Lögberg - 16.04.1953, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 16. APRÍL, 1953
5
Pftftf
fffffff
/UiteAHAL
rVENNA
Ritstjón: INGIBJÖRG JÓNSSON
FLEST BÖRN ERU „VANDRÆÐABÖRN" AÐ
EINHVERJU LEYTI
Orsökin er oítast einhvers konar hugarvíl
Amerísk kona, barnasálfræð-
ingur að menntun, hefir komizt
að þeirri niðurstöðu, eftir rann-
sóknir og samtöl við mörg
hundruð barna á aldrinum frá
eins til tólf ára, að flest börn
eru „vandræðabörn“ að ein-
hverju leyti.
Hún tók eftir því, að viss
vandamál eru einkennandi fyrir
hvern aldur. Sennilega vita flest-
ir að 2—3 ára börn eru oft þver
og þrjósk. Ef þessum skapbrigð-
um barnsins er tekið með skyn-
semi og þolinmæði og aðal-
áherzlan er lögð á það, að barnið
komist ekki í verulegan æsing,
þá er bezt farið.
Börn, sem eru tveggja til fjög-
urra ára hafa oft litla matarlyst,
að áliti mæðranna. En barn, sem
hefir fengið að borða nægju sína
frá fæðingu, telcur ekki upp á
því af sjálfsdáðum að neita sér
um mat, sem það þarfnast. Þeg-
ar börnin eru orðin 5—6 ára
vaknar spurningin um það, að
hve miklu leyti barnið eigi að fá
að fara um eitt síns liðs og hvort
það eigi að fá að heimsækja
kunningjana.
Regla og aðhald
Það er eðlilegt að þegar barnið
er komið á þennan aldur neyðist
foreldrarnir til að setja því fleiri
reglur og halda fastar við þær,
heldur en þegar barnið var
yngra. Áhugi barnsins á um-
hverfinu vex 1 réttu hlutfalli við
getu þess til að skoða sig um.
Sálfræðingurinn komst líka að
þeirri niðurstöðu, við rannsókn-
ir sínar, að börn foreldra, sem
álitu sig taugaveiklaða, áttu
oftar í vandræ^um með sjálf sig.
Það er þess vegna mjög mikils-
vert, að foreldrar reyni að leysa
sín eigin vandamál og sýna
fyllsta jafnaðargeð gagnvart
barninu. Börn, sem veikluð eru
líkamlega eða vanþroska andlega
eiga venjulega við fleiri vanda-
mál að stríða en hin, sem hraust
eru.
Orsök in er hugarvíl
Ekki er þó hægt að kalla barn-
ið „vandræðabarn“, nema mjög
langur tími líði áður en lausn
fæst á vandamáli þess. Foreldr-
arnir verða að gera sér far um
að komast að því, hvað liggi til
grundvallar, þegar barnið kemst
úr jafnvægi. Alltaf er hægt að
kenna um einhverju hugarvíli,
ósamræmi í hugarheimi barns-
ins, en ekki er hægt að leysa
vandamálið án þess að greiða úr um
hugarvílinu.
Oft á þetta rætur sínar að
rekja til þess, að barnið skortir
öryggiskennd. Án þess að það
geri sér það ljóst, er það hrætt
um að foreldrunum þyki ekki
vænt um það. Þetta öryggisleysi
getur átt upptök sín í því að nýtt
systkini fæðist, að barnið hefir
fengið mjög strangt uppeldi o. fl.
Betel Gifts
February 1953
Mr. & Mrs. Guðjón Frikriks-
son, Betel, $20.00; Mrs. Hansína
Olson, Betel, $5.00; Mrs. Kristj-
§ma Bjarnason, Betel, $5.00, í
minningu um Mrs. Ásdísi Hin-
riksson; Mrs. Steinunn Valgard-
son, Betel, $2.00; Mrs. Henrietta
Johnson, Betel, $1.00; Vinkona
Betel, $5.00; Mr. Gísli Gíslason,
Lundar, $10.00; Mrs. Josepa
Olafson, Morrisville, Pa., U.S.A.,
$25.00.
