Lögberg - 02.12.1954, Page 3

Lögberg - 02.12.1954, Page 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 2. DESEMBER 1954 3 FELIX ÓLAFSSON: Kristniboð í Eþíópiu Eins og almenningi er kunn- ugt eru nú í Eþíópíu (eða Abessiníu, eins og landið var nefnt til skamms tíma) ung íslenzk hjón, þau Felix Ólafsson kristniboði og kona hans, Kristín Guðleifsdóttir, bæði úr Reykjavík. Þau hafa dvalizt alllengi í höfuð- borg landsins og numið amhariska tungu, sem er lögum samkvæmt eina rit- mál og kennslumál lands- ins, — ríkismál. — Felix kristniboði skrifar hér lýs- ingu á höfuðstaðnum, Addis Abeba ,og ferðalagi til Konsó, í Suður-Eþíópíu. En þar er hann nú að undirbúa byggingu íslenzkrar kristni- boðsstöðvar. IIVERGI kynnist ferðamaður ** eþíópsku þjóðlífi betur en í höfuðborginni, Addis Abeba. •— Hvergi kemur skýrar í’ljós að gamalt og nýtt háir baráttu um yfirráð í landinu. Hvarvetna koma í ljós ávextir af starfi hins vinsæla keisara. En molbúa- háttur gamla tímans blasir þó við augum. Og þar sem þessu tvennu er blandað saman, verð- ur myndin fremur hjákátleg. „Blómið nýja“, eins og nafn borgarinnar þýðir á íslenzku. er ekki* gömul borg. Að vísu hafa hér verið þorp um langan aldur, en borgin varð fyrst til eftir að Menelik keisari hafði sezt hér að, en það mun hafa verið skömmu fyrir síðustu aldamót. Addis Abeba er fyrir margra hluta sakir merkileg borg. Hún er ekki ýkja stór. Hve margir íbúarnir eru, er ekki vitað með vissu, en líklega eru þeir 125 til 150 þúsundir. Erfitt er að gizka á hve margt manna getur rúmazt í öllum strá- og moldar- kofunum, sem stráð er yfir stórt svæði. Fáar borgir í heimi eru með meiri alþjóðabrag en Addis Abeba. Hér gefur á að líta bók- staflega allar manntegundir ver- aldarinnar. Verzlunarstéttin á hér líklega fulltrúa frá fleiri þjóðum en verzlunarstétt sjálfr- ar Lundúnaborgar. Þar eru flestir kaupmenn annað hvort Bretar eða Gyðingar. Hér eru þeir allra þjóða lýður. Grikkir og Arabar eru fjölmennastir, en annars eru hér ítalskir verzlun- armenn, norskir, danskir, sænskir, indverskir og brezkir. Þrír læknar eru á nýjasta sjúkra húsi borgarinnar, einn enskur, annar danskur og hinn þriðji pólskur, að ég held. En von er á fjórða lækninum og er hann þýzkur. Meðal útlendinga í Addis Abeba eru einnig margir kristni- boðar. Það var í marzmánuði arið 1904 að sænski kristniboð- inn Karl Cederquist kom til Addis Abeba eftir afar erfiða ferð. Eru því liðin nákvæmlega 50 ár síðan fyrsti evangeliski kristniboðinn kom hingað. Nú stendur vegleg og fögur kirkja á staðnum þar sem hann bjó. Hópur kristniboða kemur hér saman í hverri viku til að ræða um starfið og biðja fyrir því. Eru þeir frá ýmsum þjóðum og kirkjudeildum. En hér er einnig stór hópur trúaðra kristinna manna, er gegna ýmsum störf- um, en hafa þó sezt hér að með það eitt í huga að boða fagnaðar- erindið. Til þeirra teljast t. d. ookkrir norskir verzlunarmenn, læknir og hjúkrunarkona frá Danmörku, sænskur húsateikn- ari og fleiri. Iðandi mannstraumur liðast um götur borgarinnar á degi hverjum, alls konar fólk bæði hvað stærð, litarhátt, klæðnað °g önnur ytri einkenni snertir. ☆ Eþíópía er í raun og veru sambandsríki. Ein lög eru fyrir ^and allt og einn þjóðhöfðingi. Er titill hans „konungur kon- Unga Eþíópíu“. Hér er nefni- lega mesti sægur af