Lögberg - 16.04.1953, Side 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 16. APRÍL, 1953
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Séra Valdimar J. Eylanda
Heimili 686 Banning Street
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjuro
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
— Argyle prestakall —
Séra Jóhann Fredriksson
Sunnudaginn 19. apríl:
Baldur:
Messa á íslenzku kl. 11 f. h.
Sunnudagaskóli kl. 2 e. h.
Brú:
Messa á ensku kl. 2 e. h.
Safnaðarfundur á eftir messu.
Glenboro:
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h.
Messa á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudaginn 26. apríl:
Grund:
Messa á ensku, kl. 2 e. h.
Ársfundur safnaðarins eftir
messu.
Baldur:
Messa á ensku, kl. 7 e. h.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 19. apríl:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli á hádegi.
Ensk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
— Gimli Lutheran Parish —
H. S. Sigmar, Pastor
April 19th (Sunday):
9 A.M. Betel.
11 A.M. Gimli (Communion)
2 P.M. Geysir (Followed by
meeting of Congreation).
7 P.M. Gimli.
Úr borg og bygð
Síðastliðinn mánudag brann
til kaldra kola heimili hinna
mætu hjóna Mr. og Mrs. Jón
Steinthorsson að Vogar, Man.
Litlu sem engu af innanstokks
munum varð bjargað.
☆
On Tuesday evening, April 28,
in the First Lutheran Church
lower auditorium, the Jon
Sigurdson Chapter, I. O. D. E.,
will offer some very good enter-
tainment, when Miss Gloria
Sivertson will show coloured
slides of some charming scenesi
and places she visited last sum-
mer on her trip to Europe and
Iceland.
Miæ Sivertson, a Winnipeg
school teacher and musician,
will give a commentary on fhe
pictures and there will be a
musical program.
Watch for further announce-
ments of this concert in next
week’s issue of this paper.
—H. D.
☆
Á mánudaginn kemur leggur
af stað áleiðis til íslands Mr.
Páll R. Johnson leikhússtjóri í
St. Vital; hann er ættaður úr
Miðfirði og kom hingað þriggja
ára að aldri með foreldrum sín-
um, þeim Guðmundi og Ingveldi
Johnson, er lengi voru búsett í
vestanverðri Geysisbygð í Nýja-
Islandi, en nú eru bæði látin.
Páll á systir á íslandi, er hann
hefir aldrei augum litið og
frændlið margt. Hann siglir frá
Quebec á vegum Cunard eim-
skipafélagsins og kemur með
því til baka. Páll mun verða um
fjóra mánuði að heiman og auk
dvalarinnar á fslandi, ætlar
hann sér einnig að heimsækja
Bretland, Frakkland og Þýzka-
land.
☆
Mr. og Mrs. H. W. Sigurgeirs-
son frá Hecla komu til borgar-
innar í vikunni, sem leið ásamt
þremur börnum sínum.
☆
Þau Mr. og Mrs. Helgi G.
Tómasson og Mr. Gunnar Tómas
son frá Hecla voru hér í heim-
sókn í fyrri viku.
☆
Miss Theodora Hermann lagði
af stað suður til California á
föstudaginn til tveggja mánaða
dvalar þar syðra.
Mr. Ólafur Hallsson kaup-
maður frá Eriksdale var staddur
í borginni í fyrri viku.
☆
Mr. P. N. Johnson, fyrrum
timburkaupmaður að Mozart,
Sask., lagði af stað suður til Los
Angeles, Cal. á þriðjudags-
kvöldið í heimsókn til systur
sinnar, sem þar er búsett, auk
annars frændliðs, sem heima á
þar syðra.
☆
Lestrarfélagið á Gimli efnir til
hinnar árlegu samkomu til arðs
fyrir bókasafn sitt á föstudags-
kvöldið þann 24. þ. m., og hefir
að öllu verið hið bezta til skemti-
skrár vandað. Ræðumaður á sam-
komunni verður Gísli Jónsson,
ritstjóri, er segir frá heimsókn
sinni til fslands í fyrra.
