Lögberg - 30.09.1954, Síða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 30. SEPTEMBER 1954
3
Lungnaskurðir æ algengari lækning við
krabbameini og berklum
Rætt við læknishjóninu Ölmu Thorarensen og Hjalta Þórarinsson
jVIÝLEGA eru komin hingað til
lands eftir tveggja ára fram-
haldsnám í læknisfræðum, hjón-
in Hjalti Þórarinsson frá Hjalta-
bakka í Austur-Skaftafellssýslu
og Alma Thorarensen frá Akur-
eryi. Stundaði Hjalti framhalds-
nám í skurðlækningum, en Alma
í svæfingalæknisfræðum. Eiga
þau hjónin glæsilegan feril að
baki sér, en Hjalti tók hæsta
embættisprófið árið 1948, sem
tekið hefir verið frá læknadeild
Háskólans hér.
600 uppskurðir árlega
Að embættisprófi loknu starf-
aði Hjalti um skeið úti í héraði
og lauk kandidatsári sínu á
Landsspítalanum. Vann hann
síðan sem aðstoðarlæknir á
Landsspítalanum hálft annað ár
°g leysti einnig yfirlæknir
Sjúkrahúss Akureyrar af hólmi
um skeið.
Alma lauk embættisprófi í
læknisfræðum 1951 og héldu þau
hjónin til Bandaríkjanna í maí
1952. Var för þeirra gerð í boði
uiennta- og menningarstofnunar
þeirrar, er nefnist The Institute
°f International Education og
starfar hún á vegum Bandaríkja-
stjórnar.
Þau hjónin héldu til Ríkis-
sjúkrahússins í Madison, sem er
höfuðborg fylkisins Wisconsin,
heimafylkis MacCarthy’s. Er
það jafnframt háskólasjúkrahús
fylkisins og nýtur mikils álits og
virðingar vestra. Þar eru um
1200 sjúkrarúm, 120 læknar og
eru framkvæmdir þar 5—6000
uppskurðir á ári hverju. Sérstak-
lega þykir sjúkrahús þetta
standa framarlega í skurðlækn-
ingum, en Hjalti lagði stund á
almennar skurðlækningar og
auk þess lungna og hjartaskurði.
Blaðið átti fyrir skömmu tal
við þau hjónin og spurði þau
trétta af námi þeirra og nýjung-
um í læknisfræðum þar vestra.
Rullkomin skurðtækni
Hjalti kveður þá bandaríska
lækna, er þau hafi starfað með á
sjúkrahúsinu hafa verið mjög
hjálpsama við þau og aðra er-
.lenda lækna, er þar voru komn-
ir til náms, m. a. frá ítalíu, For-
naósu og Grikklandi. Hafi lækna-
yfirvöldin viljað allt til þess
gera, að námið kæmi þeim að
sem mestum og beztum notum
°g greitt götu þeirra 1 hvívetna.
Landarísk sjúkrahús eru einkar
vel búin öllum þeim tækjum og
rannsóknaráhöldum, sem að
gagni mega koma við erfiðustu
skurðlækningar og má segja, að
þar skorti fæst, er að haldi má
koma og sjúklingum má til
hjargar verða. Hafa Bandaríkja-
^nenn á undanförnum áratugum
iagt fram geysilegar fjárupp-
haeðir til vísindarannsókna á
sviði læknigfræðinnar, enda hef-
lr óvíða náðst merkari árangur í
haráttunni gegn sjúkdómunum
en þar í landi og sjúkrahús
þeirra eru ein þau fullkomnustu
1 veröldinni. Kveður Hjalti það
^hjög lærdómsríkt að hljóta tæki-
^seri til að kynnast skurðlækn-
^ngum á stórum sjúkrahúsum
vestan hafs, þar sem fleiri upp-
skurðir og margvíslegri eru
íramkvæmdir á einu ári, en á
^örgum árum hér heima.
Hjalti mun vera hinn eini ís-
lenzki læknir, sem gert hefir
^ngnaskurði að sérgrein sinni.
