Austri - 29.10.1898, Blaðsíða 1

Austri - 29.10.1898, Blaðsíða 1
Uppsöf/n skrijleg. lundifi ri$ áramót. Ógild nemti Jt*m- in sé til ritstj. Jyrir 1. $Jé%- ber. Anglýsingar 10 línan, eöa 60 a. hver þuml. dálks og hálfu dvrare, á t. síðu. Kemur id 3 á nvXnuði ebá P>6 blöð tit nœsta nýárs, og kostar hér á landi aðeins 3 l:r., erlendis 4 kr. (rjalddtígi 1. iúJí: YIII. AE. Seyðísfirði, 29. októfier. 1898. Ötto Wathne. Líkt og reíðarslag féll fregnin um ancílát Otto Wathnes yíir Seyðisfjörð. Hann, sem svo Opt hafði giptusamlega siglt yfir sæinn og fært mönnum björg og brauð, var nú íluttur lík heim með „Agli“, 15 dögum eptir að hann hafði farið héðan & leið til útlanda. Hann andaðist að kvöldi pess 16, pessa mán- aðar, og varð honum að bana hjartasjúkdómur sá, er við og við hafði sótt á hann hin síðustu ár; hné útaf örendur um horð í skipi sínu „Yaagen“ í hafi, skammt frá Færeyjum. Leitaði „Yaagen“ pangað og beið ,,Egils“ í pórshöfn, og lét frú Guðrún Watlme, er pá sem jafnan var með manní sínum, flytja likið hingað, svo hann gæti borið beinin á pví landi sem honum var kært orð- ið sem annað fósturland og sem hann hafði unnið svo mikið fyrir. OTTO WATHNE var fæddur í Mandal í Norvegi 13. ágúst 1843, sonur góðs borgara par í bænum, og elztur af 9 systkinum*. Hugur hans hneigðist snemma að sjómennsku, og réðist. hann á skip á unga aldri. 19 ára gamall kom hann fyrst hingað til lands, og rak pá timburverzlun á skipi víða hér við land; en var pá of ungur til að færa skip sjálfur. Síðan kom hann upp hing- að til Seyðisfjarðar 1869 og byrjaði síldarveiði, og byggði pá lítið hús utar- lega á Búðareyiinni, par sem síðan er kplluð „Vatnabugt“. Síldarveiðin mis- heppnaðist, og Wathne flutti héðan lb70 og sneri pá til Englands og tókpar stýriinannspróf. Yarð hann pá stýrimaður og síðan sldpstjóri um mörg ár. Mátti segja að hann hefði farið um nær allan lmöttinn. 1879 kom Wathne aptur hingað til lands. Yoru pá byrjaðar híriar stór- kostlegu síldarveiðar Norðmanna, og rsettist Wathne pá að hér á Seyðisfirði og tók að reka síldarveiði á ný og lánaðist ágætlega. Byggði hann pá hin stóru hús, sem enn standa, með bryggjum, er bvert skip getur legið við. Svo komu „slæniu árin“ fyrir síldarveiðarnar, og ilestir Norðmenn hættu veiðum hér og fluttu heim, en Otto Wathne gafst ekki upp, pað átti nú einusinni ekki við hans skap. Og gæfan fylgdi honum og Guðs blessan hvíldi yfir starfi hans, sem veitti fjölda mörgu fólki atvinnu. En pó Otto Wathne væri orðinn hér búsettur, pá hélt hann pó ekki kyrru fyrir, heldur hafði hann altaf gufuskip í förum; sjóhetja var hann hin mesta^ og ef ætti að telja allar pær hættuferðir, sem hann hefir farið hér við larid, hefði Austri ekki rúm. En eitt, með pví fyrsta. sem gjörði nafn Wathnes kunnugt um allt land, var pað, pegar gliftiskipið „Bravo“ fórst á fistilfirði og Wathne bjargaði sjálfum sér og mörgum öðrunt af skipshöfninni i gegu um b riingarðinn í grímmviðris norðanbyl. Otto Wathne hefir opt verið likt við hina fornu víkinga, og vist er um pað, að hann kunni ekki að hræðast. farf ekki annað en minnast á ferðir hans með „Miaca“ (gufusldp sem W. átti og hafði í förura), og hina miklu glæfraför er hann tók út hið strandaða