Lögberg - 26.07.1956, Page 3

Lögberg - 26.07.1956, Page 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 26. JÚLÍ 1956 3 Notið fæturna - styrkið hjartað, segir dr. PAUL DUDLEY WHITE líflæknir Eisenhowers Business and Professionai Cards Þegar hinn hávaxni grá- hærði maður gekk út af járn- brautarstöðinni í New York, Wupu margir burðarkarlar UPP til handa og fóta og buð- ust til að bera tvær töskur, er hann hafði meðferðis, út að hifreiðinn. “Thank You,” svaraði hann brosandi. „Þið getið sparað ykkur ómakið. Ég ber tösk- urnar mínar sjálfur." Þegar hann var kominn spottakorn frá burðarkörlun- ' um, sagði einn þeirra við starfsbræður sína: >.Ég held hann sé eitthvað skrýtinn, þessi karl! Eða hafið þið nokkurn tíma vitað mann, sem heldur hefir kosið að bera svona þungar töskur sjálfur, en fá þær bornar fyrir sig?“ Þetta atvik átti sér stað í fyrra sumar. Ekki alllöngu síðar vissu allir burðarkarlar Ameríku, að þeir myndu al- drei eiga neinnar atvinnuvon hjá þessum hávaxna grá- h*rða manni. Þá var það nefnilega orðið öllum kunn- ugt, að dr. Paul Dudley White, ®inn af fimm frægustu hjartasjúkdómalæknum Ame- nku, og líflæknir Eisenhowers forseta, hafði sett fólki lífs- reglur í fimm liðum — sem hann hélt raunar einnig sjálf- ur mjög nákvæmlega, — en þær eru eftirfarandi: L Komir þú í ókunnuga horg, skaltu láta ferðafélögum þínum eftir að aka í leigubíl- um — sjálfur ferð þú fót- gangandi. 2. Sé hótelið, sem þú ætlar oð búa á ekki nema tíu mín- utna gang frá járnbrautar- stöðinni, þá berðu sjálfur far- ungur þinn. 3. Sértu í heimaborg þinni, skaltu ganga milli búðanna í verzlunarerindunum. Þurf- irðu að fara eitthvað lengra um borgina, þá notaðu heldur reiðhjól en bifreið. 4. Mokaðu sjálfur snjóinn frá húsinu þínu, og 5- dveldu að minnsta kosti búlftíma á dag við einhver störf utanhúss. t*að segir sig sjálft að þessar íífsreglur miðar dr. White við fólk með hraust hjarta. En hann hefur einnig á reiðum þöndum ráðleggingar og lífs- ^glur fyrir þá, sem hjarta- oilunin hefir heimsótt. Það fynir meðal annars tilfellið um Eisenhower. Enda þótt Eisenhower hafi verið á landamerkjum lífs og öuuða nóttina milli 23. og 24. 3ePtember í fyrra, lætur hann Uu gesti sína fara upp með yftunni, meðan hann töltir síúlfur á eftir þeim upp stig- ana. og til skýringar þessu uPpútæki, segir forsetinn: »Dr. White hefir gefið mér leYfi til þessa.“ þúsund hjartasjúklingar Dr. Paul Dudley White er uú 69 ára að aldri, og hann afði um langt skeið verið viðurkenndur sérfræðingur í hjartasjúkdómum, þegar hann var kvaddur til forsetans í Fitzsimmons-sjúkrahúsinu í í Denver í fyrrahaust. En frá þeirri stundu var hann ekki aðeins frægur meðal starfs- bræðra sinna, heldur naut hann almenns álits og viður- kenningar. Það jók líka mikið athygli á honum, að eftir sjúkdómstilfelli Eisenhowers forseta skrifaði dr. White grein í aðal-læknatímarit Ameríku. í þessari grein lagði hann meðal annars þessar spurningar fyrir starfsbræður sína: 1. Hversu marga sjúklinga með kransæðastíflu hafið þið stundað á mánuði fyrir þann 24. september 1955 og hve marga á mánuði eftir þann tíma? 2. Hversu há var hlutfalls- tala látinna, af þeim sem leit- uðu læknis, áður en forsetinn veiktist, og hve há var dánar- talan eftir það? Það kom nefnilega fram í greininni og spurningunum, að dr. White grunaði að sjúk- dómstilfelli