Lögberg - 01.05.1958, Page 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 1. MAÍ 1958
3
Business and Professional Cards
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA 1 VESTURHEIMI
MR. GUÐMAN’X LEVY,
ÍSB Lindsay Street, Winnipeg 9, Manitoba.
Forsetl: DR, RICHARD BKCK
801 Llncoln Drive, Grand Forks, North Dakota.
StyrkiS félagið með þvl að gerast meðlimir.
Árssjald $2.00 — Tímarit féla«alna frítt.
Sendist til fjármálaritara:
Minnist
BETEL
í erfðaskróm yðar
G. r. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn.
og Avalt hrelnir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfyndlng Sparar eldi-
við, heldur hita frá aö rjúka út
með reyknum.—SkrifiB, slmið til
KELLY SVEINSSON
625 Wall St. Wlnnlpe*
Just North of Portage Ave.
SPruce 4-1634 — SPruce 4-1634
S. O. BJERRING
okkar, því að nú hlaut það að
vera ljóst, að það var ekki
öðrum til að dreifa en Stauf-
fenberg, sem komið hefði inn
með sprengjuna. En ég var þó
kyrr, vildi sjá lík Hitlers með
eigin augum.
Ég rótaði saman dálitlum
sandbing, bleitti hann með því
að spýta munnvatni í sandinn,
og smurði honum síðar yfir
andlit mér, fleygði af mér
húfunni og velti mér upp úr
sallanum á gólfinu. í sömu
mund komu nokkrir liðsfor-
ingjar og aðstoðarmenn inn.
— Almáttugur! Foringinn!
hrópaði einn þeirra. Nokkrir
komu hlaupandi til mín, en ég
bandaði þeim frá mér og sagði:
Hjálpið heldur Foringjanum!
Innan frá skálanum heyrði
ég hróp og köll og stunur. Og
þegar mennirnir rifu upp
brakið úr fundarborðinu, er lá
á gólfinu, sá ég mér til mikill-
ar skelfingar, hvar Hitler
hreyfði sig. Hann var sár og
blóðugur, en í fullu fjöri!
Hann reikaði út studdur af
einum hinna mannanna.
Þeir, sem látizt höfðu við
sprenginguna, voru nú bornir
út, og voru þeir gersamlega
óþekkjanlegir. Hitler var feng-
ið sæti í stól, sem einn af liðs-
foringjunum kom hlaupandi
með, og annar tók til við að
þurrka blóðið framan úr hon-
um-
Ég varð að reyna að komast
brott svo fljótt sem auðið
væri, til þess að segja Stauffen
berg frá því að Hitler væri
ekki dauður, — að hann hefði
sloppið lifandi úr sprenging-
unni á einhvern dularfullan
hátt. Síðan fékk ég raunar
sönnur fyrir því í Sviss, að það
hefði verið sannkallað krafta-
verk, að hann skyldi bjargast:
Einn af riturum Hitlers skýrði
amerísku fulltrúunum í Nurn-
berg frá því, að þegar tilræðið
var gert hefði Hitler lotið fram
yfir borðið, einmitt um leið og
sprengingin varð.
Önnur buxnaskálm hans var
tætt sundur, og hann hafði
hlotið mörg sár, einnig frá
bjálka einum, sem fallið hafði
ofan á hann úr loftinu, en
ekkert af sárum hans var lífs-
hættulegt. Fjórir liðsforingj-
ar, sem næstir voru Hitler —
Beger, Korten, Schmundt og
Brandt — fórust og allir aðrir
sem inni voru særðust meira
eða minna.
Ég formælti upphátt, þegar
ég hljóp inn í skóginn til þess
að komast í síma.
Klukkutíma síðar kom
Mussolini. Það fengum við að
vita síðar, þegar Getapo var
farin að leita okkar Haftens.
Nú var það orðið of seint að
stöðva Stauffenberg. Hann
hafði þegar sent út leynimerk-
ið, og um gervalt landið tóku
stuðningsmenn hreyfingarinn-
ar til starfa út frá þeim for-
sendum að Hitler væri dauð-
ur. Aðeins einn maður krafð-
ist öruggrar staðfestingar áð-
ur en hann hefðist nokkuð að,
en það var Erick Fallgebel
hershöfðingi, sem átti að
stöðva allar samgöngur, þar
til við hefðum náð völdunum
í okkar hendur. Þannig sló
hann algerlega vopnin úr
höndum okkar. Um gervalt
Þýzkaland spurðist það nú að
Hitler væri dauður, en allir
álitu að flugvél hefði varpað
sprengju á stöðvar Foringjans.
Það var einungis Keitel, sem
grunaði að það væri samsæris-
hreyfingin, sem þama hefði
verið að verki. Hann fyrir-
skipaði að allir, sem fengið
hefðu fyrirmæli frá Stauffen-
berg skyldu á augabragði
skotnir. Engum fyrirmælum
mátti framar hlýða, nema þau
kæmu frá Himler eða honum
sjálfum.
Ástandið var gersamlega
vonlaust. Herforingjar, sem
lofað höfðu okkur aðstoð sinni,
þegar Hitler væri dauður,
brugðust nú hver af öðrum, og
fylgdu Hitler trúverðuglega.
Þeir snerust nú gegn sam-
særishreyfingunni af öllum
mætti, til þess að vinna sig í
álit hjá Hitler og komast hjá
grimmilegri hefnd hans.
