-
verskum trúarhugmyndum.
Hin heilaga stéttaskipting.
Skipting þjóðarinnar í stéttir
er ef til vill helzta meinið og
mesta ógæfa þjóðarinnar. Það er
talið að nú séu 2300 stéttarleg af-
brigði í Indlandi. Atvinna, hugs-
unarháttur og trúarbrögð á-
kvarðast mest af stéttinni. Sjálf-
stæð hugsun á þar ekkert hlut-
verk og væri uppreisn gegn guðs
og manna lögum. Hver og einn
er barn sinnar stéttar og á að
lúta vilja hennar í smáu og stóru.
En þar að auki eru 60 miljónir
manna stéttlausir, •— utan við
allar stéttir. Það eru olnboga-
börn Indlands, menn, sem öldum
saman hafa ekki átt sér nokkurn
rétt. Þeir eru óhreinir, og þeim
ber að ganga úr vegi fyrir manni,
sem er úr stétt, svo að skuggi
hins óhreina falli ekki á hann.
Hinir óhreinu lifa við örbirgð
og eymd. Og Bramatrúin kennir
þeim, að fyrir þá sé engin von
um betri kjör í öðru lífi.
Bramaprestur veitir óhreinum
manni enga þjónustu. Skólar og
sjúkrahús hafa verið honum lok-
aðir staðir fram undir síðustu ár.
í sumum héruðum landsins hafa
óhreinir menn ekki átt rétt til
þess, að ganga eftir þjóðvegun-
um. Konur úr þeirra hópi hafa
allt til þessa haft þann sið að
bera kúamykju í hárið. Okkur
hættir til að líta á slíkt sem
merki um hreinlætiskennd
þeirra, en gleymum þó ekki, að
kýrin er heilagt dýr í landinu og
á sér miklu meiri rétt en þetta
fólk. Annars er fjölbreytni fegr-
unarmeðalanna mikil.
Siðabót að hefjast
Ýmsar réttarbætur hafa verið
lögboðnar varðandi hina stétt-
lausu en þær eru margar hverjar
htið nema pappírsgagn ennþá
víða um land. Trúarbrögðin eru
sá veggur, sem stendur í vegi
allra betri þjóðlífshátta. Enda
Þótt einhver hinna óhreinu kom-
ist í álnir og verði jafnvel auð-
^gur maður, er hann eftir sem
aður fyrirlitleg persóna í augum
trúaðra. Og hver sá sem svíkur
stétt sína með því, að upphefja
Þann, sem óhreinn er fæddur, á
vísa harða refsingu í næsta lífi.
^á skal hann fá að verða njálgur
1 rassi óhreinna í samræmi við
stéttarvitund sína hér í lífi.
Landbúnaðurinn er mjög á
eftir tímanum. Bændur lifa við
eymdarkjör. Bændauppreisn fyr-
*r nokkru síðan varð til þess, að
ríkið tók allt óræktað land undir
sig frá furstum og auðugum góss
^igendum. Bændurnir fengu
ymsar réttarbætur, en fyrver-
andi landeigendur áttu að fá
skaðabætur miklar og bændur
búa enn við sárustu fátækt.
Heilbrigðismál og skottulæknar
Heilbrigðismálin eru í ömur-
legu ástandi í Indlandi. Malaría,
blóðsótt, bólusótt, berklaveiki,
sýfilis, kólera og holdsveiki eru
útbreiddustu sjúkdómarnir. —
Margir telja að trúarbrögðin séu
þröskuldur í vegi heilsusamlegra
lífs. Skottulæknar eru mjög á-
berandi. Þeir festa upp við dyr
sínar auglýsingar um það, að
þeir lækni þá, sem inn koma, af
berklum á 10 mínútum og mal-
aríu á sex mínútum og annað
eftir þessu. — Sjúklingarnir
streyma til þeirra. Við augnveiki
nota þessir skottulæknar oft
graut af kúamykju og þvagi, sem
þeir bera í augu sjúklingsins. Á
slíka læknisdóma trúir almenn-
ingur. Fræðslá' um einföldustu
heilbrigðismál er alþýðu Ind-
lands framandi.
Kjör ekkjunnar
Ekkjurnar eiga ekki sjö dag-
ana sæla í Indlandi. Víst er sá
tími liðinn að þær séu brenndar
á báli með líki bónda síns, en
örlög þeirra eru samt ekki stór-
um glæsilegri. Ekkjan tekur eng-
an arf eftir mann sinn og er oft
lega hrakin frá heimili sínu. Hún
á að ganga krúnurökuð og má
ekki giftast aftur. Eina úrræðið
verður þá löngum að leita til
meiriháttar musteris og eyða þar
ævinni, sem hjákona andlegrar
stéttar manna. í þann félagsskap
eru ekkjurnar löngum velkomn-
ar.
