Lögberg - 30.09.1954, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 30. SEPTEMBER 1954
í hinu mikla bifreiðasafni Daimler-Benz í Stuttgart er margt
frægra farartækjo
Stöðugt er unnið að endur-
byggingu í Þýzkalandi og
með þessu ári að telja getur
Stuttgart á ný státað af ein-
stæðu bílasafni í elztu bif-
reiðaverksmiðju, sem vitað
er um. Er hér um að ræða
Daimler-Benz verksmiðjuna
í Stuttgart-Unterturkheim.
Verksmiðjan, sem er ein af
fimm, þar sem 35 þúsund
mannT vinna, skemmdist
mjög mikið eftir styrjöldina,
en bílasafnið var vel geymt
í sprengjuheldum kjállara
undir sjálfri verksmiðjunni.
Nú er að fullu lokið við að
endurbyggja Daimler-Benz
og safnið dregur þegar að sér
þúsundir ferðamanna, sem
án endurgjalds fá yfirsýn
yfir núverandi og fyrrver-
andi bifreiðasmíð.
ERKSMIÐJAN framleiðir að-
eins mjög vandaðar bireiða-
vélar og liggur ekki langt frá
miðhluta Stuttgarts í Mercedes
Strasse og er safninu komið fyrir
á fyrstu hæð byggingarinnar.
Hér er um stórt safn að ræða,
allt að því hundrað bílar frá
fyrstu tíð til vorra daga, og
fyrsta tíð þýðir í þessu tilfelli frá
því fyrir aldamótin síðustu.
Fyrsti vísirinn
Strax og komið er inn í hina
þöglu sali, þar sem bifreiðar
tróna, sem eru milljóna króna
virði, væru þær til sölu, vekur
einkennilegt skrapatól mesta
athygli. Þetta ókennilega farar-
tæki ber með sér ýmis einkenni
nútíma bifhjóls. Og það er líka
fyrsta bifhjólið, sem augum varð
litið af mönnum. Hjólið var
smíðað af Gottlieb Daimler í
litlu verkstæði, sem enn er varð-
veitt í úthverfi Stuttgart. Þetta
gerðist árið 1883 og farartækið,
sem árið ól af sér, var fyrsta
teikn þeirrar nýaldar, sem var
að renna varðandi farartækin
og bifvélina. I þessu fyrsta bif-
hjóli var einsstrokksvél, er gekk
fyrir benzíni. Daimler voru ljós-
ir þeir möguleikar, sem þessi
litla vél færði honum upp í hend-
urnar, enda byggði hann benzín-
vélar með það fyrir augum, að
hægt væri að nota þær í hest-
vagna, sporvagna, landbúnaðar-
tæki og margt fleira.
Annar maður með sömu
hugmyndir
En það voru fleiri en Daimler,
sem höfðu nýjar hugmyndir í
kollinum, er áttu eftir að um-
turna öllum venjulegum lög-
málum um hreyfiafl og þó eink-
anlega möguleika á nýtingu
þess hreyfiafls, sem vitað var að
hæ^t var að virkja, ef lagi og
hugvitssemi var beitt. Ekki langt
frá byggði annar Þjóðverji
benzínvél, sem var næstum eins
í öllum aðalatriðum og vél
Daimlers. Maður þessi hét Carl
Benz og þekkti hann ekkert til
Daimlers og hafði ekki hug-
mynd um þær tilraunir, sem
Daimler var að gera um sama
leyti. Upp úr þessu urðu svo
kynni á milli þessara tveggja
hugvitsmanna og þegar þeir fóru
að ráðslaga í sameiningu, fór
að koma skriður á málin. Voru
gerðar það örar og miklar endur-
bætur á vélunum, að hið opin-
bera hafði varla við að fylgjast
með. Þetta samstarf Benz og
Daimlers renndi fótum undir
stofnun elztu bifreiðaverksmiðju
sem sögur fara af og sem enn
1 þann dag í dag ber nafnið
Daimler-Benz.
Hver var Mercedes?
