Lögberg - 25.03.1954, Síða 8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 25. MARZ 1954
Úr borg og bygð
ívar Björnsson var fæddur 23.
september 1866 að Skjaldakoti á
Vatnsleysuströnd. — Foreldrar
hans voru Björn Guðnason og
fyrri kona hans, Margrét Ivars-
dóttir, systir þeirra Skjaldakots-
bræðra, Ivarssona, Eiríks, Gísla
og Guðmundar, sem allir voru
nafnkunnir aflamenn og sjó-
garpar við Faxaflóa á árunum
1860 til 1880. ívar ólst upp í
heimasveit sinni, unz hann flutt-
ist til Canada árið 1893, þá 27
ára gamall. Settist hann að í
Glenboro og dvaldi þar fram
um aldamótin, en fluttist þá til
Big Point, Man., tók þar heimilis
réttarland. Á þessu landi dvaldi
hann í nokkur ár, en fór síðan
til Langruth og átti þar heima
til ársins 1936, er hann fluttist
til Winnipeg.
Hann lætur eftir sig ekkju,
Önnu Valtýsdóttur, systur Helga
Valtýssonar, kennara og rit-
höfundar; ennfremur tvo sonu,
þá Björn og Sigurð, sem báðir
eiga heima í Chicago, og tvær
dætur í Winnipeg, Doris Mar-
gréti og Addie Violu Pearce,
396 Victor St. Ennfremur lætur
hann eftir sig þrjú barnabörn.
Hann hafði verið heilsulítill
og rúmfastur síðustu árin. Hann
lézt 16. marz og var jarðsunginn
19. s. m. af dr. Valdimar J. Ey-
lands.
☆
Þjóðræknisdeildin FRÓN
heldur skemmtifund mánu-
dagskvöldið 5. apríl kl. 8.15 í
Góðtemplarahúsinu við Sargent.
Aðalatriðið á skemmtiskránni
að þessu sinni verður Spurninga-
þáttur, er Finnbogi Guðmunds-
son stjórnar. En fyrir svörum
verða þeir Einar Páll Jónsson,
Stefán Einarsson, Jóhann G.
Jóhannsson, Jón Laxdal, Páll
Hallsson og Jakob Kristjánsson.
Verður þeim skipt í tvo flokka,
er síðar verða spurðir til skiptis.
Reki annan í vörðurnar, á hinn
leik.
Má búast við, að fróðlega
verði spurt og fjörlega svarað
og þess að vænta, að menn fjöl-
menni á fundinn.
Um önnur skemmtiatriði verð-
ur nánar auglýst í næsta blaði.
THOR VIKING, ritari Fróns
☆
G. A. Williams, kaupmaður
frá Hecla, og Theodore Sigur-
geirson komu til bæjarins á
mánudaginn; er sá síðarnefndi á
leið til Prince Rupert, B.C.
☆
Mr. P. N. Johnson er nýkom-
inn heim eftir sjö vikna dvöl hjá
börnum sínum í Saskatchewan;
hann heilsaði jafnframt upp á
forna vini í Mozart og Wynyard;
hafði hann mikla ánægju af
heimsókninni vestur þar.
☆
Mr. John Freysteinsson frá
Churchbridge, Sask., var stadd-
ur í borginni nokkra daga í fyrri
viku.
☆
Ágætt herbergi, ný skreytt,'
Ineð aðgangi að eldhúsi, fæst nú
þegar til leigu á góðum stað í
vesturbænum. — Upplýsingar í
síma 747-923.
☆
The Women’s Association of
the First Lutheran Church will
hold a Rummage Sale in the
I. O. G. T. Hall Thursday April
lst from 9 to 12 a.m.
The Sunrise Lutheran Camp Tea
Three women’s organizations
of the First Lutheran Church,
Victor St., will hold their
annual tea and home-cooking
sale in aid of the Sunrise
Lutheran Camp, Thursday,
April 8th, from 2.30 to 4.30, at
EATON’S Assembly Room.
