Lögberg - 26.08.1954, Side 1

Lögberg - 26.08.1954, Side 1
ANYTIME — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 ANYTIME — ANYWHERE t CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 67. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 26. ÁGÚST 1954 NÚMER 34 Fréttir fró ríkisútvarpi Bslands kaldash júlí nyrora sioan árið 1920 15. ÁGÚST Síðastliðna viku var köld norðaustan og austan átt um iand allt. Víðast var sólarlítið °g úrkoma öðru hverju. Á föstu- daginn og í gær lægði nokkuð °g létti víða til, og í dag er kom- in hæg suðlæg átt, skýjað á vesturlandi, en bjart og hlýtt á norðausturlandi. ☆ Forsetahjónin eru nú í ogin- berri heimsókn á Austurlandi. komu fyrst til Seyðisfjarð- ar. — það var á sunnudaginn Var — fóru þaðan til Vopna- fjarðar, svo til Neskaupstaðar, þn til Breiðdalsvíkur, Djúpa- v°gs, Stöðvarfjarðar, Fáskrúðs- Úarðar og Eskifjarðar, og voru þeim hvarvetna búnar hinar beztu móttökur. ☆ Vikuna, sem leið, var engin síldveiði, oftast þoka eða bræla a naiðunum og skipin í höfn eða landvari, en þá sjaldan gaf, varð ekki síldar vart. Vikuna þar n*st á undan var dálítil veiði °g hömluðu þó ógæftir. Viku- aflinn þá varð rösklega 17.000 uPpsaltaðar tunnur, tæp 14.000 mál í bræðslu og um 500 tunnur 111 frystingar. Heildarafli síld- veiðiskipa við Norðurland var t>a í vikulokin orðinn tæp 124.000 mál í bræðslu, rúmlega 61.000 uppsaltaðar tunnur, og í frystingu höfðu farið 8.800 tunn- Ur- 189 skip höfðu farið norður 111 herpinótaveiða, og af þeim voru 183 skip komin á skýrslu með afla í lok fyrri viku og þar af höfðu 141 skip fengið yfir 500 mál og tunnur. Aflahæst var Snæfell^ Akureyri, með 4.399 mál og tunnur. — Nokkrir bátar eru byrjaðir reknetaveiðar suð- vestanlands. ☆ kfeginhluti togaraflotans lá mni um alllangt skeið af fjár- agsástæðum, og kom hvort- lveggja til, að sjómenn töldu sig fra skarðan hlut frá borði og reðu sig til annarrar vinnu, og hfgerðarmönnum þótti útgerðar- °stnaður svo mikill að ekki syaraði kostnaði að gera út. Um !llr>a var aðeins tæpur fjórðung- Ur fogaraflotans á veiðum, en að nndanförnu hafa nokkrir farið í Yýðbót aðallega til karfaveiða við raenland, en þar hefur verið ^jeg góð karfaveiði og togarar ^engið fullfermi á skömmum lrua. Ríkisstjórnin gaf nýlega út ráðabirgðalög um aðstoð við °garaútgerðina á þessu ári og Seglr þar m. a., að ríkisstjórn- mni sé heimilt til ársloka 1954 Q Innheimta sérstakt leyfisgjald a ýnnflutningsleyfum fyrir bif- eiðum, og skal það renna í sér- . akan sjóð, sem er eign ríkis- too ^ Þeim síóði skal Sreiða °garaútgerðinni rekstrarstyrk á h^lriu 1954. Eigi má greiða erjum einstökum togara 20nna fé Úr síóðnum en nemur 0 krónum fyrir hvern dag, m skipinu er haldið út til veiða d 1Jnabilinu frá 1. ágúst til 31. es- Eins og áður hefur verið befur ríkisstjórnin ákveðið lét+Sar aðrar ráðstafanir til að a Undir með togaraútgerð- héM ^nllúúar togarasjómanna til U fund með ser 1 Reykjavík að ræða nýja samninga við þ ferðarmenn og var þar sam- in . 