Lögberg - 05.02.1953, Síða 8

Lögberg - 05.02.1953, Síða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 5. FEBRÚAR, 1953 Úr borg og bygð Miðsvelrarmól „Fróns" Þar sem nú eru ekki nema tvær vikur þar til efnt verður til hins vinsæla Frónsmóts, sem haldið verður í G. T.-húsinu mánudagskvöldið 23. febrúar, kl. 8 stundvíslega, þykir stjórn- arnefndinni hlýða, að minna fólk á nærveru mótsins. Undanfarnar vikur hefir verið unnið að undirbúningi skemmti- skrár fyrir mótið. Því starfi er nú að mestu lokið. Nefndin hefir vandað til þessarar skemmti- skrár sem frekast var unnt og mega menn því búast við á- nægjulegri kvöldstund. — Það þykir því full ástæða til að minna fólk á, að takmörk eru fyrir því hversu G. T. húsið rúmar marga gesti. Fólk ætti því að tryggja sér aðgöngumiða sem fyrst. Þeir fást í Bókabúð Davíðs Björnssonar, 702 Sargent Avenue, og kosta dollar stykkið. Dagskrá mótsins verður nán- ar auglýst í næstu blöðum. THOR VIKING, ritari Fróns ☆ Úr bréfi frá Mikley, 22. janúar Fátt er í fréttum héðan; mest er talað um lítinn fisk og lágt verð á fiski; samt held ég að þetta sé nú eitthvað að lagast. Hér var haldinn safnaðar- fundur í gær og ætlar söfnuður- inn að halda upp á 75 ára afmæli sitt 24. maí næstkomandi. Talað var um að bjóða fyrrverandi prestum, sem hafa þjónað söfn- uðinum, og kannske fleirum. Eyjarbúar eru að berjast fyrir því að fá HYDRO leiðslu lagða út í eyna og hafa fengið loforð fyrir því með því móti að eyjarbúar sjálfir byggi tvö „crib“ í mjósundinu í viðbót við það, sem þeir byggðu fyrir tveimur árum síðan; eiga þeir að leggja til bjálkana, grjótið og vinnuna ókeypis, en Mani- toba Power Commission (Hydro) leggur til staurana og annað efni sem þarf, ásamt manni til að hafa umsjón með verkinu. („Crib“ er stór ferhyrningur úr bjálkum eins og kassi í laginu; staurinn fyrir leiðsluvírana er reistur í miðjunni og grjóti hlað- ið í kringum hann þar til „Cribbið“ er fult. Mikleyingar byggðu eitt „crib“ í mjósundinu fyrir tveim árum til að sanna að það gæti staðið af sér straum- ana þar). Skapti Thorvaldson, starfs- hjá Manitoba Power Commis- sion fór norður til Mikleyjar fyrir skömmu til að athuga möguleikana til að leggja raf- orkuleiðsluna til eyjarinnar. ☆ Mr. Jón Sigurðsson bygginga- meistari frá Vancouver, var staddur í borginni seinnipart fyrri viku, og var í hópi þeirra, er sátu mannfagnað Icelandic Canadian Club * í Marlborough hótelinu. ☆ Heimilisiðnaðarfélagið heldur fund á fimtudagskvöldið þann 12. þ. m., kl. 8, að heimili Mrs. P. J. Sivertson, 497 Telfer Street. ☆ Frú Kristbjörg RögnvaldS' dóttir í Gröf í Grundar firði á íslandi æskir þess að fá vitneskju um heimilisfang frænku sinnar Sæunnar Bjarna- dóttur, sem eitt sinn var til heimilis hjá A. Kristjánsson, Elfros, Sask. ☆ Meðal utanbæjarfólks, er sótti samkomu Icelandic Canadian Club á föstudagskveldið voru Ölafur kaupmaður Hallsson frá Eriksdale, séra Harald S. Sig- mar og frú, og George Johnson læknir og frú frá Gimli, og Walter leikhússtjóri Jóhannsson frá Pine Falls. Manitoba Historical og Scienti- fic Society hlaut hæstu verð- laun, er American Association for State and Local History veitir. Fékk Manitoba sögufé- lagið verðlaun fyrir að beita sér fyrir því að skrifaðar væru sög- ur hmna ýmsu þjóðarbrota hér í fylkinu. Wilhelm