☆
Mr. J. B. Johnson frá Gimli brá
sér suður til Duluth, Minn., í
vikunni, sem leið.
☆
Virgil Anderson, nýútskrifað-
ur guðfræðingur frá lúterska
prestaskólanum í Minneapolis,
flytur guðsþjónustu í kirkjunni
á Lundar, næstkomandi sunnu-
dagskvöld, 19. apríl, kl. 7:30.
Allir velkomnir. Er þess vænst
að fólk fjölmenni.
Hinn 7. þ. m., lézt á sjúkra
húsi í Vancouver Júlíus Thorson
fésýslumaður eftir langvarandi
vanheilsu; hann var kvæntur
Emily, systur Victor B. Ander
sonar bæjarfulltrúa 1 Winnipeg.
☆
Frú Guðrún Hallsson frá
Vogar er stödd í borginni þessa
daga.
Stúkan SICULD
heldur fund sinn á mánudags-
kvöldið þann 20. apríl, kl. 8. —
Vænta meðlimir að hann verði
sem allra fjölsóttastur.
Gestur frá íslandi
Um síðustu helgi kom hingað
í stutta heimsókn hr. Jón Emil
Guðjónsson forstjóri við Bóka-
útgáfu Menningarsjóðs í Reykja-
vík. Eins og sagt var frá áður hér
í blaðinu, kom hann vestur fyrir
tveimur mánuðum í boði utan
ríkisráðuneytis Bandaríkjanna.
Menningarsjóður gefur út, svo
sem vitað er, tvö síðustu bindin
af Sögu íslendinga í Vestur-
heimi, sem Dr. Tryggvi J. Ole-
son hefir samið og safnað til.
Myndhöggvarinn Guðmundur
Einarsson frá Miðdal telur vera
möguleika til útflutnings ís-
lenzkra leirmuna. Ennfremur tel-
ur hann vafalaust, að hér megi
framleiða postulínsvörur úr ís-
lenzkum hráefnum, og hefur
enda reynt það sjálfur, veggflísar
úr leir og eiriangrun í rafmagns-
tæki.
Guðmundur á sem svarar hálf-
ri postulínsverksmiðju, en hefur
hvorki fengið að kaupa inn vél-
ar, svo að verksmiðjan verði full-
Merkur fornleifa-
fundur í Róm
ítölsk blöð ræddu fyrir nokkru
stórmerkan fornleifafund í rúst-
um Palatínsins og Forum Rom-
anum í Róm. Er hér um að ræða
þrjár kristnar áritanir, sem
taldar eru vera frá árinu 78 eftir
Krists fæðingu og þar með þær
elztu, sem hingað til hafa fund-
izt. Telja rómverskir fornleifa-
fræðingar sennilegt, að postul-
arnir Pétur og Páll hafi átt þátt
í veggskriftum þessum.
Fundur þessi hefir vakið sýnu
meiri athygli vegna þess, að
hann er gerður af kornungum
manni, 23 ára, Ezio Cannata að
nafni, sem stundar nám við
Kristilega fornleifaháskólann í
Róm og hefir fengist við forn-
leifarannsóknir undanfarin ár,
sérstaklega í kirkjum og í rúst-
um hinna fornu keisarahalla í
Róm og hefir hann þegar gert
ýmsar merkar uppgötvanir á
þessu sviði. Veggskriftirnar
þrjár, sem að ofan eru nefndar,
fann hann í rústunum af höll
Flavíusar keisara. Jafnframt
námi sínu í fornfræði leggur
Cannata stund á læknisfræði og
er hann í þann veginn að ljúka
því námi sínu.
Hann vinnur á sjúkrahúsinu á
daginn og sezt við fornfræði-
bækurnar sínar, þegar heim
kemur að. dagsverki loknu. í
tómstundum sínum reikar hann
gjarnan út á Via Appia eða um
rústir Palatínsins. — Þar finnur
hið leitandi auga fornleifafræð-
ingsins ávalt eitthvað nýtt.
