Austri - 18.02.1897, Blaðsíða 3

Austri - 18.02.1897, Blaðsíða 3
NR. 5 AtSTRl. 19 lifa? Ekki lætur landssjóður |)á dovja, en á kann verða peir að komast, pví hinir hrepparnir mumi pakka fyrir, að láta fleiri hreppa fara á sýslusjóðinn, og amtssjóður mun ekki vera fær um að taka jafn-marga brauðpurfa m. m. sem lífið útheimtir, á sína arma. Tíðarfarið hefir Terið stormasamt í vetur, svo enginn man eptir slíkurn vindum, en snjóalítið mjög, en rigning- ar jafnan stórfelldar. Ekki verður vart við fjárkláðann hér í sýslnnni, og er búið að skoða, og víða að baða sauðfénað, prátt fyrir pað, pó hans yrði ekki vart. Ekki heyrist neitt háskalegt af jarð- skjálftum núna. Samt segja ferðamenn úr Árnessýslu, paðan sera jarðskjálft- arnir voru vestir í sumar, að smákippir væru par enn pá opt. Fyndu peir pá pegar að peir lægju, eða væru sitjandi, en eg held að pað séu hugarburðir, pó ekki só hægt um að segja n>eð neinni vissu. Ejártaka var lík hér í haust og ann- arstaðar, og fjárhöldin góð sem af er, og heilsufar manna með bezta móti. J>að er annars ósköp að sjá mis- muninn með framfarirnar, pegar mað- ur fer í kringum landið. Hvar sem komið er hér i kaupsta.ð, pá sést hvergi vagnbriiarspotti. Allt er sett á bak karla og kvenna, kol og salt, auk held- ur annað sem borið verður á bakinú. En undir eins og komið er hér vestur í Stykkishólm, Bíldudal, Dýrafjörð, Önundarfjörð, ísafjörð og víðar, pá sér hver einn einlægar vagnbrautir, nálega inní hverja sölubúð kaupmanna. |>ar er vörunum ekið í vögnunum, en ekki á baki kvennfólksins, og pessi stór- virki hafa gert kaupmenn af sínum eigin dugnaði og forsjá* og með sín- um eigin peningum. En í Reykjavík. Nei, par sést ekki vagnspotti. Ekkert stórt fyrirtæki af kaupmanna hálfu, síðan „Elín“ strand- aði, og var keypt aptur með svo sem engu vei’ði. p>ví eg kalla pað stórt fyrir- tæki, að selja pann eina gufubát útúr Elóanum, og hafa ekki rænu á sð halda honum úti, án pess að fá pen- inga af sýslusjóðuuum. p>að er útlit fyrir að Seyðisljörður eða Eskifjörður verði höfuðstaður landsins með timan- um, en ekki Reykjavík, ef pessum fram- förum par eystra framheldur, í sam- anburði við framfarir Reykjavikur hrað petta snertir. Skriffinnskan dugir ekki einsömul i heiminum. Framkvæmdirn- ar verða par aðal-aflið sem allt gerir, pegar peningar og manndáð er til að framkvæma, án pess að hafa pa í hyggju að skaða aðra og hugsa um a.lls ekkert annað en gróð- ann, samstundis og fyrirtækið er hafið. Hefði Reykjavík annan eins pjóðmær- ing og framkvæmdarhetju sem O. Wathne er á Austurlandinu, pá væri hér öðru vísi að lifa en er. Honum næstir eru peir kaupmennir, P. Thor- steinson á Bíldudal, Björn Sigurðsson í Flatey á Breiðafirði, kaupmaður Gram gamli á Dýrafirði, og pó fyrst og fremst stórkaupmaður Ásgeir As- geirsson á ísafirði, og peir feðgar, Tuliníusarnir á Austurlandi. fessir hafa allir verklega sýnt dugn- að sinn í að leggja vagnbrautir í verzl- unarstöðum sínum, og mörgu fl. sem að verzlunarframkvæmdum lýtur. Hamingjan sé í verkinu með, að Reykjavík verði ekki langt á eptir tímanum í að framkvæma nauðsynleg fyrirtæki. Að minnsta kosti haldist í við aðra smákaupstaði i kringum landið. Að endingu skal eg geta pess til verðugs heiðurs ritstjóra ísafoldar, að