Lindbergh flugkappi fær hálfa aðra
milljón fyrir endurminningar sínar
Þá skal ég stríða þér
Sum börn sýna bein merki
þessa öryggisleysis, ýmist með
því að sjúga fingur fram eftir
aldri, þau eru vælugjörn eða fá
martröð á næturnar. Önnur börn
sýna þetta á annan hátt, og þá
er oft erfitt að skilja að orsökin
skuli vera þessi. Sex ára dreng-
ur gerði t. d. allt sem hann gat
til að angra móður sína — eyði-
lagði leikföngin sín, grenjaði,
hámaði í sig matinn með ljótum
tilburðum, stríddi yngri systur
sinni og gretti sig, þegar móðir
hans leit á hann. Ef honum var
neitað um tuttugu og fimm aura
til að kaupa sér sælgæti fyrir,
átti hann það til að segja: „Þá
skal ég stríða þér í allan dag.“
Auðvitað er það erfitt verk
að hjálpa barhi, að öðlast jafn-
vægi hugans, þegar þannig er
komið. Orsökin til þessa fram-
ferðis hans var nefnilega sú, að
hann vildi vita „hve langt hann
gæti gengið, án þess að móðir
hans yrði reið“. Aðalatriðið var
að komast „sem lengst“, því þá
hlaut henni að þykja vænt um
hann. Hann verður að sannfæra,
bæði í orðum og verki, að móður
hans þyki raunverulega vænt
um hann.
—Kvennasíða Mbl.
☆ ☆ ☆
HIÐ FAGRA KYN ER HIÐ HRAUSTARA
March 1953
Sveinn Sveinsson, Betel, $20.00
Mrs. Guðrún Sturlaugson, Betel,
$1.00; Mr. & Mrs. Daníel Peter-
son, Betel, $5.00; Mr. Daníel Hall
dorson, Betel, $1.00; Mrs. Matt-
hildur Borgfjord, Betel, $2.00;
Mrs. Guðrún Olafsson, Foam
Lake, Sask., $10.00. í minningu
elsku ömmu — Guðrúnu
Hólm, $10.00, frá Signý, Kristínu,
Carol og Buddie, Árborg, Man.;
Vilborg og Vigfús J. Guttorms
son, Lundar Man., $100.00, í hug-
ljúfri minningu um foreldra og
stjúpmæður; Lutheran Ladies
Aid, Baldur Man., $25.00; Mr &
Mrs. Tryggvi Johnson $2.00;
Mr. & Mrs. Magnús Skardal
$2.00; Mr. Ingi Sigurdson $2.00;
Mr. & Mrs. Mundi Johnson $1.00;
Mr. & Mrs. Magnús Johnson
$1.00; Mr. & Mrs. Einar S. Isford
$1.00; Mrs. Chris Johnson $1.00;
Mr. Tryggvi Johnson, Jr. $1.00;
Mr. & Mrs. Alli Sigvaldason
$2.00; Mr. & Mrs. Allan Thor-
leifson $1.00; Mr. & Mrs. S. A.
Anderson $5.00; Mr. & Mrs.
Bergur Johnson $2.00; Mr. &
Mrs. H. Jónasson $1.00; Mr. &
John Davidson $1.00; Mr. & Mrs.
Carl Thorsteinson $2.00; Mr. &
Mrs. A. W. Johnson $1.00; Mr. &
Mrs. E. A. Anderson $5.00; Mr. &
Mrs. John A. Sveinsson $3.00;
Mrs. Árni Sveinsson $1.00; Miss
Anna Sveinsson $1.00; Mrs. L. W.
Gordon $0.50 Mr. & Mrs. John
Goodman $2.00; Mr. & Mrs. Jó-
hann Johnson $2.00; Miss Re-
becca Anderson $1.00; Mrs.
