Lögberg - 20.09.1956, Side 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 20. SEPTEMBER 1956
Úr borg og bygð
Athygli skal á því vakin, að
kennsla í íslenzkum fræðum
við Manitoba-háskóla hefst að
nýju 24. sept. n.k.
Innritun stúdenta hefst í
háskólanum 19. september.
Haraldur Bessason
Ste 14-B Garry Manor Apts.
Pembina Highway,
Fort Garry, Winnipeg.
Sími 42-7712.
☆
— BRÚÐKAUP —
Á laugardaginn 15. septem-
ber voru gefin saman í hjóna-
band í St. Andrew’s United
kirkjunni í River Heights
Marilyn Ragna Hurst og Paul
Cameron White. Rev. McLean
framkvæmdi hjónavígsluna
með aðstoð séra Philips M.
Péturssonar. Mr. Walter
Kaufman, hljómsveitarstjóri
Winnipeg Symphony, samdi
brúðkaupslag við þetta tæki-
færi, en Mrs. Kaufman orti
ljóð við lagið, og var það
sungið af Mr. James Duncan.
Brúðurin er einkadóttir Mr.
W. D. Hurst, yfirverkfræðings
borgarinnar, og Mrs. Gyðu
Hurst, dóttur Gísla Jónssonar,
ritstjóra. Að hjónavígslunni
lokinni fór fram fjölmenn og
vegleg veizla að heimili þeirra,
67 Kingway. Mr. Irvin Keith,
lögfræðingur, mælti fyrir
minni brúðarinnar, en Mr.
Jack St. John, fylkisþing-
maður, las fjölda heillaóska-
skeyta, er brúðhjónunum bár-
ust víðsvegar frá. Brúðgum-
inn flutti hlý þakkarorð.
Meðal langt aðkominna gesta,
var móðursystir brúðarinnar,
Mrs. Bergþóra Robson frá
Montreal.
Brúðhjónin eru bæði braut-
skráð frá Manitobaháskóla,
hún í Arts en hann í Mechan-
ical Engineering. Þau lögðu
af stað til Manchester á Eng-
landi á miðvikudaginn, þar
sem Mr. White mun stunda
framhaldsnám í tvö ár, en
Mrs. White kennslu í skólum
borgarinnar. — Lögberg óskar
hinum ungu hjónum innilega
til hamingju.
☆
Til kaupenda Lögbergs
Athugið nafnmiðan á blað-
inu; hann gefur til kynna
fram að hvaða tíma Lögberg
hefir verið borgað. — Blaðið
borgast fyrirfram.
Með þökk fyrir skilvísi
kaupenda. —I. J.
Mr. Chris Isford frá Van-
couver, B.C., er staddur í
borginni þessa dagana; var
hann viðstaddur útför
Tryggva Johnson að Baldur.
Mr. Isford tekur mikinn og
giftudrjúgan þátt í íslenzkum
þjóðræknismálum í Van-
couver og er meðal annars
ritari í Þjóðræknisdeildinni
Ströndin.
☆
Gefið í blómasjóð Hayland,
Vogar og Sigluness af Ólafi
Magnússyni frá Sleðbrjót og
Sigþrúði konu hans $5.00 í
minningu um Ólaf heitinn
Magnússon, Lundar, Man.
Með kæru þakklæti,
Ingibjörg Eggertsson,
Vogar, Man.
☆
Mr. B. Eggertsson kaup-
maður að Vogar, Man., var
staddur í borginni ásamt frú
sinni um miðja fyrri viku.
☆
— Silfurbrúðkaup —
Þann 5. september áttu þau
Mr. og Mrs. Walter G. John-
son, Ste. 8, Elaine Court, hér
í bæ, silfuHarúðkaup. — Var
þeim haldin veizla á heimili
Mr. og Mrs. Frank Lindal, þar
sem margt skyldfólk og vinir
komu saman til að óska þeim
blessunar og afhenda þeim
margar vandaðar gjafir.
☆
— KVEÐJA —
Hér með vil ég þakka inni-
lega þeim vinum mínum og
kunningjum, sem kvöddu mig
í Sambandskirkjunni á þriðju-
dagskvöldið þann 11. þ. m.
með óverðskulduðum hlýjum
orðum og höfðinglegri og
fagurri gjöf. — Hamingjan sé
með ykkur, kæru vinir, og
þökk fyrir ágæta samfylgd í
síðastliðin rúm 30 ár.
