Lögberg - 26.08.1954, Page 3

Lögberg - 26.08.1954, Page 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 26. ÁGÚST 1954 3 Eru Kínaveldi og Rússland bandamenn eða keppinautar? MESTA ráðgátan á sviði heims- málanna á vorum dögum er hversu háttað er innbyrðis sam- starfi og skiptum Sovét-Rúss- lands og Kína. Eru einræðis- herrarnir Mao Tse-tung hinn kínverski og Georgi Malenkov bandamenn eða keppinautar? Eitt liggur alveg ljóst fyrir: Ef Kína óskar að slíta sig úr tengslum við Rússland, er það nógu sterkt og nægilega öflugt til þess að gera það. Rússneskt herlið hefur ekki hernumið Kína °g hefur það þess vegna ekki al- gerlega á valdi sínu. Beri maður Kínverja saman við Búlgari og aðrar þjóðir í hinum smáu lepp- ríkjum Rússa, er Kínverjinn úsi, en þjóðir leppríkjanna dvergar. Vafalaust mun Mao svíða, að á hann skuli vera litið sem leiðtoga, er verði að hlýða íyrirskipunum frá Moskvu. En hve sjálfstæður er Mao? Er svars er leilað verður að miða við mjög ein- falda grundvallar staðreynd: t*egar ríkisstjórnir eru þeirrar skoðunar, að þær hafi þjóðar- hagsmuni að marki, sniðganga þ®r hugsjónastefnu og þjóðfé- lagskerfi. Ráðstjórnarríkin, sem gera verður ráð fyrir að hafi verið andvíg nazistum, gerðu sáttmála við þá 1939, til þess að ná undir S1g löndum og komast hjá þátt- tóku í styrjöldinni um sinn. Randaríkin, sem eru andvíg kommúnistum, lögðu Sovét- Rússlandi til 11 milljarða dala virði af hergögnum, bifreiðum °g hvers konar birgðum, á láns °g leigukjara grundvelli, þar sem alþjóðarhagsmunir Banda- rikjanna kröfðust ósigurs yfir Hitler. Júgóslavía, sem er kom- ^núnistískt land, hefur síðan hún sleit samstarfi við Moskvu f 948, fengið talsverða efnahags- lega og hernaðarlega aðstoð frá Eandaríkjunum. Það er því augljóst mál, að það getur verið þjóð í hag að söðla um, í bili a. m. k. Komm- dnistískt land getur óttast annað kommúnistískt land og samfylkt and-kommúnistísku landi. í tíð þ?anna sem nú lifa hafa auðvalds riki átt í stríði hvert við annað °g einræðisríki við einræðisríki. ^vallt voru það þjóðarhagsmun- lr> sem réðu úrslitum í þessu efni. Það er því engin firra, að hngsa sér kínverska kommún- lsfa og rússneska kommúnista Sem keppinauta. Sannast að Segja er um keppni milli þeirra að ræða og það virðist svo sem kínversku kommúnistarnir hafi t*egar unnið talsvert á. Norður-Kórea var í rauninni orðin leppríki Rússa, í júní 1950, Pegar Kínverjar fyrir áeggjan Rússa réðust inn í Suður-Kóreu. Ef árangur þessa innrásar- aforms hefði eftir hugmynd Valdhafanna í Kreml tekizt hefði uður-Kórea fljótlega verið . dguð. Rússar hefðu fengið óflugt forvirki þar sem Kóreu- skagi erj Qg getað ógnað Japan °§ áhrifum og valdi Banda- rikjanna í Asíu. fer öðruvísi en ætlað er, segir máltæ _ uðunninn sigur vanst ek] uður-Kóreu. Kínverjar urði efla fram — ekki tugum ] ónda herliðs heldur hundruí Pnsunda, en með þessu jóks úfavald Kínverja í Nori f.