Lögberg - 17.11.1955, Blaðsíða 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 17. NÓVEMBER 1955
Mikið og fagurt viðfangsefni
Lögberg birti hinn 20. október síðastliðinn skilmerkilega
greinargerð eftir formann Betelnefndar, séra Sigurð Ólafs-
son, um þá ákvörðun Hins ev. lúterska kirkjufélags Islend-
inga í Vesturheimi, er tekin var á þingi félagsins, sem haldið
var á Gimli í sumar, sem leið, að reisa nýtt hús fyrir Elli-
heimilið þar sem gamla byggingin er orðin ófullnægjandi og
úr sér gengin, og þarfnast að sjálfsögðu meiri háttar aðgerðar
við. Dvalarstaður vistfólks í kjallara hússins, er nú úr sög-
unni, að því er séra Sigurði segist frá, en þriðja hæð hússins
talin óhæf til notkunar vegna skorts á öryggi; það var því
sýnt, að við svo búið mátti ekki lengur standa, heldur varð
að taka róttækar cáðstafanir málinu til lausnar, og lá þá ekki
annað beinna við en skírskotun til almennings um óumflýjan-
legan fjárstuðning, enda kunnugt af langri reynslu, að þegar
mikið liggur við, er hjarta landans jafnaðarlegast á réttum
stað.
Að öllum aðstæðum gaumgæfilega íhuguðum, komst
kirkjuþing að þeirri niðurstöðu, að sú fjárhæð, sem nauðsyn-
legt yrði að safna, myndi nema $175,000.00. Þingið kvað svo á,
að söfnunin færi fram fyrir atbeina framkvæmdarnefndar
Kirkjufélagsins, en nú hefir skipast svo til, að tilmælum for-
seta félagsins, Dr. Valdimars J. Eylands, að Betelnefnd taki
að sér umsjón með fjársöfnuninni.
Nefndin hefir orðið svo lánsöm, að fá hinn víðkunna
framkvæmdamann, Dr. P. H. T. Thorlakson, til að skipa for-
sæti í fjársöfunarnefndinni fyrst um sinn og hrinda skipu-
lagningu allri af stokkum. Vestur-íslendingum er það fyrir
löngu kunnugt, að hvar, sem Dr. Thorlakson gengur til verks,
verður ávalt eitthvað undan að láta.
Engin smáræðis hjartastyrking hlýtur velunnurum þessa
mikla mannúðarmáls að verða í því, að hafa fengið vissu
fyrir, að fylkisstjórnin í Manitoba leggi fram $42,500.00 bygg-
ingamálinu til fulltingis, en slíkt hefir bréflega verið staðfest
af heilbrigðismálaráðherranum, Mr. R. W. Bend.
Áætlaður kostnaður nýju byggingarinnar, sem gert er
ráð fyrir að innihaldi 50 einmenningsherbergi, mun nema
$130,000.00 að dómi byggingameistara, en viðgerð á gamla
húsinu hleypur að líkindum upp á $30,000.00, auk þess sem
kaupa þarf ný húsgögn í nýju bygginguna, og ný eldhús- og
þvottatæki í þá gömlu.
Þann 1. yfirstandandi mánaðar boðaði Dr. Thorlakson
til fundar í Winnipeg Clinic byggingunni að viðstaddri Betel-
nefnd og allmörgum öðrum, er hann taldi líklega til árangurs-
ríks samstarfs varðandi framkvæmd málsins. Séra Sigurður
Ólafsson hafði með höndum fundarstjórn; framsögumaður
var Dr. Thorlakson og gerði hann umtalsefni sínu slík skil,
að á betra varð eigi kosið; kvað hann fund þennan boðaðan í
þeim tilgangi, að skipuleggja fjársöfnunina og hraða fram-
kvæmdum, því málið væri þannig vaxið, að það þyldi eigi bið;
hann skýrði frá því, að Mrs. J. Augusta Tallman, sem ráðin
hefir verið til forstjórnar við Betel, myndi áður en hún tekst
þá stöðu á hendur, helga fjársöfnuninni óskipta starfskrafta
sína, og var þeirri yfirlýsingu tekið með miklum fögnuði.
Dr. Thorlakson lét þess getið, að þó Betel hefði verið
starfsrækt af íslenzka lúterska kirkjufélaginu, hefðu dyr þess
jafnan staðið opnar öllum aldurhnignum íslendingum án
hliðsjónar af kirkjulegum tengslum; þetta væri því mál, sem
varðaði alla íslendinga jafnt og þess vegna bæri þeim öllum
að fylkja um það liði.