The general convener of this
tea is Mrs. A. S. Bardal.
Receiving guests will be: Mrs.
S. Ólafsson, Mrs. V. J. Eylands,
Mrs. S. Sigurdson, Mrs. Paul
Goodman, and Mrs. James
Story.
Table conveners are: Mrs.
Fred Stephenson, Mrs. S. Sig-
urdson, Mrs. J. Ingimundarson,
Mrs. H. Bjarnason, Mrs. Victor
Thordarson, and Mrs. L. S.
Gibson.
Home-cooking conveners are:
Mrs. S. O. Bjerring, Mrs. H.
Olson, Mrs. Arni Arnason, and
Mrs. G. Johannson.
☆
Mr. H. Axdal, er um langt
skeið gegndi símastjórasýslan í
Wynyard, Sask., er nú alkominn
hingað til borgarinnar.
☆
Mr. Jónas Sigurgeirsson, B.A.,
var staddur í borginni á sunnu-
daginn á leið til London, Ont.,
þar sem hann dvelur við nám í
sumar og tekst á hendur með
haustinu ábyrgðarstöðu í þjón-
ustu konunglega canadiska flug-
hersins. Jónas er sonur þeirra
séra Skúla Sigurgeirssonar og
frú Sigríðar Sigurgeirsson að
Walters, Minn.
☆
Ungfrú Kristjana ólafsdóttir
læknir frá Reykjavík, sem dval-
ið hefir hér í borg undanfarna
tvo mánuði, lagði af stað suður
til New York áleiðis til Islands
síðastliðinn laugardag og flaug
þaðan heim á þriðjudaginn. —
Kristjana læknir er vinmörg hér
um slóðir frá þeim tíma, er hún
stundaði hér framhaldsnám í
læknisfræði og var vinum henn-
ar það mikið fagnaðarefni að
eiga með henni samleið á ný,
þótt eigi yrði dvöl hennar hér
lengri, en raun varð á. Lögberg
árnar henni heillar heimkomu.
☆
Mr. Árni Sigurðsson, leikari
og listmálari frá Seven Sisters
Falls, var staddur í borginm í
fyrri viku.
Ragnar Jónsson hyllfur ó ýmsan hótt
6 50 óra afmælinu
Hafi Ragnar í Smára verið í
nokkrum vafa um að hann njóti
lýðhylli hér í bæ, getur ekki hjá
því farið að allur efi í huga hans
sé horfinn í því efni, eftir af-
mælisdaginn á sunnudagihn var.
Svo margir urðu til þess að votta
honum vináttu sína og hlýhug á
þessum degi. Stöðugur gesta-
straumur var á heimili hans
þann dag, svo þar var jafnan
húsfyllir.
Klukkan tvö á sunnudag voru
haldnir sinfóníutónleikar í Þjóð-
leikhúsinu undir stjórn Mr.
Goosens hljómsveitarstjóra, er
voru hinir glæsilegustu, en þeir
voru fyrsti þáttur mannfagnað-
arins á afmæli Ragnars Jónsson-
ar. Að hljómleikunum loknum
reis dr. Páll ísólfsson úr sæti
sínu og mælti nokkur orð á
þessa leið:
„Mig langar til að biðja ykkur,
háttvirtu áheyrendur, að staldra
við eitt andartak. Fyrst vildi ég
mega biðja ykkur að taka undir
með mér í ferföldu húrrahrópi
fyrir hinum merka hljómsveitar-
stjórnanda, Mr. Goosens, sem er
víðfrægasti stjórnandi hljóm-
sveitarinnar, og þakka þannig
þessa glæsilegu tónleika“. Var
hann síðan ákaft hylltur.
