Reykvíkingur - 01.09.1897, Page 4

Reykvíkingur - 01.09.1897, Page 4
36 »Umræður: H. Kr. Fr. að vinnan við stjett þessa hefði verið unnin framsýnis- og eptirlits- laust, og væri stjett þessi því að sínu leiti eins ó- hæfilega dýr og Skólavörðustígurinn, kiöppina hefði ekki þurft að sprengja eins djúpt niður og gjört hefði verið, og garðinn hjá Jóni Þórðarsyni, hefði bærinn ekki þurft að kosta. Dr. Jónasen að það eina væri, að góð hleðslaværihjá lóð Jóns Þórð- arsonar, og þar að auki væri hún sements límd. •— Tr. Gunnarsson, að Jón Þórðarson hefði sagst eiga lóðina fram að rennu, og hann hefði lagt til lóð undir veginn með þvl skilyrði að steingirð- ing yrði sett þar með fram lóð sinni, bæjarstjórn- in mætti ekki gjöra sjer til skammar að leysa verk með fram götunum mjög afskræmislega illa af hendi. Formaður: að hann hefði það við þetta að athuga, að óþarft hefði verið að sementera garðinn, Jón hefði átt að gjöra það 'sjálfur, enda hefði hann ekki verið svo rýmilegur, því hann- hefði jafnvel farið fram á að fá grjótið úr klöppunum, sem klofið var þar«. (Að voru áliti, þá átti Jón með öllum rjetti klappirnar á lóð sinni, og gat það því ekki kallast nein órýmileg- heit af honum, þó hann vildi eiga sitt, enda hef er formaður áður haldið þvt fram með grjót í túni hjer í vesturbænum, að það væri ábúandans eign, eins og hverjar aðrar nytjar sem fylgdu lóð- inni. Það er sannarlega grjemjulegt og sorglegt að vita til þess, að það lítur eins út sem bæjar- menn sjeu hjá allflestum fulltrúunum, flökkurakkar sem allir sparka í, og allir vilja siga sjer í vil, en enginn gefur þeim bita. — Það er þvl í vorum augum einsog bæjarstjórnin vilji að bæjarmenn láti allt af hendi sem hún óskar endur gjalds lítið eða þá með einhverjum atar kostum fyrir viðkom- andi bæjarmann en aldrei skal henni cjetta í hug að hlinna að nokkru fyrirtæki hjá nokkrum bæj arbúa, miklu heldur að gjöra það svo erfitt og óaðgengilegt að viðkomandi skaðaðist á því og hætti við það, fyr eða seinna. Ljósasti votturinn hjer um, er hið afskaplega ósanngjarna gjald af erfðafestublettum og mun það síðarrverða rætt hjer í blaðinu). 6. Kosnir voru: E. Briem með 6 atkv. og H. Jónsson með hlutkesti 1 kjörstjórn við kosningu á tveimur mönnum í niðurjöfnunar- nefnd. 7. Samþykktar brunabótavirðingar: Hús Danlels Daníelssonar 3440 kr. Hús Þorsteins Jónssonar Yesturgötu 4240 kr. Hús Guðm. Jóns- sonar Hábæ 2045 kr. 8. Samþykkt að borga reikning fyrir ferð Odd-fellows-fjelaganna til Geysis kr. 249.83 aura en þó með niðurfærzlu ef unnt væri. 9. Breiðfjörð enn synjað um viðbót við erfðafestuland hans. Þórh. Bjarnason og Jón Jensson ekki á fundi. Fundi slitið. 14. bæ]arst]órnarfundur 10, ágúst, Aukafundur haldinn kl. 5 e. h. heima hjá bæjarfógeta. 