Lögberg - 30.09.1954, Page 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 30. SEPTEMBER 1954
Úr borg og bygð
FRÓNS-fundur
Eins og áður var auglýst í
íslenzku blöðunum, efnir Frón
til almenns skemmtifundar í
Góðtemplarahúsinu við Sargent
Ave. á mánudagskvöldið kemur,
4. október, kl. 8.
Á öðrum stað hér í blaðinu er
skrifað all-ýtarlega um kvik-
mynd þá, er sýnd verður á sam-
komunni; en auk hennar verða
eftirfarandi atriði á skemmti-
skránni:
Nýtt mál, framsögumaður
Heimir Thorgrímsson.
Frón, frumsamið kvæði, Davíð
Björnsson.
Ræða, Albert Thorvaldsen sem
maður og listamaður, frú Hólm-
fríður Danielson flytur.
Þess ber að vænta að meðlimir
Fróns og þeir aðrir sem unna
ættlandi sínu og þjóð, fjölmenni
í Góðtemplarahúsinu á mánu-
dagskvöldið.
Aðgangur að samkomunni er
ókeypis — en samskota verður
leitað.
THOR VÍKING, ritari Fróns
☆
Mr. Páll Johnson frá Vogar
hefir dvalið í borginni nokkra
undanfarna daga.
☆
Séra S. O. Thorlakson frá San
Francisco flutti guðsþjónustu í
Langruth síðastliðinn sunnudag.
TIL
ÍSLANDS
Aðeins
fram og tll baka
til Reykjavíkur
Gifiingar í kirkju
Selkirk-safnaðar:
18. sepísmber:
Angus Donald Morrison og
Florence Emily Goodmanson,
bæði til heimilis í Selkirk. Þau
voru aðstoðuð af Miss Margaret
Elaine Whitlow og Mr. Alan
Reid Miller.
25. sepiember:
Sidney Gerald Magnússon,
Selkirk, og Marion Beatrice
Bryon, sama staðar, aðstoðuð af
Miss Virginia Bryon og Mr.
Lorne Magnússon. Sóknarprest-
ur gifti.
☆
1 fyrri viku kom- hingað til
borgar ungfrú Margrét Björg-
vinsdóttir Guðmundssonar tón-
skálds á Akureyri og frú. Hólm-
fríðar Guðmundsson, glæsileg
og vel mentuð stúlka; hún á hér
margt náinna skyldmenna í báð-
ar ættir og mun dveljast hér um
slóðir í nokkra mánuði; föður-
bræður hennar eru þeir Þor-
steinn og Páll Guðmundssynir
að Leslie, Sask., en föðursystir
frú Jóna Jörundsson hér í borg;
móðursystur á ungfrú Margrét á
Osk Point, Mrs. Sigfús Sigurðs-
son.
☆
Siúkan HEKLA I.O.G.T.
heldur næsta fund sinn þriðju-
daginn 5. okt. n.k., kl. 7.30 e. h. á
venjulegum stað.
Grípið tækifærið og færið
yður í nyt fljótar, ódýrar og
ábyggilegar flugferðir tU
tslands í sumar! Reglu-
bundið áætlunarflug frá
New York ... Máltíðir inni-
faldar og annað til hress-
ingar.
— DÁNARFREGNIR —
Laugardaginn 21. ágúst s.l.
andaðist Jón Helgi Grímsson á
sjúkrahúsinu í North Belling-
ham. Mun hann hafa verið búinn
að vera lasinn æði lengi, en lét
lítið á því bera þar til sjúkdóm-
urinn herti fastar að skömmu
áður en hann lézt.
Jón átti síðast heima hjá
systur sinni í Blaine, en kom
síðastliðið haust frá Indianaríki,
þar sem hann hafði starfað áður
um skeið. Hann fæddist í Garð-
ar-bygð 1. febrúar 1891, sonur
Daníels og Sigríðar Grímsson.
.Bjó lengi í Mozart-bygð í Sask.,
og var í herþjónustu árin 1915
til 1918. Hann var ókvæntur,
góður drengur og vinsæll.
Ingvar Goodman, vistmaður á
elliheimilinu Blaine, Wash.,
nokkur síðustu árin, ásamt konu
sinní Önnu Goodman, andaðist
á sjúkrahúsi í North Bellingham
28. ágúst s.l. Hafði hann lengi
verið mikið lasinn og þjáður
með köflum. Þau hjónin bjuggu
lengi rausnarbúi í Point Roberts,
en fluttu þaðan til Stafholts, er
þau voru tekin að þreytast. For-
eldrar hins látna voru Guð-
mundur Vigfússon og Elísabet
•Jónsdóttir í Árnessýslu á ís-
landi, en fluttu ung til Ameríku.