Mr. Goossens þakkaði með
nokkrum velvöldum orðum. —
Síðan sneri dr. Páll máli sínu
til hins fimmtuga forgöngu-
manns, Ragnars Jónssonar, og
mælti á þessa leið:
Minning góðkunningja:
„STEINA“ LAXDAL
Mozart, Sask.
Ég kynntist þér ei mikið
en kunningsskapur sá
fann konungslund í þínu glaða
sinni.
Þú sýndir mér þar drengskap,
er seint ég gleyma má
og sífelt heldur hlýrri minning
þinni.
R. A.
Á Guðmundsson ...
Framhald af bls. 1
var prestur í útkjálka á Gríms-
ey; fyrir þá huggun, sem hann
veitti mér í erfiðleikum mínum
á einn eða annan hátt.
Við, sem í Vesturheimi búum,
vætum þess, að móðurkirkjan og
hinn nýi biskup hennar megi
efla og styrkja þau bönd, sem
ríkja milli Austur- og Vestur-
íslendinga, bæði á sviði kirkju-
og þjóðræknismála.
Robert Jack
Make Manitoba the Barley Province
Enter the National Barley Conlest
1. Use Montcalm or O.A.C. 21.
2. Purchase or clean the seed early.
3. Treat the seed with mercurial compounds at least
eight days before seeding.
4. Sow seeds at 1% to two bushels per acre. ,
5. Use about 30 to 60 lbs. of Ammonium Phosphate
per acre.
6. Plant the second week you can get on the land.
7. Treat the crop with 2, 4-D as specified on the
container.
8. Let the crop mature before swathing.
9. Adjust combine to prevent cracking or skinning
the grain.
This space donated by DREWRYS
MD-338
Afmælisbarnið
„Hér í salnum er staddur sá
maður, sem öðrum fremur hefir
mörgum sinnum í hrifningu
sinni ávarpað listamenn og látið
hylla þá. Því miður er hann for-
fallaður í dag, því að hann á
nefnilega fimmtíu ára afmæli.
Þessi maður er Ragnar Jónsson.
Tvímælalaust hefir þessi mað-
ur öllum öðrum fremur hrint í
framkvæmd þeim aðgerðum í
tónlistarmálum okkar, sem bezt
hafa dugað okkur tvo síðustu
áratugina, með sínu óeigin-
gjarna starfi í þágu listarinnar.
Án hans mikla og brennandi
áhuga og framtaks, væru tón-
leikar Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar, eins og þeir, sem við höfum
hlýtt á í dag og undanfarið,
óhugsanlegir. Þess vegna veit
ég, að ég tala fyrir munn allra
hlustenda, þegar ég bið ykkur
að hylla Ragnar Jónsson á þess-
um merkisdegi hans og þakka
honum hans mikla, óeigingjarna
starf í þágu tónlistarmálanna á
íslandi.
Hann lengi lifi!“
Hinir hrifnu og glöðu áheyr-
endur tóku undir þessi orð dr.
Páls með dynjandi lófaklappi.
„Sú spurning hefir áreiðan-
lega einhverntíma verið lögð
fyrir ykkur öll, sem hér eruð
samankomin, hvernig á því hafi
staðið, að þið fóruð að fá áhuga
fyrir tónlist og listum yfirleitt.
A yfirborðinu virðist ekki
mjög erfitt að finna svar við
þessari enföldu spurningu. Þið
þekkið öll þá staðreynd að þær
þjóðir, sem fallið hafa í þá ó-
gæfu að áhugi þeirra fyrir list-
um hefir fjarað út, hefir í kjöl-
far þess siglt margs konar niður-
læging og andlegar farsóttir, en
þær þjóðir, sem eflt hafa listir
í löndum sínum hafa orðið for-
ustuþjóðir í heiminum.
