Austri - 26.09.1892, Page 1

Austri - 26.09.1892, Page 1
Kemur nt 3 á mánuði, eða 36 blöð til næsta nýárs, og kostar liér á landi aðeins 3 kr., erlendis4 kr, Gjalddagi 31. júlí. Uppsögn, skrifleg, huiwl- in við áramót. Ogild nema komin sé til ritstjórans fyrir 1. október, A.uglýsingar 10 aura linan, eða 60 aura hver þml. dálks og hálfu d/rara á fyrstu síðu. II. -Á-R. SEYÐISFIRÐI, 26. SEPT. 1392. NE. 20. (Aðsent.) Kjorfundnr var haldinn fyrir Norburmúlasýslu ab Fossvöllum 17. þ. m. 3 þingmannaefni voru í boði : sira Einar Jónsson á Kirkjubæ, Jón Jónsson á Sleöbrjót og Sig- urður Jónsson á Vestdalseyri. Sira Einar tók fyrst til máls og lýsti í fáum orbum skoöun sinni á helztu þinginálum. Nefndi hann fyrst stjórnarskrármáliö. Kvaöst hann vilja gjöra stjörn- ina innlenda, hafa æösta dóm- stól (liæzta rétt) í landinu og helzt ekki hafa neiti annab sam- eiginlegt viö Dani en konung. Yfir höfuð væri hann miblunar- maður, er stæbi á sama grund- velli og þingið 1885 og 1886 í stjórnarskrárfrv. sínum, en vildi þó ekki sleppa neinu af rétti vorum. Lýsti liann því eindregib yfir að hann væri á móti leysingu vistarbandsins. Yfir höfub kvaöst liann vilja spara fé landdns og verja því se'n ’bezt.. Væri hann móti ötl- um smábitlingum, en vildi styrkja búnaðarfélög og gufuskipaferðir kröptuglega, eins og liann yfir höfuð vildi eflasamgöngur ásjé og landi og veita ríflegan fjár- styrk til þeirra. Útaf spurningum kjósenda um bankann týsti hann yfir því áliti sinu, a& fyrirkomulag hans væri ekki hættulegt. Seblana væri reyndar heppikgra að hafa inn- leysanlega, til þess þeir gætu gengið allstaðar. Utibu ætti þeg- ar að stofna á Seyðisfirði, Akur- eyri og ísafirði. Póstávisanaskuld sína vib ríkissjóð mundi lands- sjóður jafnan geta greitt. Hann var spurbur, hvort hann áliti ab fækka mætti og ætti em- bættismönnum landsins. Vegna víðáttu landsins, og strjálbyggðar kvað hann hér jafnan þurfa fleiri embættismenn en annarstaðar í samanbuiði við mannfjölda. Að visu kynni að mega fækka sum- um embættismönnum, þó ekki prestum meir en orðið væri. Eptirlaun hinna æðri embætt- ismanna ætti að lækka og yfir höfuð að jafna eptirlaunin. Eptir- laun presta væru of lág. Hann kvaðst vera móti háum kaffi- og sykurtolli, og vildi því lækka hann úr þvi sem er, sér- staklega vegna þurrabúðarmanna. Vínfangatoll ætti að hækka og jafnvel með lögum banna inn- flutning áfengra drykkja. Tjáði sig hlynntan bindindi. Yfir höf- uð væri hann móti aukningu tolla eða nýjum tollum. Ilann vildi auka að mun vald héraðanna til að ráða málum sín- um til lykta. Kosningarlögum til alþingis ætti að breyta í þá I átt, ab sem flestir gætu sér sem ! kostnaðarminnst haft áhrif á þær kosningar. Menntun og uppfræðíngu vildi hann auka. Sérstaklega tók hanxi fram, að við skólana ætti aðauka vinnu og verklega kennslu, til þess að sá hugsunarháttur breytt- ist, sem nú bryddi viða á, ab ó- virðing væri að vinnu. þar næst tók Jón Jónseon frá Sleðbrjót til máls. Hann lýstí yfir að sú pólitíska skoðun, sem hann hefði tvisvar áður skýrt hér frá væri hin aama enn óbreytt í aðalatriðunum, hún væri byggð á frelsinu sem grund-. velli. Hann minntist á stjórnar- skrármálið; kvabst nú ekki skuld- binda sig til að fylgja neinu vissu frumvarpi til stjórnarskrárbreyt- ingar. er fram hefði komið til þessa. Hann væri miðlunarmað- ur að þvíýeyti, að hann vildi, að stjórnin færðist sem mest inn í landið og að stjórnin bæri ábyrgð fyrir þinginu. Honum þótti frv. frá 1885 og 1886 meb jarli og 3 ráðgjöfum vera of dýrt, enda í ýmsum atribum ábótavant. Yirt- ist haliast að skobun Einars As- mundssonar í Nesi í Andvara 1879 um breyti'ngu á stjórnarskránni. Gat þess um frestandi neitunar- vald, að ef það kæmi inn á næsta þing, mundi hann hugsa sig vel um, áður en hann greiddi atkv. gegn því. Annars talaði þing- mannsefnið svo óljóst og óákveð- ið umstjórnarskrármálið, að erfitt var fyrir kjósendur að fá skýra hugmynd um skoðun lians á því. Hann tjáði sig