Lögberg - 01.05.1958, Síða 6

Lögberg - 01.05.1958, Síða 6
6 GUÐRÍTN FRA LUNDI: DALALÍF „En nú erum við engir krakkar lengur, og ég sé vel hvað sveitungarnir grínast að þessu, hvernig stelpan lætur“, sagði Jakob- „Þú segir henni þetta, pabbi, að við viljum ekki hafa hana með okkur“. „Nei, en ég skal tala við hana „Nei, það segi ég henni ekki. En ég skal tala við hana“, sagði hreppstjórinn og fór fram. Anna andvarpaði. Það hafði þá verið satt og rétt, sem hann sagði við hana um Dísu. Hún hefði ekki átt að rjúka upp yfir því að það væri fjarstæða. Dísa leit vonaraugum til fóstra síns, þegar hann kom fram. „Það er engin þörf á því, að þú komir með okkur suður, Dísa mín“, sagði hann. „Við erum nógu mörg. Það yrði svo dýrt fyrir þig. Ef þig langar til að sjá Reykjavík, skaltu fá þér vist fyrir sunnan. Þá borga húsbændur þínir ferðalagið að hálfu leyti. Þú verður hérna til sumarmálanna, þá verður Borghildur vonandi orðin svo hress, að hún getur tekið við elda- mennskunni“. „Það er nú bara svona, að ég treysti engum nema sjálfri mér til þess að hugsa um mömmu. Ég þekki hana svo vel og veit, hvernig á að búa við hana“, sagði Dísa og tók á öllu sínu þreki til að halda inni tárunum frammi fyrir hinum stórlynda fóstur- föður sínum. „Þetta er helzt til mikið sjálfstraust, því að engin manneskja er óheppilegri til þess að um- gangast hana en einmitt þú. Líklega hefði hún aldrei í rúmið farið í þetta skipti, hefðirðu ekki talið hana á að fara að ganga með þér út í dal. Þar að auki ertu með sífellt þvaður og söguburð í hana, sem engin manneskja önnur en þú gæti látið sér detta í hug að segja veiklaðri manneskju". Svo fór hann inn aftur. Allt gat þetta fólk látið út úr sér, að kenna henni um það, sem var honum sjálfum mest og bezt að kenna, hugsaði Dísa í vanmáttugri reiði. Hún gat ekki þolað þetta lengur- Hún skipti um föt og fór yfir að Hóli. Það var eini bærinn í ná- grenninu, sem hún gat komið á. Það var komið langt fram á háttatímann, þegar hún kom aftur heim. Bærinn var þá ólokaður og Borghildur sat ennþá frammi í eldhúsinu. Dísa yrti ekki á hana. Gremjan sauð í henni ennþá. „Lokaðirðu ekki bænum?“ spurði Borghildur. „Nei, það gerði ég ekki. Mér stendur alveg á sama, hvort draugarnir ráðast á ykkur í nótt eða láta ykkur í friði“, sagði Dísa vonzkulega. Borghildur brosti þreytulega. „Bara að þeir ráðist þá ekki fyrst á þig fyrst þú ert svona nálægt dyrunum“. „Það yrði þó líklega ekki mikil hryggðin hérna á heimilinu, þó að ég hyrfi“, sagði Dísa með kjökur- hljóði. Borghildur staulaðist fram til að loka bænum og lét sem hún heyrði ekki til hennar. Dísa að- gætti eldhúsið og varð að viðurkenna, sér til mik- illar gremju, að það var gengið um allt þar eins vel eða jafnvel betur en hún hefði gert það. Elda- vélin var glansandi og heit,' kaffikannan stóð á henni. Það var svöl frostgola úti og henni var hálfkalt. Borghildur bauð henni kaffi, þegar hún kom inn aftur. Dísa fékk sér kaffi og hresstist talsvert. „Hver mjólkaði kýrnar“, gat hún ekki stillt sig um að spyrja. „Það kom gestur, sem var ekki lengi að hugsa sig um að fara í fjósið, þegar hún heyrði að þess var þörf“. „Er kannske næturgestur?“ „Nei, það var bara hún Þóra mín í Hvammi“- „Það er þá nýtt að hún rápi hingað“, hnussaði í Dísu. „Hún kemur aldrei of oft, blessunin". „Þeir eiga gott, sem gæðanna njóta hjá ykkur“, sagði Dísa gremjulega. „Þú hefur áreiðanlega notið þeirra, Dísa mín. Og ef þau eru farin að minnka, er það sjélfsagt LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 1. MAÍ 1958 þér sjálfri að kenna að mestu leyti“, sagði Borg- hildur. „Hafðu mín ráð og farðu til Ameríku í vor. Það eru margar stúlkur, sem hafa farið þangað, orðnar ríkisfrúr, sem aldrei höfðu haft af öðru að segja hér heima en fátækt og basli“. „Ég get fengið góða vist hérna fyrir. norðan á ágætisheimili í næstu