Jónbjöm Gísalon
☆
Mrs. L. E. Summers frá
Vancouver kom hingað til
borgarinnar í fyrri viku í
heimsókn til vina og vanda-
manna, en hér er hún vinmörg
síðan hún og hennar ágæti
eiginmaður, sem nú er látinn,
áttu hér heima. Mrs. Summers
dvelur hjá systur sinni og
tengdabróður, Mr. og Mrs.
Harvey Benson, 589 Alver-
stone St., og mun verða hér
um mánaðartíma.
☆
Miss Ingibjörg Bjarnason
kenslukona er nýkomin heim
úr íslandsför.
M ESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Árdegisguðsþjónustan á
sunnudaginn kemur, 23. sept.,
verður undir umsjón ung-
mennafélags safnaðarins.
Meðlimir félagsins lesa
lexíur dagsins, og Dennis
Eyjólfsson flytur hugleiðingu
úr prédikunarstól.
Kvöldguðsþjónustan verður
með venjulegum hætti.
----0---
Sameiginleg guðsþjónusta á
ensku fyrir allan söfnuðinn
fer fram á sunnudagskvöldið,
30. sept, kl. 7. Allir meðlimir
og vinir safnaðarins eru
áminntir um að koma.
☆
ST. STEPHEN'S
LUTHERAN CHURCH
— Silver Heighis —
Eric H. Sigmar, Pastor
Sunday, Sepiember 23rd:
Sunday School 9.30 A.M.
Family Service 11 A.M.
☆
Lúlerska kirkjan í Selkirk
Sunud. 23. september:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
— FRÁ GIMLI —
Þessi fréttagrein féll úr
í síðasta blaði:
Dr. Beck var viðstaddur
messu í gærmorgun, 9. sept.,
talaði hann fáein orð til
prestsins, séra Braga, þakk-
lætisorð fyrir hans háfleygu,
andlegu ræðu, og afhenti hús-
móðurinni svo gjöf til heimil-
isins, tvær bækur: Blessuð
sértu sveitin mín, ljóð eftir
Sigurð Jónsson frá Arnar-
vatni, og Svipmyndir af Suð-
urlandi, eftir hann sjálfan,
Richard Beck. — Seinnipart
dags heimsótti hann móður
sína á Betel, og vistfólk í her-
bergjum sínum; heimilinu var
koma hans mjög kær. — Var
hann með móður sinni svo
gestur til kveldverðar hjá Mr.
og Mrs. Ingólfur Bjarnason,
áður en hann fór á „Bus“ til
Winnipeg. —Mrs. Tallman
Mrs. Krisfín Thorsteinsson
☆
Mr. Jónbjörn Gíslason og
dóttir hans, Judit, kenslukona
á Akureyri, sem dvalið hefir
hér um slóðir undanfarna síð-
ustu mánuði, lögðu af stað til
íslands aðfaranótt síðastliðins
miðvikudags.
Mrs. Ingi frá Foam Lake,
Sask., hélt heimleiðis senni-
part fyrri viku eftir nokkura
dvöl hér í borginni.
☆
Mr. og Mrs. Vigfús Bald-
winsson frá Vancouver, eru
fyrir skömmu komin hingað
til borgar og munu dveljast
hér fram um mánaðamótin.
☆
Mrs. Ingibjörg Shepley frá
Vancouver, B.C., hefir verið
hér um slóðir í mánaðartíma í
heimsókn til vina og vanda-
manna. hefir meðal annars
farið til Riverton og Gimli, að
heilsa upp á gamla vini. Hún
mun leggja af stað vestur
eftir tvær vikur.
☆
— DÁNARFREGN —
Lárus Halldórsson, 63 ára að
aldri, til heimilis. í Parkview
Apts., lézt að heimili sínu 8.
sept. eftir stutta legu. Hann
var ættaður úr Mýrasýslu,
kom vestur um haf laust fyrir
fyrra heimsstríðið, innritaðist
í herinn, fór til Frakklands og
tók þátt í mörgum stórorust-
um. Var hann sæmdur heiðurs
merkjum fyrir frækilega
framgöngu.
Jarðanförin fór fram frá
Mordue’s þ. 13. Dr. Valdimar
J. Eylands jarðsöng.
☆
— DÁNARFREGN —
Látinn er nýlega á dvalar-
heimilinu Betel á Gimli Sig-
tryggur Sigvaldason 94 ára að
aldri; Útför hans var gerð að
Baldur, Man.
☆
Gefið í Organsjóð lútersku
kirkjunnar í Árborg. — Mrs.
Sesselja Oddson, Winnipeg,
$5.00 í kærri minningu um
Kristján Magnússon og Lárus
Björnsson.