hann fór persónulega sjálfur í sumar að yfirlíta jarðskjálftasvæðið, og hefir mér verið sagt, að hann hafi gefið par fátækum mönnum 5 til 10 kr. á mörgum stöðum. possa er ekki enn pá opinberlega getið, eu eg staðhæfi pað, að sannleiki sé. Fyrir nú utan allar pær gjafir, utan- Og innanlands, sem að landsmenn hafa par, og fi. ó- reiknnnlega gott af peirri ferð rit- stjórans, af pví hann fór persónulega sjálfur í pessa ferð í sumar, og sá með sínum eigin augum, en ekki ann- ara, merki pau sem jarðskjálftarnir skildu eptir. Úr Breiðdal. Héðan er ekkert markvert að skrifa. Sífeldar hlákur hafaverið síð- an í miðjum nóv., nema nú er dálítil frost og snjóklessa yfir jörðina, svo ekki er gott til haga Heilsa manna er alment góð og fáir dáið hér í sveit, 4 kvennmenn hafa samt dáið hér síðan um veturnætur, par ámeðal prestsekkja Jþórunn Stefánsdóttir á Gilsá 24. okt. í haust, móðir Halldórs á Klaustri og peirra bræðra. Fiskiafli var mikill í Berufirðinum fram að jólum og víst líka nokkur síld. Annarsstaðar hefir hvergi verið afli hér í Suðurfjörðum og bera sjáv- arbændur, tómhúsmenn og lausamenn sig illa af atvinnuloysi. Dóiur undirréttarins í |>ingeyjarsýslu 14. des. 1896 pví dæmist rétt að vera: Ákærði Halldór prófastur Bjaraar- son í Presthólum á að sæta 5 daga fangelsi við vatn og brauð. Hann gjaldi í skaðabætur til Guðmundar bónda Guðmuudssonar í Aýjabæ 23 krónur, til pórarins bónda Benjamíns- sonar í Efrihólum 16 krónur. Fyrir ósæmilegan rithátt á varnarskjali sínu 28. okt p. á. greiði hann í sekt 5. , krónur. Svo ber honum og að greiða allan af máli pessu löglega loiðandi kostnað. Hinar ídæmdu skaðabætur og sekt að greiða innan 15 daga frá lögbirt- mgu dóms pessa, og honum að öðru- leyti að fullnægja undir aðför að lög- um. B. Sveinsson. [Hinn seki vísaði málinu til yfirdóms- ins pegar.] I’jófnaðarmál allmikið er nú upp- komið í Reyðarfirði, og er nú sýslu- maður A. V. Túlinius að rannsaka pað og heíir nú i nokkurn tíma haldið ná- kvæm próf í málinu, nálega á hverjum degi, og munu pegar 2 menn, af sama bæ, hafa meðgengið pjófnað, og heíir annar peirra borið snkir á bóndann, svo hann hefir verið settur í höpt og marg-yfirheyrður, en prætir enn pá fastlega fyrir pjófnaðinn. t Kristbjörg Vigfúsdóttir. parrn 21. desember síðastl., andaðist að Einarsstöðum í Núpasveit, húsfreyja Kristbjörg Yigfúsdóttir, kona Stefáns bónda Baldvinssonar. Hún var fædd að Núpi f Núpssveit á sumardag fyrsta 1870, og dóttir heiðurshjónanna Yigfúsar Nikulásson- ar og Hólmfríðar Guðbrandsdóttur. 1892 giptist hún eptirlifandi manni sínum og átti með honum 3 börn, er öll lifa. Ivristbjörg sál. var gædd ágætum sálar- og líkamshæfilegleikum, einhver hin fríðasta kona, gáfuð og vel að sér, blíð i lund og ástríkasta eiginkona, og hin umhyggjusamasta og alúðlegasta móðir. Blessuð sé hennar minning. S. B. 22 Var full af boðsfólki, en allir voru peir purrir og pegjandi og leið- indablær yfir öllu. Jaczkowicz fór aptur að tala um mannfjölgunina, og Swiatecki leit í kringum sig. í pessari pögn virtist Jaczkowicz allt af hækka sig, „Af pví getur hlotizt voðalegttjón fyrir Evrópu“, sagði Jaczko- wicz. „Já, útflutningarnir . . .