Kristjánsson er að skrifa sögu Islendinga í Manitoba með aðstoð Dr. Tryggva J. Oleson. ■ú Mr. Alec Thorarinsson lög- fræðingur frá Los Angeles, Cal., hefir dvalið í borginni undan- farinn vikutíma. ☆ Frú Elín, ekkja Eggerts Jó- hannssonar fyrverandi ritstjóra Heimskringlu, lézt í Vancouver þann 20. janúar síðastliðinn 89 ára að aldri. ☆ — Skemmlisamkoma — Eldri söngflokkur Fyrsta lút- erska safnaðar efnir til skemti- samkomu á miðvikudagskvöldið 11. febrúar, kl. 8 e. h. í neðri sal kirkjunnar. Verður þar til skemtunar: kórsöngur, solos, duets, quartetts, ásamt stuttri ræðu, upplestri og tableau. Er hugmyndin, að þessi samkoma líkist sem mest þeim skemti- samkomum, sem haldnar voru um og eftir síðustu aldamót. Verða þar sungin þau uppáhalds lög, sem flestir munu kannast við og hafa unun af að hlusta á og syngja. Kaffi og veitingar verða frambornar á eftir skemti- skrá. — Samskot tekin. ☆ Þjóðræknisdeildin „FRÓN" þakkar hér með Mrs. N. Otte- son, Winnipeg, fyrir bækur gefnar í bókasafn deildarinnar, allar í góðu ástandi. Innilegt þakklæti. J. Johnson bókavörður ☆ Mrs. Jóhanna Lára Eyjólfsson andaðist að heimili sínu í Riverton, Man., þann 18. janúar árdegis; hafði hún verið rúm- liggjandi í nærri tvo mánuði, en átt við veila heilsu að stríða lengi, sér í lagi hift síðari ár. Hún var fædd á Borðeyri á Mikley 14. nóv. 1886. Foreldrar hennar voru hjónin Jóhannes skipstjóri Helgason prests Sig- urðssonar, síðast á Melum í í marzmánuði verður lagður kjölur að öðru tveggja nýrra vöruflutningaskipa Eimskips MÆÐI SKJÓTUR BATI Berjist ekki vi8 suSandi andardrátt, hósta e8a andarteppu. Taki8 RAZ- MAH töflur, sem eru sérstaklega ger8- ar vegna mæBi, andþrengsla og likra <-öþægin4a<»v það verkar, skjótt og þér njöti8 fullrar svefnvær8ar. 65 c., $1.35. R-53. Melasveit, og Jakobína Sigurðar dóttir landnámsmanns Erlends- sonar. Lára ólst upp í Selkirkbæ, gekk þar á skóla og vann um hríð á skrifstofu Mr. Frank Gem- mill. Þann 17. marz 1914 giftist hún Victor (Eyjólfssyni) Gunn'- steinssyni Eyjólfssonar skálds. Victor og Lára kona hans bjuggu ávalt í Riverton. Þeim varð tveggja barna auðið: Gunn- stemn, kvæntur Sigurbjörgu Olson, búsett á Gimli, og Alice Lára, heima; 5 barnabörn eru á lífi. Tveir albræður hinnar látnu eru á lífi: Joseph, Black Bear Island, Lake Winnipeg, og Helgi, er átti heimili hjá systur sinni og manni hennar-hin síðari ár. Hálfsystkini hennar, samfeðra, eru: Lincoln, Riverton, og Mrs. Th. Magnússon, Vancouver, B.C. Mrs. Eyjólfsson var kona eink- ar vel gefin, listræn og list- hneigð, er unni öllu fögru. Hún fékk snemma ást á varanlegum verðmætum og átti innilega þrá í sál sinni eftir því fagra og full- komna. Útför hennar fór fram frá kirkju Bræðrasafnaðar AKUREYRI, 29. desember. — 1 marzmánuði verður lagður kjöl- ur að öðru hinna tveggja farm- skipa sem Eimskipafélag Islands hefur samið um smíði á hjá Bur- meister og Wain. Kjölurinn verður svo lagður að hinu í júní mánuði. Skip þessi' eiga aðeins að flytja vörur. Annað á að geta borið allt að 1700 tonn, en hitt 2500. Skipaverkfræðingur Eimskipa félagsins, Viggó Maack, skýrði Morgunblaðinu frá þessu í sam- tali um borð í Gullfossi hér á Akureyrarhöfn, í gærkvöldi. Skipaverkfræðingurinn sagði að samningar hefðu verið undir ritaðir í aprílmánuði síðastl. 