1 frumvarp að nýjum samn- bQ.1 sent Félagi íslenzkra nvörpuskipaeigenda. Farið er fram á margar kjarabreytingar og m. a. að fast kaup háseta og kyndara hækki úr 1080 krónum á mánuði í 1700 krónur, — afla- verðlaun á saltfiskveiðum hækki úr 6 krónum í 12 krónur af lest, og aflaverðlaun af öllu lýsi verði hin sömu, hvort heldur er veitt í ís eða salt. Nægur markaður er* nú fyrir togarafisk, m. a. er selt mikið magn af karfaflökum til Sovétríkjanna, og nú um mán- aðamótin mun hefjast sala til Þýzkalands á ísvörðum fiski. — Samkvæmt samningi geta ís- lendingar selt þangað fisk fyrir 7r/2 milljón marka á tímabilinu frá 1. september til 15. desember. ☆ í ráði er að selja síldarbræðslu skipið Hræring úr landi. Sölu- samningur hefur verið gerður við norsk fyrirtæki og er sölu- verðið 100.000 sterlingspund eða rösklega 4y2 miljón íslenzkra króna. Samningurinn er háður því að veitt verði útflutnings- leyfi hér fyrir skipið og inn- flutningsleyfi í Noregi, og einnig því að stjórnir beggja fyrir- tækjanna, eigenda og kaupenda, samþykki hann að sínu leyti. Ef af sölunni verður, mun skipið afhent seint í þessum mánuði. ☆ Um þessar mundir er verið að flytja út skreiðarframleiðslu landsmanna frá fyrra ári, en hún nam um 12.000 lestum af full- verkaðri skreið, en það er um 71.000 lestir af slægðum og haus- uðum fiski. Megnið af þessu magni er selt til Afríku. Það, sem af er þessu ári, hafa verið verkaðar til skreiðarframleiðslu um 47.000 lestir af fiski, en það eru um 8000 lestir af skreið, og er þessi framleiðsla mest í Reykjavík og Hafnarfirði. Búið er að selja töluvert af þessa árs skreið fyrir viðunandi verð, og er sem fyrst mest selt til Nigeríu, og rn^kið er einnig selt til ítalíu, en þar fæst að jafnaði gott verð fyrir vel verkaða skreið. Enn fremur verður skreiðarfram- leiðsla þessa árs seld til Svíþjóð- ar, Finnlands, Bandaríkjanna og Niðurlanda. ☆ Frá því að hvalveiðarnar hóf- ust í vor hafa veiðst 215 hvalir, og er það nokkru minna en á sama tíma í fyrra, enda hefur veður verið óhagstætt til veiða. Fluttar hafa verið út 900 lestir af hvallýsi til Hollands, til Bret- lands hafa verið seldar 375 lestir af hvalkjöti, aðallega til dýra- fóðurs, en rúmlega 100 lestir hafa farið á irmanlands markað til manneldis. Fjórir bátar stunda veiðarnar fyrir Hval h.f. og er ætlunin að halda áfram fram í september. ☆ Norskt skip, á leið til Reykja- víkur með sementsfarm, strand- aði í gær við Gróttu og komst sjór í framlestirnar, svo að hluti faripsins mun eyðilagður. Skipið náðist á flot klukkan hálf sjö í morgun og var flutt inn á sund. ☆ Á sunnudaginn var hátíðlega minnst 100 ára afmælis Skinna- staðakirkju í Nþrður-Þingeyjar- sýslu. Séra Hjörleifur Guttorms- son byggði kirkjuna, en tengda- sonur hans Arngrímur Gíslason málaði hana. Hún hefur nú verið endurbyggð, múrhúðuð og mál- uð svipað og Arngrímur hafði gengið frá henni. Afkomendur séra Hjörleifs fjölmenntu mjög til kirkju þennan dag og höfðu haft um það samtök. Þeir gáfu Framhald á