^reu> er allur þessi hermai J°ldi og þúsundir annara I Verja flykktust þangað, fli lrigaverkamenn og aðrir. Afl lrigin varð sú, að sá armur h raðandi kommúnistaklík °rður-Kóreu sem var hliðl x r Kínverjum náði undirtöl ’^1) og þeim, sem drógu tí Ussa, var bolað burtu, — N \ r'Kórea varð kínverskt 1< nki. ^aldhafarnir í Kreml v< enn að leggja Kínverjum til fé og hergögn, vélar o. s. frv. að vísu, en kunna enn að gera til- raun til að ná fyrri aðstöðu. En aðstoð slík sem Rússar veita er aldrei eins líkleg til valda-að- stöðu og að senda sína menn á vettvang með herlið að bak- hjarli. Kínverjar gerðu það og hafa tryggt aðstöðu sína vel í Norður-Kóreu. Herseta kínverskra kommún- ista í Norður-Kóreu hefur og raunverulega veikt aðstöðu Rússa í Mansjúríu, sem liggur að Kóreu. Þetta er ein mikil- vægasta afleiðing Kóreustyrj- aldarinnar. í Mansjúríu búa 40 milljónir manna og landið er auðugt að náttúrugæðum og þetta er sá hluti Kína, þar sem iðnaðurinn er kominn á fastast- an grundvöll. Og yfir hana má stytta leið til hinnar rússnesku flotahafnar Wladiwostock. Á 19. öld tókst keisarastjórn- inni rússnesku með hótunum að fá leyfi Kínverja til þess að leggja járnbraut yfir Mansjúríu, en af því leiddi að Rússar fengu áhrifa-aðstöðu í Mansjúríu, sem þeir notuðu sér þannig, að þeir voru þar miklu ráðandi, og voru Kínverjar mjög gramir yfir þessu. Árið 1929 sendi Stalín Rauða herinn inn í landið til þess að hindra Kínverja í að taka það. Þess verður þó að geta að herbrölt Japana 1931 gróf undan öllum sterkustu stoðum Rússa og 4 árum síðar voru þeir tilneyddir að selja Mansjúkó járnbrautina (Mansjúkó var lepp ríki, sem Japanir komu á fót í Mansjúríu). Ein af áslæðunum fyrir því hve Stalín fór seint í styrjöldina gegn Japönum var áform hans að ná aftur yfirráð- um yfir járnbrautinnj. Á Yalta- ráðstefnunni var samþykkt, að Mansjúríubrautin (þvert yfir landið að sjó) og járnbrautirnar í suðurhluta Mansjúríu skyldu reknar af Rússum. Jafnframt skyldu þeir fá yfirráð Dairen- hafnar og flotahöfnina Port Arthur en báða þessa bæi tóku Rússar af Kínverjum á keisara- veldistímanum. Samkomulag og einkennileg tilmæli Eftir langar samkomulagsum- leitanir 1950 við Pekingstjórnina féllust Rússar á að skila braut- inni og Port Arthur til Kína eigi síðar en 1952, en þetta hefur ekki enn verið gert. Þess í stað mæltist utanríkisráðherra hins rauða Kína til þess í september 1952 að Rússar væru kyrrir í Port Arthur og valdhafarnir í Kreml voru svo vinsamlegir að verða við þessum tilmælum. Rússar vilja halda aðstöðu sinni í Mansjúríu og þeir hafa notað Kóreustyrjöldina til af- sökunar því að þeir hafa ekki innt af hendi loforð sín um að skila brautinni. En hversu lengi geta þeir afsakað sig með þessu? Hve lengi getur voldug kínversk stjórn þolað það, að nágranna- ríki, sem frá fornu fari hefur haft útþennslu að marki, doki við innan landamæra Kína? Þegar allt kemur til alls byggj- ast áform Maos um Kína sem íðnaðarland á Mansjúríu, og Mao er nægilega vel að sér í rússneskri sögu til þess að vita hve þungur hrammur rússneska bjarndýrsins getur verið, þegar hann er lagður yfir samgöngu- leiðir og hafnir austur þar. Kín- versku hersveitirnar hafa notað Mansjúríu-brautirnar til her og birgðaflutninga, og það hefur styrkt aðstöðu Kínverja gagn- vart embættismönnum þeim, sem Rússar hafa sent til Man- sjúríu. Gamla rússnesk-kín- verska togstreitan í Mansjúríu er hafin á ný. Fleiri lönd en Mansjúría og Kórea valda ágreningi milli Rússa og Kínverja. Kínaf hefur alltaf krafizt yfirráða í Ytri- Mongolíu, sem er víðáttumikið iand, og haldið þeim kröfum fram, jafnvel eftir að Rússar gerðu þetta land að leppríki sínu. Árið 1941 var gerður