Reykvíkingur - 14.09.1891, Side 2
34
þó þeir af kurteisi ekki láti á því bera,
og eru þeir nú farnir að koma annarstað-
ar að landinu og ferðast þaðan, og má það
kenna bæarbúum sjálfum, sem skaða bæ-
inn og mannorð landsbúa með þessari ok-
urs- og ómannúðar aðferð sinni.
Þá er nú eptir að minnast á embætt-
lingaíiokkinn í bænum, hvernig bonum hef-
ur vegnað þettað sumar. Það er nú eins
og vant er fyrir þeim, að það gildir einu
hvort vel árar eða illa, það er alltaf jafn-
gott fiskiri í landssjóðnum, og þegar tíðin
er þá blíð ofan á það, og sólskin á hverj-
um degi, þá hefur maður þó þá ánægju,
að sjá þá optar undir berum himni, og
gleðjast í andstreyminu yfir að eiga þó
aðra eins dýrðlinga, feita og fráa, flesta
gullskreytta aptan og framan, og þá ekki
síst um hið hágáfaða höfuð. — Það má
því fullyrða að þeim líður ágætlega eptir
þettað sumar, og ber það vott um góða
meðferð bæarbúa á skepnum, að þessir ali-
fuglar eru svo vel til fara, enda hafa all-
margir þeirra fengið allgóða aukatuggu
við að sitja á alþingi í sumar.
En sjaldan launar lcálfur ofeldi, er sann -
ur málsháttur, og megum vér vei af því
segja, því lítið liggur epfcir þessa menn,
og lítið ber á afreksverkum þeirra. Sú
eina rögg sem þeir sýna af sór, svo á
beri, er sú, að þeir láta þjóna sína ganga
sem grenjandi ljón að krefja fólk, og það
helst fátæklinga; en til sveitarþarfa gjaida
þeir að sönnu drjúgum, en þó engan veg-
inn of mikið í samanburði við aðra. Að
hlutfalli við fólksfjölda og efni, mun eng-
inn bær i heimi vera eins ríkur af embætt-
ismönnum og eptirlaunafólki eins og Evík,
en sá auður verkar því miður apturábak.
Til þess að iteykjavík væri sómi lands-
ins og gott eptirdæmi, er því afarmargt
sem þarf að laga, og er óskandi og von-
andi, að næsta sumar verði betur hagnýtt
bænum til viðreisnar og sóma, en gjört
hefur verið þettað sumar; en til þess þarf
betur valin bæarstjórn, annars verður ekki
um það að tala.
Próf í hljóðfærasiætti. Fyrir skömmu
var óg, ásamt nokkrum bæarbúum áheyr-
andi, þar sem frú Anna Pótursson hólt
próf yfir nokkrum unglingum, stúlkum
og drengjum um 20 að tölu, sem notið
höfðu tilsagnar hennar í að leika á „forte-
piano“ hin siðari árin.
Unglingar þessir reyndust að leika sér-
lega vel, eptir aldri hvers um sig að
dæma. Eðlilega eru hæfileikar ungling-
anna mjög misjafnir, en sumir þeirra fóru
svo vel með efni laganna, sem þeir léku
að furðu gegndi, þegar litið er til aldurs
þeirra og þroska. Svo lók og ein frú og
nokkrar eldri námsmeyjar, sem höfðu not-
ið sömu kennslu, og fengið mikla æfingu.
Það sem einkendi þettað próf, var það,
að unglingarnir reyndu kunnáttu sína svo
blátt áfram og óþvingað, eins og þeir
væru heima hjá sór, þótt margir ókunnir
væru viðstaddir, sem eðlilega stafar af því
stillta, einarðlega en þó móðurlega við-
móti, sem unglingarnir eiga að venjast
hjá kennaranum.
Mór þykir vert að geta þessa prófs,
þar sem frú Pó.tursson hefur unnið með
hinni mestu ástundun um mörg ár við
kennsluna, án þess að mann svo að segja
hafi tekið eptir því, þótt árangurinn só
auðsjáanlega mikill.
Bj'órn Kristjánsson.
Júbil-minníng var haldin í samsæti
40—50 kvenna hór í bænum 25. f. m. i
heiðursskyni við fröken Maríu Thomsen
á 25 ára-kennslu-starfa-afmæli hennar, og
við systir hennar fröken Ohristiane Thom-
sen, er sama hefur stundað, en um skemmri
tíma. Yóru í samsætinu eingöngu þær,
sem tilsögn höfðu fengið hjá þeim systr-
um, frá ýmsum tímum, bæði fulltíða frúr
og meyjar og ungar stúlkur. Færðu þær
þeim fagurt kvæði, sem þær sjálfar sungu.
Samþykkt dönsku brunamálastjórnar-
innar um, að styttra megi vera á milli
húsa, ,enn nú er, er sagt að sje komin,
en ekki er kallað hátt með það. Það er
annars aumt að vita, að leyfi tii slíks skuli
þurfa að sækja i hendur Dönum. Það
sýnist fyrir löngu tími til komin, að ábyrgð
fyrir eldsvoða hór í bæ væri innlend, og
hefði strax í byrjun verið svo tilhagað, þó
ekki hefði verið ábyrgð veitt nema fyrir
helming húsverða, þá hefði fljótt safnast
sá sjóður, með því eldsvoða ber sjaldan
að, sem fyrir löngu hefði verið fær um að
taka ábyrgð á húsverðonum í heild. En
allir þeir peningar eru látnir fara úr bæn-
um, og þó menn nú vildu hætta því og
setja ábyrgð á stofn hér, þá fengist ekk-
ert af því aptur, enda er óhægra að byrja
þetta nú, eins og hverjum gefur að skilja.