bls. 5 Var með kaldara móti í Reykjavík Sem kunnugt er hefir verið kalsaveður um allt Norðurland að heita má óslitið frá því í júní- mánuði. — Hafa blöðin birt fregnir um slæmar heyskapar- horfur nyrðra og síldveiðiflotinn hefir legið dögum saman aðgerð- arlaus vegna óveðurs. í gær skýrði Veðurstofan Mbl. frá, að júlímánuður síðastliðinn hefði verið annar kaldasti, sem komið hefir á Norðurlandi frá því á árinu 1920. Fyrrihluta júlímánaðar var vindáttin allóstöðug og fremur sólarlítið. Voru sólskinsstundir hér í Reykjavík alls 152 í mánuð- inum, sem er um einum fimmta minna en í meðallagi. Síðari hluta mánaðarins brá til norð- austan áttar, sem var algengust í mánuðinum. Á Akureyri var meðalhitinn í júlí 9,4 stig á Celsrus og er það allmiklu lægra en meðalhita- stigið er þar, eða 10,6 stig. — Allt frá árinu 1920, hefir einu sinni áður verið kaldara í júlí á Akureyri, var það árið 1928 er meðalhitinn komst niður í 8,8 stig. Hér í Reykjavík var júlímán- uður einnig í kaldara lagi. Var hitinn 10,6 stig, en meðalhiti 11,3 stig. 1 júlí var úrkoman í meðallagi á Akureyri og hér í Reykjavík, sem svarar fjórðungi umfram meðallag. •*-Mbl., 14. ágúst íbúðarhús brennur á Skeggjastöðum í Fellum Fljótdalshéraði, 8. ágúst: Noraustan stormur, kaldur og fúll. Súld síðdegis. Svona hefir veðurfarið verið tvær undan- farnar vikur í aðalatriðum. — Stundum hefir þó rofað til nokkrar stundir um miðdegið, svo að sumu,m hefir tekizt að ná upp heyi. Sláttur hófst víða um miðjan júní, en lítið hirtist eða ekkert fyrr en fyrra hluta júlí. Vikan, sem hófst 11. júlí, var góð. Þá náðist allt inn. Sumir höfðu sinnt því lítið að slá niður, en nú var slegið í flýti og náðist heyið vel verkað og óhrakið, því næsta vika var líka þolandi. Þann 8. júní fór hópur manna héðan austan í bændaför suður á land. Fram að þeim tíma hafði verið hlýinda tíð, og öll jörð sprottin vel. Sama daginn og fólkið fór brá hér til norðaustan áttar, sem hefir verið ríkjandi hér síðan, nema eina viku. — Þegar hópurinn kom aftur, sögðu þeir, sem heima sátu: Þið fóruð með góðviðrið og hlý- indin með ykkur suður, en þið svikust um að koma með það aftur. Spretta öll hefir farið hægt síðan veðrabrigðin urðu. Eink- um lítur illa út með háarvöxt, þar sem seint var slegið. Görð- um fer einnig lítið fram, sem vonlegt er. í fyrra mánuði brann íbúðar- húsið á Skeggjastöðum í Fellum. Eigandi þess var Páll Jónsson. Húsið var steinhús, en loft og skilrúm úr timbri. Eldurinn kom sennilega stafað frá raflögn, sem MINNI ÍSLANDS flutt að Hnausum, 14. ágúst Eftir G. O. EINARSSON Merki Ingólfs stóð í stafni, stafað dýru hetju nafni. Blasti þar við fjörður fríður, friðarsæll og himinn blíður. Skorti enga auðnu kosti, algræn hlíðin við þeim brosti. Landið nýtt, með hjartans hylli, hóf þá upp í meiri snilli. Gaf þeim frelsi orðs og anda, afrek stór til fjarra landa. Orðstír þeirra í heimsins höfnum helgur varð í braga söfnum. Þá varð Islands hróður hæstur, hugur dáða og manndóms stærstur. Konungs drápur