Kristín Anderáon $1.00; Mrs.
Halldóra Peterson $5.00; Mr. &
Mrs. Kristján Dalman $2.00;
Mr. & Mrs. Kári S. Johnson
$1.00; Mr. G. F. Jónasson, Key-
stone Fisheries, Winnipeg, 1 Box
Dressed Whitefish; Miss Anna
Nordal, Betel Staff, Ice Cream
for Betel Birthday Dinner.
Með innilegu þakklæti frá
nefndinni.
S. M. Bachman. Treasurer
Ste 40 Bessborough, Apts.
380 Assiniboine Ave.
Winnipeg, Man.
Þær biríast í tíu köflum í viku-
ritinu Saturday Evening Post og
ná til 25 ára aldurs höfundarins
1927.
Charles A. Lindbergh, hinn
frægi Bandaríkjaflugmaður,
hefir selt vikuritinu Satur-
day Evening Post, sem
mörgum er kunnugt hér á
landi, ævisögu sína fram til
júní 1927. Á ævisagan að
koma í ritinu tíu vikur í röð
og er þá lokið.
Borgunin, sem Lindbergh fær,
eru 100 þúsund dollarar, eða
I. 632.000 íslenzkar krónur, og
borgar blaðið þannig 163 þúsund
íslenzkar krónur fyrir hvern af
þessum tíu' köflum.
Verður fyrsti kaflinn í blaðinu
II. apríl, en bókin kemur út í
Stefna ber að
aukinni bókhneigð
þjóðarinnar
Rætt við
ÁRNA BJARNARSON
um bókaverðið
í fyrradag var opnaður nýr
bókamarkaður 1 Listamanna
skálanum, en það eru nokkr-
ir bókaútgefendur frá Akur-
eyri, sem standa að þeim
markaði. Aísláttur frá upp-
runalegu verði bókanna er
mikill, eða allt að því
áttatíu af hundraði.
Karlmanni þykir lítill heiður,
ef sagt er, að hann sé ekki kven-
sterkur, eða hafi ekki kven-
mannsafl. Enda býr venjulega
meira átaka-afl í vöðvum
karla en kvenna. Samt sem
áður virðast konur vera sterkari
á ýmsum sviðum. Þær eru
hraustari. þ. e. gæddar meiri
lífsþrótti og meiri mótstöðu gegn
sjúkdómum og öðrum deyðandi
öflíim, eins og eftirfarandi stað-
reyndir sýna.
1. Konur verða 2—5 árum
langlífari en karlar. Að nokkru
getur þetta stafað af því, að
þeim er síður hætt við slysum,
en á móti koma að vísu ýmsar
afleiðingar í sambandi við með-
göngu og barnsfæðingar, jafn-
vel dauðsföll. Ennfremur eru
langlífishorfur kvenna nokkru
meiri en karla, eftir að komið
er yfir sextugsaldurinn, og mun-
ar það hálfu til heilu ári.
2. Á 1. aldursári eru sveinbörn
viðkvæmari en meybörn, og
sama máli gegnir um börn og
unglinga yfirleitt, að stúlkum
verður síður en piltum meint af
ýmis konar hrakningum og
áföllum.
3. Konum, sem ganga með
sveinbörn, er hættara við óhöpp-
um, svo sem fósturlátum, fæð-
ingum fyrir tímann, dauða fóst-
ursins og andvana fæðingum,
heldur en ef um meybörn er að
ræða. Og meybörn fædd fyrir
tímann hafa meiri lífsmörgu-
leika en sveinbörn.
4. Dánartala úr smitandi sjúk-
dómum, þar á meðal berklum
og lungnabólgu, er 40—50%
hærri hjá körlum en konum.
5. Þótt of hár blóðþrýstingur
sé tíðari meðal kvenna en karla,
virðast þær þola hann betur, því
að miklum mun fleiri karlar en
konur deyja úr sjúkdómum í
hjarta og æðum.