sveit“. „Vertu þá skynsöm og taktu hana“. „Ég er nú bara svona trygglynd, að ég ætla mér að verða hérna og hugsa um heimilið á meðan mamma er í burtu“, sagði Dísa. „Þess gerist engin þörf. Ég er orðin svo hress, að ég get farið að hugsa um það eins og ég er vön“. En Dísu varð ekki þokað. Hún varð enn fýldari á svipinn og önugri í skapi, tilbúin að jagast og snúa út úr fyrir hverjum, sem á hana yrti. Borg- hildur lá oft andvaka og velti fyrir sér óþægileg- um spurningum, sem seint fengust svör við. Hvers vegna höfðu forlögin látið Ketelríði koma inn á þetta heimili með krakkann? Hvers vegna hafði hún þurft að fá rænu síðasta sólarhringinn, ein- ungis til þess að biðja hana og Önnu fyrir Dísu? Hún var fyrir löngu búin að sjá, hversu erfitt yrði að uppfylla þá ósk. Og hvern endi fengi vera hennar hér? Átti hún að vera hér sífellt nöldrandi og jagandi alla tíð? Það var mjög óskemmtileg tilhugsun. Hún var sífellt að ámálga það við Dísu, að hún réði sig fyrir norðan, en hún hefði eins vel getað beðið bæjarhúsin að færa sig úr stað. SUÐURFERÐIN Loksins kom svo dagurinn, sem mest hafði verið kviðið fyrir af flestum á heimilinu, dagurinn, sem Anna var flutt burtu. Veðrið spáði góðu. Heiðskírt og logn- Anna var orðin það hress, að hún gat setið í stoppuðum stól á sleðanum, vafin í sængur og teppi. Þóra hafði komið fram eftir og hjálpað til að koma henni af stað og ætlaði að verða henni samferða ofan eftir. Þórður sat fremst á sleðanum og stjórnaði hestinum. Feðgarnir fóru á hestum og voru horfnir, áður en kveðjurnar voru afstaðnar heima á hlaðinu. Nágrannakonurnar frá Hálsi og Ásólfsstöðum höfðu komið um morguninn til að kveðja önnu. Elín var með móður sinni. Allt hafði þetta svo slæm áhrif á Dísu, að hún faldi sig út í fjósi og gat þess vegna ekki kvatt fóstru sína, enda hafði hún sjaldan getað litið inn til hennar síðustu dagna. Allt heimilisfólkið stóð úti og horfði á eftir sleðanum. Helga hélt stórum vasaklút, gegnvættum af tárum, fyrir andlitinu. Hinar héldu inni tárunum, en voru duaflegar á svip. „Guð má vita, hvort við sjáum hana lifandi aftur“, kjökraði Helga. Borghildur reyndi að bera sig mannalega. „Hún er nú ólíkt hressari en hún hefur verið í margar vikur, og sjóferðin tekur ekki nema svo sem þrjá daga. Ég vona, að þetta endi vel“, sagði hún. Konurnar kvöddu með kossum og kærleikum og fóru. Hitt fólkið týndist líka í burtu. Borg- hildur fór seinast inn af hlaðinu, þegar sleðinn hvarf undir bæinn á Hjalla. Hún strauk svuntunni yfir andlitið um leið og hún fór inn í bæjardyrnar. Hvenær skyldu þau koma aftur, og hvernig skyldi þá aumingja Anna líta út? Sigþrúður á Hjalla kom ofan fyrir bæjarhólinn til að kveðja. En konan á bænum á móti stóð svo innarlega í bæjardyrunum, að hún sást ekki utan frá. Hún öfundaði nágrannakonu sína af því að geta gengið svona hiklaust í veg fyrir sleðann og kvatt þessa vinmörgu og góðu konu- Hún varð að láta sér nægja að kveðja hana í huganum. Hennar hlutskipti var að felast í myrkrinu, þar sem fáir sægju hana. Það mátti ekki seinna vera að lagt væri upp. Vorsólin var farin að vinna talsvert á vetrar- gaddinum. Eftir nokkra daga myndi illfært með sleða eftir dalnum. Eftir þrjár vikur var Anna Friðriksdóttir orðin svo heilsugóð, að hún gekk um götur höfuðstaðar- ins með syni sínum og manni. Það var tæplega að hún hefði getað trúað því, að Jón gæti sýnt aðra eins sjálfsafneitun og hann hafði gert. Allan þennan tíma hafði hann ekki drukkið sig fullan og ekki einu sinni orðið kenndur. Það var einmitt þetta, sem hún hafði óttazt, að hann gæti ekki stillt sig um. En svona var hann inndæll að öllu leyti. Þessi tími hafði verið óvenju viðburðaríkur fyrir dalakonuna, sem aldrei fyrr hafði yfirgefið heimilið sitt, nema þegar hún fór óheillaförina til Stapavíkur forðum. Hún átti bágt með að sofa fyrstu næturnar. Henni brá við kyrrðina heiman að. Meðan hún treysti sér ekki út, sat hún við gluggann og horfði á umferðina. Skyldi hún geta fellt sig við að eiga hér heima? Hólmfríður hafði farið norður eftir hálfan mánuð og gat flutt þá gleðifregn með sér heim í dalinn sinn, að Anna væri á hröðum bata vegi. „Jakob minn, heldurðu að þú kynnir við þig hérna?