Egill orti, einurðina sízt hann skorti; víkingur að viti og hreysti, vilja sjálfs og Óðins treysti. Bjarmar aftur yfir fjöllum, upp rís þjóð með köppum snjöllum. Eftir margra alda þrenging, Islands þjóð fékk nýja sprenging. Heklu-gos af andans eldi, aflgjafinn í hennar veldi. Nú á þjóðin nýjan blóma, nú er bjart um hennar sóma, hetjuþrótt og anda í orðum, engu minni nú en forðum. Vaknað er í hennar hjarta, hæða-ljósið morgun bjarta. Rís hin forna frægð af grunni frelsið við, sem þjóðin unni. Allar nýjar orkulindir, allar stórar töframyndir, opnar standa og auðlegð boða, alt er skreytt af morgunroða. Lengi lifi Islands óður, afli sjós og hlíðagróður. Meðan ár til fjarða falla, flögrar sól um jökulskalla. Ríki tign og aðalsandi yfir þessu fræga landi. þar lá inn. Lausafé varð bjargað að mestu, en ógerningur reyndist að kæfa eldinn í húsinu og brann það til ösku, nema útveggirnir steyptu, sem eru þó skemmdir. Vitanlega hefir fólkið orðið fyrir miklu tjóni, því að brunamat húsa hrekkur hvergi nærri fyrir kostnaði við byggingar þeirra. G. H. —Mbl., 14. ágúst Forseti Brazilíu fremur sjálfsmorð Á þriðjudaginn gerðist sá at- burður, að forseti ■ Brazilíu, Cetullo Vargas, 71 árs að aldri, framdi sjálfsmorð í stjófnar- setrinu í Rio De Janeiro; höfðu yfirmenn flughersins nokkrum dögum áður krafist þess, að hann legði niður völd; síðar bættust háttstandandi herfor- ingjar í hópinn og báru fram samskonar kröfu. Forseti svaraði kröfunum á þá leið, að hann léti eigi af völdum meðan hann enn héldi lífi; varaforseti Brazilíu fer til bráðabirgða með völd unz frekari ráðstafanir verða teknar varðandi stjórnarfarið í landinu. Merkur stjórnmála- maður Eáð'inn Nýlega lézt í sumarbústað sínum í grend við Rómaborg fyrverandi forsætisráðherra í- tölsku þjóðarinnar, De Gasbery, 73 ára að aldri; hann var um langt skeið formaður flokks hinna svokölluðu kristilegu lýð- ræðissinna og hafði með hönd- um stjórnarforustu þjóðar sinn- ar svo að segja öll árin síðan að seinni heimsstyrjöldinni lauk; hann var svarinn óvinur kommúnismans og reri að því öllum árum að ítalía gerðist aðilji að Norður-Atlantshafs- bandalaginu, þótt slíkt hafi eigi fram að þessu komist í fram- kvæmd. Eftir lát þessa mikilhæfa stjórnmálamanns má svo að orði kveða að flokkur hinna kristi- legu lýðræðissinna í landinu sé í rauninni eins og höfuðlaus her, þótt núverandi stjórnarformaður njóti sæmilegs fylgis. Örðugt um samkomulag Ráðstefnunni í Brussels, er utanríkisráðherrar sex þjóða stóðu að, er nú lokið án þess að nokkrum verulegum árangri yrði náð; í ráðstefnunni tóku þátt erindrekar frá Hollandi, Belgíu, Vestur-Þýzkalandi, íta- líu, Luxemburg og Frakklandi, en þetta eru þjóðirnar, sem að Atlantshafsbandalaginu einkum standa. — Forsætisráðherra Frakka, Mendés-France, sem jafnframt fer með utanríkis- málin, lagði fram ýmissar rót- tækar breytingar við bandalags- sáttmálann, er hann taldi óhjá- kvæmilegar vegna afstöðu franska þingsins, en á þetta vildu hinar þjóðirnar ekki