Lögberg - 30.09.1954, Qupperneq 1
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSST - SARGENT
SILVERLSNE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
67. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 30. SEPTEMBER 1954
NÚMER 39
Fréttir fró ríkisútvorpi íslands
19. SEPTEMBER ----------------
Upp í garð til Sæmundar
í vikunni, sem leið, hefur verið
horðanátt um allt land nema í
g®r, en þá brá til austanáttar
alls staðar. í vikunni var fremur
kalt í veðri og næturfrost flestar
nætur. Yfirleitt var bjartviðri
sunnanlands, en rigning og
stydda norðanlands og snjóaði í
fjöll suma daga.
☆
Ríkisstjórn íslands hefur gefið
ut Hvíta bók og lagt fram í
Evrópuráðinu. Nefnist bók þessi
Ráðstafanir íslendinga til vernd-
unar fiskimiðunum og eru þar
rökstudd sjónarmið íslendinga í
landhelgismálinu og lögð fram
£ogn, sem það varða. Land-
heigismálið verður rætt í laga-
uefnd Evrópuráðsins innan
skamms og á ísland fulltrúa í
þeirri nefnd.
☆
Ur. Kristinn Guðmundsson
utanríkisráðherra, Vilhjálmur
þor forstjóri og Jóhann Þ. Jósefs
son alþingismaður fóru til New
^ork í gær til þess að sitja fyrir
fslands hönd, ásamt Thor Thors
sendiherra, fastafulltrúa íslands
hjá Sameinuðu þjóðunum, ní-
unda Allsherjarþing Sameinuðu
Þjóðanna, sem hefst næstkom-
andi þriðjudag.
☆
Síðastliðna viku hefur síld-
veiði reknetabáta suðvestan-
fands verið allgóð, en þó misjöfn
ú köflum. Fyrra laugardag hafði
verið saltað í rösklega 33 þúsund
tunnur. Mikið veiðarfæratjón
öeíur verið hjá reknetabátunum.
Hefur háhyrningur gert mikinn
usla á síldarmiðunum og margir
kátar hafa orðið fyrir mjög til-
finnanlegu tjóni, hafa sumir bát-
ar misst allt upp í 50 net í róðri
°S einn útgerðarmaður í Sand-
8erði hefur misst yfir 200 net í
haust af völdum háhyrnings.
Síðustu daga hefur verið allgóð
reknetaveiði norðaustur í hafi.
^élbáturinn Valþór kom til
peyðisfjarðar í gærmorgun með
280 tunnur eftir 10 daga útivist
°§ var aflinn saltaður um borð.
w
kundizt hafa ný karfamið við
uusturströnd Grænlands. Það
var togari Bæjarútgerðar Reykja
vikur, Jón Þorláksson, sem fann
uin nýju karfamið og var Dr.
íermann Einarsson fiskifræð-
lugur með í förinni og gerði
vísindalegar athuganir. Undan-
furin ár hefur Veðurstofan aflað
isfregna reglulega frá austur-
strónd Grænlands og kom í ljós,
að ís var ekki til trafala að
sumrinu. Jón Þorláksson var
Sendur í þessa ferð seint í síðasta
juánuði og fann hin nýju mið og
uufa 20 íslenzkir togarar fengið
Pur samtals um 6600 lestir af
^arfa á tímabilinu frá 23. ágúst
111 14. september. Áður hafa ís-
enzku togararnir sótt á karfa-
mið Vlð vesturströnd Grænlands,
en þangað er um 1000 sjómílna
sigling. Til hinna nýju miða er
mns vegar um 340 sjómílna leið
°g gefur auga leið hve það spar-
ar mikinn tíma og útgerðar-
°stnað að sækja á nýju miðin.