smákonung- um og höfðingjum. Völd þeirra eru að vísu minni en fyrr á tím- um. Ættflokkur keisarans, Am- harar, ríkir i landinu og er á víð og dreif um allt land. Ann- ars er í Eþíópíu mesti sægur af ættflokkum. Hver ættflokkur hefir sína siði, standa á mismun- andi menningarstigi, og tala ein- att gjörólík tungumál. Eins og gefur að skilja eykur það tals- vert á margbreytnina, þegar fulltrúar allra þessara ætt- flokka hópast hingað til höfuð- borgarinnar. Mest ber vitanlega á Amhörum. Borgin er á lands- svæði þeirra, og þeir sitja í flest- um embættum ríkisins. Því fer þó fjarri að þeir sé geðfelldasti eða dugmesti ættflokkur lands- ins. Þeir lifa á fornri frægð. Saga þeirra er jafnframt saga landsins. Flestir eru þeir með- limir koptisku kirkjunnar, og þar með kristnir að nafni til. Raunverulega eru Amharar 1 hinni mestu hrörnun sem þjóð- flokkur, bæði hvað menningu og siðgæði snertir. Lauslifnaður er talinn sjálfsagður hlutur. Fé- græðgi þeirra er óskapleg. Þeir virðast ekki gera greinarmun á sannleika og lygi, heldur segja það eitt, sem þeim þykir bezt henta í hvert skipti. Karlmenn Amhara ættflokks- ins hafa margir tekið upp evróp- iskan klæðnað, en mjög sjald- gæft er að sjá konu í öðru en hinum skósíða, hvíta búningi ættflokksins. Hann getur verið mjög snotur, en sé hann ekki alveg nýþveginn er hann ekki glæsilegur. Sóðaskapur er því miður á háu stigi. Götur borgarinnar eru einnig sambland af gömlu og nýju. Af tveimur götum er önnur einatt grýttur stígur, en hin malbikuð. Sama máli gegnir um götulífið. Auk bíla af ýmsum gerðum og árgöngum úir og grúir af alls konar skepnum á götunum. Er umferðalögreglu því mikill vandi á höndum. Öllu ægir sam- an. Hestakerrur, eða „garrí“ eins og þær eru nefndar, eru mjög áberandi. Þá koma inn á milli bílanna asnar, múlasnar, svín. geitur, kindur og nautgripir. Lögregluþjónar hafa meira að gera en að hafa hemil á umferð- inni, Rán og gripdeildir eru hversdagslegir viðburðir, og er verk þeirra að hafa hendur í hári afbrotamannanna. Hér er það fastur siður að menn hafi verið fyrir utan hús sín að næt- urlagi, og eru þá einnig hafðir traustir hlerar fyrir öllum gluggum. Nær því daglega sjást lögregluþjónar fara með hópa af föngum til dómhússins. Og oft hafa þeir einstaka kind í eftir- dragi, sem hefir verið tekin úr umferð. Betlarar og götusalar eru hreinasta plága fyrir alla, sem erindi eiga um borgina. Rétt fyrir ofan borgina gnæfir tindur Enotto-fjalls. Það kemur öllum á óvart, að þegar litið er frá tindinum yfir borgina, sést hún alls ekki. Engan ókunnan gæti grunað að skammt frá væri höfuðborg landsins. Hún er sokkin í háan Evkalyptusskóg. Er það afarhávaxin erlend trjá- tegund og kalla Eþíópar hana „hafvið“. Tréð er nefnilega inn- flutt frá löndum handan við hafið. Er sagt að Menelik II. keisari hafi látið gróðursetja það, til þess að þurka votlendi, sem hér mun hafa verið. Evka- lyptustréð verður aldrei digurt, en sagt er að það geti orðið allt að því 150 metra hátt. ☆ Irgalem heitir fyrsti viðkomu- staður okkar á hinni löngu leið frá Addis Abeba og suður til Konsó. Vegur þangað er allgóð- ur en vegalengdir miklar. Við ókum yfir víðáttumiklar sléttur. Gróður er skraufþurr og visinn. Öðru hvoru skjótast litlir, marg- litir fuglar yfir veginn og inn í runna og milli kaktusa