enska gufuskip „Lady Bertha“ á Sanðárkrók 1888 um hávetur og sigldi pví til Englands. Er oss minuisstætt, er hann kom inn til Akureyrar á skipinu, í norðangarði og hríð, var skipið pá svo Jekt og yfirísað, að pað lá pví nær á hliðinni, skildu menn sízt í. hvaða ferlíkan færi par inn á höfnina. En pó pessar hættuferðir bæru vott um hreysti og hugdirfsku, pá eru pað pó gufuskipaferðir pær er hann stofnaði railli Beykjavíkur og Austurlands- ins sem mest og ómetanlegast gagn hafa gjört. pví pær hafa svo stórkostlega aukið sjávarútveginn hér eystra, og pær eru orsÖkin til hinna góðu strand- ferða er vér nú höfum fengið.. Otto Wathne gekk allstaðar á undan, hann ruddi veginn og sýndi mönnum hvað bægt væri að pjöra. - ]?að verður ekki með orðum upp talið, hvað Austurland, og allt ísland, á pessum ágætismanni að pakka. Ætti að rita æfisogu hans, yrði pað jafnframt soga Austurlands ldn síðustu 19 ár. Aður en Otto Wathne kom, var Austurland, hinn minnst pekkti fjórðungur pessa lands, afskekktur og afskiptur í alla staði. En nú er einmitt pessi fjórðungur í mörgu á undan hinum, og pað er að mörgu leyti Wathnes verk, bæði beinlinis og óbeinlínis. Fyrirtæki bans voru mörg, sum heppnuðust betur, sum miður, en öll hafa pau orðið að gagni á einhvern hátt. Stórverzlanin, *) Systkinin voru: María, gipt Lund borgmeistara i'Björgvin, Hermann, skipstjóri, látin, fyrir nokkrum árum ;Jóhann ljósmyndasmiður (dáinn), Claudine (dáin), Friðrik, Tönnes og Carl Wathne, semallir eru góðkuunir hér á landi og Friðrika, gipt Esmann stórkaupmanni í Óðinsey, NE. 80 j pó hún stæði skamma stund, bætti mjög prísana, og hún var eflaust spov í j rétta át.t, pá átt.seig verzlun vor á að stefna. Piskigufuskipaútveg byrjaði | Ottó Wathne fyrstur hér við land. Og pannig mætti lengi halda upp jað telja. Hið síðasta happaverk Wathnos var að byrja hinar hagkvæmu, reglulegu skipa- fei ðir milli Khafnar, Norvegs, Færeyja og íslands, sem hafa unnið sér almanna- hylli, og mætti hafa miklapýðingu fyrir pjóðlíf vortí framtiðinni með anknum viðskiptuiu við bróðurland vort, er átti pennan ágæta son. Eitt f'f pví, sem bendir á hinn víðtæka framfarahug Wathnes, er pað, að bann var binn lielzti hvatamaður pess, að aptur var farið að gefaútblað- ið bér á Austnrlaudi. Og pegar aðrir drógust aptur úr, pegar til framkvæmd- anna kom, pá tökst Watbne sjálfur á hendur að stofna blaðið. Hann sá glöggt, að til pess að pessi fjórðungur til fulls gæti fylgt með í framförum landsins, puifti hann að eignast hlað. Og hann lét sér ekki nægja að stofna blaðið og útvega ritstjóra, heldur reit hann sjálfur margar ágætar ritgjörðir i blaðið, sem allar bera vott um einlægan og heitan áhuga á framförum pessa fjórðungs og alls landsins. og pær sýna líka að maðurinn vár spakur að viti óg auðugur af pekkingu ag reynslu. Yiljum vér sér í lagi benda á ritgjörðina „Seyðisfjörð- ur fyrr og nú“ og aðra ritgjörð um gnfuskipaferðir, er beint tekur fram pað fyrirkomulag sem nú af öllum er álitið hið rétta. Ennfremur ritaði hann fyrstur um skaðsemi botnvörpuveiða Englendinga hér við land. fegar Wathne hafði haldið út blaðinu 1. árganginn og sá að pað gat staðizt og borið sig, fékk hann undirrituðum pað í hendur til