6. Konum er að vísu hættara
en körlum við sjúkdómum í lifur
og gallblöðru. En hins vegar eru
ýmsir sjúkdþmar í meltingar-
veginum tíðari meðal karla, svo
sem botlangabólga (helmingi
tíðari) og sár í maga og skeifu-
görn (þrisvar sinnum tíðari).
7. Kvendýr virðast einnig
hraustbyggðari en karldýr, eins
og þessi tilraun sýnir: Sterkt
miðflótta-afl var látið verka á
ýmsar dýrategundir (mýs, ketti,
kanínur, apa). Karldýrin dráp-
ust næstum með tölu, en 90%
kvendýranna lifðu tilraunina af.
8. Alls konar vanskapnaður er
miklum mun tíðari hjá körlum
en konum.
—TIMINN
Hjónvígsla í
Winnipegosis
Á páskadaginn, 5. apríl., voru
þau Malvin Sigurjón Einarsson,
Winnipegosis, Man., og Ólafvía
Helen Clarice Thorsteinsson
gefin saman í hjónaband af séra
Rúnólfi Marteinssyni, D.D., frá
Winnipeg, í „United“ kirkjunni
í Winnipegosis, að viðstöddu
fjölmenni. Svaramenn voru: —
Mrs. O. Einarsson, systir brúðar
innar, frá Flin Flon, Man., og
bróðir brúðgumans, Lloyd Sig-
valdi Einarsson, Winnipegosis.
Brúðkaupsveizla var haldin
samkomusal bæjarins, og var þar
stór hópur skyldmenna og ann
ara vina. Svaramaður brúðgum-
ans mælti fyrir minni brúðhjón-
anna. Systir brúðgumans, Miss
Sylvia Einarsson söng einsöng.
Alt fór samsætið fram með á
gætum og var stundin öllum
viðstöddum til mikillar ánægju
Sterk vinsemd fylgir brúðhjón-
unum og biður þeim allrar blesS'
unar á öllum ókomnum stund-
um.
Daginn eftir brúðkaupið lögðu
brúðhjónin af stað í bíl sínum í
ferðalag til Winnipeg, Nýja-
íslands og ef til vill til Banda^
ríkjanna.
Heimili þeirra verður í Flin
Flon, Man.
1 gær ræddi tíðindamaður
blaðsins við Árna Bjarnarson
bókaútgefanda frá Akureyri, en
hann veitir bókamarkaðinum
forstöðu. „Eins og sjá má á bóka-
skránni, þá er margt ágætra
bóka fáanlegar með lágu verði
hér á markaðinum,“ sagði Árni
og benti yfir hinn rúmgóða sal
Listamannaskálans, þar sem
borðin svignuðu undir bóka-
stöflunum. „Við munum birta
bókalista okkar í Tímanum á
fimmtudaginn, svo fólki úti um
land gefist kostur á að kynna
sér hvaða bækur eru á boð-
stólum.“
Bókamarkaðir afia nýrra
bókavina
„Ég hef margsinnis orðið var
við það,“ sagði Árni, „að bóka-
markaður aflar nýrra bókavina.
Þegar menn geta fengið bækur
svo lágu verði, kaupa þeir
margar bækur í einu, sem verð-
ur þess svo valdandi, að menn
verða stöðugir bóklesendur og
halda áfram að safna bókum.
Annars má selja allar bækur
upp með skynsamlegri útgáfu.“
Bændahöfðingjar og bækur
Remarque
„Hér á markaðinum eru allar
bækur sameignarfélagsins á
Akureyri, en það eru bækur
hinnar fyrri útgáfu Pálma H.
Jónssonar. Hér er hin merka bók
Bændahöfðingjar og ennfremur
fáein eintök af Sigurboganum og
Vinunum eftir hið ágæta skáld,
Erich Maria Remarque. Enn-
fremur eru hér bækur frá bóka-
útgáfunni Eddu og bókaútgáfu
Þorsteins M. Jónssonar.“
—TÍMINN, 11. marz
heilu lagi í haust hjá Scribner’s
forlagi.