1. Lagt frarn tilboð frá kaupmanni H. Th. A. Thomsen þar scm hann býður það lofsverða ellegar rausnarboð, að gefa bænurft þúsund krónur ril að kaupa turnklukku hjer í kirkjuna. Sömuleiðis býðst hann einnig til að kaupa gömlu klukkuna úr kirkjaturninum fyrir sanngjarnt verð. Samþykkt var að jryggja þessa gjöf og inna bestu þakkir fyrir, var svo ákveðið að kaupa nýja klukku með fjórum skívum og slagverki sem slægji á hverjum fjórðung stundar og M. Benjamínssyni sem úrsmið var falið að af- gjöra sölu á gömlu klukkunm við herra H. Th. A. Thomsen. Vjer fórum M. Benjamínsson og spurðum hann kurteislega, hvað samist hefði um söluna á gömlu kirkjuklukkunni, en ekki var nærri því komandi að fá að vita það, en þar á móti gjörð- ist hann svo gleiður að hann tvístjeg á þessutn heimulegheitum(?!!) eins og hann ímyndaði sjer vesalings maðurinn að keisaradæmisvelferð lægji undir hverjum fæti hans (öllum fjórum). Svo vjer yfirgáfum hann, án þess að reina frekara til að skerða hans frávillandi ánægju að vita cinn um þau óviðjafnanlegu og óhe3rrðu heimulegheit(I!) hvað hefði eiginlega fengist upp úr gömlu kirkju- klukkunni. Ekki var það nú annað, — enda er það óneitanlega broslegt þegar menn gjörast svona græningjalega gorgeirsfullir yfir ciginlega hreint engu. 2. Ut af svæði því sem mælt var undir Holds- veikisspitalann voru gjörðir svofeldir samningar við Laugarnesbóndann: 1. Lækkað eptirgjald jarð- arinnar um 40 kr. á ári. — 2. Að borga honum 25 kr. fyrir að flytja hús sín þau scm eru á spít- alalóðinni. — 3. Að hann megi leggja veg frá húsi sínu niður á Spítalaveginn og reiknast hon- um vinnan við þann veg upp í skylduverk hans við endurbætur á jörðinni. — 4. Landsdrottinn lofar að sjá um að eptirmaður hans, ef hann fer innan 10 ára kaupi hús þau er hann á nú á jörð- inni eptir samkomulagi eða eptir mati dómkvaddra manna. Allir á fundi. Fundi slitið. Ósanngirni og ranglæti, Það er nú vanalegast, eins og maður veit; að ef Gísla finnst að Árni (eða hvað þeir nú heita) gjöri sjer rangt til í einhverju tilliti, þá stefnir Gísli Árna undir eins. Og ef að álýzt að Gísli hafa á rjettu að standa, þá dæmirt svo rjett að vera að Árni borgi Gísla skaðabætur eptir óvilliallra manna mati og allan málskostnað. Þannig verndar það op- inbera rjett einstaklingsins. En nú verður almenningur fyrir þeirri ó- sanngirni og ranglæti, að brjef. sem send eru hingað með gufubátnum „Reykjavík" og sem landssjóður fær borgun fyrir — það eru frímerkin á þau, til þess náttúrlega, að þeim sje skilað rjettum móttökurum hjer í bænum eru látin liggja og liggja hjer á pósthúsinu, afsendara og móttakanda þannig opt til stór- tjóns, að málshöfðun mundi rísa út af hverju brjefi, ef sök yrði sótt á hendur einhverjum einstökum. Til þess að bæta úr slíkum vand- ræðum er ekki annað að gjöra, ef ekki verður bráðlega ráðin bót á þessu, en það, að fenginn sje einhver áreiðanlegur mað- ur á viðkomustöðum gufubátsins sem tæki á móti öllum brjefum hingað ásamt burðargjald- inu undir þau og slái svo utanum þau til einhvers áreiðanlegs manns hjer í bænum, sem svo lætur bera þau út um bæinn, undir eins og þau koma. Útgefandi og ábyrgðarm.: W. Ó. Breiðfjörð. Reykjavík 1897. — Prentsmiðja Dagskrár.

x

Reykvíkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/139

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.