Lögberg - 26.08.1954, Side 8

Lögberg - 26.08.1954, Side 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 26. ÁGÚST 1954 íslendingar tækju á sig stórkostlega óhættu ef ekkert varnarlið væri hér Hefði Atlantshafsbandalagið verið til fyr, hefði engin 2. heimsstyrjöld orðið Ummæli ISMAY lávarðar, framkvæmdastjóra A.-bandalagsins Úr borg og bygð Miss Rósa Johnson kennslu- kona frá Lundar var stödd í borginni síðastliðinn föstudag. ☆ Mr. og Mrs. Charles Clemens frá Ashern, Man., voru stödd í borginni í fyrri viku. ☆ — BRÚÐKAUP — Dawne Lillian, dóttir Mr. og Mrs. S. H. Sigurgeirson, Hecla, Man., og Jónas Stewart, sonur Borgels heitins Doll og konu hans Mulvínu Doll, voru gefin saman í hjónaband í Mikleyjar- kirkju laugardaginn 14. ágúst. Séra Harold S. Sigmar fram- kvæmdi hjónavígsluna með að- stoð séra Skúla Sigurgeirsonar. Systir brúðarinnar, Mrs. O. Helgason og bróðir brúðgumans, Wesley, aðstoðuðu brúðhjónin, en ungar systur þeirra, Caroline Sigurgeirson og Maureen Doll, voru brúðarmeyjar. Mrs. Sig- ríður Sigurgeirson söng brúð- kaupssöngvana, en Lorne Jó- hannson var við hljóðfærið. — Kenneth Jónsson og Ólafur Helgason vísuðu til sætis. Fjölsótt veizla fór fram í samkomuhúsi byggðarinnar, er Helgi K. Tómasson stjórnaði; séra Harold S. Sigmar mælti fyrir minni brúðarinnar, en 6éra Skúli fyrir minni brúðgumans. Ennfremur tóku til máls Rev. Belle, T. R. Thorvaldson, báðir frá Winnipeg; S. Einarson frá Hnausum og Mrs. De Leronde frá Selkirk. — Söngflokkur skemmti með nokkrum lögum. Að loknum rausnarlegum veit- ingum var stiginn dans. Heimili ungu hjónanna verður í Winnipeg. Lögberg óskar þeim til hamingju. < ☆ Guðmundur Jónsson frá Vorsabæ í Ölfusi í Árnessýslu, vistmaður á Betel, andaðist á Johnson Memorial Hospital á Gimli þann 16. ágúst s.l. — Fjöl- menn kveðjuathöfn fór fram á Betel, föstud. 20. ágúst árdegis. Jarðað var í grafreit Selkirk- safnaðar. — Þessa mæta manns verður nánar minnst síðar. ☆ Mr. og Mrs. Halldór Austman frá Víðir, Man., voru stödd í borginni síðastliðinn mánudag. Þj óðræknisdeildin „FRÓN" þakkar hér með eftirtöldu fólki fyrir bækur gefnar til bókasafns deildarinnar: Þeim Jóhannsson’s bræðrum, Walter, Kára og Grettir, fyrir Minningarit foreldra þeirra, hr. Gísla Johnson ritstjóra, Ás- mundi Jónssyni, Reykjavík, ís- landi, og ónefdri konu, sem vill ekki láta nafns síns getið. — Innilegt þakklæti. Fyrir hönd deildarinnar „Frón“ - J. Johnson ☆ Þjóðræknisdeildin „FRÓN" tilkynnir hér með, að bóka- safn deildarinnar verður opnað til útlána á bókum, eftir sumar- fríin, miðvikudaginn 1. septem- ber, á vanalegum tíma, 10—11 f. h. og 7—8.30 e. h. hvern mið- vikudag. Talsvert af bókum hefir bætzt í safnið yfir sumarið. Fyrir hönd deildarinnar „Frón“ J. Johnson, bókavörður ☆ Ritstjóra þessa blaðs barst á mánudaginn bréfspjald frá Dr. Richard Beck, og voru þau hjónin þá stödd í Haugasundi í Noregi; hafði förin til Noregs orðið þeim til ósegjanlegrar ánægju; þaðan ætluðu þau svo til Kaupmannahafnar og innan nokkurra daga til íslands á leið vestur um haf. ☆ Mrs. Alice Weinhard frá Northfield, Minn., er stödd hér um slóðir þessa dagana; hún er dóttir séra Jóns heitins Clemens og fyrri konu hans. Mrs. Wein- hard skipar ábyrgðarstöðu við St. Olavs College í Northfield sem “House Mother,” eða yfir- umsjónarkona með svefnskálum heimavistarstúlkna í þessari kunnu mentastofnun. Mrs. Weinhard brá sér norður til Ashern í heimsókn til föður- bróður síns Mr. Charles Clemens og frú Láru Clemens. ☆ J. J. Swanson & Co. Ltd. wish to announce that Mr. David Snidal has joined the staff of the J. J. Swanson & Co. Ltd. as manager of the Insurance Dept. Mr. Snidal is an excellent insur- ance man, having previously been the manager of the Auto- mobile Insurance Dept. of Osler, Hammond and Nanton. Síðastliðið sunnudagskvöld lézt á Grace sjúkrahúsinu hér í borginni Mrs. Guðlaug Jakobs- son 64. ára að aldri, ekkja Böðvars Jakobssonar skáids í Árborg; hún lætur eftir sig fjögur börn, Ingibjörgu (Mrs. Arvid Olsson) Wembley, Al- berta, Þóreyju (Mrs; Sigmar Sigvaldason) Árborg, Helga, bú- settan í Árborg, og Dr. Böðvar Bjarka, Winnipeg; einnig lifa hana fimm systkini. Útförin var gerð í gær í Ár- borg frá Sambandskirkjunni; við útförina þjónuðu séra Philip M. Pétursson og séra Allan Myrick. ☆ Applications are now being accepted from musicians who wish to play in the Winnipeg Symphony Orchestra. Anyone interested should register at the Symphony office, 270 Edmonton Street, or the office of the Win- nipeg Musicians Association, 403 Montreal Trust Building. Quali- fied applicants will then be in- vited to play for the audition board of the Winnipeg Sym- phony Orchestra, in September. Both profesional and amateur musicians may register for audition. Their acceptance will depend not only on a successful audition, but also on possible vacancies in the various sections of the orchestra. ☆ J. J. Swanson & Co. Ltd. leyfir sér að tilkynna, að nokkur umskipti hafa orðið í starfsliði félagsins og þess vegna hafa greiðslusendingar verið með seinna móti þennan mánuð. All- ar stöður hafa nú verið skipaðar og öll störf í bezta lagi, svo að íélagið getur nú veitt almenn- ingi eins góða þjónustu og nokkru sinni áður. Undirritað: W. H. Olson, forseti ☆ Kristín Sigurós, dóttir Mr. og Mrs. Wilfred Finnson, Hnausa, Man., og Corporal Cecil Laur- ence Rolfe frá Quebec voru gef- in saman í hjónaband 13. ágúst í lútersku kirkjunni í Árborg; séra Robert Jack gifti. Veizla var haldin í samkomuhúsinu að Hnausum. Heimili ungu hjón- anna verður að Gimli. ☆ Frú Kristrún Sigmundsson frá Arlington, Virginia, sem dvalið hefir hér um slóðir síðan rétt fyrir íslendingadaginn á Gimli, lagði af stað heimleiðis í gær; bróðir hennar, Sveinn Oddsson prentari, fylgdi henni suður til Minneapolis. Frú Kristrún hefir heimsótt fjölda vina á ferð sinni hingað norður, svo sem að Árborg, Oak Point og hér í borg. ☆ Mr. og Mrs. Dale Clarke frá Moose Jaw, Sask., komu til borgarinnar um helgina og brugðu sér norður til Mikleyjar á þriðjudaginn. Mrs. Clarke er dóttir þeirra Mr. og Mrs. V. Valgardson í Moose Jaw. ☆ Mrs. Gunnar Matthíasson frá Inglewood Calefornia, og Mrs. H. J. Eggertson frá Montreal, heimsóttu systur sína, Mrs. T. B.; Findley, 176 Oakdale Place síðastliðna viku. Mrs. Matthías- son mun bráðlega fara til fundar við mann sinn, sem hefir verið á Islandi í sumar, en Mrs. Egg- ertson fer heimleiðis til Montreal í lok mánaðarins. Sjúklingurinn var rétt að ná sér eftir botnlangauppskurð og kunningi kom í heimsókn. — Hvernig líður þér? — Mér er farið að líða betur nnúa; en daginn eftir uppskurð- inn þurftu þeir að opna kviðinn á mér áftur, því þeir höfðu gleymt svampi inni í mér. Og í gær ristu þeir mig aftur, því þeir höfðu gleymt skærum. Nú rak læknirinn höfuðið inn um dyragættina. — Ég hef víst ekki skilið hatt- inn minn eftir hér inni? Það leið yfir sjúklinginn! — Ég álít, að ef við hefðum áður fyrr haft eitthvað álíka og Atlantshafsbandalagið, þá hefði okkur verið hlíft við hörmung- um síðustu heimsstyrjaldar. Þannig komst Ismay lávarður, framkvæmdastjóri Atlantshafs- bandalagsins að orði, er hann átti samtal við blaðamenn í skrif stofu utanríkisráðherra. Og hann