sáttmáli milli Japans og Ráðstjórnarríkj- anna. Samkvæmt þessum sátt- mála féllust Japanir á yfirráð Rússa í Ytri-Mongolíu og Stalín féllst á yfirráð Japana í Man- sjúríu. þessum sáttmála og kváðu bæði þessi lönd að réttu tilheyra Kína. Það var ekki fyrr en 1946, að Chiang Kai-shek marskálkur var þvingaður til þess að viður- kenna „sjálfstæði“ hins svo- nefnda „mongólska alþýðulýð- veldis". — Skilnaður Ytri- Mongolíu frá Kína minnir enn á ljótar aðfarir og ágengni í garð Kína. Ennfremur má nefna Sinkiang eða kínverska Turkestan, þar sem bæði Rússar og Kínverjar gera kröfur til yfirráða, en er nú í rauninni rússneskt fylki. Þetta víðlenda íylki er sagt mjög auðugt að málmum og m. a. mun vera þar mikið uran- iummagn í jörð. Hið kommún- istíska Kína lítur löngunaraug- um til þessara náttúrugæða og hinna miklu möguleika, sem þarna eru fyrir hendi, og gætu orðið Kína lyftistöng. En þótt Sinkiang sé í rauninni rússneskt fylki, mun fara fjarri að Mao hafi sleppt þar tökum á öllu. Rússar hafa orðið að sætta sig við, að þar væru stofnuð kín- verk-rússnesk félög til hagnýt- ingar á náttúrugæðum. Það er því allvíða, sem hið kommúnistíska Kína er Þránd- ur í götu rússneskra fyrirætlana. Vitanlega er allt kyrrt á yfir- borðinu og út á við látið líta svo út, sem sambúðin sé í bezta lagi, og er alger eining ríkjandi, og hátíðlegar yfirlýsingar birtar um „ævarandi vináttu". En vald- hafarnir í Kreml munu vart fagna yfir þeim örlögum, að vera klemmdir á milli auðvalds- ríkjanna í vestri og hins komm- únistíska Kína. Sú hætta vofir sífellt yfir, að ef Rússar byrjuðu sókn á sínum löngu landamær- um í vestri, myndu félagarnir í austri nota sér það, og eins löndin í vestri, ef til alvarlegra ýfinga kæmi við núverandi vini í austri. Það er ekki hyggilegt að vanmeta reynslu sögunnar og þróun. Hálfvolg afslaða Stalíns Jafnvel á þeim tíma, er Stalín hefur ekki getað gert sér grein fyrir hver afstaðan mundi verða nú, var afstaða hans gagnvart hinu kommúnistíska Kína hálf- velgjuleg. Um 1920 hvatti Trot- sky til þess, að Kínverjar væru studdir til þess að mynda ráð- stjórnarríki. Stalín studdi hins vegar Chiang Kai-shek. Hann hafði þá sem ávallt í huga sterka valda-aðstöðu. Byltingar, sem gátu leitt til hnignandi valds Rússa, var honum meinilla við. Þess vegna vildi hann þjóðernis- sinnað Kína, þar sem allt var rotið og í öngþveiti vegna mold- vörpustarfs kommúnista. Veikt Kína hentaði honum betur. Uppljóstranir í Júgóslavíu Nýlega hefur komið sitthvað í l]ós í Júgóslavíu, sem skýrir þetta betur, m. a. að 1948 hafði Stalín skýrt Georgi Dimitrov, fyrrverandi yfirmanni kommún- ista alþjóðasambandsins, hótað að eftir styrjöldina hafi hann boðið kínverskum kommúnista- forsprökkum til Moskvu. „Við sögðum þeim í fullri hreinskilni, að engar líkur væru til, að upp- reist í Kína myndi heppnast, heldur ættu vorir kínversku fé- lagar að taka þátt í stjórn Chiangs Kai-sheks og leysa upp her sinn“. — Þegar félagarnir væru komnir í þjóðernissinna- stjórnina mundi Chiang Kai- shek ekki hafa getað fylgt and- rússneskri stefnu. „Hinir kín- versku félagar féllust á sjónar- mið vorra rússnesku félaga“, sagði Stalín, „en er heim kom fóru þeir þveröfugt að“. Láta ekki skipa sér fyrir Valdhafarnir í Kreml eiga nú við kínverska leiðtoga, sem ekki láta segja sér