☆
Ejórir íslenzkir togarar hafa
SeJt afla sinn í Þýzkalandi í síð-
Ustu viku. Skúli Magnússon
Seldi 226 lestir fyrir tæp 53 þús-
and mörk, Jón forseti seldi 232
estir fyrir rösklega 108 þúsund
mörk, Harðbakur seldi fyrir tæp
79 þúsund mörk, og loks seldi
togarinn Jörundur 2,675 lcörfur
af síld fyrir tæplega 38 þúsund
mörk, en Jörundur hefur verið
að síldveiðum í Norðursjó að
undanförnu. Einnig seldi Jör-
undur frosna síld fyrir um 3000
mörk.
☆
Samningaumleitanir í togara-
deilunni standa yfir um þessar
mundir fyrir milligöngu sátta-
semjara ríkisins og hafa allmarg-
ir fundir verið haldnir með deilu
aðiljum í vikunni. Sjómanna-
samtökin hafa boðað verkfall á
togurunum frá 21. þessa mánað-
ar að telja hafi samningar ekki
tekizt fyrir þann tíma.
Síðastliðinn mánudag tókust
samningar milli vinnuveitenda
og sjálfseignarvörubílstjórafé-
lagsins Vals á Akureyri fyrir
milligöngu Þorsteins M. Jóns-
sonar héraðssáttasemjara, en
Valur hafði boðað verkfall frá
þeim degi að telja. Kom því ekki
til verkfallsins.
☆
Síldarbræðsluskipið Hæringur
hefur nú verið selt úr landi til
Álasunds í Noregi og er nú siglt
áleiðis þangað. Söluverð skipsins
var 100 þúsund sterlingspund.
☆
Kauplagsnefnd hefur reiknað
út vísitölu framfærslukostnaðar
í Reykjavík 1. september og
reyndist hún vera 159 stig.
☆
Tuttugasta og fjórða þing
Alþýðuflokksins var sett í
Reykjavík í fyrradag af for-
manni flokksins, Hannibal Valdi
marssyni. Kai Nissen flutti
kveðjur frá dönskum jafnaðar-
mönnum og Rolf Gerhardsen frá
norskum. Forseti þingsins var
kjörinn Emil Jónsson. Á þinginu
í gær flutti formaður flokksins
skýrslu sína.
☆
A fundi bæjarstjórnar Reykja-
víkur á fimmudag var samþykkt
frumvarp að nýrri gjaldskrá
fyrir Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur. Samkvæmt áætlun um fjá-r-
þörf Rafmagnsveitunnar þurfti
að hækka gjaldskrána að jafn-
aði um 27,5% til þess að fá nauð-
synlega tekjuaukningu.
☆
Nú um miðjan mánuðinn lauk
lax- og silungsgönguveiði á
þessu ári og veiði á stöðuvötn-
um lýkur 27. þessa mánaðar.
Laxveiði á stöng í sumar hefur
verið töluvert innan við meðal-
lag síðustu sex ára, en svipuð og
í fyrra.
☆
Á þriðj udagskvöldið mældust
um það bil 80 jarðhræringar á
jarðskjálftasvæðum Veðurstof-
unnar og áttu þær upptök sín í
námunda við Grindavík. Héldu
jarðhræringarnar áfram alla
nóttina og fram eftir hádegi á
miðvikudag. Jarðhræringar þess-
ar fundust greinilega í Grinda-
vík og hrikti þar víða í húsum.
☆
Slátrun sauðfjár fer nú að
hefjast. Á Húsavík er gert ráð
fyrir að slátrað verði 18,500 fjár
í haust, en þar var slátrað í
fyrra 11,500 fjár. Haustslátrun
hófst hjá Kaupfélagi Eyfirðinga
í gærmorgun og er gert ráð fyrir
að slátrað verði 16 þúsund fjár.