hélt áfram: — Við vorum ekki vakandi, við vorum ekki sameinaðir. Þess vegna gat Hitler notað tækifær- ið, komið að okkur óvörum, ráð- izt á hvert landið á fætur öðru og undirokað það. Með stofnun Atlantshafsbandalagsins h a f a lýðræðisþjóðir Evrópu bundizt samtökum til að hindra að hið sama endurtaki sig. Ismay lávarður, sem mælti þessi orð, var á styrjaldarárun- um yfirmaður brezka herráðsins. Á þeim dimmustu dögum mátti á hverri stundu vænta hinna ógnþrungnustu fregna, þegar árásarherirnir geystust yfir löndin og lögðu kúgunarhlekki á þjóðirnar. Fáum hefur þá verið eins ljóst og Ismay lávarði, hvað endvaraleysi vestrænna þjóða varð þeim ógurlega dýrt. Og fáir menn tala af meiri reynslu en hann um nauðsyn vestrænna þjóða á að styrkja hervarnir. sínar. Varnarskjöldur myndaður Ismay lávarður ræddi nokkuð um starfsemi Atlantshafsbanda- lagsins. Hann minnti á það, að um það leyti sem bandalagið var stofnað hafi Vestur-Evrópa verið sem næst varnarlaus. Þá voru tímarnir að Rússar hefðu, ef svo mætti segja, getað gengið vestur að Ermasundi. Nú hafa Vestur- Evrópuþjóðirnar myndað nægi- lega sterkan varnarskjöld til þess að tefja og stöðva þá, ef til þess kæmi. En mikilvægasti þátturinn í vörnum Vestur- Evrópu er hið nána samstarf þjóðanna. Árás — algjör fjarstæða — Sumir andstæðingar At- lantshafsbandalagsins tala um að það sé hernaðar- og árásar- bandalag, sagði Ismay lávarður. — Slíkt er algerr fjarstæða. Bandalagið er einvörðungu til varnar og til þess að sýna árás- arríki fram á það, að hernaðar- árás borgar sig ekki gegn sam- einuðu átaki vestrænna þjóða. Atlantshafsþjóðirnar h a f a ekki meiri her en mögulegt er að komast af með til nauðsyn- legustu varna. Það væri verra en ekki ef herkostur þeirra væri svo mikill að þær gætu ekki risið undir honum og efnahagsmál þeirra kæmust í öngþveiti af því. Hafa verður þetta tvennt í huga, annars vegar að æskilegt er að styrkja hervarnirnar sem mest, en hins vegar að efnahagsgeta þjóðanna í þessum efnum er mjög takmörkuð. í Bandalaginu af fúsum vilja Framkváemdastjórinn sagði, að Atlantshafsbandalagið væri alþjóðasamtök þjóða, þar sem hver meðlimaþjóð yrði að leggja nokkuð af mörkum, fórna nokkru til að ná sameiginlegu marki. — En meðlimaþjóðirnar fórna engu af sjálfskvörðunarrétti sín- um. Þær gengu í bandalagið og starfa í því af frjálsum vilja. Þær hafa falið yfirstjórn herja sinna alþjóðastofnun og hefur slíkt að vísu sært stærilæti sumra, því að slíkt framsal her- stjórnar af fúsum vilja er ein- stætt á friðartímum. Vísindi og lækni gera vegalengdir að engu ■ Er Ismay var spurður, hver nauðsyn væri á dvöl herliðs á Islandi, svaraði hann: — Erlent herlið hefur bæki- stöðvar í fleiri löndum. Það er einföld og skýr ástæða fyrir því að staðsetning þess hefur reynzt óhjákvæmileg. Ástæðan er, að ef styrjöld brýzt út, þá gerist það mjög skyndilega og að ó- vörum. Er þá nauðsynlegt að herlið sé á staðnum til varnar og til að búa í haginn fyrir aukið hjálparlið. Það er staðreynd, sem við skulum ekki gleyma, að vísindi og tækni hafa gert vegalengdir að engu. Við lifum ekki á sömu tímum og þeim þegar sóknar- hraði var ákveðinn af göngu- hraða fótgönguliða, því að nú eru flugvélarnar komnar til sög- unnar, sem geysast áfram með 500 mílna hraða á klst. eða meir. Mikil áhætta ísland hefur mikla hernaðar- lega þýðingu. Það er staðsett mitt á milli tveggja heimsálfna, Evrópu og Ameríku, við lífæðina yfir Atlantshafið. Ég álít þess vegna, sagði Ismay lávarður, að íslendingar tækju á sig stórkost- lega áhættu, ef ekkert varnarlið væri hér. Rússar mæla á fundum — Álítið þér að