En bifreiðar þessarar verk-
smiðju heita Mercedes og þykir
það máske nokkurri undrun
sæta, þar sem það nafn er ekki
að finna í verksmiðjuheitinu, né
að það sé fornafn annars hvors
uppgötvarans. Þá sögu er að
segja af þessu nafni, að það er
nafn dóttur Daimlers gamla.
Þegar Daimler og Benz höfðu
gert drög að nýjum árangri í
byrjun þessarar aldar, sem þeim
fannst vera fegurri bifreið, en
þeim hafði tekizt að byggja fram
að þessu, vantaði þá tilfinnan-
lega nafn. Þeir veltu þessu lengi
fyrir sér, því þetta átti umfram
allt að vera gott nafn. Daimler
átti unga og óvenju fagra dóttur.
Hún hét Mercedes og að lokum
þótti það nafn eitt vera nógu
gott fyrir þessa bifreið. Og
þannig vildi það til, að þær þús-
undir vagna, sem nú renna dag-
lega eftir færiböndum Daimler-
Benz verksmiðjanna, bera nafnið
Mercedes-Benz.
Bifreið keisaraynjunnar
Svo aftur sé snúið til safnsins,
má þar sjá hverja kunna bifreiða
gerðina af annarri. Bifreiðunum
er að nokkru raðað upp eftir
aldri. Fyrst sjást hestvagnar
með vélum, síðan kerruvagn-
arnir. Þar næst koma hinir í-
burðarmiklu skrautvagnar, er
urðu undanfari þess bifreiðalags,
sem við þekkjum í dag, og var
frábrugðið gamla laginu með vél
að framan og tilheyrandi vélar-
húsi, er í einn tíma var gert sem
mest úr, þótt nú sé farið að
minnka það. Innan tíðar koma
svo gúmmíhjólin, fyrst þau þéttu
og síðan þau loftfylltu, er enski
dýralæknirinn Dunlop fann upp
og Michelin fulllcomnaði. Þarna
sjást einnig brunabílar, og hefir
hugmyndaflugið fengið að leika
nokkuð lausum hala við smíði
þeirra. Fræg er bifreið keisara-
ynjunnar, sem er einna líkust
dagstofu að innan. Hafði frúin
heilt tækjaborð sér til dundurs,
en frá því gat hún gefið öku-
manninum merki þess efnis,
hvort hún vildi fara hraðar eða
hægar, eða beygja til hægri eða
vinstri. Fljótlega fer að bera á
kappakstursbílum í safninu, til
að byrja með nokkuð rómantísk-
ir og óhentugir, en innan fárra
ára fá þeir á sig rétt lag, verða
stöðugt lægri á hjólum og með
aflmeiri vélar. í safninu er að
finna vagn, sem vann fyrstu
verðlaun í kappakstri og komst
hraðast 120 km. á klukkustund,
árið 1906.
Mercedesinn hans Hitlers
Á upphækkuðum palli stendur
mjög falleg og ríkulega búin
svört bifreið með tólf strokka
vél, sem byggð var 1937. Hún
var gerð samkvæmt sérstakri
beiðni og er enn með fallegustu
vögnum, sem gerðir hafa verið.
í stríðslok tók bandaríski yfir-
maðurinn á hernámssvæði
Bandaríkjanna bifreiðina í sína
þjónustu. Notaði hann bifreiðina
bæði til elnkaþarfa og einnig
opinberlega, unz hann fór frá
Þýzkalandi. Þá óskaði hann þess
að bifreiðin yrði látin á Daimler-
Benz safnið í Stuttgart. Var
þessu boði að sjálfsögðu tekið
með þökkum. Það mundi kosta
ærið fé að byggja sams konar
bifreið og þessa í dag.