Mannfellir og heilagar kýr
Fátæklingar Indlands lifa í sí-
felldum ótta við hungur og felli,
þó þeir búi í frjósamasta landi
heimsins. Jarðrækt er þar á lágu
stigi og sáðskipti yfirleitt óþekkt.
Svo er kýrin heilagt dýr. Hver
sá, sem stytti kú aldur, hefði þar
með unnið til hinnar þyngstu
refsingar í öðru lífi. Landið er
fullt af gömlum og örvasa kúm,
sem flækjast um í hópum eða
einar sér. Jafnvel á götum stór-
borganna er krökkt af þeim. En
það má ekki fella þær, hvernig
sem á stendur. Þær eru guðlegar
verur.
Bjarmi af degi
Þegar á þetta er litið, má
gjörla sjá, að ríkisstjórn Indlands
á við mikla örugleika að etja.
Það er ekki nema takmarkaður
hluti þjóðarinnar, sem veitir við-
reisnarstarfinu virkan stuðning.
Bændaánauðin hefir verið brot-
in. Ríkið hefir staðið í stórkost-1
legum áveituframkvæmdum í
þurrkahéruðum landsins. Og
kosningarétturinn er almennur.
Allir fullorðnir, karlar og konur,
hafa kosningarétt, — jafnt þeir,
sem fæddir eru óhreinir. En hvað
hlýzt af því, ef rótgróin og blind
hjátrú verður ekki upprætt með-
al miljónanna?
Það er meira en augnabliks-
verk að hefja þjóð frá eymdar-
kjörum til menningarlífs. Það
verður ekki gert með löggjöf og
stjórnarboðum einum saman. En
Indland er þó á réttri leið og það,
sem unnizt hefir, tapast aldrei að
öllu leyti aftur.
—TIMINN
Sælir eru þeir sem eiga Jón á Strympu
og lesa hans orð
Sannarlega var það happa-
fengur að fá „Jón á Strympu og
fleiri sögur“ eftir Gunnstein
Eyjólfsson til að lesa á meðan
menn eru að ná jafnvægi á hug-
arfari sínu eftir jólaslarkið og
Sankti-Kláusar vitleysu, sem
hlýtur að vera orðin hverjum
hugsandi manni hreinasti við-
bjóður.
Það er eins og indæll sumar-
blær leiki um mann eftir nýst-
andi heiðnyrðing, þegar maður
les hinar bráðskemtilegu sögur
Gunnsteins Eyjólfssonar og
sannarlega á Vilborg Eyjólfsson
heiður skilið fyrir þá höfðing-
legu ræktarsemi við minningu
föður síns að gefa út þá ágætu
bók.
Hinn mikli andans höfðingi,
séra Jón Bjarnason, lét svo um-
mælt, að ættrækni, þjóðrækni og
Guðrækni gæti leitt íslendinga í
þessu landi yfir allar torfærur,
svo hvergi steyttu þeir fót sinn
á steini.
Sömuleiðis á Gísli Jónsson
þakkir skilið fyrir hinn ágæta
frágang á þessum ritsmíðum
frænda síns, án hans aðstoðar
hefðu þær aldrei náð fram að
ganga. Vel er það sagt í hinu
ágæta Forspjalli Gísla, að Gunn-
steinn verði þeim ógleymanleg-
ur, sem þekktu hann bezt; jafn-
vel þeir, sem ekki áttu því láni
að fagna að vera honum nákunn-
ugir, minnast hans og dáðst að
honum, því hvar sem Gunnsteinn
fór mátti það á honum sjá að
þar fór meira en meðalmaður.
Því eins og hann að vallarsýn
var hærri en meðalmenn, eins
bar hann af öðrum mönnum að
öllu atgervi: sem heimilisfaðir,
sem bóndi, sem rithöfundur, sem
söguskáld og söngfræðingur og
sem fjármálamaður; og svo var
bann sjálfkjörinn forystumaður
í öllum menningarmálum, sem
þá voru á dagskrá; strax ungl-
ingur innan við tvítugt tók hann
þátt jafnvel í sveitamálum, sem
þá var ekki títt að drengir væru
að taka þátt í slíkum málum,
en hinn bráðþroska og stórvitri
piltur varð brátt sjálfkjörinn
leiðtogi og höfðingi bygðarinnar
og hélt hann sínum höfðings-
hætti til dauðadags; átti hann
þó á síðari árum harðsnúna og
skarpvitra andstæðinga; þó hélt
hann ætíð sínum hlut, skaut
hann örvum kaldhæðni og skops
óspart að andstæðingum sínum
og hittu þær örvar andstæðing-
ana þar sem þeir voru veikastir
fyrir.