1700 og 2500 DWT Stærð skipanna verður ekki hin sama á báðum og munu þau bæði einungis ætluð til vöru- flutninga. — Yfirbygging þeirra verður aftur á, eða þau verða afturbyggð, sem kallað er. Er annað þeirra 1700 dwt tonn og 240 fet á lengd, en hitt verður nokkru stærra, eða 2500 dwt og 280 fet á lengd. Áætlað er að kaupverð stærra skipsins nemi um það bil 6 mill- jónum danskra króna. Þó er þetta breytingum undirorpið, þar sem byggingarkostnaður breytist með verði efnis og kaupgjalds miðað við afhend- ingardag. Henta vel smærri höfnum Þessi skip, sem Eimskipafélag ið lætur nú byggja, munu vera vel til þess fallin að koma á smærri hafnir kringum landið. Eimskip mun því í ríkara mæli en hingað til gets sinnt óskum manna úti á landsbyggðinni um siglingar til hinna smærri hafna. Minna skipið mun aðeins rista 15 fet fulllestað, en hið stærra 17 fet. Útvegun á stáli til skipa- bygginga hefur verið all erfið undanfarið og hefur meira að segja komið fyrir að í Dan- mörku hefur þurft að leita eftir stáli alla leið til Japan. Brezkt stál Eimskipafélaginu hefur tekizt að tryggja sér stál í þessi nýju skip frá Bretlandi, svo að ekki mun standa á því. Verð á stáli hefur farið lækkandi. 1 marz og júní Að lokum sagði Maack verk- fræðingur, að í marz mundi kjöl urinn verða lagður að öðru hinna nýju skipa, en í júní 1953 að hinu síðara. Fyrra skipið á að afhendast í desember næsta ár, en hið síðara í aprílmánuði 1954. Ekki er nokkur vafi á því að þjóðin fagnar þessum nýju skip- um sínum, og munu þau enn að nokkru bæta úr hinni brýnu þörf á aukningu kaupskipaflota þjóðarinnar. Þó mun vanta mik- ið á að þörfinni sé fullnægt. Enn eigum við ekki olíuskip til milli landasiglinga, eða hentug kola- og saltflutningaskip. En vinna verður að kappi að hinu setta marki, að slendingar eigi sjálf- ir allan þann skipakost, er þeir þarfnast. —Mbl., 30. des. VÖKUDRAUMAR Eftir JÓNBJÖRN GÍSLASON Riverton, þann 22. janúar, að viðstöddu miklu fjölmenni. — Einnig var stutt kveðjuathöfn haldin 1 Mr. Langrill’s útfarar- stofu í Selkirk, að viðstöddu margmenni, skyldfólki og forn- vina, og allmargra vina frá Winnipeg. Hin látna var lögð til hinztu hvíldar í Selkirk-grafreit við hlið móður sinnar. Séra Sigurður Ólafsson þjónaði við útförina. —S. ó. ☆ The Women’s Associtation First Lutheran Church will hold their next meeting at the usual time and place Tuesday February lOth. Það er alkunn sögn að heim- urinn fari sífelt versnandi, en það er rangt, heimurinn er ætíð að batna og fullkomnast. Ef við lítum yfir slóð mannkynsins frá því fyrst að sögur hófust, er munurinn auðsær; vísindi, listir og iðnaður hafa tekið slík risa- skref að meir líkist ótrúlegum skáldsögum en sönnum viðburð- um. Það er ekki sanngjarnt að dæma um framþróun eða aftur- för mannkynsins og heimsins í heild, yfir aðeins stundar tíma- bil. Jafnvel nokkrar aldir eru ekki langur tími í slíkri sögu. Heilar kynslóðir geta fæðst, lifað og dáið, án þess nokkuð hafi áunnist, afurför jafnvel sjáan- leg. Næsta tímabil vinnur ef til vill upp alt sem tapast hefir og meira til. Slíkir hlutir velta mjög á vali þeirra leiðtoga, er þjóðirnar velja sér sem verald- lega forsjón, á hæfileikum þeirra og viðleitni að vinna gagn landi sínu og þjóð. Sannarlega er okkar dásam- legi heimur og í eðli sínu