Lögberg - 22.01.1959, Side 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 22. JANÚAR 1959
5
wvwwwwvwwvwwvwww
ÁHLGAMÁL
rVENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Listin að
Talið er að spil muni fyrst
hafa flutzt til landsins á 17.
öld, og líklegt er að þeim hafi
þá þegar fylgt sú trú, að með
aðstoð þeirra mætti skyggnast
inn í framtíðina. En til þess
voru hafðar ýmsar aðferðir,
og flestar af erlendum toga
spunnar. Það var kallað að
„spá í spil,“ og mun sú list
ekki vera aldrauða enn hér á
landi.
Stundum voru hrökin tekin
úr spilunum, þau síðan stokk-
uð 9 sinnum, og því næst lögð
á borð. Fór þá spáin eftir því
í hvaða röð spilin komu. —
Svörtu spilin boðuðu yfirleitt
leiðindi, eða eitthvað illt, en
rauðu spilin boðuðu gott fyrir
þann, sem verið var að spá
fyrir. Hvert spil hafði sína
merkingu í sambandi við
næstu spil að framan og aftan
í röðinni. Kóngarnir táknuðu
t. d. karlmenn, drottningarn-
ar konur, gosarnir unga pilta,
en sjöur hugi kvenna. Auk
þess táknuðu vissir litir menn,
sem líta út á sérstakan hátt.
„Þeir sem eru rauðlitaðir á
hár, þykkleitir og rjóðir, eru
hjarta. Þeir sem eru lítilleitir
og ljósleitir á hár, eru tígull.
Þeir sem eru þykkleitir og
dökkir á hár, eru spaði. En
laufið táknar lítilleita menn
og hvítleita, hvernig sem
hárliturinn er.“
Einfaldasta aðferðin til að
spá í spil, er sú, að hvert spil
hafi sína merkingu, eins og
þessi skrá sýnir:
Ás: H. hús, T. bréf, L. stórgjöf,
S. dánarfregn.
Tvistur: H. gifting, T. á-
nægjuefni, L. leyndarmál,
S. eitthvað mistekst.
Þristur: H. friðsemi, T. nýr
vinur, L. ósk manns rætist,
S. öruðleikar, en þó ekki
miklir.
Fjarki: H. geðfelldur atburð-
ur, T. ábatasöm verzlun, L.
fréttir, S. að maður verði
fyrir þjófnaði.
Fimm: H. óvænt fregn, T.
peningar eru í vændum, L.
ferð, en ekki löng, S. vesöld
eða lasleiki.
Sex: H. Mikil gæfa er í vænd-
um, T. hamingjuvon, L.
gott embætti eða góður
hagur, S. slæm tíðindi.
Sjö: H. veizla, T. von er á
einhverju þægilegu, L. illa
er talað um mann, S. fals og
flærð er í vændum.
Álta: H. innileg vinátta. T.
fyrirætlanir eða fyrirtæki
gefst vel. L. maður verður
fyrir álygum, S. hryggð.
Nía: H. heit ást, T. gjöf, en
ekki stór, L. langferð, S.
öfund.
spó í spil
Tía: H. trúr unnusti eða unn-
usta, T. miklir peningar, L.
sorglegur atburður, S. sótt
eða mikil veikindi.
Gosi: H. ungur og laglegur
maður leitar ráðahags, T.
gleðileg tíðindi, L. tjón af
undirferli annara, S. vífinn
maður.
Drotining: H. falleg og væn
stúlka hefir lagt hug á þig,
T. heldri kona gerir þér
eitthvað til gagns eða gleði,
L. ekkja eða gömul kona,
S. óvönduð kona.
Kóngur: H. einlægur vinur, T.
heldri maður er þér innan
handar, L. heimsókn sem
ekki var búizt við, S. ágjarn
maður.
Eftir þessu getur svo hvert
mannsbarn „spáð í spil,“ og
getur orðið að því mikil
skemmtun. Spámaðurinn, eða
spákonan, tekur heil spil (52)
og stokkar þau vel og vand-
lega. Síðan á sá sem spáð er
fyrir, að draga 5 spil úr stokkn
um. Má svo segja eftir þeim
stuttan eða langan spádóm
eftir vild, og er þá farið eftir
merkingu hvers spils og eins
eftir því í hvaða röð þau voru
dregin. Til þess að skýra það
betur hvernig á að spá, eru
hér tekin tvö dæmi.