—Mbl., 10. marz
Möguleikar á útflutningi leirmuna
Hægt að jramleiða hér úr leir
jlísar til bygginga og einangrun gerð, né reisa hús yfir verksmiðj-
rajmagnstæki una. Hafa vélarnar staðið ónotað-
ar árum saman, og liggja jafnvel
undir skemmdum.
Guðmundur byrjaði innan við
fermingu að glíma við að móta í
leir, og síðan hefur hann ferðazt
um landið þvert og endilangt, og
meðal annars leitað nothæfra
efna til leirgerðar og postulíns-
vinnslu. Hefur hann fundið hér
180 tegundir af leir, sem er not-
hæfur til leirmunagerðar, og
einnig efni í steinleir og p°stulín.
'Guðmundur hefur athugað
möguleiga á útflutningi leir-
muna. Sendi hann nokkurt magn
af leirmunum til ítalíu, og eru
þeir nú þar á söfnum. Hlutu mun
ir þessiy þar góða dóma, og til-
boð barst um kaup á meira
magni. Einnig hafði hann fyrir
stríð möguleika á að selja leir-
muni til Bandaríkjanna og gerði
það lítillega. Gat hann selt þá
bæði í New York, Chicago og
San Francisco.
Við framleiðslu leirmuna þarf
mikið fjármagn og mikinn vinnu
kraft. Eftir að sýnishorn hafa
verið send utan, koma oft pant-
anir um mörg þúsund af sama
muninum, sem afgreiða þarf hið
allra fyrsta, og annar leirmuna-
gerð Guðmundar ekki slíku,
eins og nú er.
Guðmundur fékk snemma á-
huga á að reyna hér steinleir og
postulínsgerð. Sendi hann sýnis-
horn af hráefnum til Þýzkalands
og reyndust þau vel nothæf.
Fæst efni í postulín t. d. í Mó-
kollsdal á Vestfjörðum, og liggur
þar í haugum ofan á jörðinni.
Guðmundur athugaði möguleika
postulínsgerðar nokkru fyrir
stríð á vegum skipulagsnefndar
atvinnumála og fékk til þess að-
stoð erlendis frá.
Varð þó ekkert úr framkvæmd
um fyrr en eftir stríð, að Guð-
mundur fékk innfluttar vélar,
hálfan þann vélakost, sem þarf
til postulínsvinnslu. Fjársterkur
maður vildi þá leggja fé í postu-
línsgerð.
Síðan Guðmundur keypti þess-
ar vélar, eru liðin 7 ár, og hefir
hann hvorki fengið leyfi til að
flytja inn vélakost til viðbótar
né byggja verksmiðjuhús. Og sá
maður, sem vildi leggja fé í þetta
fyrirtæki, hefir nú dregið að sér
höndina eftir öll þessi ár.
Auk þess sem nota má leir til
veggflísagerðar og í einangrun í
rafmagnstæki, hafa einnig fund-
izt hér leirtegundir, sem nothæf-
ar eru í málningarliti. Er hér að
finna bæði gult-okkur, brúna
umbru, rauðan lit og fjólubláan
mjögfallegan lit, sem finnst á há-
lendinu. Er ekki vitað til, að fjólu
blár leir finnist annars staðar.
—A.B., 15. marz
Búnaðarfélog íslands gengst fyrir
bændaför til Norðurlanda
Farið verður sjóleiðis iil Kaup-
manahafnar 19. maí, en komið
heim lofileiðis frá Noregi
Sumarmálasamkoma
verður haldin í
FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU
fimtudaginn 23. apríl, kl. 8 e. h.