göfuga mannkyn þess umkomið og megnugt, að skapa í þessu líi'i á þessari jörð það himnaríki, sem hin kristna kirkja lofar okkur að lokinni grandvarri og dygð- ugri æfi, ef ekki væru á flestum gatna- og vegamótum falsspá- menn reiðubúnir að sýna og sanna með óhrekjandi rökum, að slíkur guðsríkisdraumur geti al- drei orðið annað en draumur — heimskulegur og hættulegur draumur. Þrátt fyrir alt og alt er maður- inn í innsta eðli sínu góð og göfug vera, þótt ýmsar mótsagn- ir virðist stundum bera það til baka, en hann er ekki yfirleitt eða ætíð að sama skapi gáfaður og framsýnn. Einmitt þess vegna er misindis hjarðsveinum mögu- legt að misbeita valdi sínu á ýmsa lund; þeir hundbeita stundum hjörðina, reka hana út í hverja ófæruna eftir aðra,*láta hana standa úti í hörkum og hríðarbyljum til þess að fram- færið kosti sem minnst. Ríkjandi þjóðskipulag, klerk- ar kirkjur og skólar skapa aldar- háttinn og hafa ætíð verið og eru enn í dag lærimeistarar ein- staklingsins. Sál mannsins er sem mjúkur leir í höndum leir- kerasmiðsins, £g stundum virð- ist þess nokkur vottur sýnilegúf að guðsmyndin hafi dálítið af- lagast í höndum og meðferð meistaranna, en það sannar ekki að maðurinn sé í eðli sínu vond- ur, heldur hitt; að hann er sinn- ar tíðar barn og auðgjarn fyrir áhrifum, en innst í hjarta hans er falinn hinn heilagi eldur vizku og dygða, er bíður þess að verða endurvakinn af nýjum meisturum og spámönnum til þess að varpa birtu og yl á okk- ar nú í dag kalda og kærleiks- lausa heim. Aldarhátturinn, þetta volduga afl, getur gefið anda manns og athöfn það form, er það kýs; það getur smám saman deyft og dreift hinum lakari hvÖtum, sem þó eru í upplagi hans, og glætt hinar betri svo þær nái erfða- festu í skapgerð einstaklingsins; það getur með þrotlausri ár- vekni og góðu fordæmi, vakið og haldið vakandi því bezta, er í sál mannsins býr og kennt honum að lifa í bróðurhug við alla menn og elska náungann eins og sjálfan sig. Á hinn bóginn er einnig auð- velt og í lófa lagið að snúa myndinni gjörsamlega við. Þa§ er mögulegt með alda áróðri að grafa hinar beztu og háleitustu hvatir hans svo djúpt í hans eigin undirvitund, að hann viti ekki sjálfur um tilveru þeirra og nálægð. Slíkt getur svift manninn svo gjörsamlega ráði, rænu og dómgreind, að hann fremji óhappa- og hefndarverk, í þeirri trú og skoðun að slíkt tryggi honum líkamlega velferð og eilífa sáluhjálp. En þrátt fyrir slíka ógæfu og harma, eru þau tímabil stuttur þáttur í sögu mannkynsins. Gæfa mannsins er svo rík og fram- vinda tímans svo voldug, að gjörningaveðrunum slotar og maðurinn fær aftur fullt vit og bætir eftir beztu getu fyrir brot sín og misgjörðir gegn sjálfum sér og öðrum; hann bætir og byggir heiminn á nýjan leik. Heimurinn batnar við hverja eldvígslu, er hann hlýtur. FRAMHALD Aths. í greininni frá 15. jan. varð óþægileg prentvillæ Þar stóð í síðasta dálki: „Þráðlaus glíma og fangbrögð“. Á að vera: „Þrotlaus glíma“ o. s. frv. —J. G. Fréttir . . . Framhald af bls. 4 konar tómstundastörf verði iðkuð í félagsheimilinu. I þessari viku hefjast í Þjóð- leikhúsinu sýningar á sjónleikn- um Stefnumót í Senlis eftir franska höfundinn Anouihl. — Sjónleikurinn Rekkjan, sem sýndur var í Þjóðleikhúsinu framan af í vetur við mikla að- sókn, verður nú sýndur á nokkr- um