Þau láta eftir sig tvo kvænta
syni, sem búa í þessu ríki.
Ingvar sál. var vellátinn mað-
ur, og þau hjón og börn þeirra
voru starfsöm og vinsæl. Hins
látna er saknað sárt bæði af ást-
vinum og öðru samferðafólki.
☆
Á miðvikudaginn í fyrri viku
komu heim úr íslandsför Páll S.
Pálsson skáld og frú, Mr. Benson
frá Hecla, frú Margrét Brand-
son, og frú Kristín Pálsson og
bróðir hennar Þorsteinn Þor-
steinsson á Húsafelli í Borgar-
firði syðra, er dveljast mun hér
í nokkra mánuði.
☆
Slröndin í Vancouver sýndi
Lýðveldishátíðarkvikmyndin
fyrir fullu húsi 22. sept. s.l. Voru
áhorfendur hrifnir af fegurð og
fróðleik, sem gaf að líta í þessari
með.
Með kæru þakklæti og beztu
óskum. Chris ísfjörð
The Icelandic Canadian Club
The Icelandic Canadian Club
will hold its first meeting of the
1954-55 season, October 4, in the
lower auditorium of the Fed-
erated Chuch, Banning St.
There will be a business meet-
ing 8.15 to 9 o’clock; then a
social, with dancing and bridge
playing.
Come and enjoy a good
meeting. W. K.
☆
Skagfírzk vesturheimska
Winnipeg, sept. 1954
Það er kúnst að kunna að lifa,
kunna’ að leysa þófið haft;
kúnstin er að kunna að skrifa
og kunna’ að stilla úfinn kjaft.
Orðin skapa afleiðingar.
Engum er í bræði rótt.
Stuðningslausar staðhæfingar
styðja hvorki mál né þrótt.
Albert frá Tjörn
☆
Veitið athygli!
Miðvikudaginn, 6. október
heldur Kvenfélag Fyrsta lút-
erska safnaðar kaffisölu í fund-
arsal kirkjunnar á Victor Street.
Þar verður til sölu lifrarpylsa og
blóðmör, einnig vínarterur og
heimabakað kaffibrauð.
Salan hefst kl. 2 e. h. og kl. 8
að kveldinu.
Þess er vænst að vinir og
kunningar heimsæki konurnar
við þetta tækifæri. — Munið
stað og tíma!
Allir velkomnir
☆
Frá Vancouver, B.C.,
27. september 1954
Háttvirti ritstjóri:
Viljið þér gera svo vel og lána
pláss í fréttadálk blaðs yðar fyrir
þessa umgetningu, og í þessari
viku, ella er það of seint fyrir
okkur hér.
Siröndin heldur Tombólu og
dans í Swedish Hall, 8. okt. n.k.,
kl 8 e. h. Inngangur 50 cent —
Drættir 25 cent. Allir velkomnir
Chris. ísfjörð
☆
Nú mun mega telja víst, að
Mr. S. E. Johnson Plumbing
Contractor og stórhýsaeigandi,
bjóði sig fram til bæjarstjórnar
í 2. kjördeild við kosningarnar,
sem fram fara hér í borg seinni
part næstkomandi októbermán-
aðar undir merkjum Civic
Election nefndarinnar; er hann
Myndasýning
Sérstök athygli skal vakin á
myndasýningu, er fram fer á
fyrstu vetrarsamkomu Fróns
næsta mánudagskvöld. Verður
þar sýnd kvikmynd af hátíðar-
höldunum á Þingvöllum og í
Reykjavík 17. og 18. júní 1944,
er íslenzka lýðveldið var endur-
reist. Lét ríkisstjórnin gera
mynd þessa til minningar um
þenna einstæða atburð, og er
hún því mjög merk heimild.
Myndin er litmynd, og með
henni er tónlist, íslenzk ætt-
jarðárljóð. Þá heyrast og brot
úr söng þeim og ræðum, er
fluttar voru á hátíðinni sjálfri og
eins og hvorttveggja var hljóð-
ritað þá. Eykur það mjög á áhrif
myndarinnar. En bæði talið og
tónlistin munu hafa farið for-
görðum á íslendingadagshátíð-
inni á Gimli í sumar, þar sem
þess var ekki gætt að hafa rétta
vél við sýninguna. Verður nú úr
þessu bætt á mánudagskvöldið
og reynt að sjá svo um, að
myndin njóti sín til fullnustu.