Trúin og listin er fyrir okkur
flestum hið eiginlega andlega líf,
það æðra lífstakmark, sem við
öll stefnum að og leitum eftir
samkvæmt einhverri ákveðinni
meðfæddri eðlisávísun. Listin og
trúin hafa beizlað þá reginorku,
sem er allri atomorku meiri,
mannlegar tilfinningar, hug-
sjónir og ástríður.
Vísindamennirnir hrósa sér af
því hver í kapp við annan að
þeim hafi tekizt að beizla frum-
orku efnisins, en þeir virðast
bara enn ekki hafa gert það full-
komlega upp við sig ennþá,
hvort þeir ætli að beita þessari
þekkingu sinni í þágu lífsins eða
dauðans.
I boðskap listarinnar kemur
hins vegar fram alveg tvímæla-
laust trúin á manninn en ekki
vélina, lífið en ekki dauðann.
Listin er í eðli sínu hin tamda
andlega orka, ofstæki mann-
legra tilfinninga og hugsjóna-
elds, sú blessun, sem gerir
þennan harmleik, sem við köll-
um mannlíf, öðrum þræði að
fögrum göfgandi leik með liti
orða og tóna.
Það er þess vegna sem við
trúum svo örugglega á mátt list-
arinnar til þess að leysa mann-
eskjuna úr álögum hinna frum-
stæðu íþrótta og kaldrifjaðrar
efnishyggju.
Það er gagnlegt og ánægju-
legt að fá hingað góða gesti og
öll höfum við eitthvað lagt af
mörkum til listanna, en það sem
skiptir mestu máli fyrir okkur
er að listin og æska þessa lands
eigi ávalt samleið út í lífið og
við skulum biðja að vegir þeirra
skiljist aldrei að á íslandi".
í Lislamannaskálanum
Kl. 5 e. h. kom Ragnar á list-
sýninguna, sem haldin er honum
til heiðurs í Listamannaskálan-
um, ásamt konu sinni og öðru,
nánu skylduliði.
Formálsorð myndskrárinnar
hljóða þannig:
„Ragnar Jónsson hefir um
langt skeið unnið af mikilli
ósínginri og áhuga að viðgangi
bókmennta og lista í landinu.
Er því eðlilegt, -að rithöfundar
og listamenn gera sér far um, nú
á fimmtugsafmæli hans, að votta
honum viðurkenningu.
Myndlistarmenn eiga honum
ekki hvað sízt mikið upp að
unna. Hann hefir verið óþreyt-
andi að greiða fyrir kynningu á
verkum þeirra. Að sama skapi
hefir hann látið sér annt um
persónulega velgengni þeirra og
gert öðrum meira til að fá þeim
í hendur heppileg viðfangsefni.
Með sýningu þessari vildu
þeir, sem að henni standa,
minna á það sérstaklega, sem
Ragnar Jónsson hefir gert fyrir
íslenzka myndlistarmenn og ís-
lenzka myndlist og votta hon-
um þakkir sínar“.
Þáttlakendur í sýningunni
Myndaskrín er myndskreytt á
hverri síðu. Þar eru málverk
eftir 15 málara og höggmyndir
eftir Ásmund Sveinsson. Þessir
eru þátttakendur og verk þeirra:
Ásgrímur Jónsson: Á flótta
undan eldgosi, Frá Þingvöllum,
Úr Svarfaðardal Gunnlaugur
Scheving: Hús, Blóm, Stofa. Jón
Engilberts: Vetrardagur í Kópa-
vogi, Gleðskapur í sveit, Heima-
sætan. Jón Stefánsson: Við Ar-
mannsfell, Séð til Þingvalla,
Hraun, suður með sjó, Blóm,
gladiolus. Jón Þorleifsson:
Kvöld, Frá Fljótsdalshéraði,
Blóm. Júlíana Sveinsdóttir:
Kristshöfuð (mosaik). Kristín
Jónsdóttir: Suðurströndin, Sam-
stilling. Kristján Davíðsson:
Andlitsmynd, Vor, Landslag,
Kona, tungl og stjörnur. Nína
Tryggvadóttir: 3 kompositionir.