☆
í síðasta mánuði fluttu flug-
vélar Flugfélags íslands tæplega
10,300 farþega og hafa farþega-
flutningar félagsins aldrei verið
Framhald á bls. 5
Skipaður í
ábyrgðarstöðu
Mr. Helgi Austman
Þessi ungi og efnilegi maður,
sem útskrifaðist með hárri eink-
unn í búnaðarvísindum fyrir
nokkrum árum af Manitoba-
háskólanum og gegnt hefir
undanfarið búnaðarráðunauts-
stöðu að Teulon hér í fylkinu,
hefir fyrir skömmu verið skipað-
ur Assistant Director of Exten-
tion Service í þjónustu fylkis-
stjórnarinnar. Mr. Austman er
hæfileikamaður mikill, áhuga-
samur og vinsæll; hann er sonur
þeirra Mr. og Mrs. Halldór Aust-
man að Víðir, Man.
Frambjóðendur í
Selkirk-kjördæmi
Nú hefir það verið formlega
kunngert, að aukakosning til
sambandsþings fari fram í Sel-
kirk-kjördæmi þann 8. nóvem-
ber næstkomandi.
Fram að þessu er vitað um
þrjá frambjóðendur, Mr. John
Shanski af hálfu Liberala, Mr.
David Veitch fyrir hönd íhalds-
manna, og Mr. William Bryce,
fyrrum sambandsþingmaður, er
leitar kosningar undir merkjum
C. C. F.-sinna.
Svo sem vitað er var auka-
kosning þessi fyrirskipuð vegna
sviplegs fráfalls þingmanns
kjördæmisins, Mr. Woods, hinn
8. ágúst síðastliðinn; nokkur
kosningaundirbúningur er þegar
hafinn í kjördæminu, en ætla
má að átök milli frambjóðenda
færist í aukana eftir því sem nær
drengur kosningunni.
Alls kyns vistir að sér dró:
aflaði bæði á landi og sjó
handa sér og sínum nóg:
Sæmundur að Odda bjó.
Kyndug ein var kerling þar:
kunni listir þátíðar.
Þuldi bœnir blessunar
búi og lífi Sœmundar.
Morgun einn í austri skein
árdagsroði, og stormur hvein:
heyrðist eins og væluvein,
var það aldrei góðspá nein.
Kerling hrópar hátt og snjalt:
„Heyrið! vakni fólkið alt’.
Góður gestur
af Fróni
Undanfarinn vikutíma hefir
dvalið hér í borginni séra Pétur
Magnússon prestur í Vallanesi,
kunnur gáfumaður og ágætlega
ritfær; kom hann hingað til álfu
í boði fræðslumálastjórnar
Bandaríkjanna, en fór frá ís-
landi 2. ágúst síðastliðinn; hefir
hann ferðast mikið sunnan
landamæranna og notið ósegj-
anlegrar ánægju af því, sem
fyrir augu og eyru bar; héðan
skrapp séra Pétur norður til
Gimli, heimsótti sólsetursbörnin
á Betel og flutti þar ræðu; hann
prédikaði í Fyrstu lútersku
kirkju á sunnudagskvöldið var
við mikla aðsókn, en er nú í þann
veginn að fara suður til Banda-
ríkja á leið til íslands.
Séra Pétur er sonur séra
Magnúsar Bl. Jónssonar fyrrum
prests í Vallanesi, sem nú er bú-
settur í Reykjavík, og frú Ingi-
bjargar Eggerz, systur þeirra
Sigurðar Eggerz ' fyrrum for-
sætisráðherra og Guðmundar
fyrrum sýslumanns í Suður-
Múlasýslu.
Lögberg þakkar séra Pétri
komuna og árnar honum góðs
brautargengis.
ÚTVARP
Á sunnudaginn kemur, 3. okt.,
yerður árdegisguðsþjónustunni
frá Fyrstu lútersku kirkju út-
varpað frá stöðinni C. K. Y. í
Wpg. Útvarpið hefst kl. 11 f. h.
Nú er hvorki heitt né kalt,
herðið ykkur þrítugfalt!
Öll í hóp á engjarnar,
enginn spari hendurnar!