Greinargerð sú, er Dr. Thorlakson samdi og flutti um
þetta mál málanna, verður birt hér í blaðinu í íslenzkri
þýðingu við allra fyrstu hentugleika.
Hér fara á eftir nöfn þeirra, er sæti eiga í hinum ýmsu
nefndum, er þegar hafa verið settar á fót, en frekari upp-
lýsingar varðandi val annara nefndarmanna birtast í næstu
blöðum:
Dr. P. H. T. Thorlakson, Campaign Chairman
Mrs. J. Augusta Tallman, Campaign Supervisor
Mr. Grettir Eggertson, Chairman, Central Committee
Mr. B. Egilson, Vice-Chairman
Mr. Gus Gottfred, Vice-Chairman
Mr. K. W. Johannson, Treasurer
Miss Stefanie Bjarnason, Secretary '
Miss Alma Elding, Secretary.
CENTRAL COMMITTEE:
Mr. Johann T. Beck, Mr. Skuli Backman, Mrs. B. S. Benson,
Mrs. Gudrun Blondal, Mr. Erlingur Eggertson, Dr. George
Johnson, Mr. A. F. Kristjansson, Mr. Jacob Kristjanson,
Mr. Wilhelm Kristjanson, Miss Margaret Petursson, Rev.
Eric Sigmar, Mr. Alex Thorarinson, Mr. Ray Vopni.
ADVISORY COMMITTEE:
Mr. B. Egilson, Chairman, Mr. Arni Eggertson, Q.C., Rev. V. J.
Eylands, D.D., Rev. B. Fridriksson, Mr. C. Halldorson, M.L.A.,
Dr. K. I. Johnson, Mr. Grettir Johannson, Judga W. J. Lindal,
Rev. S. Olafson, Rev. Philip M. Petursson, Dr. Larus A.
Sigurdson, Mr. S. V. Sigurdson, Dr. S. Thompson, M.L.A.,
Mr. G. S. Thorvaldson, Q.C.
PUBLICITY COMMITTEE:
Judge W. J. Lindal, Chairman, Mr. Johann T. Beck, Mrs. H.
Danielson, Mr. Stefan Einarson, Mr. J. E. Erickson, Mr.
Einar P. Jonsson, Mrs. Ingibjorg Jonsson, Mr. Marlin
Magnússon, Mr. Frank Presunka, Mr. William Vopni.
Gullbrúðkaup
Hinn 29. október s.l. fór
fram gullbrúðkaup hinna vin-
sælu og merku hjóna Gunnars
Matthíassonar og frú Guð-
nýjar Árnadóttur í Schriners
matsöluhúsinu í Inglewood.
Á annað hundrað manns var
þarna saman komið til þess
að heiðra og hylla hin glæsi-
legu hjón, sem blátt áfram
ljómaði af, þar sem þau sátu
við háborðið ásamt börnum
sínum, tengdabörnum og
barnabörnum. Kl. 8 var sezt
að ágætum kveldverði. Að
máltíðinni lokinni fór fram
mjög góð skemtiskrá undir
röggsamlegri stjórn frú Guð-
nýjar Thorvaldson; úrvals
söngfólk skemti þar eftir að
sumir af okkar ómissandi
söngvum voru sungnir af
fjöldanum við þetta tæki-
færi. Fólk það, sem söng ein-
söngva, var: Guðm. Guðlaugs-
son, Þóra Matthíasson, Sverrir
Runólfsson og Anna Bjarna,
en undirspil önnuðust þau
Janet Runólfsson og Audrey
Rebard með sannri prýði. —
Anna Bjarna er fríðleikskona,
með glóandi rautt hár, og þar
sem hún er ættuð frá Akur-
eyri, finst manni að þarna sé
engin önnur en Sigríður Eyja-
fjarðarsól. Og „Kvöldbæn“
með lagi Björgvins okkar
Guðmundssonar söng hún svo
dásamlega, að það ómar enn-
þá í eyrum þeirra, sem á það
hlýddu. Fimm skáld á vestur-
ströndinni sendu ljóð, og svo
í Los Angeles
hver . ræðan á eftir annari.