Sig. Sigurðsson: Frá Þingvöll-
um, Uppstilling. Snorri Arin-
bjarnar: Skip á Skagaströnd,
Uppsátur; Hús. Svavar Guðna-
son: Raut högg, Grána, Orkna.
Valtýr Pétursson: 3 kompositi-
onir. Þorvaldur Skúlason: 3
kompositionir. Kjarval: Skuggar
af skýjum, Vetrar-harunmynd,
Teikning. Höggmyndir Ásmund-
ar: I tröllahöndum, Maður og
efnið, Tröllkona.
Á sýningu þessa komu um 300
manns á fyrsta klukkutímanum,
sem hún var opin. Þegar klukk-
an var um hálf sex kvaddi
Tómas skáld Guðmundsson sér
hljóðs. Las hann ofangreind
formálsorð sýningarskrárinnar
og beindi orðum sínum til
Ragnars, er þar var nærstaddur
í miðjum salnum. Hafði hann
bók eina mikla í hendi er reynd-
ist vera „Afmælisgjöfin“, sem
út kom í tilefni afmælisins og
getið hefir verið hér í blaðinu.
Vona ég, sagði Tómas, að bók
þessi geti orðið vottur um það
þakklæti, sem við berum til þín
ekki aðeins myndlistarmennirn-
ir og rithöfundarnir, heldur
undantekningarlaust allir þeir,
sem láta sig íslenzk menningar-
mál nokkru skipta.
Hrópaði síðan mannfjöldinn
ferfalt húrra fyrir Ragnari Jóns-
syni.
Dúkað borð var reist eftir
endilöngum salnum, og þar
framreitt kaffi ,te og fleira. Var
gestunum því næst boðnar þess-
ar kræsingar. —
Skemmtu menn sér þar góða
stund við að horfa á sýningar-
myndirnar og skeggræða um
eitt og annað, sem í hugann bar.
En svo margt var þar manna, að
sumum veittist erfitt að hafa
myndanna full not.
Um kvöldið hafði Ragnar og
frú hans gestamóttökur á heim-
ili sínu. Skiptu gestirnir hundr-
uðum, svo að þar var eins margt
fólk og framast var rúm fyrir.
Nokkrir blásarar úr Sinfóníu-
hljómsveitinni spiluðu nokkur
lög fyrir utan heimili Ragnars,
gestunum til ánægju og skemmt-
unar.
—Mbl., 9. febr.
Kvenfélagið . . .
Framhald af bls. 5
af vesturálmu hennar. Munu
þar verða 56 rúm, en það er að
áliti þeirra lækna, sem um þetta
hafa fjallað, mjög hæfileg stærð.
Kristbjörn Tryggvason barna-
læknir hefir verið ráðunautur
barnaspítalanefndar síðan hún
var stofnuð en af hálfu Hrings-
ins á þar sæti frú Guðrún Geirs-
dóttir.
Uppkominn eflir 2—3 ár
Vonir standa til, að byggingu
barnaspítalans muni verða lokið
eftir tvö til þrjú ár, ef vel geng-
ur. Hringkonur eiga nú í spítala
sjóði sínum kr. 2 millj. og 600
þús., en mikið mun samt á vanta
— segja þær — að sú upphæð
muni hrökkva fyrir öllum innan
stokksmunum og tækjum, sem
spítalinn mun þurfa á að halda
til starfsemi sinnar.
Síðan 1943 hefir sérstök fjár-
öflunarnefnd verið starfandi
innan félagsins og er formaður
hennar frú Gunnlaug Briem. Á
sunnudaginn kemur, kosninga-
daginn, munu Hringkonur efna
til merkjasölu til ágóða fyrir
spítalasjóðinn. — Munu merkin
verða til sölu á öllum kjörstöð-
um og einnig á öðrum stöðum í
bænum. Er þess að vænta, að
Reykvíkingar bregðist nú sem
fyrr vel við liðsbón Hring-
kvennanna til barnaspítalans, —
nú er komið að lokaátakinu.