Enginn veit hvað orðið hefir
af Mercedes-bifreið þeirri, sem
Hitler hafði til afnota. Á mynd-
um sézt hann alltaf standandi við
framrúðuna í stórum, opnum
Benz-vagni. Þessi vagn er nú
týndur og tröllum gefinn. Verið
getur að hann hafði eyðilagzt
með öllu í stríðslok, og þótt
einir tólf Bandaríkjamenn haldi
BENDING TIL NÝRRA CANADAÞEGNA
YFIRLÝSING UM ÁKVÖRÐUN UM AÐ VERÐA
CANADISKUR ÞEGN EKKI NAUÐSYNLEG
Samkvæmt tillögum ráðherra þegnréttinda og innflytjenda, hefir
þing Canada samþykt breytingu á þegnréttindalögum landsins. Gerist með
henni óþarft fyrir nýja borgara, að leggja fram yfirlýsingu um að þeir
ætli sér að verða canadiskir þegnar. Með þessu er átt við, að maður
getur lagt fram beiðni um borgarabréf, þegar fimm ár eru liðin frá því
að hann kom til landsins og hefir dvalið hér. Beiðni um borgaraleg réttindi
má leggja fram hjá ritara í rétti bygðar þinnar.
Eigi að síður getur hinn nýkomni lagt fram yfirlýsingu um áform
sín að verða hér borgari, ef hann óskar þess, þó það sé með öllu óþarft. Þetta
ákvæði er aðeins gert til þess, að sanna ef með þarf, að hann nýi umsækjandi
ætli sér að verða hér borgari. Og þá yfirlýsingu má þá einnig leggja fram
hjá ritara réttar héraðsins, sem hann á heima í eða hjá bókara þegnréttinda
í þegnrétt og innflutningsdeildinni í Ottawa.
Birt til fyrirgreiðslu nýrra innflytjenda af
Department of Citizenship & Immigration
HON. J. W. PICKERSGILL, P.C., M.P. LAVAL FORTIER, O.B.E., Q.C.
Minister Deputy Minister
Mrs. Þorbjörg Runólfsdóttir Mýrdal
því fram, að þeir eigi þessa bryn-
vörðu bifreið leiðtogans, þá er
ekki talið að hún hafi flutzt til
Bandaríkjanna.
Bifreið með vængi
Stærsta bílinn á safninu er að
finna meðal kappakstursbifreið-
anna. Hann er tíu metrar á
lengd og er mjög straumlínu-
lagaður. Hann er með sex hjól-
um, fjórum að aftan, hefir hlið-
arstýri, eins og flugvél og er
með stutta vængi, sem eru til
þess að halda honum niðri á
afturhjólunum, þegar komið er
á fulla ferð. Það átti að setja
flugvélamótor í bílinn, en úr því
varð aldrei og stendur hann
vélarlaus í safninu. Stríðið batt
enda á frekari aðgerðír og nú
hafa þau hraðamet, sem þessi
bifreið átti að setja, verið sett af
öðrum.
Þannig á hver bifreið í Daim-
ler-Benz-safninu í Stuttgart sína
sögu, stundum sorgarsögu, en
flestar eru sögurnar um nýja
áfanga í hraða og aukinni
aksturshæfni.
—TÍMINN, 11. ágúst
Hún andaðist að heimili dóttur
sinnar og tengdasonar, Mr. og
Mrs. B. Danielson við Árborg
þann 17. júní s.l.
Þorbjörg var fædd að Kvísl-
höfða í Álftaneshreppi í Mýra-
sýslu, 28. júní 1860. Foreldrar
hennar voru Runólfur Guð-
mundsson og Þorbjörg Jóns-
dóttir. Með þeim ólst hún upp.
Árið 1884 giftist hún Þorvaldi
Einarssyni frá Þverholtum í
Álftaneshreppi. Þau bjuggu á
Vogalæk. Hún misti mann sinn
frá börnum þeirra ungum. —
Börnin eru: Einar, búsettur í
Selkirk, kvæntur Guðrúnu Sig-
urðardóttur Hafliðasonar; Jó-
hann, búsettur í Selkirk, kv.
Kristbjörgu Einarsdóttur John-
son; Lára, Mrs. Benjamín
Danielson, Árborg, Man.
Við lát manns hennar voru
synir hennar teknir í fóstur, en
Lára dóttir hennar var jafnan
með henni.