Myndin hefur verið sýnd á
nokkrum stöðum að undan-
förnu, svo sem í Markerville,
Vancouver og Victoríu. Stendur
og til að sýna hana víðar, eftir
því sem við verður komið. En
vestur var hún send í sumar af
ríkisstjórn Islands, og er þetta
eina aukaeintakið, sem til er af
myndinni. Væntir deildin Frón
þess, að fjölmennt verði á sam-
komunni á mánudagskvöldið, en
þar verður auk myndasýningar-
innar margt annað gott til
skemmtunar, svo sem auglýst er
á öðrunji stað í blaðinu.
hinn mesti atorkumaður; nánari
umsögn í næstu viku.
☆
A rneeting of the Jon Sigurd-
son Chapter I. O. D. E. will be
held at the home of Mrs. A.
Fischer, 659 Simcoe St., on Fri-
day Eve., October lst at 8 o’clock.
☆
Mr. Walter Thorlakson frá
Oakland, Cal., sem dvalið hefir
hér um slóðir um hríð í heim-
sókn til ættingja sinna, leggur
af stað heimleiðis í dag.
☆
íslendingadagsnefndin hélt
ársfund sinn síðastliðið mánu-
dagskvöld; varaforseti nefndar-
innar, Mr. Snorri Jónasson
stýrði fundi; þrír nýir nefndar-
menn voru kosnir fyrir næsta
starfsár, en það eru þeir K. W.
Johannson, John Árnason og
Skúli Anderson.
☆
VEITIÐ ATHYGLI!
Einar P. Jónsson ritstjóri Lög-
bergs og írú, eru nú fluit úr
Ste 12 Acadia Apts., lil Sie 29
Queens Appartments, Maryland
Street, milli Sargent og Ellice.
Símanúmerið er hið sama og
áður, 72-4442.
10 þús. kr. danskar veiltar
fyrir norrænt tónverk
Tívolí í Kaupmannahöfn efnir
til norrænnar tónlistarkeppni í
maímánuði 1956. Er öllum tón-
skáldum Norðurlanda gefinn
kostur á að taka þátt í þeirri, en
um er að ræða sinfónískt verk,
sem tekur um 40 mín að flytja.
—MBL.
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theoi
Heimili 686 Banning Street
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 3. okt.:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli á hádegi
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnud. 3. okt.:
Geysir kl. 2, á íslenzku.
Víðir kl. 8, á ensku.
Endarím komið í
íslenzkan skáld-
skap frá Englandi
MERKUR fyrirlestur, sem pró-
fessor Gwyn Jones flutti í
British Acaremy um dvöl Egils
Skallagrímssonar í Englandi,
hefir verið gefinn út af bóka-
útgáfu Geoffrey Cumberlege.
Er fyrirlestur þessi einn af svo-
nefndum Sir Israel Gollancs
Memorial Lectures, en þeir fjalla
flestir um fornensk fræði. Hafa
Gollancs-fyrirlestrar m. a. verið
fluttir um Geoffrey Chaucer og
Canterbury Tales, um Beowulf,
Candmon og Wulfstan o. m. fl-
Gwyn Jones rekur í fyrirlestr-
inum það, sem sagt er í Egilssögu
um ferðir Egils Skallagríms-
sonar til Englands og megin-
kjarni erindisins fjallar að sjálf-
sögðu um Höfuðlausn sem mikl-
ar deilur hafa staðið um. Eru
ýmisir fræðimenn, sem hafna
því, að Höfuðlausn hafi verið ort
fyrir Eirík konung blóðöx og
telja, að henni hafi fremur verið
beint til Aðalsteins konungs.
Gwyn Jones prófessor sér
ekki ástæðu til að rengja fra-
sögn Eglu og hann ræðir a
skemmtilegan hátt, hve mikla
byltingu Höfuðlausn hafi táknað
í norrænni ljóðagerð, því að það
er fyrsta norræna kvæðið sem
er með endarími.
Telur hann að ekki sé ólíklegt,
að þetta nýja ljóðform hafi haft
mikið áhrif á alla áheyrendur.
Endarímið hafi dunið eins og
þrumur yfir hina norrænu vík-
inga, sem fram til þessa þekktu
aðeins innrím. Eiríkur blóðöxi
hafi séð, að með þessu kvæði
myndi nafn hans geymast um
alla eilífð og því hafi hann gefið
Agli líf.