Gísli Jónsson segir að mjög
erfitt sé að selja vestur-íslenzk-
ar bækur á íslandi; hvar er þá
þessi elskulega bróðurhönd, sem
þjóðræknisforsprakkar o k k a r
eru að guma af. Þetta finnst mér
í alla staði vanþakklæti af bræðr-
unum austur þar, því svo réttum
við þeim hendur vorar óhikað og
bróðurlega, þegar við erum að
kaupa klámsögur þeirra, en auð-
vitað vantar það góðgæti í þessa
bók, því klámskur er ekki Jón á
Strympu, hans andi var hafinn
yfir svo hégómlega hluti og höf-
undur hans of vandur að virð-
ingu sinni til að láta slíka vit-
leysu sjást í bókum sínum; og
mikið má það vera, ef Norðmýl-
ingar og Þingeyingar hefðu ekki
gaman að fá þessa bók, því mjög
líkist hún mörgu því, sem úr
þeim sýslum hefir komið á prenti
fyrr og síðar. Og í Norður-Múla-
sýslu eru mörg ættmenni Gunn-
steins, því ekki munu allir ætt-
menn Jóns Bjarnasonar í Brúna-
vík vera útdauðir sem svo var
skygn að talið var, að hann sæi
í gegnum holt og hæðir; og ég
er helzt á því, að Gunnsteinn
hafi erft þá gáfu af þessum
móðurafa sínum.
Vonandi er að Vestur-íslend-
ingar taki bókinni vel og að sem
flestir kaupi hana til að eiga
hana sjálfum sér til gamans, höf-
undinum til heiðurs og útgefand-
anum til fjárhagslegrar aðstoðar.
Ef einhver er sá, sem einhverra
hluta vegna ekki getur fengið
þessa bók á þeim stöðum, sem
þegar hafa verið auglýstir, þá
skal ég senda þeim bókina póst-
frítt, ef þeir senda mér póstávís-
un fyrir þremur dollurum og 50
centum.
Gleðilegt nýár!
Vinsamlegast,
GÍSLI EINARSSON
Box 121, Riverton, P.O., Man.
Jólagjafir
tií EUiheimilisins „HÖFN“
Mr. og Mrs. S. Grimson, Van-
couver, $10.00; Mr. og Mrs. S.
Egilson, Vancouver, $20.00; Ice-
landiv Ladie’s Aid, Leslie, Sask.,
$15.00; Icelandic Ladie’s Aid,
Churchbridge, Sask., $10.00;
Scandinavian Business Men’s
Club, Vancouver, $30.00; Dr. P.
Guttormsson, Watros, Sask.,
$100.00; Mr. og Mrs. Ögmundur
Ólafsson, Vancouver, $10.00.
Safnað af Mr. Ófeigi Sigurdson
Mr. S. K. Maxson, Marker-
ville, Alta, $25.00; Mr. M. J.
Maxson, Markerville, Alta,
Markerville, Alta, $10.00; Mr. S.
$10.00; Mr. J. K. Jóhannson,
S. Maxson, Markerville, Alta,
$10.00; Mr. Jóhann Bjarnason,
Innisfail, Alta, $10.00; Mr. L.
Sveinson, Markerville, Alta,
$10.00; Mr. G. J. Björnsson,
Markerville. Alta, $10.00; Mr. J.
L. Jóhannsson, Markerville, Alta,
$10.00; Mr. W. Ma^son, Marker-
ville, Alta, $10.00; Mr. Swain
Swainson, Red Deer, Alta, $5.00;
Mr. John Hillman, Red Deer,
Alta, $10.00; Mr. A. W. Swainson,
Red Deer, Alta, $10.00; Mr. F. F.
Johnson, Red Deer, Alta, $5.00;
Icelandic Ladie’s Aid, Marker-
ville, Alta, $25.00; Mr. G. S.
Grímsson, Red Deer, Alta, $5.00;
Mr. J. S. Sveinsson Red Deer,
Alta, $1.00; Mr. E. E. Stephenson,
Red Deer, Alta, $25.00; Mr.
Ófeigur Sigurdson, Vancouver,
$25.00.
Mrs. E. Hördal, Wyayard, Sask.