Um aldamót fluttist Þorbjörg,
ásamt dóttur sinni, til Vestur-
heims og settist að í Norður-
Dakota. Árið 1903 giftist hún
Magnúsi Jónssyni Mýrdal, er
var sonur Jóns bónda Guð-
mundssonar í Sanddalstungu og
Sesselju Jónsdóttur. Þeim Þor-
björgu og Magnúsi varð tveggja
barna auðið: Laufey, búsett i
Winnipeg, og Þorvaldur, látinn
fyrir fáum árum síðan. Tvser
dótturdætur hinnar látnu ólust
einnig upp hjá Þorbjörgu og
manni hennar, þær eru: —
Dorothy, Mrs. Harris, og
Florence, Mrs. Noyls.
Þorbjörg var mikil þrekkona
bæði til líkama og sálar. Hún
bar breytilega og þunga reynslu
ævidagsins með mikilli rósemi
og stillingu. Hún var kona jafn-
lynd og glöð í sinni, trygg og
staðföst vinum sínum. Þótt hun
nyti aðeins heimilisfræðslu i
bernsku, var hún kona víðlesin
og fróð um margt, einkum sögu-
leg efni ættlands síns og þjóðar.
Hún átti affarasælar gáfur,
kunni að meta fróðleik og finna
þannig svölun — mitt í önnum
ævidagsins. Hún var sönn og góð
móðir. Þótt synir hennar væru
annars staðar uppaldir, var inni-
legt samband með þeim og henni
alla tíð. Lára dóttir hennar
dvaldi aldrei til langframa fjarri
móður sinni.
í Vestur-Þýzkalandi hefir yerið gert
mikið átak í skólamálum
Þar haía menn ekki ráð á að vera lengi að byggja
Viðtal við HELGA ELÍASSON fræðslumálastjóra
ELGI ELÍASSON fræðslu-
málastjóri er nýkominn heim
úr ferðalagi um Vestur-Þýzka-
land. Lagði hann upp í þá ferð
26. júní og dvaldist hann í ýms-
um borgum sambandslýðveld-
anna og kynnti sér menntun
kennara.
Tíðindamaður frá Vísi hefir
fundið Helga Elíasson að máli
og spurt hann um ferðina.
— Mér barst boð um að fara
þessa ferð fyrir milligöngu vest-
ur-þýzka sendiherrans hér í
Reykjavík, dr. Opplers, sem
gerði mér boðið fyrir hönd
menntamálaráðuneyta sambands
lýðveldanna. Til nánari skýr-
inga má geta þess, að hvert
sambandslýðveldanna hefir sitt
menntamálaráðuneyti og sinn
menntamálaráðherra, en ráð-
herrar þeirra allra koma saman
til fundar sem næst mánaðar-
lega, til viðræðna og samræm-
ingar menntamálanna. í sam-
bandsstjórninni í Bonn er eng-
inn menntamálaráðherra, en for-
stöðumaður menntamálaskrif-
stofu hennar í Bonn er fram-
kvæmdarstjóri hins sameigin-
lega menntamálaráðs hinna ein-
stöku ríkja, en á einum fundi
þess var á kveðið að bjóða mér
til Vestur-Þýzkalands.
Menntastofnanir helztu borga
skoðaðar
Fyrirspurn tíðindamannsins
um hvaða borgir hann hefði
heimsótt, svaraði fræðslumála-
stjóri á þessa leið:
— Ég dvaldist aðallega í Bonn,
Munchen, Stuttgart, Dusseldorf
og Hamborg. Auk þess, sem áður
var getið, kynnti ég mér skóla-
byggingar, notkun kennslukvik-
mynda í skólum og útbúnað
skóla yfirleitt. Eftir styrjöldina
var feikna mikill skortur á skóla-
húsnæði. í sumum borgum var
80% skólahúsnæðis í rústum.
Gert var þegar eftir styrjöldina
mikið átak til þess að gera skóla-
hús nothæf aftur og reisa ný
skólahús. Þetta virðist hafa
gengið ótrúlega fljótt.