Bjóðum regni byrginn þar,
björgum heyi Sæmundar!
Menn og konur keppist við;
krakkar einnig veiti lið.
Veðrið engu gefur grið,
grimd þess bráðum finnið þið.
Hreyfið óspart hrífurnar,
heyi bjargið Sœmundar.
Ég skal sjá um sáturnar
séu þœr trútt og vel bundnar“.
Menn og konur keppast við,
krakkar einnig veita lið.
Veðrið engu gefur grið —
gengur áðum heybandið.
Kátleg bæði og kyndug þar
kerling skoðar sáturnar:
hverja eina ávarpar:
„Upp í garð til Sæmundar!“
Óðar svifu sáturnar
— sintu boði kerlingar —
eins og hlypu hundreknar
heim í garð til Sæmundar.
Væri gott ef vísindin
vildu nota kraftinn sinn
til að efla algæðin,
eins og blessuð kerlingin.
Glatt var á hjalla í samkomu-
húsi Árborgar sunnudagskvöldið
12. september, þegar um 200
manns komu saman til þess að
heiðra „Leiðtogann okkar góða“
og konu hans, Mr. og Mrs. H. H.
Austman. Hefir hann verið
okkar trúnaðar-umboðsmaður í
sex ár, nú aðstoðar hann yfir-
mann þeirrar deildar fyrir fylk-
ið, í staðinn fyrir að líta eftir
sinni deild hefir hann umsjón
með öllum deildum fylkisins,
starf sem hann mun höndla af
snild. Hann er mjög fjölhæfur
maður. Með sinni alúðlegu fram-
komu og innilega brosi nær
hann allra hylli.
Stefnuskrá trúnaðar-umboðs-
manns er mjög fjölbreytt. Hafa,
ef til vill, unglingar þessarar
deildar borið mestan sigur úr
býtum af hans leiðsögn. Hefir
hann sett á stofn 4-H deildir í
öllu umdæmi sínu með aðstoð
frá leiðtogum fyrir hverja deild,
hefir miklu verið afkastað. Hafa
deildir okkar hér ávalt staðið
framarlega í allri samkepni, sem
þær hafa tekið þátt í, og aftur
og aftur hlotið hæstu verðlaun.
Tilfellið er, að aðalhlutverk
deildanna er ekki að vinna verð-
laun heldur hitt, að vinna saman,
að vinna hvert verk, sem að
höndum ber, eins vel og mögu-
legt er. Ungdómurinn þarfnast
leiðsagnar á svo mörgum svið-
um, sérstaklega því verklega; og
hefir starf Helga á meðal þeirra
haft þau áhrif, sem hefir kent
þeim að heiðarleg vinna er horn-
steinn farsællar framtíðar.
Helgi hefir átt drjúgan þátt í
framför þessarar bygðar. Hefir
hann setið flesta bændafélags-
fundi og flutt upplífgandi og
hvetjandi ræður. Hafa hans ráð-
leggingar ávalt hjálpað þeim,
sem til hans hafa leitað. Hefir
hann komið á fót mörgum nýj-
ungum, sem reynzt hafa vel.
Okkur þykir öllum vænt um,
að honum hefir hlotnast sá
heiður að vera kjörinn í þessa
stöðu. Við söknum hans, en erum
þakklát fyrir að hafa notið leið-
Segir sig úr
bæjarstjórn
Viclor B. Anderson
Þau tíðindi komu mörgum á
óvart, að Victor B. Anderson
bæjarfulltrúi í Winnipeg, hefði
sagt sig úr bæjarstjórn eftir 20
ára dygga þjónustu áður en kjör-
tímabil hans rynni út, sem eigi
hefði orðið fyr en í lok næsta
árs; en svo er vafalaust hver
sínum hnútum kunnugastur og
hagar sér eftir því.
Mr. Anderson hefir jafnan
reynst liðtækur og samvizku-
samur fulltrúi í bæjarstjórn og
er því að honum eftirsjá, er
hann hverfur þaðan á brott.