“ sagði svo einhver. „Hagfræðin sýnir oss, að útflutningarnir geta ekki hainlað ofmik- illi mannfjölgun". Allt í einu leit Swiatecki upp ogsagði í dimmum málróm: „];>á geta menn tekið hér úpp hinn kínverska sið“. „En afsakið . . . hvaða kinverska siðvenju eigið pér við?“. „1 Kína er foreldrunum heimilt að kyrkja öll afstyrmi — við gætuni t. d. gefið börnunum leyfi til að hengja foreldra sína, er pau gætu ekki lengur unnið fyrir sér“. Þarna kom pá hneyxlið. Eldingunnj jaus| iiiður og legubekkirnir stundu undir hinum reiðu fjiuudkonuni, eg var i standandi vandræðum, og Suslowski lét aptur aúgun og missti snöggvast málið af forundran. Ópægileg pögn. Loks sagði tilkomandi tengdafaðir minn fokvondur: „Eg vona pess, að per herra Swiatecki, sem kristimi maður . . .“. „Hversvegna dettur yður í hug, að eg sé kristinn?“ greip Swía- tecki frammí, og hristi höfuðfð. |>ar kom pá önnur eldingin> sófinn skalf nú og nötraði undir hinum fokvondu frændkonum. Eg bjóst við að jörðin spryngi undir mér og gleypti mig. Það var úti um mig; og engin von lengur! En loks skellti Kazía uppúr, og SVo fór Jaczkowicz lika að hlæja, og hláturinn greip mig líka. „Pabbi minn!“ sagði Kazía, „manstu ekki eptir pví, að Wladek hefir sagt pér frá pví, að Swiatecki væri sérvitringur. petta er allt gaman hans, pví eg veit að herra Swíatecki á móður, sem hann reynist ástríkur sonur“. Sú þriðja. 19 jafna metin og leiða hina sönnu hæfileika til öndvegis; og svo skyn- samur er Ostrzynski, að hann sér petta, en hann gjörir sig ánægðan með að sú breyting komist eigi á á hans dögum, og hann geti set>ð óhultur í hinum rænda sessi sínum, frá sér meiri mönnum. Við málarar erum minnst fyrir honum. Stundum kemur pað fyrir, að hann gefur ungum skáldum meðmæli sín, en pað er pó ekki nema til pess að geta um leið niðrað blaðinu „Pól“. En ann- ars er hann pægilegur í umgengni, og mér líkar hann að ýmsu leyti vel; en . . . En eg vil pó helzt ekki sjá hann! VI. |>að verður pó líklega endirinn, að eg bið pau að fara öll sam- an norður og niður! Framkoma peirra gagnvart mér er lilæileg! Uppfrá peim degi, að eg varð bæði ríkur og frægur, hefir mig stórlega furðáð á peirri fyrirlitningu, er Suslowski hefir auðsjáanlega sett sig út til að sýna mér. Bæði liano og kona hans, og öll ættin sýuir mér pessa sömu fyrirlitningu. Strax fyrsta kvöldið sagði Suslowski mér pað, að ef eg væri á peirri skoðun, að hin breytta staða mín í lífínu hefði haft hin minnstu áhrif á pau, eða héldi, að eg sýndi peim nokkra virðingu í pví að giptast Kazíu, er pau vildu allt gjöra fyrir, pá skjátlaðist mfer stór- kostlega, og pess gæti eg pó aldrei krafizt, að pau í nokkru lítil- lækkuðu sig fyrir mér. Og móðir hennar bætti pvi við, að dóttir hennar vissi pó ætíð, hvar hún ætti skjóls og athvarfs að leita. Kazía mín hefir opt varið mig með mikilli ákefð; en pau fetta fing- ur úti öll mín orð og allar mínar gjörðir. Eg get eigi opnað svo munninn, að Suslowski bíti eigi á vörina, líti síðan til konu sinnar og kinki kolli, eins og hann vildi segja: „J>að för sem mig lengi haíði grunað, að pessi mundi verða endirinn“. Og svona pína pau mig frá morgni til kvölds. En pað er uppgerð alltsaman, til pess að ánetja mig pví fastara. i

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/141

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.