meðfram veginum. Litir þeirra stinga dá- samlega í stúf við litlaust um- hverfi. Villtir þjóðflokkar haf- ast við á þessum slóðum og er alls ekki hættulaust að vera hér á ferð fótgangandi. Við sáum ekki annað til mannaferða en friðsama smala með stórar hjarðir nautgripa, geita, kinda og asna. Nakin börn leika sér við veginn og konur í óhreinum skinnpilsum rogast með vatns- ker og aðrar þungar byrðar. Gasella hleypur yfir veginn, fyrir framan bílinn. Apar klifra í trjátoppum. Og þegar kvöld- kyrrðin færist yfir, heyrist væl í hýenum. Þá er öruggast að halda sig innan húss. Þegar við ókum út úr Addis Abeba, segir samferðamaður við mig: „1 gær voru hengdir tólf glæpamenn í Addis“. Ég svaraði fáu. Það fór hrollur um mig. Slíkir viðburðir eru ekki fátíðir í þessu landi, og fara aldrei fram með leynd. Farið er með þessa vesalinga út á fjölmennasta torg borgarinnar. Þar eru þeir hengd- ir í augsýn mikils fjölmennis. Aftökur fara fram á laugardög- um, af því þá er markaðsdagur hér og mest umferð. í Irgalem, höfuðborg Sídamó- fýlkis, er miðstöð norska Eþíó- píu-kristniboðsins. Hér eru bú- settir 14 kristniboðar og sést glöggt dæmi þess hve fjölþætt og umfangsmikið kristniboðs- starfið er. Hér er annað tveggja sjúkrahúsa umdæmisins. Þið megið ekki hugsa ykkur sjúkra- hús á stærð við Landsspítalann. Þau eru lítil og rúma aðeins nokkra tugi sjúklinga. Sem stendur er ekki nema einn læknir í hvorq sjúkrahúsanna. Þetta eru einu sjúkrahúsin og einu læknarnir í héruðum, sem hafa rúmlega eina milljón íbúa. — Hvernig mundi Islendingum þykja að búa við slík kjör? Kennaraskóla hefir kristni- boðið einnig í Irgalem, auk venjulegra barnaskóla, sem reistir hafa verið á öllum kristni- boðsstöðvum. Loks má geta þess, að hér er trésmíðaverkstæði, er vinnur allt tréverk sem þarf til stöðvabygginga. Venjulega eru kristniboðs- stöðvar í Suður-Eþíópíu reistar rétt fyrir utan bæina. En í Irga- lem er stöðin inni í miðjum bæ. Bærinn er á miðju því svæði, þar sem trúarvakning hefir orðið. Alls staðar í þorpum og sveitum nágrennisins, eru nú hópar kristinna rrianna. Inn- fæddir trúboðar og kennarar ferðast milli þeirra að staðaldri. ☆ Þenna eina dag, sem við dvöldum í Irgalem, gerðust at- burðir, sem gáfu nokkra hug- mynd um hvað gerist á einni kristniboðsstöð. — Kristniboð- inn í Javelló kom þangað með einn samstarfsmann sinna, sem orðið hafði skyndilega fárveik- ur. Eitt af því, sem torveldar kristniboðsstarf í byrjun, er hörgull á góðum, kristnum sam- verkamönnum. Kristniboðar hér hafa átt við margvíslega erfið- leika að etja í samstarfi sínu við innfædda menn. Siðleysi mann- félagsins reynist þessum sam- starfsmönnum hættulegast. — Þá fylgir því einnig mikið um- stang að standa í byggingafram- kvæmdum, eins og högum er háttað hér mitt inni í Afríku. Kristniboði í Dilla kom til verk- stæðisins hér með gluggakarm, sem hvtíur maur hafði gereyði- lagt. Það er einn vágesturinn. — Þenna dag dó ungur piltur, kristinn á sjúkrahúsinu. Enn hafa ekki verið mörg dauðsföll meðal kristinna manna. Ekkert óttast heiðinginn meira en ó- vissu dauðans. Ég var einn í stofu kristniboðans, sem ég gisti hjá, þegar þjónninn kom inn. Hann var auðsjánanlega þungt hugsi. Um leið og hann minntist á lát piltsins, spyr hann: „Er hann nú hjá Jesú, þessi kristni maður, eftir dauðann?" — „Já“, svaraði ég. — „Er hann það núna, strax?