$10.00; og Mrs. F. W. Finnson,
Markerville, Alta $10.00 í minn-
ingu um Egil Hördal sáluga.
Mr. Valdimar Johnson, Wyn-
yard, Sask., $100.00 í minningu
um ástríka eiginkonu og frábæra
móður — Margréti Bergsveins-
dóttur Johnson.
Mrs. Lilja Lesosky and hus-
band Tony — $10.00 í minningu
um Sigtrygg Goodman.
Grund Ladie’s Aid — $19.00 í
minningu um Mrs. Björgu
Christopherson.'
Turkeys frá: Mr. George
Ólafsson, Mr. Vatnsdal, Mr. John
Sigurdson og Miss Laura Ras-
mussen.
Oranges frá Mrs. D. Potter.
Oranges and Chocolates frá
Mrs. G. Sigurdson.
Vínarterta frá Mrs. Poulson.
Records frá Mr. og Mrs. Gunn-
laugsson, White Rock.
Hjartans þakklæti frá stjórnar
nefndiruji.
Emily Thorson, féhirðir
Business and Professional Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Winnlpeg
PHONE 92-6441
----------------------------f
\
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh Sl. Winnipeg
PHONE 92-4624
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. út-
vega peningalán og eldsábyrgC,
bifreitSaábyrgS o. s. frv.
Phone »2-7538
Phone 74-7855
ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDS0N
Ashphalt Roofs and Insulated
Siding — Repairs
Country Orders Attended To
632 Slmcoe St.
Winnlpeg, Man.
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
FOR QUICK, RELIABLE SERVICE
GIMLI FUNERAL HOME
Sími 59
Sérfrœðingar i öllu, sem að
útförum lýtur
BRUCE LAXDAL forstjóri
Licensed Embalmer
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK, MAN.
Phones: Office 26 — Res. 230
Offlce Hours: 2:30 - 6:00 p.m.
Dr. A. V. JOHNSON
DENTIST
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 92-7932
Home Telephone 42-3216
Thorvaldson Eggerlson
Bastin & Stringer
Barristers and Solicitori
209 BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
PHONE 92-8291
Dr. ROBERT BLACK
SérfræSingur 1 augna, eyrna, nef
og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 92-3851
Heimasimi 40-3794
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Dlreotor
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Office: 74-7451 Res.: 72-3917
^ jfohnny JZyan
1074 DOWNING ST. PHONE 72 Itll
WINNIPEG'S riRST
"MAILORPHONE"
ORDER HOUSE
You Name it — We Have it
Office Phone Res. Phone
92-4762 72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
-Gundry Pymore Ltd.
Britlsh Quality Fish Nettlng
58 VICTORIA ST. WINNIPEG
PHONE 92-8211
Manager T. R. THORVALDSON
Your patronage wlll be appreciated
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook St.
Selur llkkistur og annast um út-
farlr. Allur útbúnaCur sá bezti.
StofnaS 1894
Slmi 74-7474
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar.
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposite Matemity Pavilion
General Hospltal
Nell's Flower Shop
Wedding Bouquets, Cut Flowers.
Funeral Designs, Corsages,
Beddlng Plants
Nell Johnson
Res. Phone 74-6753
PHONE 92-7025
H. J. H. Palmason, C.A.
Chartered Accountant
505 Coníederatlon Llfe Bullding
WINNIPEG MANITOBA
Office 93-3587 Res. 40-5904
THORARINSON &
APPLEBY
BARRISTERS and SOLICITORS
4th Floor — Crown Trust Buildlng
364 Main St.
WINNIPEG CANADA
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hereinir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viB, heldur hita frá a6 rjúka út
met5 reykum.—SkrifiB, sfmiB til
KELLY SVEINSSON
625 WaU Street Winnipeg
Just North of Portage Ave.
Slmar: 3-3744 — 3-4431
J. WILFRID SWANSON tc CO.
Insurance in aU lts branches.
Real Kstate • Mortgagei - Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 937 181 Res. 403 480
LET US SERVE YOU
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Pon P Pnrkpr G p
B. Stuart Parker, A. F.’ Kristjansson
500 Canadlan Bank of Coramerce
Chambers
Wlnnlpeg, Man. Phone 92-3561
BULLMORE
FUNERAL HOME
Dauphin, Maniioba
Eigandi ARNI EGOERTSON, Jr.
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street Simi 92-5227
Creators of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargent Ave., Winnipeg
PHONE 74-3411
VAN'S ELECTRIC LTD.
636 Sargent Ave.
Aulhorized Home Applianoe
Dealers
General Electric
McClary Electric
Moffat
Admiral
Phone 3-4890