Öll er frásögnin um 180 þús-
und orð, og byrjaði Lindbergh
að rita hana fyrir fjórum árum.
Er nokkuð sagt frá æskuárum
hans í Minnesota, og frá fyrstu
flugárum hans, en hann flaug
áætlunarferðir. En aðalefnið er
það, þegar hann flaug einn síns
liðs yfir Atlantshaf á undan öll-
um öðrum, 21. maí 1927. Hóf
hann sig þá á loft á Roosevelt-
ílugvellinum á Langeyju við
New York, og lenti 33 stundum
og 29 mínútum síðar á Le Bour-
get-vellinum við París. Er vega-
lengdin 5776 km. (eða viðlíka og
frá Islandi til Abbessíníu). Lind-
bergh ætlaði að hafa kött með
sér í flugvélinni, til heilla, og
var búið að rétta honum köttinn
upp í véhna; en hann rétti hann
út aftur, eftir örstutta stund, og
sagði: að það væri réttara að lofa
kattar-greyinu að liía hvernig
sem færi.
Eins og getið var um, nær frá-
sögnin ekki nema fram í júní
1927, og því ekki getið þar um,
þegar syni Lindberghshjónanna,
19 mánaða gömlum, var rænt,
en hann fannst síðar myrtur.
Hafði ætlunin verið að -þvinga
fé út úr foreldrunum, en þetta
skeði fyrir 21 ári. Böndin bárust
þá að bifreiðastjóra að nafni
Bruno Richard Hauptmann, og
var hann dæmdur til dauða og
tekinn af lífi í apríl 1936, en hann
hélt sífellt fram sakleysi sínu.
Lindbergh er fæddur 4. febrú-
ar 1902 og var því ekki nema 25
ára, er hann flaug yfir Atlants-
haf. Hann giftist 27 ára gamall,
í maí 1929, Önnu Spencer
Austfjarðabátur
mjög hætt kominn
stórsjó
i
Brotnaði og hálffyllti vélarhús út
af Hornafirði, en náði þó höfn
á Djúpavogi
Frá fréttaritara Tímans
á Seyðisfirði
Fyrir nokkrum dögum mun-
aði litlu, að illa færi, er vél-
báturinn Njörður frá Seyð-
isfirði fékk á ság brotsjó
skammt utan við Horna-
fjörð. Báturinn fór fyrst til
Djúpavogs eftir áfallið, en
er nú kominn heim til
Seyðisfjarðar aftur og átti
fréttaritari Tímans á Seyðis-
firði tal við skipverja í gær.
Morrow, er var dóttir þáverandi
sendiherra Bandaríkjanna í
Mexico, er var velkunnur stjórn-
málamaður og miljónaeigandi.
Þau Lindberghshjónin komu
hingað til Reykjavíkur árið 1931,
er þau flugu kringum Atlants-
hafið. Þau eiga nú heima í
Scott’s Cove, Darieu, Connecti-
cut í Bandaríkjunum.
Var á leið frá Hornafirði
Báturinn var að fara frá
Hornafirði og ætlaði til Djúpa-
vogs. Veður var hið versta og
stóð vindur og sjór á land af
hafi. Bátnum gekk vel út úr
Hornafirðinum, en hann hafði
ekki farið langt norðaustur með
ströndinni, þegar versna tók í
sjóinn.
Eftir nokkra siglingu fékk bát-
urinn svo á sig brotsjó, sem
ekki var hægt að komast undan.
Braut hann nokkuð ofan þilja og
færði flest lauslegt úr lagi í skip-
inu. Kom mikill sjór í skipið við
ólagið og gekk sjórinn hátt upp
á vélina í vélarhúsinu.
Vélin hélt áfram að ganga
Telja skipverjar það gæfu sína
í þessum hrakningum, að vélin
stöðvaðist aldrei, þrátt fyrir að
sjór kæmist í vélahúsið við ó-
lagið. Var hægt að nota véldæl-
ur skipsins til að ausa það og
rétta aftur. Komust skipverjar
heilu og höldnu til Djúpavogs.