forsetans hefði or- sakað ótölulegan fjölda „ímyndaðra sjúkdómstilfella". Á hinum 42ja ára starfsferli sem hjartalæknir hafði dr. White haft undir höndum um 30,000 sjúklinga, og niðurstöð- ur sínar af hinni löngu reynslu birti hann í bók sinni „Hjartasjúkdómar,“ sem kom- ið hefir út í fimm útgáfum, og hefir orðið metsölubók í læknavísindum í Ameríku. En dr. White er ekki ein- ungis sérfræðingur í öllu því er lýtur að manns hjartanu. Hann hefir einnig um langt skeið haldið uppi rannsóknum á hjarta hinna ýmsu dýra, og meðal annars komizt að þeirri niðurstöðu, að hjarta páfa- gauksins slái 250 slög á mín- útu, hjarta sólfuglsins 1000 slög á mínútu, en hjarta fílsins aðeins 40 slög á mínútu. Þá heldur dr. White því fram, að mikil áreynsla, svo sem íþróttir skaði ekki heil- brigt hjarta. Hins vegar geti of lítil hreyfing, og andlegt erfiði haft í för með sér al- varlega hjartasjúkdóma. Sveitapiltur ^aul Dudley White var þegar í æsku ákveðinn \ því að verða læknir. Faðir hans var héraðslæknir í sveit, og fór læknisferðir sínar á hest- baki bæ frá bæ, og Paul litli fylgdi föður sínum oft eftir í læknisferðum hans. Þegar Paul Dudley White hafði lokið læknisfræðisnám- inu og starfaði á sjúkrahúsi í Boston, var það ætlun hans að sérhæfa sig í lækningum vaxtarlýta. En dauðsfall eitt í fjölskyldu hans breytti á- kvörðun hans, svo að hann ákvað að helga sig hjarta- sjúkdómunum: Tólf ára systir hans andaðist af hjartasjúk- dómi, og upp frá þ^im degi ákvað hann að taka hjarta- sjúkdómana sem sérgrein. í fyrri heimsstyrjöldinni gerðist White sjálfboðaliði í hjúkrunarsveitum Breta, og var sendur til Frakklands, en eftir að Bandaríkin drógust inn í styrjöldina 1917 starfaði hann fyrir þau. Þegar_ hann kom svo heim til Ameríku eftir stríðið tók hann til við læknisstörf sín þar, og í mörg ár helgaði hann sig hjarta- rannsóknum, og leitaðist við að finna svar við því „hvað í raun og veru væri heilbrigt starfandi hjarta; hvað mætti bjóða því, og hvað framkall- aði veilur og truflanir í starf- semi þess.“ Þegar á þessum árum tók , hann sér fyrir hendur að gera margvíslegar rannsóknir á hjarta hinna ýmsu dýra. Meðal annars tók hann sér ferð á hendur til Alaska til þess að athuga starfsemi hvals hjartans, og tókst með ærnum útbúnaði og tilfæringum að sannprófa hjartabilun í hval einum. Svipaðan leiðangur hugsar hann sér enn að fara í, svo framarlega sem heilsufar frægasta sjúklings hans ' — nefmlega Eisenhowers for- seta — leyfir honum að bregða sér frá. „Slagar"- og ástasögu- höfundar í litlu áliti Dr. White býr í einu af út- hverfum Boston ásamt konu sinni, 17 ára syni, Alexander að nafni, einum hundi og að minsta kosti einu dúsíni af köttum (talan breytist frá viku til viku,. eftir því sem kettlingar bætast við og öðr- um er fargað). Nágrannar dr. White geta staðfest, að hann lifir sjálfur nákvæmlega eftir þeim regl- um, sem hann hefir sett öðr- um. Þegar hann er kvaddur til sjúklings, kemur hann ætíð á hjóli sínu, eða fótgang- andi, nema líf liggi við. Hann sest aldrei upp í bíl, ef hann með nokkru móti getur notað fætur sína í staðinn. Líflæknir Eisenhowers er mikill bókavinur, og á í bóka- safni sínu yfir 1500 bindi. Mest af því eru að vísu bækur um læknisfræði, og hefir hann sett sér þrjú slagorð: móti ástarsöguhöfundum, móti „slagara“-höfundum,— og móti grátljóðum og væmn- um