Reykvíkingur - 01.04.1897, Qupperneq 3

Reykvíkingur - 01.04.1897, Qupperneq 3
hestur á þann hátt dregið margar byrðar sín- ar á góðum vegi, án þess að leggja frani meiri krapta, en þurft hefði til að bera eina birðina. Nú sjer maður einnig, við upp- og útskipun á vörum, notaða litla handvagna með tveimur hjólum, - - í staðinn fyrir að áður var borið á bakinu eða þá á handbör- um Þó maður enn þá, og það í sjálfum höfuðstaðnum, ósjaldan eigi kost á að sja, bæði karla og konur, ganga fyrir vögnum og sleðum, eða með poka á bakinu, þó mun óhætt mega fullyrða, að það leggist niður innan skamms, enda mun það naumast geta átt vel við nítjánu aldar menningu, nokkurr- ar menntaðrar þjóðar. — Hlýt jeg að vænta svo góðs af hinum háttvirtu kaupmönnum bæjarins, að þeir láti ekki ljós tuttugustu aldarinnar, fá skinið á vörupoka sína, á herð- um íslenzkra kvenna, þeir eru nú loksins svo lengi búnir að sýna landsmönnum, þessa miður heppilegu vinnuaðferð, að þeir virðast nú orðið dauðleiðir að horfa á hana, sem betur fer. A síðustu árum liafa líka ýmsar lífshreifingar komið í Ijós, hjá íslenzku kvenn- þjóðinni, einkum hjer í Reykjavík, svo að ætla má, að lnin innan skamms leysi sig úr prísund þeirri, er hún á fyrirfarandi árum hefur verið í hjá kaupmönnum. Ekki má gleyma að geta hinna, mjög svo þýðingamiklu breytingar sem orðið hefir á verzlunarstjett Reykjavíkur á síðustu árum. — Líti maður 20 árum aptur í tímann, má sjá, að af kaupmönnum þeim er reka verzl- un hjer í bænum, eru aðeins j íslenzkir — hitt eru allt útlendingar, er einungis hafa selstöð sína hjer, — en nú eru þeir ekki færri en //. Má 'telja þessa breytingu hina heillavænlegustu, ekki einungis fyrir þetta bæjarfjelag, heldur allt landið yfir höfuð. II. Þar sem margar og miklar umbótabreyt- ingar hafa á seinni árum verið gjörðar í Reykja- vík, af ýmsum fjelögum, er myndast hafa fyrir tilhlutun einstakra manna, í þeim til- gangi að gjöra eitt eður annað er að gagni má koma fyrir bæinn, þá ætla jeg að nefna hin helztu sern mjer eru kunn. ,,Thorvaldsensfjelagíð“ er vera mun eitt af hinum elstu fjelögum í bænum, hefir gjört mikið gagn. — Það hefir t. d. byggt allstórt þvottahús inn við Laugarnar fyrir fólk að standa inn í við þvotta í mis- jöfnu veðri, og afhcnt svo bænum hús þetta að gjöf. Einnig hefur það á hverju ári kost- að friskola, til að kenna fátækum stúlkum í bænum ýmsa handvinnu. Þ.i er vert að geta hinna mörgu málsverða, er fjelagið lætur hina fátækustu bæjarbúa, eða fjölskyldur þeirra, borða hjá sjer á hverjum vetri lengri eða skemmri tfma, þegarharðast er á milli manna. ,,Good-Templarafjelagið“. Þetta fjelag er búið að afkasta miklu síðan það var stofnað fyrir 1 2 árum, svo að furðu gegn- ir, — það hefir byggt stórt samkomuhús með leiksviði, lijer í bænum, til gagns og skemmtunar, bæði fyrir fjelagsmenn ogaðra, — Þessu fjelagi má þakka þá breyting sem orðið hefir á hugsunarh'ætti manna. með minnkandi vínnautn, —- ekki einasta hjer í Reykjavík heldur um allt land, — og þar sem segja má, að fjelágið hafi á stuttum títna víða, náð tilgmgi sínum, virðist næst aðhalda, að það eigi mikla framtíð fyrir höndam. ,,ísfjelagið“ hefir byggt stórt og vandað íshús hjer í bænum, sem brúkað er til að geyma í ýmiskonar matvæli. svo sem kjöt, fisk, o. s. frv. — en sjerstaklega mun það ætlað til, að geyma beitu fyrir þá er fiskiveiðar stunda. — Þar sem þetta má á- líta mjög nauðsynlegt fyrirtæki, er orðið get- ur öðrum helzta atvinnuvegi landsins til stuðn- ings, er vonandi að þetta f jelag sje nú slopp- ið úr hinum mestu örðugleikum, er það í fyrstu hafði við að stríða - - má eflaust þakka það aðkvæðamiklum fyrirhyggju- og dugn- aðarmönnum, er ósleitulega hafa barist fyrir þessu, og ýmsum öðrum mjög nauðsynlegum fyrirtækjum í bæjarfjelagsins þarfir. ,,Jarðrœktarfjelag Reykjavíkur14 sem ekki er nema sex ára gamallt, er þegar farið að sýna hinn blómlega ávöxt verka sinna, Jeg hygg að allir sem til þekkja, verði mjer samdóma um, að hjer í bænum hafi jarðrœktinm fleygt fram á síðustu árum, má víst að miklu leyti þakka það jarðrækta- fjelaginu, — því auk þess, sem það sjálft hefir ræktað mjög mikið í landi bæjarins — breytt grjótholtum í ávaxtarsama matjurta- garða (21 v.dagsl.) og forarmýrum í fagran töðuvöll, (80 v.dagsl.) auk annars, —r þá hefir það og einnig aukið áhuga á jarðyrkju með- al bæjarmanna yfir höfuð. þess má líka geta, að það hefir kennt bæjarmönnum, að brúka bæði plóg og herfi, sem ekki var títt áður. ,,Hið íslenzka Kvennfjelag“ sem ekki er nema þriggja ára gamalt, hefir með- al annars komið því til leiðar, að nú er hafð- ur vagn sem hestum er beitt fyrir, til þess að flytja þvottana að og frá þvottastaðnum (Laugunum), og með því gerð lofsverð til- raun til þess að láta bæði konur og karla,

x

Reykvíkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.