Fyrra dæmi: Sá, sem spáð
skal fyrir, dregur þessi spil
og í þessari röð: H9 — heit
ást, — S3 — erfiðleikar, —
TK — heldri maður er þér
innan handar, — L6 — gott
embætti eða góður hagur, —
H2 — gifting. Úr þessu má
svo lesa þennan spádóm: Þú
ert ástfanginn, en horfur eru
ekki góðar um að þú fáir
stúlkuna, vegna þess að þú
þykir óráðinn. En þá kemur
einhver heldri maður þér til
hjálpar, útvegar þér gott em-
bætti eða góða atvinnu. Þá er
ekkert til fyrirstöðu lengur og
þið giftið ykkur.
Seinna dæmið: Þar hafa
þessi spil verið dregin: T3 —
nýr vinur, — SD — óvönduð
kona, — H7 — veizla, — S7
— fals og flærð í vændum, —
LIO — sorglegur atburður. —
Eftir þessu mætti svo spá
eitthvað á þennan hátt: Þú
hefur eignast nýjan vin, að
þú heldur, en það er óvönduð
kona. Þú varar þig ekki á því,
en giftist henni og mikil brúð-
kaupsveizla er haldin. Það er
ekki fyrr en eftir brúðkaupið
að þú reynir hana að falsi og
flærð, og þá skeður sá sorg-
legi atburður, að þið verðið
að skilja.
Það er sýnilegt, að spila-
röðin getur breytzt óendan-
lega. Nýjan spádóm verður
Bréf fró California
CORONA DEL MAR, 3. janúar, 1959
Kæru hjón:
Ég vona að heilladís heil-
brigði og friðar hafi aftur
breiðst yfir þig, Einar; ég
frétti það á skotspónum að
hún hefði fjarlægst þig um
tíma.
Nóg er til að skrifa um, því
margt gjörist á þessari strand-
lengju, en flest af því er mér
þó ofvaxið.
Einn morgun, er ég leit út,
sýndist mér snjór vera að
falla. Þetta varð ég að sjá
betur, svo ég flýtti mér út,
því að snjór fellur hér sjald-
an, og jaínvel vafasamt hvort
það hefur skeð hér. Þegar út
kom varð ég fyrir vonbrigð-
um, því að þetta reyndist þá
vera öskufall, og þegar ég leit
til suðausturs sá ég móleita
öskuþrungna bólstra rísa upp
af eldi, sem var í giljum og
drögum fjalla, og áður en
hann var stöðvaður, hafði
hann runnið yfir 6000 ekrur.
Þessir brunar eru alltíðir hér
nú, því landið er skraufþurrt,
því enn ríkir hér sól og sum-
ar, þó vetur eigi að heita. —
Eignatjón hefur orðið tals-
vert, og á eftir að verða
meira, ef regnfall verður að
mun, því þá myndast flóð-
hætta mikil.
Jólin reyndust hér björt og
gleðirík, en erfitt á ég með að
venjast snjólausum jólum. —
A nýársdag var hér mikið
blómaskrúð sýnt í ýmsum
myndum, en fáum af fjöldan-
um tekst að sjá það, nema
helzt fuglinum fljúgandi. —
Skugga sló þó á þessa hátíða-
gleði, þar sem slys á brautum
hér urðu talsvert fleiri en
undanfarin ár, en mest er hér
Bakkusi kennt um.
Ekki alls fyrir löngu lenti
ég í leik með börnum ásamt
fleirum, og leiksalurinn er að
líkindum sá stærsti og ein-
kennilegasti sem fyrir finnst.
Nafn hans er “Disneyland,”
en við vorum óheppin þann
dag, því að þar voru saman
komnir um 7 þúsund manns
og því erfitt að komast að því,
sem mann langaði helzt til að
leika sér við.
Mér fannst þessi leikvöllur
því að semja í hvert skipti,
og er þá mikið undir því
komið að spámaðurinn eða
spákonan sé slyng að geta í
eyðurnar og draga saman
merkingu spilanna þannig, að
úr þeim fáist samfelldur spá-
dómur. Reynir hér bæði á
hugmyndaflug og gáfur, og
geta spádómarnir orðið bæði
mikið lengri og ýtarlegri en
hér hefir verið sýnt. Sá sem
spáir verður fyrst og fremst
að gæta þess að tapa ekki
virðingu sinni og áliti með lé-
legum eða heimskulegum spá-
dómum.
Og nú getur hver sem er
reynt, hvort hann hefir spá-
dómsgáfuna.