^eir færast allmjög í vöxt á
sjukrahúsum vestra, og er nú
ferið að grípa til hnífsins í aukn-
Urn mæli við mörgum sjúkdóm-
Um í lungum. Er skurðlækning-
Uln beitt við krabbameini í
*ungum, berklum og ýmsum
°ðrum lungnasjúkdómum. Hefir
þótt gefa góða raun, eftir
alvikum, og er algengt, að tekið
ae með öllu annað lungað úr
herkla eða krabbameinssjúkling
e®a hlutar af öðru eða báðum
eftir því hve sjúkdómurinn er
útbreiddur. Einn helzti kostur-
inn við hina auknu lungnaskurði
við berklum þykir, að miklu
minni hætta er þá á að sjúk-
dómurinn taki sig upp aftur
síðar.
Ekki eru nema tiltölulega fá
ár síðan lungnaskurðlækningar
tóku að ryðja sér mjög til rúms
í Bandaríkjunum, en horfur eru
á að þeim verði beitt í ríkari
mæli á komandi árum, jafnframt
því sem skurðtæknin eykst.
Ný berklalyf
— Hvað er að segja um bar-
áttuna gegn berklaveikinni í
Bandarí kj unum ?
— Þar hafa helzt komið til hin
nýju lyf, sem einnig eru flest
þekkt hér heima, auk lungna-
skurðanna. Upp á síðkastið hafa
ýmiss hikotinsýrusambönd verið
reynd með allgóðum árangri og
eru nú notuð ásamt hinum
gömlu lyfjum Streptomycin og
PAS. Lyfjanotkunin er þó ekki
einhlít og því alla jafna einnig
gerðar skurðaðgerðir á sjúkling-
unum og hinir sýktu hlutar
lungans skornir burt. Berkla-
veikin hefir verið allútbreidd í.
Bandaríkjunum, einkum í Suður
ríkjunum og telja má að við Is-
lendingar séum komnir lengra á
veg með að útrýma henni en
Bandaríkjamenn. Þeir gjalda þar
að nokkru hins mikla mann-
fjölda, sem í landinu er, sem
gerir hóprannsóknir dýrar og
erfiðar í framkvæmd. í borgum
eru hreyfanlegar rannsóknar-
stofur oft á ferð, þar sem menn
geta fengið röntgenmyndir og
læknisskoðun ókeypis. Á síðustu
árum hefir þó verið um stór-
kostlegan árangur að ræða hjá
þeim í baráttunni gegn berkla-
veikinni.
— Hvað um krabbameins-
lækningar?
— Til krabbameinsrannsókna
verja Bandaríkjamenn nú geysi-
miklu fé og eiga hinar fullkomn-
ustu rannsóknarstofur, sem til
eru. Enginn endanlegur árangur
hefir þó náðst með lyflækning-
um í baráttunni gegn krabba-
meininu, og er hnífurinn og
geislarnir enn áhrifaríkustu
læknisaðferðirnar. Því er höfuð-
áherzlan lögð á að greina sjúk-
dóminn sem allra fyrst og fara
fram víðtækar rannsóknir meðal
almennings í því skyni. Varð-
andi frétt um rannsóknir pró-
fessors Olivercrone í Stokk-
hólmi um áhrif brottnáms heila-
dingulsins á vissar tegundir
krabbameins er það að segja, að
svipaðar rannsóknir hafa farið
fram í Bandaríkjunum og nokk-
ur árangur náðst í einstökum til-
fellum, en ekki er um neinn
heildarárangur að ræða.
I
Reykingar og krabbamein
— Er talið vestanhafs að reyk-
ingar orsaki krabbamein?
— Allvíðtækar rannsóknir
hafa farið fram í því skyni að
kynnast því hvort samband sé
á milli reykinga og krabbameins
í lungum.
Þær virðast benda til þess, að
reykingamenn fái fremur sjúk-
dóminn en hinir, sem ekki
reykja, en mjög torvelt er að
færa beinar sönnur á það.
Eitt er þó víst, að sökum rann-
sókna þessara og hins mikla um-
tals, sem orðið hefir um sam-
bandið milli reykinga og krabba-
meins, þá hafa reykingar minnk-
að í landinu og er það hagstæð
þróun út af fyrir sig.
— Hvað líður rannsóknum á
lömunarveiki og læknisaðgerð-
um við henni?