af Kvenfélagi safnaðarins
SKEMMTISKRÁ:
O, CANADA
ÁVARP FORSETA Séra V. J. Eylands
SÖNGFLOKKUR, 35 kvenraddir
Undir stjórn KERR WILSON
EINLEIKUR Á PÍANÓ .............Sigrid Bardal
SAMTAL, fimm stúlkur:
Gunnlaug Love, Judith Hjaltason, Lóa Löve, Guðbjörg Hjaltason,
Birgitta Hjaltason
EINSÖNGUR ..................... Kerr Wilson
RÆÐA ......................W. J. Lindal dómari
EINLEIKUR Á PÍANÓ .............Sigrid Bardal
SÖN GFLOKKURINN
Samskot
ELDGAMLA ISAFOLD — GOD SAVE THE QUEEN
Ókeypis veitingar í neðri sal kirkjunnar
Búnaðarfélag íslands hefir
ákveðið að gangast fyrir hóp-
för íslenzkra bænda til
Norðurlanda í sumar, og
verða heimsótt bændabýli
og stofnanir bænda. Gísli
Kristjánsson, ritstjóri, sem
annast um undirbúning, lét
blaðinu í té í gær nokkrar
upplýsingar um þessa fyrir-
huguðu för.
Það hafa að undanförnu kom-
ið tilmæli til félagsins frá
nokkrum bændum um að efnt
yrði til slíkrar farar, en þó réð
nokkru um það, að í þetta var
ráðizt nú, að bændur, sem komu
hingað frá Norðurlöndum á
aðalfund Norræna bændasam-
bandsins í fyrra, hvöttu mjög til
hennar og buðust til að greiða
götu slíkrar heimsóknar.
Farið sjóleiðis til
Kaupmannahafnar
Nú er ákveðið, að lagt verði
af stað með Gullfossi 19. maí og
farið til Kaupmannahafnar og
síðan ferðazt um Danmörku.
Síðan verður haldið til Svíþjóð-
ar og farið um Vermaland og
Dalina og á Jamtaland og þaðan
yfir til Þrændalaga í Noregi,
síðan suður yfir Dofrafjöll og
niður í Guðbrandsdal til Osló.
Þessi ferðaáætlun er þó ekki
fastráðin enn.
Takmörkuð iaia þátttakenda
Tala þátttakenda verður tak-
mörkuð við 28 með fararstjóra.
Er ekki hægt að hafa fleiri vegna
þess, að ferðast verður í lang-
ferðabíl, og ekki hægt að fara
öðruvísi. Kostnaður hefir verið
áætlaður um 5000 kr. Ekki koma
aðrir en bændur eða bændaefni
til greina í þessa för og er hætt
við, að færri komist en vilja.
Umsóknir verða að hafa borizt
til Búnaðarfélagsins fyrir 1.
apríl, og verða þátttakendur þá
valdir. Er för þessi vafalaust hið
bezta nýmæli.
—TÍMINN, 14. marz
Heimilisfaðir! | FAMILY HOME PRODUCTS, I
Nú geUð þér klipt i 1072 St* B,vd- ^ontreaL J
hár yðar heima og I D. . , , __ .
sparað peninga. ' Please, send me complete FAMILY” >
Petta er auðvelt. hair cllPPer kit- I prefer plan checked I
Myndskreyttur • bel°w. My cycle is..................... j
hvernigUklippaýmá j D ancTp^age^ Postman only $15'50 I
ágætlega hár I , ' |
heimahúsum. □ Plan 2—I encose full price of $15.50
Til viðbótar! Með and save P°sta8e- I
hverjum ,Family‘ ✓ |
hárklippum aenð. ' NAME.............................. >
um við hárgreiðu •
og alveg fyrirtaks I ADDKKSS........................... j
hárskurðar stál- i mTIHTV I
skæri., Skilyrðis- ( uufllY I
laus ábyrgð. 110 , PROV........... I
volts, 25 eða 60
cyele. CSA viður- 1 Satisfaction guaranteed or money
kenning. Sendið J refunded.
enga peninga. I---------------------------------------1
w
*T. EATON C9,.™
WINNIPECJ CANADA
EATON ORDER OFFICES IN MANITOBA
Brandon - Dauphin - Flin Flon - Fort Churchill - Neepawa - Portage la Prairie
Swan River * The Pas - <» wiiw/p«g, *r wwi a, saí», Room i. n. Maíi or</« njgs.
iriel
Mgn |
1
Fleiri Canadamenn fá sér
CC-Ms
Þér stofnsetjið
heimili yðar hér
. . . aukið á vel-
megun Canada
með því að kaupa
canadiska fram-
leiðslu.