Fromm, foringi Berlínar-
sveitanna, var einn af þeim
fyrstu, er sveik. Hann gaf
fyrirskipanir um að Stauffen-
berg, Olbricht, Haften og
Beck skyldu skotnir þegar í
stað. Hitler krafðist þess, að
allir, sem haft hefðu samband
við samsærismennina skyldu
handteknir, og að allir sem
nokkuð vissu um málið, meira
að segja konur og börn, sam-
særismanna, skyldu líflátin-
Ég kom til Berlínar og fór
huldu höfði. Síðdegis næsta
dag voru rúmlega tvö hundruð
menn og konur handtekin af
Gestapo og allt var þetta fólk
skotið án dóms og laga. Svo
gaf Hitler fyrirskipun um að
stöðva skyldi alla frestun á
aftökum. Menn skyldu að vísu
leiddir fyrir rétt til mála-
mynda, en því næst skotnir
tafarlaust, svo að gervalt
Þýzkaland mætti vita hvernig
færi fyrir þeim, sem leyfðu
sér að sitja um líf Foringjans.
Og nú hélt Hitler sína fyrstu
útvarpsræðu eftir fimm mán-
aða þögn. Hann tjáði hlust-
endum sínum — og ég var
einn af þeim í felustað mín-
um — að það væru tvær á-
stæður til þess að hann tæki
til máls: í fyrsta lagi skyldi
fólkinu gefinn kostur á að
heyra rödd hans, svo að það
sannfærðist um að hann væri
á lífi og í góðu gengi, og í öðru
lagi sagði hann frá banatil-
ræðinu. — Flestir af samsæris
mönnunum eru nú dauðir,
sagði Hitler. — Og þeir sem
enn leika lausum hala munu
brátt verða handteknir og
látnir gjalda lífið fyrir þessa
hvatvísu aðför að Foringjan-
um!
Enginn veit með fullri vissu,
hve margir voru teknir af lífi
vegna banatilræðisins við
Hitler, því að um það eru eng-
ar glöggar heimildir til. En þó
er til listi yfir 4,980 manns,
sem skotnir voru þegar í stað.
Mér er þó persónulega kunn-
ugt um, að þessa tölu má tvö-
falda — því að ofsókn gegn
þeim, sem eitthvað voru tengd
ir samsærishreyfingunni, hélt
áfram um allt Þýzkaland það
sem eftir var stríðsins, og fólk
var líflátið svo að segja dag-
lega.
En aftökurnar fóru ekki all-
ar fram með svo hreinlegum
hætti, að fólk væri skotið,
heldur var það beitt margvís-
legum pintingum. Að því
komst ég eitt sinn, þar sem ég
var í felustað mínum í kola-
kjallara einum og lifði á hörð-
um brauðskorpum og vatni, og
beið þess að reyna að komast
brott frá Þýzkalandi. Ég var
ennþá í þessum kjallara, 7.
ágúst, þegar Roland Freisler
dæmdi Witzleben, Hoeppner,
Hase og sex aðra til hengingar.
Dóminum var fullnægt í ríkis
kanslarahöllinni og hvert
augnablik var kvikmyndað.
Skömmu síðar heppnaðist
mér að læðast brott úr kjall-
aranum að næturlagi með
skammbyssu mína, fimm skot-
hylki og beltishníf. Ég átti
fyrir höndum 650 kílómetra
vegalengd þar til ég gat búizt
við að vera kominn á öruggar
slóðir, þar sem ég gæti fengið
mat. Ég ferðaðist fótgangandi
á næturna, en hélt kyrru fyrir
í felustöðum, þegar bjart var.
Þrem dögum eftir að ég hafði
yfirgefið Berlín, var ég orðinn
svo svangur að ég hugsaði
vart um annað en að fá eitt-
hvað til þess að segðja hungur
mitt.
Morgun nokkurn lá ég í laut
einni, þar sem lítil lækjar-
spræna sytraði fram- Þarna
kom ég auga á frosk. Ég var
svo hungraður að ég gat borið
mér til munns hvað sem var,
og þótti sem froskurinn mundi
verða hið mesta lostæti.
Ég get varla hafa verið full-
komlega með sjálfum mér á
þessari stundu. En ég skreið á
fjórum fótum að frosknum
með hnífinn í hendinni. Svo
borðaði ég froskinn og nagaði
hrá læri hans án þess að finna
til nokkurs viðbjóðs.
Nóttina eftir braust ég inn í
hús eitt í Leipzig. Ég var í
þann veginn að hremma það
matarkyns, sem ég fann, þegar
ég allt í einu heyrði einhvern
umgang. Ég skaust út í horn.
Gegnum rúðu í dyrunum sá
ég nazista-liðsforingja, sem lá
á kjám á gólfinu, fletti upp
teppinu og lyfti upp einu gólf-
borðinu. Undan því tók hann
niðursuðudós, og felldi gólf-
fjölina síðan aftur í samt lag.
Skeftið á byssu minni var
þvalt af svita, og hefði liðs-
foringinn gengið feti nær dyr-
unum, mundi ég hafa skotið
hann. En hann leit ekki einu
sinni í áttina til dyranna. Ég
heyrði kvenrödd inni í stof-
unni ,og liðsforinginn hvarf og
lokaði dyrunum á eftir sér.
Það var orðið albjart þarna
inni, því að tungl var í fyll-
Framhald á bla. 5
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Loulse St. WHitehall 2-B227
KAUPIÐ OG LESIÐ
—LÖGBERG
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPÖRATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh St. Wlnnipefl
WHlteholl 2-4624