Landneminn - 01.01.1892, Blaðsíða 4

Landneminn - 01.01.1892, Blaðsíða 4
4 LANDNEMINN íslensku bænda sjálfra, svo að engin ástæða verði að vefengja þær alment, því síður sem skýrslur þessar berast jafnframt frumhöfundunum í hendur sem þær breiðast út á íslandi, og ætti það því að verða upp- víst, ef rangt væri frá skýrt. Þessar hagskýrslur, sem varla verða minni enn 12 arkir að stærð, verða sendar ókeypis út um alt land ásamt „Landnemanum11. Leiðbeiningar fyrir vesturfara. Öllum sem hafa í áformi að flytja til Ameriku, ráðum vjer til að lesa gaumgæfilega hinar ýtarlegu leiðbeiningar, sem herra Sifffús Eymundsson hefir skrifað í 2—3 tölublaði Landnemans 1891. í>ar er að fá allar upplýsingar sem ])örf er á um fargjald, fæði og alla meðferð á vesturförum á sjóleiðinni og um landleiðina pegar vestur er komið; sömuleiðis um það, hvernig vesturfarar eiga að fara með farangur sinn og enn fremur um skilyrði þau, er stjórnin setur viðvíkjandi vesturförum. Kostahoð þau, sem innflyfjendum í Kanada eru nú hoðin og ekki hafa fyrri verið gerð, eru auglýst í 1. tölubl. Landnemans 1891. Að því -er snertir vesturfarir á þessu ári, má að öðru leyti vísa á auglýsingu frá herra Sigfúsi Eymundssyni í íslenzku blöðunum. AUGLÝSINGAR. LANDTÖKU-LÖGIN. Allar sectionir með jafnri tölu, nema 8 og 26, getur hver familíu-faðir, eða hver sem kominn er yfir 18 ár, tekið upp sem heimilisrjettarland og forkaupsrjettarland. INNRITUN. Pyrir landinu mega menn skrifa sig á þeirri landstofu, er næst liggur landinu, sem tekið er. Svo getur og sá er nema vill land, gefið öðrum umboð til þess að innrita sig. en til þess verð- ur hann fyrst að fá leyfi annaðtveggja innanríkisstjórans i Ot- tawa eða Dominion Land-umhoðsmannsins í Winnipeg. 10 doll. þarf að horga íyrir eignarrjett á landi, en sje það tekið áður, þarf að borga 10 doll. meira. SKTLUURNÁR. Samkvæmt núgildandi heimilisrjettarlögum geta menn uppfyllt skyldurnar með þrennu móti: 1. Með 3 ára ábúð og yrking landsins; má þá landnemi aldrei vera lengur frá landinu, en 6 mánuði á hverju ári. 2. Með þvi að búa stöðugt i 2 ár innan 2 mílna frá landinu er numið var, og að búið sje sæmilega á landinu í sæmilegu Msi um 2 mánuði stöðugt, eptir að 2 ár eru liðin og áður en beðið er um eignarrjett. Svo verður og landnemi að plægja: á fyrsta ári 10 ekrur, og á öðru 15 og á þriðja 15 ekrur, enn fremur að á öðru ári sje sáð í 10 ekrur og á þriðja ári i 25 ekrur. 3. Með þvi að búa hvar sem vill fyrstu 2 árin, en að plægja á landinu fyrsta árið 5 og annað árið 10 ekrur og þá að sá i þær fyrstu 5 ekrurnar, ennfremur að byggja þá sæmilegt íbúðar- hús. Eptir að 2 ár eru þannig Iiðin verður landnemi að byrja búskap á landinu, ella fyrirgerir hann rjetti sínum. Og frá þeim tíma verður hann að búa á landinu í það minnsta 6 mánuði á hverju ári um 3 ára tírna. UM EIÍxNARBRJEF geta menn beðið hvern land-agent sem er, og hvern þann um- boðsmann, sem sendur er til að skoða umbætur á heimilisrjettar- landi. En sex mánuðum áður en landnemi biður um eignarrjett verður hann að kunngera það Dominion Land-umboðsmanninum. LEIÐBEININGA UMBOÐ ■eru i Winnipeg, að Moosomin og Qu’Appelle vagnstöðvum. Á öllum þessum stöðum fá innflytjendur áreiðanlega leiðbeining í hverju sem er og alla aðstoð og hjálp ókeypis. SEINNI HEIMILISRJETT getur hver sá fengið, er hefur fengið eignarrjett fyrir landi sínu eða skírteini frá umboðsmanninum um að hann hafi átt að fá hann fyrir júnímánaðarbyrjun 1887. Um auglýsingar áhrærandi land stjórnarinnar, liggjandi milli austurlandamæra Manitoba fylkis að austan og Klettafjalla að austan, skyldu menn snúa sjer til A. M. Burgess. Deputy minister of the Interior. Dominion of Canada. Abýlisjarðir ókeypis fyrir miljónir manna. 