fyrir verkum, og fara verður vel að. Vegna þessa hefur Mao meira athafnafrelsi en þeim í Moskvu líkar. Það er ákjósanlegast að áliti Rússa, að Kína sé nógu sterkt til þess að geta ögrað hinum vestrænu auð- valdsríkjum með Rússa að bak- hjarli, en ekki svo öflugt, að það geti ögrað Ráðstjórnarríkjunum. Augljóst er, að því ískyggilegri sem sambúð Kína og Vestur- veldanna er því meira þarf Mao á Rússum að halda. Ekkert væri því eðlilegra fyrir Malenkov en að reyna að spilla sambúð Kína og lýðræðisríkjanna, en láta þó svo sem hann vildi bæta hana. Hafi Mao gert sér grein fyrir þessu herbragði mun það ekki auka traust hans á Rússum. Gamall ágreiningur Mao átti í deilum við valdhafa Rússlands löngu áður en Kína varð rautt. Margsinnis óhlýðn- aðist hann þeim á þeim tíma, en í dag er hann æðsti maður eins mesta lands heims, og Stalín er úr sögunni. Mao getur gert kröfu til að vera talinn meiri byltingarleiðtogi en nokkur maður í Kreml, Og svo er annað, sem er honum til mikils stuðn- ings. Hann er Asíumaður. Banda ríkjamenn líta stundum á Rúss- land sem hálf-asíatiskt land, en hinir brúnu og gulu menn Asíu líta á Rússa sem Evrópumenn, sem menn úr framandi fjarlægu landi og sömu augum og aðra hvíta menn. Og um alla Asíu er farið að líta á Peking sem heimssetur kommúnismans, eigi síður en Moskvu. — Smávægileg atvik leiða oft í ljós mikinn á- greining undir niðri. Árið 1952 v i 1 d i landbúnaðarráðherra Burma, sem ætlaði í hnattferða- lag, fá rússneska vegabréfs- áritun. Aðspurður sagði hann rússneskum embættismanni frá því, að hann ætlaði að vera tvo mánuði í Kína, en einn í Rúss- landi. Honum var neitað um áritunina, nema hann yrði jafn- lengi í Rússlandi sem í Kína. Indó-Kína — Kína Hver framtíðarafstaða kín- verskra kommúnista verður gagnvart Rússum veltur eigi lítið á Indó-Kína. Meðan Mao gerir ráð fyrir, að Kína kunni að lenda í heimsstyrjöld, mun hann hafa notað samstarfið við Rússa. Og eigi að síður er mikilvægt hvað gerist í Kína sjálfu. Kína þarf erlent fjármagn til þess að koma á fót iðnaði, vélar og þjálf- aða leiðbeinendur. Eins og sakir standa er eingöngu til Rússa að leita, en sjálfir hafa þeir í mörg horn að líta í þessum efnum. Of náin lengsl hættuleg Kínverskum leiðtogum hlýtur einnig að vera ljóst, að það gæti haft hættulegar afleiðingar að tengja efnahagskerfi sitt of t^ustum böndum við Rússa. Mao veit vel hvernig Rússar reyndu með öllu móti að ná á- hrifa-aðstöðu í stjórn og efna- hagslífi Júgóslavíu, til þess að gera landið að leppríki, þótt þar færi öðruvísi en ætlað var. Á hinn bóginn verður að játa, að hin ömurlega útkoma fyrir Rússa í Júgóslavíu, hefur orðið þeim svo alvarleg áminning, að þeir munu fara gætilega, af ótta við að Mao láti koma krók á móti bragði eins og Tító. Bandamenn og keppinautar Eins og stendur eru Rússar og kínverskir kommúnistar bæði bandamenn og keppinautar. ör- lög Asíu og jafnvel alls heimsins kunna að vera undir því komin hvaða öfl verða mestu ráðandi á komandi tímum í sambúð þeirra, þau, sem treysta samstarfið, eða hin, sem auka keppni og á- greining. —VÍSIR, 22. júlí Business and Professionai Cards Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shingles Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 832 Slmcoe St. Winnipeg, Man. ^=X\NR^r SEWING MACHINES Darn socks in a jiffy. Mend, weave in holes and sew beautifully. 