— íslenzkum læknum mun
vera kunnugt um þróun þeirra
mála í höfuðatriðum. Lömunar-
veikifaraldrar ganga alla jafna
um Bandaríkin á sumrin og
haustin og er þar skæður sjúk-
dómur. Nýlega hefir verið farið
að nota nýtt varnarlyf gegn
veikinni, gamma-globulin, en
það er unnið úr blóðvatni. Hefir
lyf þetta gefið góða raun og eru
við það tengdar miklar vonir.
Ennþá er framleiðsla lyfsins þó
mjög lítil og hefir það hindrað
víðtækar rannsóknir á áhrifum
þess.
— Er læknanáminu í Banda-
ríkjunum hagað á svipaðan hátt
og hér heima?
— Já, segja má að það sé, en
hinir eiginlegu læknaháskólar
útskrifa þó lækna eftir fjögurra
ára nám vestra. En þá er lækna-
stúdentinn einnig búinn að
stunda undirbúningsnám í 2—3
ár, áður en hann hefur hið
eiginlega læknisfræðinám. Mér
virtist sem svo, að heldur minni
áherzla væri lögð á bóklega
námið, en aftur á móti hlýtur
bandaríski læknastúdentinn
mjög mikla verklega æfingu og
sér mikinn fjölda sjúkdómstil-
fella á námstímabili sínu.
Eini lungnaskurð-
sérfræðingurinn
Bandarískir læknastúdentar
eru yfirleitt úrvalsmenn, aðrir
komast ekki að háskólunum, og
þeir verða að leggja mjög hart
að sér við námið.
Bandaríska heilsugæzlan er
mjög fullkomin og yfirstjórn
heilbreigðismálanna virðist ör-
ugg og þau mál ágætlega skipu-
lögð í Bandaríkjunum. Láta þau
hjónin hið bezta af dvöl sinni
vestra og kveða þar hin ágæt-
ustu tækifæri til þess að stunda
framhaldsnám með góðum ár-
angri í öllum greinum læknis-
fræðinnar. Sérstaklega báru þau
fram þakkir til þeirra aðila, sem
greiddu götu þeirra vestanhafs,
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins og upplýsingaþjónustu Banda
ríkjanna hér á landi.
Er ég spurði þau hjónin að
því, hvort þeim hefði ekki komið
til hugar að setjast að vestan-
hafs, kváðu þau það hafa
hvarflað að sér og unnt hefði
verið að hljóta stöður þar. En þó
væri það þannig, að alltaf gerði
heimþráin vart við sig og því
hefðu þau snúið heim strax að
loknu námi, þótt þau hefðu ekki
enn ráðið sig til starfa hér á
landi.
Eins og áður er getið, mun
Hjalti vera eini íslenzki læknir-
inn, sem gert hefir lungna- og
hjartaskurði að sérgrein sinni og
það er sannarlega fagnaðarefni
að heimalandinu skuli koma
starfskraftar hans og konu hans
að gagni.
—Mbl., 7. ágúst
Blaðaútgófa í Rússlandi
Hvernig PRAVDA — „málgagn sannleikans“ — er rekið
STJÓRNARBLAÐIÐ í Rúss-
landi heitir Pravda, og það
þýðir Sannleikur. Margs ber að
gæta í rekstri þess, en þó allra
sízt sannleikans, eftir þeim upp-
lýsingum, sem tímaritið „World“
hefir aflað sér um það. Og allur
rekstur þess er svo frábrugðinn
því sem gerist um blöð á Vestur-
löndum, að þar er fátt sameigin-
legt nema pappírinn.
Venjulegast er Pravda ekki
nema fjórar blaðsíður, en fastir
starfsmenn þess eru 2500. Af
þessum starfsmönnum eru 1500
útsendir erindrekar, sem hafa
bækistöð sína í hinum ýmsu
landshlutum og borgum. Þeir
hafa ákveðið mánaðarkaup, en
fá auk þess borgun fyrir smá-
klausur, sem blaðið kann að
birta.
Að ritstjórninni í Moskva
vinna 650 menn, þar af eru 350
„umsjónarmenn“ og 300 „aðstoð-
arritstjórarar", sem skrifa efni
blaðsins. Það sem þá vantar upp
á starfsliðið eru fréttaritarar,
sem hafa aðsetur sitt í öllum
helztu borgum í heimi. — Þessir
menn hafa yfirleitt miklu hærri
laun heldur en fréttaritarar stór-
blaðanna á Vesturlöndum, og fá
meira eyðslufé.