enn meðmælt- an vistarbandsleysingu. þó kvaðst hann mundu, kjósendum sinum til geðs, er hann vissi ab væru yfir höfuð móti henni, geta lofab því að beytast ekki fyrir því máli á þingi. Dómgæzlu og umboðstjcrn kvabst hann vilja gjöra sem ó- dýrasta. Öll íóst eptirlaun ætti að afneina. þætti þinginu einn embættismaður verður eptirlauna, gæti það sérstaklega ákveðið það. Eó til vegagjöröa kvaðst hann ekki vilja spara. Og gufuskipa- ferðir ætti þjöðin sjálf að taka að sér. Útaf spurningum kjósenda gat hann þess, að liann vildi setja fast þingfararkaup. Tolla vildi hann ekki hækka. Hann væri móti banni gegn innflutningi á- fengra drykkja. Með lögum vill hann sporna við drykkjuskapar- óreglu og styðja bindindismálið að því leyti sem þab kæmi ekki í bága við pei sónulegt frelsi. Hann væri ennfremur meðmæltur háu árgjaldi í landssjóð af vínveitinga- leyfum. Hann kvaðst vilja efla alla menntun, einkanlega þó mennt- un kvenna, þar eð öll menntun og uppfræðing byggðist fyrst á því, að mæðurnar væru mennt- aðar og gætn uppfrætt börn sín. Eins og nú stæöi, vildi liann sér- staklega leggja fram fé til að styrkja aukna sveitakennslu. Hann tók enn fremur fram, að hann vildi abskilja ríki og kirkju. Eptir að þessi 2 þingmanna- efni höfðu þannig lýst skoðunum sinura tók Sigurður Jónsson fram- boð sitt aptur af því að hann þóttist ganga að því vísu að hann kæmist ekki að. Að því búnu var gengið til lcosninga, og voru þeir kosnir : Síra Einar Jónsson með 67 at- kvæ&um og Jón Jónsson með 65 atkvæðum. Kjörfundurinn var yfir höfuð illa sóttur, á honum voru 74kjös- endur, enginnúr Skeggjastaðahr. 3 úr Vopnafirði,4 úr Borgarfirði, 1 úr Loðmundarfirði, 7 úr Seyð- isfirði, örfáir úr Eljótsdal og Jök- uldal, tíningur úrFellumog Hjalta- I staðaþinghá, en allflestir kjósend- ur í JÖktdsárhlíð og Tungu, enda eiga þær sveitir hægast meb að sækja fundinn, og í þetta skipti voru bæði þingmannaefnin úr þeim sveitum. Nokkrir kjós- endur neyttu ekki kosningarrétt- ar. Aðalorsökin til þess að fund- I urinn var .ekki betur sóttur, var án efa það að menn voru i óða- önnum ab heyja, og þóttust ekki mega missa tima frá heyskapar- störfum, þar eð sláttur mun all- staðar hafa gengið með erfiðasta móti. Kjörfundur og aðrir opin- berir fundir, er halda skal á haust- um, mundu af ýmsum ástæðum verða miklu betur sottir, ef þeir væru lialdnir fyrir slátt, eða snemma í júlímánuði. Um að sameina ekki liina nuveraiidi biinaðarskóla á íslamli. Eptir Jónas Eiriksson. I. Jpað hefir verið margt og mik- ið rætt og ritað um búnaöarskól- ana, frá því fyrsta ab hugsað var til að stofna þá hér á landi og allt fram á þenna dag. í»ó umræðuefnið liafi ætíð verið hið sama, hefir þö álit manna verið harla misjafnt, enda þött um sömu atriði hafi verið að ræða, er snert hafa málefnið, eins og vanalega á sér stað, þeg- ar margir taka til máls, sitt finnsfc hverjum. Um eítt atriði hafa menn þó orðið ásáttir, nefnilega um nauðsýn þá að hafa búnaðar- skóla, en það hefir greint á um, hve margir þeir ættu að vera á landinu, hvernig fyrirkomulagið ætti að vera o. s. frv. Aðalþráðurinn í búnaöarskóla- sögu vorri er sá, að hafa skólana marga; enda gáfu lög stjörnar- innar fullkomið tilefni til þess, er gefin voru út í febr. 1872 ept- ir tillögum þingsins, þar sem svo er ákveðið: „Svo fljótt sem því verður viökomið, skal stofna einn eða fleiri búnaðavskóla í hverju amti á íslandi* o. s. frv. |>að er því upphaflega þjóðin og svo þingiö, sem kemur hugmyndinni á rekspöl, ab hollast mundi vera fyrir landið, að koma á stofn mörgum búnaðarskólum, endamun sumum mikilsmetnum mönnum hafa komið til hugar, að gjörandi væri að liafa búnaðarskóla eða fyrirmyndarbú, ekki einungis í hverjum landsfjórðungi heldur jafnvel í víðlendustu og mann- flestu sýslunum. Niðurstaðan I þessu máli er — enn sem komið er — sú. að 4 búnaðarskólar liafa

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/141

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.