474 Poriage Ave. Winnipeg, Man. 74-3570 Dr. ROBERT BLACK SérfrætSingur I augna, eyrna, nef og hftlssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrlfstofuslmi 92-3851 Heimastmi 40-3794 Dunwoody Saul Smilh & Company Chartered Accountants ■ Phone 92-2468 100 Princess St. Winnipeg, Man. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary's and Vaughan, Winnipeg PHONE 92-6441 J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningal&n og eldsAbyrgC, bifreiSaábyrgS o. s. frv. Phone 92-7538 SARGENT TAXI PHONE 20-4845 For Quick, Reliable Service DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK. MANITOBA Phones: Office 26 — Residence 230 Office Hours: 2.30 - 6.01 p.m. Hofið Höfn í huga Heimili súlsetn rsbarnan na. Icelandic Old Folks’ Home Soc 3498 Osler St„ Vancouver. B.C. ARLINGTON PHARMACY PrescTiplion Specialist Cor. Arlington and Sargenl Phone 3-5550 Films, Picnic Supplies and Beaph Novelties. We collect light, water and phone bills. Post Office Thorvaldson, Eggertson, Bastin & Stringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage og Garry St. PHONE 92-8291 CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managlng Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917 Muir's Drug Slore Lld. Offlce Phone Res. Phone 92-4762 72-6115 J. CLUBB FAMILY DRUGGIST Dr. L. A. Sigurdson SERVING THE WEST END FOR 528 MEDICAL ARTS BUILDING 27 YEARS Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. Phone 74-4422 ElUce & Home and by appointment. Minnisf- BETEL í erfðaskrám yðar. A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Stxeet Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá beztl. StofnaB 1894 SlMI 74-7474 Phone 92-7025 Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opposite Maternity PavlUon General Hospltal H. J. H. PALMASON Nell's Flower Shop Chartered Accc'intant Wedding Bouquets, Cut Flowers, 505 Confederatlon Life Building Funeral Designs, Corsages, Bedding Plants WINNIPEG MANITOBA NeU Johnson Rei. Phone 74-6753 Parker, Parker and Kristjansson Barristers - Solicitors Ben C. Parker, Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjanason 500 Canadian Bank of Commerce Chamhers Winnlpcg, Man. Phone 92-3561 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg PHONE 62-4624 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Gilbart Funeral Home Limited Selklrk, Manitoba. Wholesale Distrlbutori of J. Roy Gilbart FRESH AND FROZEN FISH Licensed Embalmer 60 Loulse Street Simi 92-5227 Phone 3271 Selkirk EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin, Manitoba Eigandt ARNl EGGERTSON Jr. SELKIRK METAL PRODUCTS Reykhúfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hltaelningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldl- viC, heldur hlta frá aC rjúka út meC reyknum.—Skrifið, slmið tll KELLY BVEIN8SON (2* WaU St. Winnlpcg Just North of Portage Ave. Simar 3-3744 — 3-4431 Van's ESectric Ltd. 636 Sargent Ave. Authorized Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT Phone 3-4890 J. Wilfrid Swanson & Co. Insurance ln all lts branches ReaJ Rstate - Mortgages - Rentais 210 POWER BUILDING Telephone 93-7181 Res. 46-3480 LET US SERVE YOU

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.