Reykvíkingur - 01.09.1897, Side 3

Reykvíkingur - 01.09.1897, Side 3
degi þessum, og ættu Íslendíngar sem ekki eru á íslandi, en vilja halda þennan dag, að nefna hann þjóðhátíðardag Islendinga — eða Islendinga þjóðhátíðardag. íþróttir þær sem sýndar voru nú á þjóð- hátíðardaginn voru afar-lítilfjörlegar, og auð- sjáanlega allar í bernsku. — Fyrirkomulagið og tilhögunin á kappreiðunum, alóbrúkandi. Vegurinn ósljettur og allt of mjór. Að láta 6 fljótustu klárhestana reyna sig í einu á svo rnjóurn vegi, gat með engu móti gefið það rjetta útslag. Það átti að taka tvo nr. i, tvo nr. 2, og tvo nr. 3 og láta þá tvo og tvo reyna sig sarnan, yrðu svo einhverj- ir tveir jafn margar sekúndur yfir svæðið, þá áttu þeir sörnu að reyna sig aptur. Viðvíkjandi glímunum, þá var satt að segja, ekki horfandi á þær, því þær líktust meira nautastangi eða nautabolun en glímum, hjá allflestum. Það er fjarska skemmtilegt að sjá fallega glímt, en hreint ekki horfandi á þegar illa er glímt. Þeir sem glírna, eiga að standa öldungis þráðbeinir, en halla ofurlítið höíðinu, annar til hægri en hinn til vinstri, en þó ekki meira en til dærnis eins og stúlka sem er ofurlítið „kókett“. Sú hendin sem hefur mjaðmatökin heldur því jafnan, en hin hendin á að liggja beint niður eins og hún væri máttlaus, nema þegar sækja skal og verjast. Fallegast er að glíma þannig, að annar sæki í einu. Aldrei má þó annar skorast undan að sækja á hinn, því ekki hafa þeir fullreynt með sjer, nema sókn og vörn komi frá báðum. Glíma skulu þeir sömu upp á báðar hendur. Skal svo ekki orðlengt hjer um frékar nú. Hvað viðvíkur kvörtuninni um setubekkja vöntun á samkomusvæðinu, þá er hún ckki á rjettum rökum byggð: Því þar sem stað- urinn var á túni, þá var það meining for- stöðunefndarinnar að mcnn gætu sest þar niður, enda rnundi hafa \ crið óframkvaeman- legt að hafa bekki handa öllurn. Við\íi:j- andi veitingunum, þá voru þær eins góðar °g greiðar sem framast var unnt, en eins og búast má við, þá er ekki hægt að afgrcioa alla í einu, og slíkt á sjer stað á öllum fjöl- mennum samkomum, að menn verðaástund- um að bíöa eptir að fá sig afgreidda, cr.da vissi enginn fyrir fram h\'að margir mundu sækja hátíð þessa. Að flestra rómi fór há- tíð þessi rnjög vel fram, menn skemmtu sjer vel og virtust ánægðir, engin óregla eða slark átti sjer stað og er slíkt áður fágætt við eins fjölmenna samkoniu og þessa, og það sem er gleðilegt fyrir framtíðina með hátíð þessa var það, að hún bar sig allvel í pen- ingalegu tilliti og geta bæjarmenn þakkað það forstöðunefndinni, því hefðu tekjur orðið mun minni en útgjöldin, þá voru minni líkur til, að hátíð þessi ætti nokkra framtíð fyrir sjer. Það eina sem okkur vantar nú, er um gyrt, rúmgott svæði til þess, að halda á þessa hátíð framvegis og mundi hentugastir melarnir þar til. Fyrsta ágúst mælt út undir Holdsveikis- spítala. Dag þennan kl. 5V2 kom bæjarstjórnin saman hjá Laugarnesstofutóftinni samkvæmt beiðni og í viðurvist Dr. med. Pjeturs Beyers frá Kaupmanna- höfn, stórmeistara Odd-fellow-reglunnar í Dan- mörku sem hafði tilkynnt landstjórninni að hann hafi ákveðið að gefa landinu holdsveikraspítala — til þess að ákveða byggingarstæðið og lóð handa stofnun þessari. Eptir ósk Dr, Bayers, afhenti bæjarstjórnin Odd-fellow-reglunni vestasta hluta Laugarnessins austur að línu yfir þvert nesið, milli hæla sem jafnframt þá voru reknir niður. (Nú þó í fyrsta skipti notaðir hælar sem „Reykvíkingur" hefur áður tekið fram að brúka ætti til að afmarka út- mælingar og stefnu á grunnstöðum). Land þetta sem bæjarstjórnin lætur síðar mæla, afsalar hún til erfðafestu endurgjaldslaust (mikið var það þó) — en áskilur að greitt verði erfðafestugjald á landsvísu 15 álnir eptir hverja dagsláttu og venjulegt lóðargjald eptir spltalahúsið og aðrar byggingar sem reystar kynnu að verða á lóð þeirri. Enn fremur var samþykkt að stofu- tóptin í Laugarnesi yrði rifin niður og efnið úr henni notað endurgjaldslaust í holdsveikisspftal- ann. Til að semja við bóndann í Laugarnesi um ívilnun á eptirgjaldi jarðarínnar fyrir skerðing leiguliðarjetts út af ofangreindri ráðstöfun voru kosnir: E. Briem, H. Kr. Friðriksson og Þórh. Bjarnason. Allir fulltrúarnir mættir nú. 13, bæjarstjórnarfundur 5, águst. 1. Beiðni Guðm. Þorkellssonar í Palshúsum um, að vegur yrði lagður niður að sjó hjá húsi hans. Vísað til veganefndarinnar. 2. Samþykkt að bærinn kostí allt að helmingi af rennu vestan vert við Liverpool, ef Th. Thorsteinsson kosti hinn helminginn. 3. Ekkjufrú M. Finsen bað um lækkun á þessa árs aukaútsvari manns síns sál. póstmeistara O. Finsens; útsvarið var kr. 145.00. Akveðið var að hún skyldi gjalda alls nú í ár kr. 45.00. 4. Samskonar beiðni frá Ellnu ckkju Jóns sál. Olafssonar i Hlíðarhúsum, sam- þykkt var að hún skyldi gjalda alls kr. 30 fyrir þettað árið. 5. Með því að nú er búið að brúka því nær kr. 1700,00 = að upphæð 2000 kr. kom til tals að hætta við stjettina meðfram Banka- stræti, var þó samþykkt, að leitast fyrir um ann- aðhvort með samningum eða með uppboði, hvað kosta mundi að fullgjöra stjett þessa upp að Ing- olfsstræti og sömuleiðis að veita þar til 300 kr,

x

Reykvíkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.