stefna Rússa síðustu mánuðina hafi breytzt í friðsamlegra horf? — Þetta er spurning, sem Rússar einir geta svarað; það er ekki gott fyrir mig að segja hvað þeir ætla sér fyrir. Þeir hafa að minnsta kosti breytt um aðferð- ir. Nú hafa þeir fengizt til að koma á fundi með fulltrúum vestrænna ríkja og ræða við þá um deiluefnin. En ennþá hefur hvergi orðið vart við raunveru- lega stefnubreytingu. Vestur- veldin munu jafnan vera fús að ganga hálfa leið til móts við Sovétríkin. Um þessar mundir stendur yfir Genfar-ráðstefnan. Enn er eftir að sjá, hvort Rússar vilja samkomulag, en það væri óskandi að svo væri. Slórkosllegur víbúnaður Rússa Hann gat þess að Rússar hefðu lítið aukið herstyrk sinn að tölu. Hins vegar hefðu þeir varið stór- kostlegu fé til að endurbæta her- inn og búa hann nýtízku tækj- um. Sem dæmi nefndi hann að fjöldi rússneskra herflugvéla hefði síðustu ár haldizt nokkuð stöðugur og jafn, kringum 20 þúsund. — Fyrir þremur árum hefðu aðeins 3% flugvéla þeirra verið knúnar þrýstiloftshreyfl- um, en risaátak þeirra í vígbún- aði mætti sjá af því að nú væru nær allar þessar 20 þúsund her- llugvélar knúnar þrýstilofts- hreyflum bæði orustuflugvélar og sprengjuflugvélar. Þá sagði hann, að Rússar hefðu enn 175 herfylki landhers viðbúin og hefðu komið upp á síðustu árum um 80 herfylkjum í leppríkjum sínum. Móti þessu réðu Vesturveldin yfir um 90 herfylkjum, sem væru reiðubúin með 30 daga fyrirvara. Þarna er að vísu mikill styrkleikamúnur, en samt ekki eins mikill eins og áður en A.-bandalagið var stofn- að, þegar varnir Vestur-Evrópu voru sama og engar. Ef friður kemst á Að lokum mælti Ismay lá- varður á þessa leið: — Fólk álítur, að Atlantshafs- MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 29. ágúst: Enskar messur kl. 11 árd. og kl. 7 síðd. S. Ólafsson ☆ Messur í Norður-Nýja-íslandi Sunnud. 29. ágúst: Riverton, kl. 2. — Afhjúpun myndar í minningu um séra Jóhann Bjarnason. Víðir, kl. 8, á ensku. Robert Jack ☆ Messur í Vatnabygðinni Sunnud. 29. ágúst: Leslie, messa á íslenzku, kl. 11 f. h. Mozart, messa á ensku, kl. 2 e. h. Wynyard, messa á íslenzku, kl. 4 e. h. í Sambandskirkjunni. Elfros, messa á ensku, kl. 8 e. h. (In the Community church). Séra Jóhann Fredriksson það er mikilvægt að benda á það að í 2. grein stofnsamningsins er tekið fram að bandalagið leggi áherzlu á’ samstarf í félagsmál- um, menningar- og efnahags- málum. Ef sú bæn okkar skyldi rætast að friðsamlegra verði í heimin- um og við þurfum ekki að eyða eins miklu fé í vígbúnað, þá er ekki þar með sagt að hlutverki bandalagsins sé lokið, heldur munu þjóðirnar þá starfa saman að málefnum friðarins og sam- starfið mun einnig gera þau sterk í friði. Þannig munu At- lantshafsþjóðirnar geta lifað saman eins og stór fjölskylda. •— Þetta er þó aðeins byrjunin, því að lokatakmarkið hlýtur að vera, að allar þjóðir heims geti lifað saman í ást og eindrægni. —Mbl., 14. júlí Kaupið Lögberg Það er borið -fram FEIS-EL I þessu felast aukin þægindi, því þessir pappírs-klútar eru kunnir að mýkt og fara vel með nefið. KAUPIÐ r™.... Góð vörumerki að kynnast- og kaupa eftir . . . Veitið athygli þessum nöfnum, er þér farið í búð, því það, sem þér þarnist ber að líkind- um á sér eitthvert þessara nafna. — Verzlið í öryggi — í vörugæðum og verði. .... einungis hjá EATON’S M m '.m Nl' 11 Songs of the ^Nprth by S. K. HALL, Bac. Mus. JUST PUBLISHED— Volume III — Ten Icelandic Songs with English Translation and Piano Accompaniment. Price per copy — $2.00 On Sale by— S. K. HALL, Wynyard, Saskalchewan

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.