stöðum utan Reykjavíkur, og hefir þjóðleikhússtjóri látið gera sérstök leiktjöld, sem hæfa minni leiksviðum en í Þjóðleik- húsinu. Leikendur eru aðeins tveir. Fyrsta sýningin var í Hlé- garði í Mosfellssveit í gærkveldi, og tvær sýningar verða í Kefla- vík 1 dag. Unnið er í Þjóðleik- húsinu að undirbúningi að sýn- ingu á nýja leikritinu eftir Davíð Stefánsson um Hans Egede, en þar á Jón Sigurbjörnsson að leika aðalhlutverkið. ☆ Hingað er væntanleg 75 manna hljómsveit flughers Bandaríkj- anna hinn 6. þ. m., og er ráðið að hún leiki fjórum sinnum í Þjóðleikhúsinu á vegum Tón- listarfélags Reykjavíkur og skal ágóði allur renna til Barna- spítalasjóðs Hringsins. Stjórn- andi hljómsveitarinnar er George S. Howard ofursti. Með í förinni er 25 manna kór, er syngja mun í Hafnarfirði. ☆ í gær var opnuð í Reykjavík sýning á kínverskum listmun- um og myndum er þetta hluti af farandsýningu, sem verið hefir á Norðurlöndum að undan- förnu og er hingað fengin fyrir tilstilli kínverska sendiráðsins í Kaupmannahöf n. ☆ Menntamálaráðuneytið hefir gefið út safn nýyrða, er dr. Sveinn Bergsveinsson hefir tek- ið saman. Eru í safni þessu um 6000 orð, og nær það samt ekki nema yfir fáar greinar. Nýyrði í safninu eru yfirleitt miðuð við IVI ESSU BOÐ Fyrsta lúterska kirkja Séra Valdimar J. Eylanda... Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 8. febrúar: Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli á hádegi Islenzk messa kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson það, að þau eru síðar fram komin en þau orð, sem prentuð eru í orðabók Sigfúsar Blöndals. Bók- in er 110 bls. ☆ Samkvæmt skýrslu frá Á- fengisverzlun ríkisins hefur á- fengisneyzla farið minnkandi hérlendis frá 1946. Það ár nam hún tveimur spírituslítrum á mann, en á sl. ári 1,34 spíritus- lítrum á mann. í fyrra var á- fengissala hérlendis röskar 64 miljónir króna, eða 2Vz miljón minni en árið áður. Nú um áramótin var tekið af leyfi það, sem Hótel Borg hafði til vínveitinga og telur eigand- inn, að tap verði mikið á rekstr- inum, þegar hann hefur verið sviptur leyfi þessu, og lét hann því loka veitingasölum hótel- sins í fyrradag. -— Bæjarstjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að skera úr því með atkvæða- greiðslu í bænum, hvort hafa skuli það framvegis opnar á- fengisútsölur. ☆ Stofnaður hefur verið áheita- og minningarsjóður Hóladóm- kirkju og er tilgangur hans að prýða Hóladómkirkju og um- hverfi hennar og fegra staði, er minna á þá höfuðbiskupa, er þar hafa setið. Sjóðurinn er stofnað- ur með 1100 króna peningagjöf frá prestum í Hólastifti hinu forna. Sendið engin meðöl til Evrópu þangað til þér hafið fenglð vora nýju verðskrá. Skrifi8 eftlr liinni nyju 1953 vcrðskrií. sem nii er á tnkteinuin. VerS hjá oss er mlkln lie(trn en nnnnrs stnðnr í t’nnndn. RIMIFON — $2.10 fyrir 100 töflur STREPTOMYCIN — 50c grammið Scnt frá Kvrópu mn víða vcrold, jafnvcl austan járntjaldsins. — Póst^jald innifallð. STARKMAN CHEMISTS 403 BTXK»R ST. WKST TOItONTO STRIVE FOR KNOWLEDOE In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Commence Your Business Training immediately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PRESS LIMITED PHONE 74-3411 695 SARGENT AVE., WINNIPEG /

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.