Aðalritstjóri Pravda er Peter
N. Pospelov, og hann hefir sér
við hlið 15 meðritstjóra, og hver
þeirra annast sérstök málefni.
Eru þessi málefni flokkuð eftir
því hve þýðingarmikil þau eru
talin, og fer mánnvirðing rit-
stjóranna eftir því hvert mál-
efnið er. Efstur í röðinni er sá,
sem sér um fréttir frá kommún-
istaflokknum, því það starf er
talið allra þýðingarmest. Næstur
kemur sá, sem sér um fréttir frá
iðnaðinum. Sá sem sér um heims
fréttirnar er sá áttundi í röð-
inni, og sá sem sér um listir
rekur lestina. Með hálfsmánað-
ar fyrirvara verður hver rit-
stjóri að leggja fyrir ritstjórnar-
fund suðurliðaða skrá um þau
málefni, er hann hyggst skrifa
um og hvernig hann ætlar að
skrifa um þau. Ritstjórnarfundur
gerir sínar athugasemdir þar við,
og svo eru þessar vinnubragða
áætlanir breyttar og umbættar,
sendar hinni stjórnskipuðu út-
gáfunefnd, sem hefir úrskurðar-
vald í öllum málefnum blaðsins.
Blaðamönnum, eða aðstoðar-
ritstjórum, er jafnaðarlega veitt-
ur 10—15 daga frestur til þess að
skrifa eina grein. Þeir hafa því
nægan umhugsunartíma. Það er
annað en með vesalings blaða-
mennina á Vesturlöndum, sem
dag eftir dag verða að keppast
við að skrifa undan setjaravél-
unum. En þó er óvíst að hinir
vestrænu blaðamenn vildu
skipta kjörum við hina aust-
rænu.
Vestrænn blaðamaður nær í
frétt og þá er hlutverk hans að
segja svo satt og ýtarlega frá,
sem kostur er. Hann leitar sér
upplýsinga eftir ýmsum leiðum,
til þess að frásögnin verði sem
skilmerkilegust, og svo fer hann
með greinina rakleiðis til rit-
stjórans og hann lætur hana
ganga til prentsmiðjunnar.
En svona auðvelt er þetta ekki
fyrir rússneskan blaðamann.
Það er minnstur vandinn fyrir
hann að ná í frétt. Vandinn
byrjar fyrst þegar hann fer að
semja, því að þá verður hann
að gæta þess að hvert einasta
orð og orðasambönd sé í sam-
ræmi við hina pólitísku línu.
Hrasi hann örlítið á stílsmátan-
um og þótt ekki sé nema um að-
eins eitt orð að ræða, þá getur
það haft óheppilegar afleiðingar
fyrir hann. Eitt orð getur orðið
þess valdandi að Skuldardómur
sé upp kveðinn yfir honum.
Áður en hann skilar grein sinni
verður hann því að rannsaka
vandlega hverjar muni vera
skoðanir yfirboðara sinna. Og
verði hann að nafngreina ein-
hverja menn í grein sinni, verð-
ur hann einkum að fara varlega,
því að vel getur verið að ein-
hverjir af þessum mönnum sé
fallnir í ónáð þótt hann viti það
ekki.
Á hinn bóginn hafa blaðamenn
Pravda betri kjör heldur en
starfsbræður þeirra á Vestur-
löndum. Hver blaðamaður fær
sérstakan bíl til afnota, alveg
eins og helztu gæðingar stjórn-
arinnar og yfirstéttarmenn. —
Hann fær ókeypis aðgang að
kvikmyndasýningum, leiksýn-
ingum, söngleikjum og dans-
sýningum. Hann á heimtingu á
beztu aðhlynningu í járnbraut-
um og gistihúsum um allt land,
og hann fær afslátt á öllu í veit-
ingahúsum. Og hann má hirða
allar „heiðarlegar mútur“, sem
honum bjóðast vegna starfs síns.