Þeir sem ræður fluttu voru:
Jón Thorbergsson, Dr. Odd-
stað, Gunnar Matthíasson og
Sumi Swainson, sem afhenti
þeim fagrar og dýrar gjafir
frá vinum þeirra. Þá kom
ungur kennari frá Reykjavík
Kristján Benediktsson fram
fyrir hönd íslands og fólks
þess, sem þarna var frá Is-
landi, bjartur á brún og brá,
hávaxinn og drengilegur;
flutti hann/mjög viðeigandi
ræðu, sem var þrungin af vin-
semd og skilningi í garð
Vestur-íslendinga. Var ræða
hans, bæði í gamni sem al-
vöru, og alveg kinnroðalaus.
Þá kom fram skáldkonan frú
Ingibjörg Guðmundsson með
frumort kvæði, og þar sem
hún er mjög tignarleg kona,
fanst mér sem að fjallkonan
væri þar að flytja hinum vest-
rænu börnum sínum blessun
sína. Síðast kom fram Paul
Lecoqo, 7 ára að aldri, og
flutti nokkur íslenzk ljóð, sem
góður rómur var gjörður að,
ekki sízt þar sem hann er ekki
af íslenzkum ættum, en kjör-
sonur frú Önnu Lecoqo. Síðan
var borin fram hin fína brúð-
kaupskaka og kaffi. — Sam-
sætið endaði með því að sung-
ið var „Hve gott og fagurt og
indælt er“ og þá „Ó, Guð vors
lands“.
Eins og að allir vita, þá. er
Gunnar sonur skáldajöfurs
íslands, Matthíasar Jochums-
sonar, en kona hans dóttir
stórbóndans Árna Sveinsson-
ar í Argyle, Manitoba. Börn
þeirra: Elín, Helen, Þóra og
Ari, eru öll gift amerísku
fólki og öll hin glæsilegustu
eins og þau eiga ættir til.
Hin elskulegu hjón, Gunnar
og Guðný Matthíasson, hafa
á langri leið eignast marga
vini og aðdáendur — og ást
og virðingu allra þeirra, sem
hafa átt því láni að fagna að
eiga samleið með þeim; og
það er ósk og von vina þeirra,
að Guð og gæfa, sem fylgt
hefir þeim fram á þennan
dag, megi vera með þeim til
lífsins leiðarenda.
I samkvæmi þessu voru frá
íslandi: Þorvaldur Guðmunds
son, Guðjón Guðjónsson,
Magnús Jóhannsson, Gunnar
Theódórsson, Leifur Þórhalls-
son og Gunnar Þorsteinsson;
ennfremur Steingrímur Her-
mannsson Jónassonar, Krist-
ián Benediktsson og frú Helga
Vilhjálmsson. — Þá er ný-
lega kominn hingað Gunnar
Böðvarsson Kristjánssonar,
(kvæntur danskri konu), hér
stundar hann nám á menta-
stofnun í Pasadene.
Skúli G. Bjarnason
Á gullbrúðkaupsdegi
Gunnars og Guðnýjar
10. október 1955
Lukkuósk frá „Vestra“ í
Seattle, send og samin af Jóni
Magnússyni:
Gunnar og Guðný kær!
Gullbrúðkaupjsdegi á
hressi ykkur helgiblær
hugans með von og spá.
Vildi þá „Vestra“ lið
velja sem heiðurskrans
síungan söngvaklið,
samfögnuð konu og manns.
B. E. M.
Television Service
• Factory Trained
Technicians.
• All Work Guaranteed.
• Swift Efficient Service.
Phone 75-2875
1786 Logan Ave.
WINNIPEG 3
Hósti Ofs kvef leika hvern grátt sem lasinn er.
Góð Icið að byggja upp kraftana, er að taka inn
Wampole’s Exiract af þorskalýsi KEGtiULiEGA.
Það er reynt áð gæðum af þrem kynslóðum þessa lands.
Það byggir upp. er ríkt af sólskini, fjörefni I>„ malti,
kalki. járni, brcnnisteini og fleiri ofnum nauðsynlegum
fyrir heilsuna.
Einnig gott á bragðið. Inniheldur enga olíu. Reynið það.
UJRmPGLE’S
Fæst hjá öllum lyfsölum — AÐEINS $1.35
EXTRACT
OF
COD LIVER
1W55
Veitið athygli hinum nýju Wampole’s VI-CAti-FER 12 málmbætiefna
MÆÐUR! Inntiikum — elnknm gerðar fyrir vaxandi biirn — gott handa fullorðnu
fólki líka. — 60 daga blrgðir $1.95.