“ spyr hann enn. „Já, nú þegar“, svara ég. Og á sömu stundu varð mér ljóst, hví- líkur fagnaðarboðskapur það er, að ógn dauðans er aflétt, brodd- ur dauðans brotinn fyrir Drott- inn Jesú Krist. Klukkuna vantaði 15 mínútur í fimm um morguninn, þegar við lögðum af stað frá Irgalem á leiðis til Neghelli, höfuðstaðar Borona-fylkis. Þangað komum við eftir tuttugu og eins tíma akstur. Neghelli er einmanaleg- ur bær, á stórri slétttu. Sléttan er frjósöm en óræktuð. Hjarð- menn halda þar bústofni sínum til haga. Hér er annað sjúkra- hús kristniboðsins, allmyndarleg bygging. Auk þess hafa verið reist tvö skýli, annað fyrir berklasjúklinga, hitt fyrir holds- veika. — Allmargt holdsveikra manna sá ég seinna á þessu ferðalagi, í Konsó. ☆ — Felix kristniboði hefir sent „Bjarma“, rnálgagni Sambands ísl. kristniboðsfélaga, skemmti- lega frásögu um ferðalagið til Konsó. Er það hérað allstórt, í Suður Eþíópíu, um 800 km. suð- ur af Addis Abeba, höfuðstað landsins. Vegir eru afleitir, en venjulega tekur ferðalag þang- að þó ekki nema 3—4 daga á bíl. Að þessu sinni var kristniboðinn tíu daga aðra leiðina, vegna rigninga og blautra vega. í einkabréfi segist honum svo frá: Náttúrufegurð var mjög mikil alla leið, gróður mikill og dýra- líf mjög fjölbreytt. Stundum komu á móti okkur stórir hópar af úlföldum. Apar klifruðu 1 trjánum eða hlupu í stórhópum á undan bílnum. Gazellur og antílópur sáum við skjótast inn í skóginn. Strútar gengu um slétturnar og alls staðar var mergð fugla með margvíslegum litum. Er skyggja tók sáum við. hýenur og sjakala og margs konar nátthrafna. Konsómenn eru vinnugefnari en aðrir ættflokkar hér syðra. Alls staðar sáum við vinnandi fólk, ýmist fáklætt eða allsnakið. Fjallshlíðar voru ræktaðar á þann hátt, að hlaðnir höfðu verið grjótgarðar og myndaðir stallar, bæði til að safna vatni og til að varna því að jarðvegi skolaði niður í dalbotn. En akrar eru á hverjum stalli. Lóð ís- lenzku kristniboðsstöðvarinnar er efst á hæð, þar sem byggð er þéttust. Þar er mikil náttúru- fegurð og útsýni dásamlegt yfir hálendið. Töluverður hitabeltis- gróður var á lóðinni. Skjaldbaka hafði grafið sig niður, þar sem reisa á fyrsta hús stöðvarinnar. Mannsöfnuður mikill var þar í þorpinu á markaðsdegi. Voru það fyrstu kynni mín af Konsó- honnum. Fólk þyrptist að okkur og bað um meðöl. — Viðstaða í Konsó varð skemmri en til var ætlazt, skrif- ar Felix kristniboði. Er þeir komu niður á sléttuna flóði hún í vatni. Bíllinn sökk í forarpoll og sat fastur í tvo sólarhringa. Þegar loks tókst að ná honum upp úr, var snúið við og farin önnur leið. Einu sinni þegar við höfðum Framhald á bls. 7 "A Realisiic Approach io ihe Hereafier" by Winnipeg auihor Edilh Hansson Bjornsson's Book Siore 702 Sargenl Ave. Winnipeg lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Það er borið fram FEIS-EL í þessu felast aukin þægindi, því þessir pappírs-klútar eru kunnir að mýkt og fara vel með nefið. KAtlPIÐ Business and Professional Cards Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shingles Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 632 Slmcoe St. Winnipeg, Man. Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan. Winnipeg PHONE 92-6441 SEWING^MACHINES Darn socks in a jiffy. Mend, weave in holes and sew beautifully. 