tækifærisskáldskap. —Sunnudagsblaðið Prestur nokkur í New York hafði lengi átt í stríði við fólk, sem ekki tók til greina skilti við kirkjuna, sem á stóð „Bíla- stæði bönnuð“. Á hverjum degi var mörgum tugum bíla lagt við kirkjuna. En einn daginn brá svo við að enginn bíll sást þar. Presturinn hafði nefnilega um morguninn tek- ið gamla skiltið niður og sett í staðinn skilti með þessum orðum: „Þú skalt ekki leggja bílnum þínum hérna“._ Minnist BETEL í erfðaskróm yðar Dr. ROBERT BLACK Séríræðingur I augna, eyrna, nef og hálssjúkdömum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusími 92-3851 Heimaslmi 40-3794 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Loulsa Street Slmi 92-5227 Van's Electric Ltd. 636 Sargent Ave. Authorized Home Appllance Deálers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT SUnset 3-4890 Dr. P. H T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary's and Vaughan, Winnipeg Phone 92-6441 Office Phone Res. 92-4762 SPruce 2-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment. PAHKER. TALLIN, KRIST- JANSSON. PARKER AND MARTIN BARRISTERS — SOLICITORS Ben C. Parker, Q.C. (1910-1951) • B. Stuart Parker, Clive K. Tallin, Q.C, A. F. Kristjansson, Hugh B. Parker. W. Steward Martin 5th fL Canadian Bank of Commerce Building, 389 Main Street Winnipeg 2, Man. Phone 92-3561 Thorvaldson, Eggertson. Bastin & Stringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTTA Bldg. Portage and Garry St. PHONE 92-8291 J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgð, bifreiðaábyrgð o.s. frv. Phons 92-7538 CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: Res.: SPruce 4-7451 SPruce 2-3917 Kaupið Lögberg VIÐLESNASTA ÍSLENZKA BLAÐIÐ SELKiRK METAL PR0DUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hrejnir. Hitaeiningar- rör, ný uppíynding. Sparar eldi- viö, heldur hita frá að rjúka út með reyknum.—Skrifið, símið til KELLY SVEINSSON 625 WaU SL Winnipeg Just North of Portage Ave. SUnset 3-3744 — SUnset 3-4431 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATESEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh Sl. Winnipeg PHOÍIE 92-4624 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá beztl. Stofnað 1894 SPruce 4-7474 EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin. Maniioba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr. SPruce 4-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shlnglea Insul-Bric Sidlng Vents Installed to Help Eliminate Condensation 632 Simcoe St. Wlnnipeg, Man. Muir's Drug Store Ltd. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOR 27 YEABS SPruce 4-4422 Ellice & Home Dr. G. KRISTJANSSON 102 Osbome Medical. Bldg. SPruce 4-0222 Weston Office: Logan & Quelch SPruce 4-5818 Res.: SPruce 4-0118 S. A. Thorarinson Barrister and Bolicitor 2nd Floor Crown Trust Bldg. 364 MAIN ST. Office Phone 92-7051 Heimasími 40-6488 Dunwoody Saul Smith & Company Chartered AccountantM Phone 92-2468 100 Prlncess St. Winntpeg, Maa. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN Hafið H öf n í huga Heimili sölsetursbarnanna, Icelandic Old Folks' Homa Soo., 3498 Osler St.. Vancouver. B.C. Arlington Pharmacy Prescription Specialist Cor. Arllngton and Sargent SUnsel 3-5550 We collect light, water and phone bills. Post Offiee

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.