Blaðamennirnir rússnesku
standa ekki hátt í mannvirðinga-
stiganum, en allir eru þó hrædd-
ir við þá, vegna þess að það er
kunnugt að orð þeirra geta náð
eyrum æðstu valdhafanna. Það
hefir ekki litla þýðingu í Rúss-
landi, þar sem allir eru hræddir,
og þess vegna munu fáir þora að
standa uppi í hárinu á blaða-
Framhald á bls. 7
Business and Professional Cards
Phone 74-7855 ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Re-Roofing — Asphalt Shingles
Insul-Bric Siding
Vents Installed to Help Eliminate
Condensation
$32 Simcoe St. Winnlpeg, Man.
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLJNIC
St. Mary’s and Vaughan. Winnipeg
PHONE 92-6441
r====X\Un===F SEWING MACHINES Darn socks in a jiffy. Mend, weave in holes and sew beautifully. 474 Porlage Ave. Winnipeg, Man. 74-3570 J. J. Swanson & Co. LIMITED 303 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Lelgja hús. Út- vega penlngalAn og eldsAbyrgB. blfreiBaAbyrgB o. s. frv. Phone 92-7538
Dr. ROBERT BLACK SérfrœBingur i augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrlfstofusfml 9 2-3851 Heimaslmi 40-3794 SARGENT TAXI PHONE 20-4845 For Quick, Reliable Service
Dunwoody Saul Smith & Company Chariered Accounianis Phone 92-2468 100 Princess St. Winnipeg, Man. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK, MANITOBA Phones: Office 26 — Residence 230 Office Hours: 2.30 - 6.0t p.m.
Hofið Höfn í huga Heimili sólsetursbarnanna. ícelandie Old Folks’ Home Soc , 3498 Osler St., Vancouver, B.C. Thorvaldson. Eggerlson, Bastin & Stringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage og Garry St. PHONE 32-8291
ARLINGTON PHARMACY CANADIAN FISH
Prescriplion Specialisi Cor. Arlingion and Sargeni PRODUCERS LTD.
Phone 3-5550 J. H. PAGE, Managing Director
We Handle School Supplies Wholesale Distributors of Fresh and
We collect light, water and Frozen Fish
phone bills. 311 CHAMBERS STREET
Posi Office Office: 74-7451 Res.: 72-3917
Muir's Drug Store Ltd.
J. CLUBB
FAMILY DRUGGIST
SERVING THE WEST END FOR
27 YEARS
Phone 74-4422
Ellice 8i Home
Offlce Phone Res. Phone
92-4762 72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur llkkistur og annast um Ot-
farir. Allur tltbúnaCur sá bezti.
StofnaB 1894 SlMI 74-7474
. Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
Chartered Accc'intant
505 Confederation Life Building
WINNIPEG MANITOBA
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposite Maternity Pavilion
General Hospital
Nell's Flower Shop
Wedding Bouquets, Cut Flowers,
Funeral Designs, Corsages,
Bedding Plants
Nell Johnson Res. Phone 74-6753
Parker, Parker and Kristjansson Barristers - Solicitors Ben C. Parker, Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjanason 500 Canadlan Bank of Commerce Chambers Wlnnlpeg, Man. Phone 92-3561 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smlih Si. Winnlpeg PHONE 92-4424
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries Gilbart Funeral Home
Limited Selklrk, Manltoba.
Wholesale Distrlbutors of J. Roy Gilbart
FRESH AND FROZEN FISH Licensed Embalmer
60 Louise Street Slmi 92-6227 Phone 3271 Selkirk
EGGERTSON
FUNERAL HOME
Dauphln. Maniloba
Eigandl ARNI EGGERTSON Jr.
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykhá.far, öruggasta eldsvörn,
og Avalt hreinir. Hitaelningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viB, heldur hita frá aB rjúka út
meB reyknum.—SkrifiB, slmiB tll
KELLV 8VEIN88ON
821 Wall st. Wlnnlpeg
Just North of Portage Ave.
Símar 3-3744 — 3-4431
Van's Electric Ltd.
636 Sargeni Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMTRAL
McCLARY ELECTRIC — MOFFAT
Phone 3-4890
J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance in all lts branches
Real Bstate - Mortgages - Rentals
210 POWEB BUILDING
Telephone 93-7181 Res. 48-3480
LET US SERVE YOU