474 Portage Ave. Winnipeg, Man. 74-3570 J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgC. bifreiCaábyrgB o. s. frv. Phone 92-7538 Dr. ROBERT BLACK SérfræCingur I augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kenneðy St. Skrlfstofuslmi 92-3851 Heimasími 40-3794 SARGENT TAXI PHONE 20-4845 For Quick, Reliable Service Dunwoody Saul Smith & Company Chartered Accodnlants Phone 92-2468 100 Princess St. Winnipeg, Man. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK, MANITOBA Phones; Office 26 — Residence 230 Office Hours: 2.30 - 6.01 p.m. 1 Hafið Thorvaldson, Eqgertson, Höfrt Bastin & Stringer Barristerí! and Solicitors i huga 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg Portage og Garry St. Heimili s61setursbarnanna. Tcelandic Old Folks’ Hoine Soc , 3498 Osler St„ Vancouver, B.C. PHONE 52-8291 ARLINGTON PHARMACY CANADIAN FISH Prescripiion Specialist Cor. Arlington and Sargent PRODUCERS LTD. Phone 3-5550 J. H. PAGE, Managing Dlrector Chrislmas Gifts, Cards, Ribbons and Paper. Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish We collect light, water and phone bills. Posi Office 311 CHAMBERS STRH3CT Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917 Muir's Drug Store Ltd. Office Phone Res. Fhone 92-4762 72-6115 J. CLUBB Dr. L. A. Sigurdson FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOR 27 YEARS 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. Phone 74-4422 EUice & Home and by appointment. Thorarinson & Appleby Barristers and Solicitors S. A. Thorarinson, B.Sc., L.L.B. W. R. Appleby. B.A., L.L.M. 701 Somerset Bldg. Winnipeg, Man. Ph. 93-8391 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur llkklstur og annast um Ot- farir. AHur ötbflnaCur sá bezti. StofnaB 1894 SÍMI 74-7474 Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered. Acccuntant 505 Coníederatlon Llfe Bulldtng WINNIPEG MANITOBA Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opposite Maternlty Pavilion General Hospital Nell's Flower Shop Weddlng Bouquets, Cut Flowers. Funeral Designs. Corsages, Bedding Plants Nell Johnson Res. Phone 74-6753 Parker, Parker and S. O. BJERRING Kristjansson Canadian Stamp Co. Barristers - Solicitors RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS Ben C. Parker, Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjanaaon CELLULOID BUTTONS 500 Canadlan Bank of Commerce 324 Smith St. Winnipeg Chambert Winnipeg, Man. Phone 92-3561 PHONE 92-4624 G. F. Jonasson. Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise Street Slmi 92-5227 Gilbart Funeral Home Selklrk, Manltoba. J. Roy Gilbart Licensed Embalmer Phone 3271 Selklrk EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphln, Manitoba Eigandi ARNI EGGERTSON Jr. SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita frá ao rjúka flt með reyknum.—SkrlfiC, simlB til KELLY 8VEINSSON 626 Wal! St. Wlnnlpe* Just North of Portage Ave. Símar 3-3744 — 8-4431 Van's Efectric Ltd. 636 Sargonl Ave. Authorized Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT Phone 3-4890 J. Wilfrid Swanson & Co. Insurance ln all lts branches Real Estate - Mortgages - Rentali 21« POWF.R BUILDING Telephone 93-7181 Res. 46-3489 LET US SERVE YOU

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.