Byggingarframkvæmdum
hraðað
Stefnt var að því, að koma upp
kennslustofum, en sérstofur og
leikfimissalir látnir sitja á hak-
anum fyrst í stað. Er lögð megin-
áherzla á, að það taki ekki of
langan tíma að koma bygging-
unum upp, og alls ekki lengur
en eitt ár, og vinnukrafti bætt
við eftir þörfum til þess að það
takist. Þjóðverjar telja sig ekki
hafa efni á að vera lengi að
byggja.
Skólastofur eru rúmgóðar og
bjartar í öllum nýjum skólabygg-
ingum og þær eru vel útbúnar
að öllu leyti, en án alls íburðar.
Stefnt að því að skólarnir
séu ekki of stórir
Þar sem laydrými leyfir eru
aðeins byggðir litlir skólar, en
sumstaðar í borgunum verður
að hafa skólana stærri, éh gott
þykir, vegna lóðaskilyrða. Stefn-
an er sú, að byggja litla skóla,
alls staðar þar sem unnt er.
Menntun kennara
— Hversu er háttað menntun
kennara í Vestur-Þýzkalandi?
— Víðast eru kennaraskólar,
en sumstaðar t. d. í Hamborg
stunda þeir háskólanám. Krafist
er stúdentsprófs sem inntöku-
skilyrðis. Kennaraskortuf er
enn mikill eftír styrjöldina, en
margir eru við kennaranám, og
stefnir hratt að því, að bætt
verði úr kennaraskortinum.
Skólanámið stendur 3 ár og telst
það aðeins fyrri hluti námsins.
Er þá síðari hlutinn eftir, 2—3
ára kennsla. Að þeim tíma liðn-
um skila kennararnir ritgerðum
um kennslufræðileg efni og
kenna í viðurvist prófdómenda.
Viðtökur ■— Viðreisnin
— Viðtökur voru frábærar,
sagði fræðslumálastjóri að lok-
um, allir gerðu allt sem í þeirra
valdi stóð til þess að greiða götu
mína og að ég gæti kynnt mér
allt sem bezt á þeim stutta tíma,
sem ég hafði yfir að ráða. Kann
ég þeim mönnum öllum beztu
þakkir. Mikla athygli mína vakti
hve allt bar því vitni hve iðin,
ástundunarsöm og sparsöm
þýzka þjóðin er. Alls staðar var
verið að starfa, að reisa úr rúst-
um, og’ það er furðulega stórt
átak, sem þjóðin hefir gert síðan
styrjöldinni lauk.
Áhugi fyrir íslandi
Ég varð alls staðar var mikils
áhuga fyrir íslandi. Og skemmti-
legt vai^ að komast að raun um,
hve menn eru yfirleitt fróðir um
margt hér. Bækur Jóns Sveins-
sonar, Gunnars Gunnarssonar
og Kristmanns Guðmundssonar
hafa áreiðanlega aukið þekkingu
manna á íslandi og vakið áhuga
þeirra fyrir landinu og þjóðinni.
Margir sögðust hafa lesið rit
þeirra.
—VÍSIR, 11. ágúst
Sinn háa aldur bar Þorbjörg
mjög vel. Síðustu æviárin var
hún rúmliggjandi og naut ágætr-
ar umhyggju Láru dóttur sinnar
og manns hennar — og á heimili
þeirra andaðist hún, eins og að
ofan er getið.
Útför hennar fór fram fra
heimili Danielson’s hjónanna og
frá kirkju Árdalssafnaðar í Ár-
borg þann 21. júní. Þeim söfnuði
hafði Þorbjörg lengi unnað —-
og starfað í þágu hans meðan
hún mátti.
Með Þorbjörgu er sönn íslenzk
kona og trygglynd móðir horfin
af þessu tilverusviði.
Séra Robert Jack, sóknar-
prestur í Árborg, þjónaði við
útförina.
S. ólafsson
"A Realisiic Approach ío the
Hereafter"
by
Winnipeg auihor Edith Hansson
Bjornsson's Book Store
702 Sargent Ave.
Winnipeg
T H I S
SPACI
CONTRIIUTIO
• V
WINNI PEG
BREWERY
IIMITID