“ spurði Anna einn daginn, þegar þau voru úti. „Það gæti verið“, sagði Jakob áhugalítið, „en mig er samt farið að langa heim í dalinn“. „Mig líka“, sagði hún brosandi. „En þig, góði minn? Er þig ekki farið að langa heim fyrir löngu?“ bætti hún við og sneri máli sínu til manns síns. „Jú, fyrir langa löngu“, svaraði hann. „Nú fer að gróa heima og gaman að koma á hestbak“. „Ég er líka að verða svo hress, að ég get farið að leggja af stað heimleiðis". „Þið Jakob gætuð orðið hér eftir og komið seinna. Þú unir þér hér sæmilega. En vorannirnar kalla á mig heim í blessaðan dalinn okkar“. „Nei, ég get ekki hugsað til þess að verða eftir. Mundu það, að við ætlum að leiðast, það sem eftir er samfylgdarinnar. Ég vil sjá dalinn okkar aftur á sama augnablikinu og þú og Jakob. Við komum þrjú aftur eins og við fórum“. „Jæja, vina mín. Ef þér finnst þú vera orðin svo hress, að þú getir orðið samferða, væri það æskilegt", sagði hann brosandi. En með sjálfum sér óskaði hann, að hún hefði heldur viljað verða eftir. Hann var orðinn dauðleiður á þessu lífi, göturölti og búðarhangsi, og hefði helzt kosið að fara strax heim, einn og frjáls. Fara á ærlegt fyllirí og njóta lífsins þvingunarlaust. Hinum megin götunnar kom gamall maður, illa klæddur, fram úr húsasundi og virti fyrir sér þessa glæsilegu fjölskyldu, sem hafði numið staðar við skrautlegan sýningarglugga. „Það er þó líklega ekki sem mér sýnist“, tauaði hann við sjálfan sig, „og svei mér þá, ef þarna er ekki kominn hann Jón kunningi minn frá Nauta- flötum. Ójá, ofurlítið hefur þó tíminn getað máð burtu oflátungssvipinn af snjáldrinu á honum. Ekki vantar, að uppdrátturinn sé ekki nógu glæst- ur. Sei, sei, seint verða okkar reikningar jafnaðir. Ójá, þetta er nú konuskepnan. Ekki ósköp þrælk- unarleg, sýnist manni. Andlitið er eins og því hefði verið stungið niður í mjólkurtunnu- Hún ætti víst betur heima í Reykjavík, frekar en fram í dals- botni norður í landi. Ellegar hárið. Það hefur ekki verið reitt af sér. Líklega sjaldan svo flókið og nægur tími til að greiða það nógu oft. Þvílík frú. Þetta er víst sonurinn, einbirnið. Alveg eins og maður sjái sundurskotinn hausinn á honum Frið- riki kaupmanni. Hvað svo sem skyldi það vera að gera hér í Reykjavík, þetta pakk? Náttúrlega að leika sér, því að nógir eru peningarnir. Ég gæti nú reyndar ímyndað mér að það kynni anzi lítið að haga sér innan um höfðingjana hérna, þó að það sé nógu fínt. En ekki er Þórdís mín sjáanleg með þeim, þó að bræður hennar hafi sagt mér, að hún væri eins og dóttirin á heimilinu. Það er líklega ekki aldeilis svo. Sjálfsagt góð til að þræla kaup- laust undir því yfirskyni, að hún sé fósturdóttirin en ekki vinnukona. Það veit hvernig það á að hafa það, dótið að tarna. Hvað skyldi hún nú vera orðin gömul? Það er ekki svo merkilegt minnið mitt, að ég muni hvað langt er síðan ég flæmdist burtu úr dalnum. Líklega ein fjórtán eða fimmtán ár, kannske lengra. Þau eru löng útlegðarárin. Alltaf langar mig heim í dalinn aftur, þó að ég hafi þar nú að heldur litlu að hverfa. En kannske myndu gömlu nágrannarnir mínir ekki telja eftir sér að gefa mér að éta í nokkra daga. Það getur skeð að hún þyrfti þess litla tátan mín, að ég liti eftir högum hennar, þó að seint sé. Það hefur sjálfsagt verið gott við hana, meðan hún var barn, því að heimilið var orðlagt fyrir barngæði. En nú er ekkert líklegra en það mylji hana undir sig með stórbokkaskapnum- Ég ætti að þekkja það frá fornu fari“.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.