Líklegt þykir að Mr. Anderson
og frú muni flytja búferlum til
Vancouver áður en langt um
líður.
sagnar hans þennan tíma. Við
gleðjumst yfir því, að hann er
enn í raun og veru leiðtogi vor,
þar sem hann er enn að vinna
það starf, sem honum er svo
kært, að líta eftir velferð og
framförum bændaefna fylkisins.
Fyrir boðinu stóðu búnaðar-
deildir bygðarinnar.
Forseti var S. Sigvaldason. 3
stúlkur skemtu: Olive Lindal,
Harmoniku solo; Gwen Jónas-
son Piano solo; Kristín Johnson,
Vocal solo; Jóhannes Pálsson
Violin solo, ennfremur stjórnaði
hann almennum söng. Ræður
fluttu Mr. S. Wopnford, Mrs. A.
Siggs, séra Robert Jack og sú, er
þetta ritar.
Þeim var gefið Silver Tea
Service.
Mr. Austman þakkaði fyrir
með ræðu. — Veitingar voru
seinasti þáttur samkomunnar.
Andrea Johnson
Bjartsýnn ó
framtíðina
Fjármálaráðherra Breta, R. A.
Butler, átti nýlega stutta við-
dvöl í Quebec-borg á leið til
Washington til að sitja fund Al-
þjóðagjaldeyrisstofunarinnar og
Alþjóðabankans; í viðtali við
blaðamenn í Quebec lét Mr.
Butler þess getið, að fyrir nokkr-
um árum hefðu Bretar horfst í
augu við gjaldþrot, en nú yrði
ekki annað sagt en þjóðin
byggi blómabúi: utanríkis-
verzlun hefði aukist til stórra
muna og innanlandsverzlunin
komin á það stig, að hin hvim-
leiða vöruskömtun væri rheð
öllu úr sögunni; þakkaði hann
þetta að mestu endurvakningu
einstaklingsframtaksins, sem nú
réði lofum og lögum á Bretlandi.
Mr. Butler dáði mjög þær
risavöxnu framfarir, sem skotið
hefðu rótum í Canada á undan-
förnum síðustu árum; kvað
hann það einnig auðsætt hve
áhrif Canada á alþjóðavettvangi
færðust árlega í vöxt.
MiNNI GULFOSS
Ort á leið frá Skotlandi til Kaúpmannáhafnar 28. júlí 1954
og flutt á samkomu um borð í „Gullfossi“ samdœgurs
Á yngri dögum eitt mitt fyrsta ljóð
ég orti, fríða skip, um nafna þinn.
Hann kveikti í þjóðar hjörtum heita glóð,
er hafnir landsins gisti fyrsta sinn.
Hann börnum íslands vonafylling var,
og vonir nýjar þeim í skauti bar.
í æsku bránn mér sævarþrá í sál
þá sigldu víða drauma minna skip,
og enn mér huga hitar öldumál
og heillar særinn blár með töfrasvip.
Því var mér, „Gullfoss“, fagnaðsför með þér,
um fornar víkingsslóðir ljóma ber.
Með sóma berðu fossins fagra nafn,
í fegurð þinni speglast svipur hans.
Um hvelfda barminn þinn og sterkan stafn,
vér streyma finnum hjartablóð'vors lands,
því draumur rættur varstu vorri þjóð
og vonadirfsku nýrrar kveiktir glóð.
Með fánann kæra strengdan hátt við hún
þú höfin brúar, eykur sæmd vors lands,
í sögu þjóðar ritar glæsta rún
og rósum prýðir hennar frægðarkrans.
Þér fylgi heillir, fagurprúða skip,
með feðralandsins tign í björtum svip.
RICHARD BECK
Lesbók Morgunblaðsins
Sig. Júl. Jóhannesson
Fallegt og fjölment samsæti