Næst ræðir Gwyn Jones um
það, hverjar séu ástæður til að
Egill tekur þarna upp nýtt rím-
form. Það rekur hann til þess,
að Egill hafi dvalizt alllengi í
Englandi, þar sem hann hafi
komist í kynni við latnesk kvæði
og gömul ensk kvæði, sem eru
með endarími. Samkvæmt þessu,
eru líkindi til að endarím komi
inn í norrænan skáldskap fyrir
áhrif frá Englandi.
Fyrirlesturinn er 20 þéttprent-
aðar blaðsíður.
(Gwyn Jones: Egill Skalla-
grímsson in England. Geoffrey
Cumberlege. Verð: 3s. 6d.).
—Mbl., 14. ágúst
Heiðurgjöf iil Friðriks Ólafss.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi
sínum í fyrradag að veita Frið-
rik Ólafssyni skákmeistara 10
þús. kr. heiðursgjöf vegna af-
burða góðrar frammistöðu 1
skákeppi erlendis. —Mbl-
SONGS OF THE NORTH
By S. K. HALL, Bac. Mus.
JUST PUBLISHED—
Volume III—Ten Icelandic Songs
with English Translation and
Piano Accompaniment.
Price per copy—$2.00
On Sale by—
S. K. HALL, Wynyard, Sask.
SAMBÖND VIÐ FLESTAR STÓRBORGIR
Finnið umboðsmann ferðaskrifstofunnar
n /71 n
ICELANDIÖ IAIRLINES
uaAal±j
15 West 47th Street, New York PLozo 7-8585
|:i:Kí::K'
Athugið
SJÓNVARPIÐ
í nýju Ijósi
NJÓTIÐ HINS FULLKOMNASTA SJÓNVARPS MEÐ
The "CAPRI"
FAMOUS DESIGNER
CONSOLETTE
Fögur nýtízkugerð með SWIVEL
BASE, sem gerir auðvelt að snúa
myndunum að vild.
• Stór 21 þml. “LUMA RAY”
myndatúða úr aluminium.
• Ný “FULL-RANGE” CHASSIS
sem tryggir fyrsta flokks mót-
töku.
• Skýrar og greinilegar myndir, er
birtast sjálfkrafa og engum fölva
slær á.
• Fallega gerð taltúða, er tryggir
skýran tón og framburð.
TVbstinghouse
3"
Westinghouse sjónvarpið tryggir yður úrvals
hljómlist, leiklist og bendingadans á yðar eigin
heimili . . . í skýrum, töfrandi myndum.
Westinghouse viðtækin eru hin allra fullkomnustu
slíkarar tegundar, fögur að gerð og ábyggileg í
notkun.
Hjá Westinghouse er úr miklu að velja af sjón-
varpsviðtækjum og þau kosta minna, en þér
höfðuð hugboð um.
í flestum bygðarlögum er Westinghouse umboðs-
maður, er skilur fleira en eitt Norðurálfumál.
Komið til fundar við hann.
ÞÉR GETIÐ ALVEG REITT YÐUR Á WESTINGHOUSE
Fylgist með Westinghouse “STUDIO ONE” á mánudagskvöldin,
njótið úrvals sjónleikja — og fullkomnið framboð yðar á ensku!
Robert Jack
Be a Fair Share Giver
As a result of many requests from citizens in all
financial categories a group of volunteers developed this
guide to help people decide for themselves how much to give
to the Community Chest of Greater Winnipeg. The Guide is
based on the relative need for 35 agencies, actual income and
resources in Greater Winnipeg, and previous giving records.
GUIDE
FOR FAIR SHARE GIVING
Gross Income
Up To Minimum Pledge
$ 2,500 $ 5.20 or $ .10 per .50 per 1.00 per 1.50 per 2.00 per 2.75 per 3.50 per 4.50 per 5.50 per week
3,000 6.00 or month
4,000 12.00 or monlh
5,000 18.00 or month
6.000 24.00 or month
7,000 33.00 or month
8,000 42.00 or month
9.000 54.00 or month
10,000 66.00 or month
10,000 up, drop 3 zeros and apply 2/3 to the square of
amount remaining.
BE A FAIR SHARE GIVER to YOUR
COMMUNITY CHEST
li:i!B.::B!!l!B!:!:B::!!BII!K:!!!H!:B;i;H!"K:::!Bii!!a:"K:',,B:!:Bl!!lBl:::B:l:B:!llB":H,IIIB!!|;B ':!B:illBi![!B"!!l
LÆGSTA FLUGFAR