Sfjórn Hringsins
Núverandi stjórn Hringsins
skipa þær Ingibjörg Cl. Þorláks-
son, formaður, Guðrún Geirs-
dóttir, varaformaður, og með-
stjórnendur þær Jóhanna Zoega,
Margrét Ásgeirsdóttir og Eggrún
Arnórsdóttir. — 1 varastjórn:
Soffía Haraldsdóttir og Sigþrúð-
ur Guðmundsdóttir.
Hinn fyrsti formaður félags-
ins, frú Kristín V. Jacobsen, lézt
6. maí 1943 og tók þá við for-
maður þess, sem hefir gegnt því
starfi síðan.
----☆----
Hringkonur hafa ríka ástæðu
til að gleðjast yfir þeim giftu-
samlega árangri, sem þær hafa
náð með hálfrar aldar starfi fé-
lagsins og samborgarar þeirra til
að flytja þeim þakkir og óskir
um, að sama blessun megi fylgja
starfi þeirra í framtíðinni og
hingað til.
—Mbl., 26. janúar
M ESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street-
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
— Gimli Parish —
Sunday March 28:
Betel, 9 a.m.
Gimli, Morning Service,
10.45 a.m.
Arnes, 2 p.m.
Gimli, 7 p.m.
April 4:
Special Service in Icelandic
when Prof. Finnbogi Guð-
mundsson will speak on
HALLGRÍMUR PÉTURSSON
at 2 p.m.
H .S. Sigmar, Pasior
☆
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnudaginn 28. marz: —
Geysir, kl. 2 e. h. (íslenzka)
Hnausa, kl. 8 e. h. (enska).
Sunnudaginn 4. apríl: —
Árborg, kl. 2 e. h. (enska)
Riverton, ki. 8 e. h. (enska).
☆
Messur á Langruih
Sunnudaginn 28. marz:
Á íslenzku kl. 2 e. h.
Á ensku kl. 7 e. h.
Kaffi verður veitt í neðri sal
kirkjunnar að lokinni ensku
messunni.
Mánudaginn 29. marz:
Aliarisgöngur:
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Á ensku kl. 8 e. h.
Messa á Vogar
Sunnudaginn 4. apríl, kl. 1.30
e. h. á íslenzku.
Messur á Lundar
Sunnudaginn 4. apríl, á ensku,
kl. 7.30 e. h.
Miðvikudaginn 7. apríl, föstu-
messa á íslenzku kl. 7.30 e. h.
Allir innilega velkomnir.
Séra Bragi FriðrikssoO
Til sölu
No. 2 Argeniine Rape fraa
10 cents pundið.
J. MOYNHAM,
Culross, Manitoba
You’ll save a lot of worry,
With the way prices are today!
If you pick your cakes and
dainties,
From Aldo’s great display.
ALDO'S BAKERY
613 Sargenl Ave. Phone 74-4843
LOOK AFTER YOUR FIGURE
New Spirelette creations styled
by Spirella. Glamorously new
ready-to-wear girdles and bras
with a Spirella Guarantee. For
information, without obligation,
call:
MRS. JANA STILLER
Phone 72-7756
DtSH to FUSH and StVE CtSH
YOUR NEIGHBORHOOD CLEANER (Fully Insured)
OUIDTO CELLO
OnlKIO WRAPPED
5for$l00
SPRING AND SUMMER
COATS S-j 10
Regular $1.25
FREE
Pick-Up and Delivery
Service
Phone 3-3735
3-6898
CLEANERS "Same Day Service
LIMITED Available at Our Plani."
611 SARGENT AVE. (At Maryland) in al 10 a.m. Oui by 5 p.m.
SSS5S&
FLASH