Sunnanfari - 15.06.1900, Page 1
VIII
4-
REYKJAVÍK 15. JÚNÍ
1900
Tveir íslandsráðg-jafar
Þann rúman fjórðung aldar, er vér höíum haft
yfir oss þingbundna konungsstjórn, sem kallað
er, með ráðgjafa við hlið konungs fyrir vorum
niálum, að nafninu til að minsta kosti, hafa 5
tnenn alls haft á hendi þá ráðgjafastöðu, en ekki
•öðru visi en
aukreitis þó,
jafnhliða stór-
miklu dönsku
ráðgjafa - em -
bætti, einu i
minsta lagi og
stundum fleir-
■um. Meðal
þessara 5 hef-
ir einn verið
í embætti þre-
falt lenguren
hinir allir, eða
19 ár aftæp-
um 26. Það
var Nelle-
mann, oghef- db. jubis C. S. Klrin
ir blað þetta flutt mynd af honum áður (III 7.).
Hinir hétu eða lieita Klein, llump, Horring og
•Goos. Klein var fyrsti íslandsráðgjafinn, skip-
aður 16. júlí 1874, og kom þá hingað til lands
méð konungi vorum; en Goos (frb. gós) hinn
yngsti, dubbaður fyrir nokkurum vikutn, 27.
apríl 1900. Þeim tveitnur hefir nú Sunnanfari
fengið sér myndir af, til þess að gæða á lesend-
um sinum,—- sýna þeim fratnan í þessa yfirstjórn-
endur vora.
Christian Soplius Klein fæddist í Khöfn 17. á-
gúst 1824 og lézt í vetur 9. jan.; varð þvírúfti-
lega hálfáttræður. Hann varð tvítugur kandídat
í lögum, þritugur yfirréttardómari, en hafði áður
gegnt ýmsum vandasömum störfum í almenn-
ingsþarfir, og nokkurum árum síðar, 1862, fyrsti
dómsforseti hins nýstofnaða verzlunar- og fitr-
mannadóms í Khöfn; en það þótti all-vandasamt
embætti, með því að dómsköp voru þar nýbreytileg
og ólík því sem ella gerist í Danaveldi: verzl-
ttnar- og sigl-
ingafróðir
leikmenn
meðdómend-
ur, en ekki
lagamenn;
mál sótt og
varin munn-
lega og dóm-
ur upp kveð-
inn að vörmu
spori að öil-
utn jafnaði.
Hann fekk
þar almenn-
ingsorð á sig
fyrir bæði lip-
urð og skör-
ungsskap, og lagavitið ágætt. Því næst varð hann
dómsmálaráðherra 1872. Þá bjó hann undir
stjórnarskrá vora ásamt A. Fr. Krieger og ritaði
undir hana með konungi 5. jan. 1874, en varð
íslandsráðherra þá um sttmarið, tók við samstundis
sem stjórnarskráin gekk í gildi, 1. ágúst. En ekki
hélt hann því embætti lengur en til næsta vors,
1875. Þá ttrðu ráðherraskifti í Danmörku, af á-
stæðum, er oss kotnu ekki vitund við, og hófst
þá þegar sá ójöfnuður í vorn garð, að íslands-
ráðgjafinn var látinn verða hinutn samferða frá
embætti. Þá tók við Nellemann.
Klein hafði þótt harður nokkuð og einbeittur