Meðal þess, sem skolaði fyrir
borð af bátnum, var loðnunót.
Hún fannst síðar á reki í sjón-
um, en mikið skemmd og rifin.
—TÍMINN, 13. marz
Lesið Lögberg
Háar fylkistekjur
Fylkishirðirinn, Ronald D.
Turner, lagði fram í Manitoba-
þinginu í fyrri viku fjárlaga-
frumvarp sitt fyrir fjárhagsárið
1. apríl 1953 til 31. marz 1954 og
nema áætlaðar tekjur 55 miljón-
um dollara, og þrátt fyrir stór-
aukin útgjöld til margháttaðra
framkvæmda, er þó ráðgert að
tekjuafgangurinn nemi því sem
næst sjö hundruð þúsundum
dollara.
Kirkjuþingsferðin 1953
Hið sextugasta og níunda ársþing Hins ev. lút. kirkjufelags
Islendinga í Vesturheimi, verður haldið í Seattle, Wash-
ington, dagana 24.—27. júní n.k. og hefst í kirkju Hallgríms-
safnaðar þar í borg, á miðvikudaginn, 24. júní, kl. 2 e. h.
Framkvæmdarnefnd félagsins hefir tekist að komast að
samningum við Canadian Pacific járnbrautarfélagið um
sérstakan vagn fyrir kirkjuþingserindreka, og aðra, sem fara
vilja vestur þann dag sem tiltekinn er, og einnig afslátt á
fargjaldi, ef nógu margir gefa sig fram i tíma til fararínnar.
Þessi samingur er þó skilyrðisbundinn sem hér greinir:
1) Fargjaldið verður að greiða fyrir 24. mai.
2) Að minnsta kosti fimmtán manns verða ag gefa
sig fram til fararinnar, með mánaðar fyrirvara.
3) Menn skuldbinda sig til að koma aftur austur
innan mánaðar, frá því af stað er farið.
Fargjaldið, að meðtöldum svefnvagni, (lægra rúmi), er $86.30,
báðar leiðir. Vilji menn nota efra rúmið sparast $4.00. Af-
slátturinn á fargjaldi nemur þannig $13.00, að viðbættum
$3.00, fargjaldinu frá Vancouver til Seattle.
Væntanlegum erindrekum frá Minnesota og Norður Dakota
er á það bent, að járnbrautarfélögin í Bandaríkjunum, hafa
ekki „tourist“ fargjöld á lestum sínum, og myndu þeir því
spara rúmlega $26.00 með því að ferðast norðan línunnar, og
auk þess njóta sjóferðarinnar frá Vancouver til Seattle.
Lestin leggur af stað frá C.P.R. stöðinni x Winnipeg kl. 10:15,
fyrxr hádegi, (Standard Time) á sunnudaginn, 21. júní. Þeir
sem ferðast vilja sjóleiðis frá Vancouver til Seattle, halda
áfram, áleiðis frá Vancouver til Victoria, á þriðjudag, 23.
júní, kl. 10 f. h., og koma til Seattle, kl. 8, að kvöldi sama
dags.
Trauðla mun fmnast fegurra landslag en þar sem Kanadiska
Kyrrahafslínan liggur. Lestin fer um þessi héruð að degi til,
og gufuskipið frá Vancouver til Seattle fer um eyjasundin
fögru um hábjartan dag. Hér gefst tækifæri til óvenjulega
skemmtilegrar ferðar, einkum fyrir þá, sem ekki hafa farið
þessa leið áður. Vagnar þeir, sem notaðir verða, eru nýir,
með loftkælingu og öðrum nýmóðins útbúnaði.
Sendið umsóknir yðar til:
\ N. O. BARDAL, Treas. Ice. Synod,
841 Sherbrook St.,
Winnipeg, Man.