Meðtekið með þakklæti,
Mrs. Magnea Sigurdson
Fromfíð óróðin
Leiðtogi íhaldsflokksins, —
George Drew, — liggur á
sjúkrahúsi í Toronto þessa
dagana; var hann svo að segja
nýkominn heim frá Bermuda.
Sum blöðin, einkum austan-
lands, staðhæfa að Mr. Drew
muni láta af flokksforustunni
í náinni framtíð vegna heilsu-
brests; á hinn bóginn segir
önnur ritning, að aðeins nægi-
leg hvíld fái að fullu læknað
Mr. Drew; fram að þessu hefir
Mr. Drew ekkert látið uppi
um framtíðaráform sín í
áminstum efnum.
VINNIÐ AÐ ÚTBREIÐSLU
LÖGBERGS
Fréftir fró Árborg
— BRÚÐKAUP —
Á laugardaginn 18. ágúst s.l.
voru gefin saman í hjónaband
í lútersku kirkjunni í Árborg
Violet Guðmundsson, eldri
dóttir Mr. og Mrs. Ragnar
Guðmundsson í Víðir, og
Sigurbjörn Jónasson, sonur
Kristjáns Jónssonar í Víðir og
látinnar konu hans. Séra
Bragi Friðriksson fram-
kvæmdi hjónavígsluna. —
Svaramenn voru Violet Guð-
mundsson, systir brúðarinnar
og frændi brúðgumans, Björn
Bjarnason. Vegleg veizla fór
fram í samkomuhúsi Víðis-
byggðar. Mrs. Margrét Finn-
son mælti fyrir minni brúð-
arinnar, en Tryggvi Finnson
fyrir minni brúðgumans.
Heimili ungu hjónanna
verður í Árborg.
☆
— SILFURBRÚÐKAUP —
25 ára giftingarafmæli áttu
þau Mr. og Mrs. Gestur Odd-
leifsson 19. ágúst s.l. Vinir og.
vandamenn silfurbrúðhjón-
anna komu saman í samkomu-
húsinu í Árborg til að minnast
dagsins. Mrs. Andrea Johnson
mælti fyrir minni brúðar-
innar, en Arthur Bigurdson
fyrir minni brúðgumans. Mrs.
Geo. Smith talaði fyrir hönd
M.F.A. félagsins. Mrs. Odd-
leifsson hefir tilheyrt þeim
félagsskap um langt skeið. —
Voru þeim afhentar vandaðar
gjafir frá vandamönnum og
byggðarfólki.
Skemmt var einnig með
söng og hljóðfæraslætti. —'
Rausnarlegar veitingar voru
fram bornar.
☆
— KÆRKOMNIR GESTIR —
Á miðvikudaginn 22. ágúst
s.l. komu hingað í skyndi-
leimsókn séra Bjarni Bjarna-
son og frú Alma og yngn
sonur þeirra, Warren. Tóku
sig saman konur úr Kven-
félagi Árdalssafnaðar, ásamt
nokkrum öðrum vinum prests-
ijónanna, og buðu öllu
byggðarfólki, sem hægt var að
ná til að mæta á heimili
og Mrs. K. O. Einarssoji 1
Árborg frá kl. 2 til 5 e. h. og
8 til 10 að kvöldi. Á annað
hundrað manns notaði tæki-
færið til að heilsa upp á gest-
ina, mun það vera einstsett
með svo stuttum fyrir vara-
Sýnir þetta hve vinmörg séra
Bjarni og frú Alma eru her
um slóðir.
Einnig skírði séra Bjarni
þar son Mr. og Mrs. Matthías
Brandson, hlaut hann nafni^
Milton Craig. — öllum var
veitt kaffi af mikilli rausn.
Frónsfundur — Kynningarkvöld
í Sambandskirkjunni mánud. 24. seplember. kl. 8.15 s.d.
SKEMMTISKRÁ:
ÁVARP FORSETA Jón Jónsson
EINSÖNGUR Mrs. Barry Day (Lilia Eylands)
FERÐASAGA frá Islandi með litmyndum
—Björn Sigurbjörnsson
Próf. Haraldur Bessason kynntur — séra V. J. Eylands
ÁVARP Próf. Haraldur Bessoson
EINSÖNGUR Erlingur Eggertson, L.L.B.
Kaffivcitin«ar fara fram I neðrl sal kirkjunnar
að afstaðinnl skemmtiskrú. AX.LIR VELKOMNIR
Midwest Net & Twine Co.
Sole Dislribuiors of
Moodus Brand “PRESHRUNK” Nylon Netting
Brownell Nylon and Cotton Sidelines
and Seaming Twines
PHONE 93-6896
404 LOGAN AVENUE WINNIPEG 2, MAN-
/