eignar. Slíkt veglyndi er fágætt. Eu veglyndi, örlæti, höfðingsskapur og hjartagæzka auðkenndu líka Otto Wathne um fram flesta menn, er vér höfum pekkt. Hvílíkur Otto Wathne var í pessu bæjarfélagi, er ekki^ auðrelt að lýsa. Framkvæmdir hans til gagns og prýðis bænum eru svo miklar, að alla hlýtur að furða. Búðareyrin ber pess ljósust merki. ]>ar reisti W< hvert stórhýsið á fætur öðru, og önnur keypti bann, 4 síldarveiða- og vöru- geymslu hús öll með hryggjum er skip geta lagzt við; og öll með fyrirmynd- ar útbúnaði, afarstóra fiskireiti, fullkomið íshús o. s. frv. Góðan veg hafði hann lagt um endilanga Búðareyri og inn að Ejarðará, löngu áður en uokkar vegarspotti var lagður annarsstaðar í kaupstaðnum, 2 brýr lót hann byggja yfir Fjarðará, sem aðskiliir kaupstaðina, og sem menn líklegn befðu orðið að vaða eða fara á ferju pann dag i dag, ef W. ekki heQii verið. Og pó bann fengi nokkuð af kostnaðinum við veginn og brúna endurgoldinn, pá var hans framkvæmdin og útgjöldin í fyrstu. Hið prýðilega íveruhús, er hann byggði, setti kórónuna á verk hans. jpað er autt rúm eptir Otto Wathne. Yór Islendingar getum ekki skip- að pað. Allt landið mun sakna hans, en dýpst og mest er sorgin hjá peim er pekktu bann persónulega. feir einir vissu til fulls hvílíkur maður tiann var. Sá sem eínu sinni hafði séð Otto Wathne, gleymdi honum ekki aptur. Höfðingsmerki var ritað á enni hans, einsog segir um Friðpjóf: „þann sfip á annar enginn, sem yfir siglir lög“. En mildin og mannúðin lýstu sér einn- ig í binu elskulega viðmóti hans, viðræður hans voru fjörgandi og gleðjandi og skemmtilegar, og mátti af honum fræðast um marga hluti. Hann vartrú- maður. Hann unni skáldskap og sönglist, var gleðimaðui- í samkvæmum og hinn ágætasti heim að sækja. A hið fngra og smekklega heimili peirra hjóna var öllum unun að koma, háum og lágum, innlendum sem útlendum. Hin síðustu ár dvaldi O Wathne erlendis á vetrum með konu sinni, og ferðaðist pá til Suður-Evropu sér til heilsubótar. 1897 sæmdi konungur hann riddarakrossi dannebrogsorðimnar. * Otto Wathne kvongaðist 6. des. árið 1885 eptirlifandi ekkju sinni, frú Guðrúuu Jónsdóttur, og var hjónaband peirra hið ástríkasta. ]>eim hjónum varð ekki barna auðið, en tóku til fósturs 3 börn Hermanns heitins bróður hans, sem pau veittu hið ágætasta uppeldi. Frú Guðrúu var manni sínum mjög samhent í hinni miklu góðgjörðasemi, sem /átækir einkum í ná- grenninu nutu svo mjög gbðs af. Kærleiksverk peirra, ríkulegu gjafir og um- byggja fyrir bágstöddum 'mun seint fyrnast, en standa sem verðugur minnis- varði hins látna öðlings. Umbyggja hans fyrir ættingjum sínum var frábær, og vinum sínum reyndist hann jafnan bezt, er peir purftu pess mest við. Drenglyndari mann gat ekki en Otto Wathne. Nú er hann fallinn frá, áður en manndómsárin voru á enda. Elli átti ekki að beygja liann. En pungt finnst oss að missa hann svo snemma. Vér vonuðum að mega njóta atorku hans og mannkosta miklu lengur, og pví hvílir sorgin nú sem farg á Seyðisfirði. „Grátpögull harmafugl hnípir á húsgafli hverjum“. Skapti Jósepsson. ---------------------

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/141

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.