Reykvíkingur - 01.09.1897, Blaðsíða 2

Reykvíkingur - 01.09.1897, Blaðsíða 2
34 því sem vjer til færðum, með starfsemi Jóns sál. Hallssonar, þá stöndum vjer hvorki bleik- ir eða rauðir fyrir það, frammi fyrir S. J. J., enda mun að flestra dómi, lítill sæmdarauki fyrir hann, — að minnsta kosti enn sem komið er —, að skopast að starfsemi Jóns sál. Hallssonar, því það er óhrekjandi að hann var mesti starfsemis-, iðju- og atorkumaður, bæði sem námsmaður og embættismaður, og sýnir það því ógn vel, að það var ekki þörfin ein sem knúði hann til iðjusemi, held- ur eingöngu óþreytandi, viðvarandi starffýsi, sem S. J. J. skopast að, að sje virðingar verð. Jafn vel þó vjer vitum, að S. J. J. sje oss samdóma í sumum atriðum í málefni þessu, þá eru þó skoðanir okkar á því tölu- vert ólíkar, þar sem hann vill álíta að slæp- ingjarnir sjeu í minni hlutanum, en vjer er- um því miður, sannfærðir um að þeir eru í miklum meiri hluta. — Annars er það nÚ í fyrsta skipti, er í ritdeilu hefur komið, að vjer vildum óska, að mótpartur vor hefði rjett að mæla, en því ver og miður, þá mun því ekki þannig varið. Sem endurgjald fyrir ráðleggingu herra S, J. J., til vor seinast í grein hans, þá vilj- um vjer nú einnig ráðleggja honum, að velja sjer næst, uppbyggflegra og rjettara málefni en slæpingsskapinn til að verja. Að vjer höfum farið of hörðum orðum um það þjóðarmeinvætti, letina og slæpingsskapinn, álítum vjer ekki; enda vart mun unnt að hindra útbreyðslu, hvað þá heldur að uppræta illkynjað átumein, einungis með sætri mixtúru. Drengurinn Kryppur. Heyrðu Skröggur faðir; „Hefur það nokkra þýðingu þó Páfinn í Róm bannfæri menn?" Skröggur yptir öxlum, skælir sig allan og skekur í framan, þangað til hann segir: „Já, ef það nú líka er, að það hcfur þýðingu “. Síðan muldraði hann í skegg sjer: „Jeg ljet þá líka heyra það, b.... heimug- legheita kindurnar þær arna, er jeg fór úr fjclaginu"., Kryppur: „Enn þá í hverju til- liti?“ Skröggur: „Nú, þeir eru eptif dómi þess heilaga föðurs — Páfans í Róm —, hvorki meira nje minna, enn bölvaðir þrjótar þessa heims og annars. Á meðan þeir skrymta hjer á jörðunni, má enginn umgangast þá nje liðsinna þeim í nokkurri neyð, utan það, að sá hinn sami lend.i þá í sömu fordæming- unni“. — Kryppur drengur, öldungis hissa — en segir þó eptir langa umhugsun: „Páfinn bannfærir þá einungis vondu mennina?" — Skröggur: „Nærri má geta, að hann bann- færir ekki þá góðu, sem ekki til þess vinna. Hann veit þeirra heimuglegu áform og svo fá þeir hjá kallinum á baukinn“. •— Krypp- ur: „Æ, æ! Jegvil ekki verða Good-Templ- ari og læra alla rolluna löngu — löngu, sem þó skemmtilegi og laglegi maðurinn hái lagði út fyrir templarana — og svo sagði fyrir- maðurinn sem kom hjerna í gær, að Páfinn í Róm hefði bann—bannfært alla—alla Good- Templara, svo það er áreiðanlegt að þeireru bannfærðir. — O, ó! mig óar við þyí, að hann Greppur bróðir minn skuli vera í Templ- arafjelaginu, og svo það, að hann skyldi kyssa hana Ingu Templara í gærkvöld og kalla hana systir sína, ó, ó!“ —:, Skröggur: „Inga greyið er engin Templari og þá er, hann Greppur það því síður. Þeim þótti gott kaffi, — það er að segja henni Ingu, og svo fýsti þau í skemmtanirnar og af því fóru þau í Templarafjelagið". Kryppur: „Um leið og jeg les bænirnar mínar í kvöld, ætla jeg að biðja fyrir mjer, að jeg ekki verði Good- Templari". Þjóðhátíðardagurinn 2. ágúst. Það rekur víst enn, marga Islendinga minni til allra þeirra óskapa sem gengu á með daginn, annan ágúst 1874. En svo eptir 2 eða 3 ár — eða síðan 1877 hefur hans ekki verið minnst. En hvað íslending- ar eru þó líkir Grikkjunum með óhemjuskap- inn og óstöðuglegheitin. En svo hjaðnar allt niður eins og flautafroða. Þannig hafa þá liðið 20 ár án þess að minnst hafi verið á dag þenna, nema hvað „Reykvíkingur" hefur fleiruin sinnum minnst á hann. I sambandi við frídag verzlunar- manna tók Reykvíkingur það fram, að sá frídagur ætti þó að haldast annan ágúst til minningar um þjóðhátíðardaginn 1874. •— Nú í ár sýndu þó Reykvíkingar þá rögg af sjer, að ríða á vaðið, með að minnast þjóð- hátíðardagsins 2. ágúst, og er vonandi að hann verði nú hjeðan af framvegis haldinn um land allt. Því þó stjórnarskráinn sje nú orðin í surnra augum eins og slitin, götótt og óbrúkandi flík, þá væri margt öðruvísinú hjá okkur hefðum við ekki fengið hana. — Viðvíkjandi nafninu sem þjóðhátíðardeginum var nú gefið, = Islendingadagur, Þá virðist oss það afaróviðkunnanlegt, og næstum kjána- legt. Nafnið þjóðminningardagur er þó dá- lítið skárra, en ekki kunnum vjer þó við það. — Þjóðhátíðardagur er án efa það rjett- asta og undir eins það viðfeldnasta nafn á

x

Reykvíkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/139

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.