—Lesb. Mbl.
sérstaklega vel gjörður fyrir
börn og unglinga og mjög
lærdómsríkur fyrir þau, því
að þar' er undraverð fjöl-
breytni. Einnig var þar margt
sem eldri menn gátu skemmt
sér við. Það hefur þegar kost-
að milljónir að byggja þennan
völl, og ekki búið enn. Til
að lýsa honum nákvæmlega
tekur betri mann en mig, því
þar er efni í stóra bók. En þó
fannst mér að auglýsinga-
blæja sú, sem yfir honum
hvíldi, mikið fegurri en völl-
urinn virtist í fljótu bragði
séð. En þó er hann undraverð-
ur á margan hátt. — Ég steig
þar upp í kassa sem rann á
teinum, en ekki var langt far-
ið, áður en ég lenti í þeim
mestu draugagöngum og rang
hölum, sem ég hef farið um,
og þar komu á móti manni úr
hverju skúmakoti nornir og
allskonar ófreskjur með þeim
afleiðingum að hjartað fór að
síga of langt niður á við. —
Myrkfælinn maður er ég ekki,
en þegar beinagrindur fóru að
dansa íkringum mig, þá þótti
mér vera farið að grána gam-
anið, en á endanum slapp ég
þó heill úr þessari prísund. —
En síðar steig ég á bát og stórt
spjaldaskip fyrri tíma og
sigldi með þeim eftir ám og
álum um hið vilta land jarð-
arinnar, og þar bar margt ein-
kennilegt fyrir augu: Indiánar
og þeirra bústaðir og dýr frá
ýmsum löndum, og sum af
þeim nógu grimmdarleg til
að skjóta manni skelk í
bringu. En það undarlega við
flestar þær skepnur sem mað-
Framhald á bls. 8
Halldór Árnason frá Höfnum
Fæddur 28. júní 1865 — Dáinn 5. janúar 1959.
Fyrir skömmu lézt hér í j héraði hafa skrifað svo fagra
borginni Halldór Arnason
(Anderson) frá Höfnum á
Skaga í Húnavatnssýslu kom-
inn á tíræðisaldur (93 ára),
faðir Sigfúsar Halldórs, sem
hér var um tíma ritstjóri
Heimskringlu. Árni Sigurðs-
son, bóndi í Höfnum, atorku-
maður mikill og ef til vill
efnaðasti bóndi sýslunnar a að öðru um dagana Árið 190?
því tímabili, sendi Halldór á
latínuskólann, sem þá var
aðalmenntastofnun landsins.
Ekki er mér kunnugt hvort
Halldór lauk þar námi,
hann lét þar staðar numið, og
vann eftir það að ýmsum
störfum í sýslu sinni, um
tíma hjá Andrési Árnasyni
verzlunarstjóra á Skagaströnd
hinum ágætasta manni, sem
því miður varð skammlífur,
en lengst af sem sýsluskrifari
tveggja sýslumanna Lárusar
Blöndals og Gísla ísleifssonar,
mun þá enginn hafa verið
kunnari ættum og högum
Húnvetninga en Halldór frá
Höfnum. Rithönd Halldórs
var sýslufræg og líklega víðar
og mun enginn annar í því
hönd.
Rétt eftir aldamótin flutti
Halldór til þessa lands, og
settist að í Winnipeg og bjó
hér æ síðan, og þótt hann
hefði nær eingöngu unnið við
setustörf á íslandi, gekk hann
hér að algengri vinnu eins og
hann hefði aldrei lagt hönd
giftist hann seinni konu sinni
Pálínu Sigurðardóttur frá
Öxl í Húnaþingi, hinni mestu
ágætiskonu, og var hún hon-
en um hin mesta stoð og stytta
til æfiloka. Hún lifir mann
sinn háöldruð.
Halldór Árnason var prúð-
ur maður, heldur meira en
meðalmaður á hæð, beinn og
riðvaxinn og hinn bezti dreng-
ur, hæglátur og fáskiptinn um
annara hagi, vinfastur og
langminnugur; hann bar jafn-
an að hverju sem hann gekk
hið þóttalausa yfirbragð
virðuleikans, sem löngum
fylgir þeim er fengið hafa
gott uppeldi og menntun.
Páll Guðmundsson
Rring
FLUGGJÖLD TIL
LÆGSTU
ÍSLANDS
• Fyrsta flokks fyrlr-
grciðsla meS tveim
ð k e y p i s máltíSum,
koníaki og náttverSi.
IL A flýgur stytztu
áfanga yfir úthafi —
aldrei nema 400 mílur
frá flugvelli.
IAL (ICELANDIC AIRLINES LOFT-
LEIÐIR) bjóSa lægri fargjöld til
Evrópu en nokkurt annaS áætlunar-
flugfélag í sumar, og á öSrum árs-
tímum. LÆGRI en “tourist” eSa
“economy” farrýmin — aS ógleymdum
kostakjörum „fjölskyldufargjaldanna."
Fastar áætlunarferSir frá New York til
Reykjavikur, Stóra-Bretlands. Noregs,
Svíþjóðar, Danmerkur og Þýzkalands.
Vpplýsingar í ölluin ferðaskrlfstofum
ICEiA
fffCS
15 West 47th Street, New York 36 PL 7-858J
New York • Chicago • San Francisco