200,000,000, ekra af hveiti- og beitilandi í Manitoba og Yestur- Territóríunum í Canada ókeypis fyrir landnema. Djúpur og frábærlega frjósam- ur jarðvegur, nægð af vatni og skógi og meginhlutinn nálægt járnbrautum. Afrakstur hveitis af ekrunni 30 bush., ef vel er umbúið. í HINU FRJÓSAMA BELTI, í Kauðár-dalnum, Saskatchewan-dalnum, Pease Kiver-dalnum, og umhverfisliggjandi sljettlendi, eru feikna miklir flákar af ágæt- asta akurlendi, engi og beitilandi—hinn víðáttumesti fláki í heimi af lítt byggðu landi. M:álm-náma landL. Gull, silfur, járn, kopar, salt, steinolía, o. s. frv. Ómældir flákar af kolanámalandi; eldiviður því tryggður um allan aldur. JÁRNBRAUT FRÁ HAFI TIL HAFS. Canada Kyrrahafs-járnbrautin í sambandi við Grand Trunk og Inter-Colonial brautirnar mynda óslitna járnbraut frá öllum hafnstöðum við Atlanzhaf í Canada til Kyrrahafs. Sú braut liggur um miðhlut frjósama beltisins eptir því endilöngu og um hina hrikalegu, tignarlegu fjallaklasa, norður og vestur afEfra- vatni og um hin nafnfrægu Iilettafjöll Vesturheims. Heil nænit loptslag. Loptslagið í Manitoba og Norðvesturlandinu er viðurkennt hið heilnæmasta í Ameríku. Hreinviðri og þurrviðri vetur og sum- ar; vetur kaldur, en bjartur og staðviðrasamur. Aldrei þoka og súld, og aldrei fellibyljir eins og sunnar í landinu. SAMBANDSSTJÓRNIN í CANADA gefur hverjum karlmanui yfir 18 ára gömlum og hverjum kvenn- manni sem hefur fyrir familiu að sjá 160 e k r u r a f 1 a n di alveg ókeypis. Hinir einu skilmálar eru, að landnemi búi á land- inu og yrki það. Á þann hátt gefst hverjum manni kostur á að verða eigandi sinnar ábýlisjarðar og sjálfstæður í efnalegu tilliti. ÍSLENZKAR NÝLENDUR í Manitoba og canadiska Norðvesturlandinu eru nú þegar stofn- aðar í 6 stöðum. Þeirra stærst er NÝJA ISLAND liggjandi 45—80 mílur norður frá Winnipeg, á vesturströnd Winnipeg- vatns. Vestur frá Nýja íslandi, i 30—35 mílna fjarlægð, er ÁLPTAVATNS-NÝLENDAN. í báðum þessum nýlendum er mikið af ónumdu landi, og báðar þessar nýlendur liggja nær höfuðstað fylkisins en nokkur liinna. ARGVLE-NÝLENDAN er 110 mílur suðvestur frá Wpg., ÞINGVALLA-NÝLENDAN 260 mílur í norðvestur frá Wpg., QU’APPELLE-NÝLENDAN um 20 mílur suður frá Þiugvalla-nýlendu, og ALBERTA-NÝ- LENDAN imi 70 mxiur norður frá Calgary, en um 900 mílur vestur frá Winnipeg. í síðasttöldu 3 nýlendunum er mikið af óbyggðu, ágætu akur-og beitilandi. Prekari upplýsingar í þessu efni getur hver sem vill fengið með því að skrifa um það: ZB. Xj. BaldLwinson, Icelandlc Agent. DOM. GOV’T IMMIGRATION OFFICE. Winnipes, - - - CanadLa. Ábyrgðarmaður gagnvart prentfrelsislögunum: Vald. Asmundarson. F j elagsprentsmiöj an

x

Landneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landneminn
https://timarit.is/publication/138

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.