fall- ast; einkum varð tilhugsunin um endurhervæðingu Þýzkalands hinum franska utanríkisráð- herra þyrnir í augum, sem í rauninni sýndist lítið undrunar- efni, því svo oft hafa Frakkar átt um sárt að binda af völdum Þjóðverja. Að aflokinni áminstri ráð- stefnu í Brussels flaug Mendés- France til London til skrafs og ráðagerða við Sir Winston Churchill og Anthony Eden utanríkisráðherra. Úr borg og bygð William Melsted, sonur Mr. og Mrs. John Melsted, Winnipeg, kvæntist Miss Thelmu Beech frá Pilot Mound, Man., 14. ágúst. — Heimili þeirra verður í Winni- peg- ☆ Dr. og Mrs. F. E. Scribner fóru vestur að Kyrrahafsströnd ásamt börnum sínum síðastliðna viku í skemmtiferð. ☆ Viggo Thomsen rafvirki, og sonur hans, Larry, sem dvalið hafa í borginni undanfarnar sjö vikur, fóru heimleiðis til Hecla, Man., í gær. ☆ Frú Elín Albertína Sigurdson lézt að Sandy Hook, Man., laug- ardaginn 14. ágúst, 57 ára að aldri. Hún var fædd í Selkirk. Hún lætur eftir sig eiginmann sinn, Kristján; son, Wilfred; tvo bræður, Pétur Sveinsson, Sandy Hook og Emil Sveinsson, Húsa- vík; þrjár systur, Mrs. M. V. Sveinsson, Camp Morton, Mrs. S. Anderson, Sandy Hook, og Mrs. S. Martin, Húsavík; enn- fremur eitt barnabarn. Útförin fór fram frá lútersku kirkjunni í Húsavík og var hin látna lögð til hinztu hvíldar í grafreitnum þar. Séra Harold S. Sigmar jarðsöng. ☆ Lilja, dóttir Mr. og Mrs. John Eggertson, Winnipeg, og John Arthur Fitch voru gefin saman í hjónaband í Old St. Andrews Stone Church, St. Andrews, 7. ágúst. Heimili þeirra verður að Oak Hammock. ☆ Mr. J. Walter Johannson leik- hússtjóri og frú Kristín Johann- son frá Pine Falls, Man., eru um þessar mundir stödd í heimsókn til dóttur þeirra og tengdasonar að Sudbury, Ont. Munu þau vafalaust heimsækja ýmsar fleiri borgir þar eystra. ☆ Mr. Harold Sigurdson endur- skoðandi frá Fort William, Ont., er staddur í borginni um þessar mundir og situr hér ársþing endurskoðendasambandsins í Canada; hann er sonur þeirra Mr. og Mrs. Sigurbjörn Sigurd- son, en tengdasonur Mrs. B. S. Benson.' ☆ Frú Guðmunda Elíasdóttir hélt söngskemmtun að Geysir Hall síðastliðinn föstudag fyrir fullu húsi hrifinna samkomu- gesta. ☆ Mr. og Mrs. Ted Jefferson á- samt fjölskyldu eru nýkomin heim til heimilis síns að Queen’s Street, Selkirk, eftir tveggja vikna dvöl að Hecla, Man. Móðir Mrs. Jefferson, Mrs. C. Tómas- son kom með þeim og mun dvelja í nokkrar vikur í Selkirk. ☆ A meeting of the Jón Sigurd- son Chapter I. O. D. E. will be held at the home of Mrs. H. A. Bergman 17 Fleetwood Apts. — corner Lenore & Westminster on Friday eve. Sept. 3rd at 8 o'clock. Kommúnistar • ólöghelgaðir Eisenhower forseti hefir með undirskrift sinni staðfest lög, sem þjóðþingið nýlega afgreiddi, þar sem kommúnistar verða framvegis ólöghelgaðir í Banda- ríkjunum; mælt er að forseti hafi eigi allskostar verið ánægð- ur með löggjöf þessa þó hann ekki sæi sér fært eins og á stóð, að synja henni staðfestingar.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.